Þjóðmál - 01.09.2012, Page 89

Þjóðmál - 01.09.2012, Page 89
88 Þjóðmál haust 2012 fyrir því að þannig var það bara í líkönum hans, og að Keynes til mikillar undrunar tók hann eftir því að „it is an outstanding characteristic of the economic system in which we live that, whilst it is subject to severe fluctuations in respect of output and employment, it is not violently unstable“ (kafli 18, 3 . hluti) .[2] Líkan Keynes var því rangt, hann sá það sjálfur og viðurkenndi, en ríghélt í það engu að síður og notaði til að rökstyðja ríkisafskipti og miðstýringu hins opinbera . Höfundur eyðir mörgum orðum í að gagn rýna mælingar á vergri landsfram leiðslu og hagvexti (bls . 93 o .áfr .) og er það vel, en er fljótur að grípa í slíka tölfræði þegar það hentar honum, t .d . til að bera saman Sví þjóð og Bandaríkin . Svipaða sögu má segja um aðra tölfræði og „mælikvarða“ — þeim er mörgum hverjum hafnað en eru jafnharðan dregnir upp þegar höfundi þykir það þjóna málstað sínum . Til dæmis séu mælikvarðar á „markaðsfrelsi“ alveg ómögulegir og byggi á „röngum forsendum“ (bls . 78), en það þó nefnt að Svíþjóð sé „samkeppnis hæfasta land í heimi“ (bls . 122) samkvæmt ein- hverri vísitölusmíðinni, og það talið Svíþjóð til tekna, og forsendur þeirrar vísitölu ekki dregnar í efa . Gamlir og morðglaðir kommúnistar fá hrós hér og þar í bókinni . Maó „mátti eiga að hann stuðlaði að auknu læsi“ (bls . 122) og tryggði öllum „lágmarks heilsugæsl[u]“ (bls . 122) . (Kannski var sú heilsugæsla svipuð þeirri kúbversku — opin öllum og „ókeypis“, en lyfin bara aðgengileg á svörtum markaði fyrir erlendan gjaldeyri?) Sagnfræði Stefáns er líka áhugaverð . Að mati höfundar (bls . 84) er hægt að tala um „jafnaðarskeiðið“ eða „ríkisþátttökuskeiðið“ í Bandaríkjunum (1945–1980) og „frjáls- hyggjuárin“ (1980–2008), þar sem ríkis- valdið bandaríska hefur raunar kald hæðn- is lega þanist út á hinu síðara tíma bili mið að við hið fyrra, bæði í formi skatt heimtu og reglugerða . Skömmu síðar er hið banda- ríska heilbrigðiskerfi tekið á beinið og það kallað dýrt og banvænt nýburum, en þá er gripið til tölfræði „frjálshyggju áranna“ sem eru jafnframt þau ár þar sem ríkis valdið í Bandaríkjunum þandi sig hvað mest út í heilbrigðismálum, að evrópskri fyrir - mynd . Öllu ægir því saman í bókinni, og það plokkað út sem hentar boðskap höf- undar, sem er sá að Bandaríkin séu „gósen- land“ markaðshyggjunnar (bls . 84), frjáls- hyggjunnar og „kreddunnar“, og þar varð hrun . Stefán lætur ekki staðar numið við að handvelja tölfræði, tímabil og lönd til að undirstrika mátt hentistefnunnar . Hann gagnrýnir líka heilu bækurnar út frá inngangsorðum þeirra, í stað þess að lesa bækurnar og sjá að núverandi gagnrýni hans á þær hefur í raun verið svarað . Árás Stefáns á hina svokölluðu athafnafræði (e . praxeology) Ludwigs von Mises (bls . 55– 56) ber þess sterklega merki . Hvað sem því líður er margt í bók Stefáns sem er vert að hugleiða og taka til umhugsunar . Sú söguskoðun hans, að það hafi verið tiltekinni hugmyndafræði að kenna að hið íslenska hagkerfi varð fyrir miklum skelli haustið 2008, er rétt . Hug- myndir stjórna hugarfari almennings . Þær eru grundvöllur samfélagsins hverju sinni . Nái hugmyndir um tiltekið fyrirkomulag ríkisins að heilla hug almennings er líklegt að því fyrirkomulagi ríkisins verði komið á . Verði það vinsæl hugmynd að ríkisvaldið eigi eitt að geta ákveðið hvaða peninga einstaklingar og fyrirtæki þeirra eigi að nota til að stunda viðskipti með mun ríkisvaldið taka að sér einokunarvald í peningaútgáfu . Ef hægt er að sannfæra almenning um þá hugmynd að ríkisvaldið eigi að lána áhættusæknum bönkum „til þrautavara“ þegar fjárhættuspil þeirra kemst í ógöngur

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.