Þjóðmál - 01.12.2013, Blaðsíða 34
Þjóðmál VETUR 2013 33
Reykja víkur til Suðurnesja og Kefla víkur-
flug vallar . Þessi braut létti einnig á Miklu-
braut, Bústaðavegi og akstri til Kópa vogs,
Garða bæjar og Hafnarfjarðar . Að auki væri
braut in nýr útrásarvegur frá Reykjavík vegna
náttúru hamfara . Þessi nýi flugvöll ur þýðir
að afhenda má allt gamla flugvallar svæðið til
byggingar fyrir stækkun miðkjarna Reykja-
víkur auk mikilla landfyllinga á Skerja fjarð-
ar svæðinu, þar sem komið væri skjól fyrir
vestanáttinni .
Vegna sjávarlöðurs á flug vélar og flug-brautir legg ég til að sjáv ar megin
vestan við brautirnar verði steyptir sterkir
veggir með steyptum súlum, en á milli
þeirra kæmu a .m .k . tveir boltaðir bitar,
ál- eða stálbitar . Á þessa bita væru boltaðir
langir rekadrumbar, einn sjávarmegin en
tveir á móti til þess að brjóta vindinn og
hefta sjávardrif í stórviðrum . Meira mætti
gera með því að byggja annan steypuvegg
innan við og bolta á bita afsagaðar „Alaska-
aspir“, 12–17m háar, með öllum greinum
á sama hátt og rekabolina . Sjávardrifið
myndi verja aspirnar fyrir fúa og slá vindinn
mikið niður . Flugvöllur á Hólmsheiði
(Hólmaskeiði) yrði afleitur . Hann yrði í
150m hæð yfir sjávarmáli, þokur og ísing
væru þar tíðar og lendingar verri vegna
vinda og afstöðu til fjalla . Meira flug yrði
yfir byggð . Á Reykjavíkurflugvelli yrði hægt
að lenda úr þrem áttum frá sjó og hann gæti
verið varaflugvöllur fyrir Keflavíkurflug-
völl .
Mikill skaði væri að hafa ekki flug-völl í Reykjavík og mikið óhagræði
ásamt tekju missi . Flestar þjóðir hafa
flugvöll eins nálægt höfuðborginni og
kostur er . Höfuðborg in myndi setja ofan
ef hrekja ætti völlinn úr Reykjavík til
tjóns og óhagræðis fyrir íbúa landsins utan
höfuðborgarsvæðisins . Ekki síður er það
fáránlegt þegar við höfum á næstu 10–15
árum möguleika á að færa flugbrautirnar
út á Löngusker og flughöfnina suður yfir
gömlu austur-vestur-brautina, suður fyrir
Skildinganes á olíuafgreiðslu Skeljungs við
núverandi flugbrautir .
Benda má á að til að gera akbrautir frá
Fossvogi yfir Álftanes að Bessastaðavegi
ásamt uppfyllingu undir völlinn og frekari
landvinninga fyrir Reykjavík í Skerjafirði í
framtíðinni er völ á gefins þúsundum smá-
lesta af fyllingarefni af Reykja víkursvæðinu .
Í framtíðinni þurfa menn að losna við
allan gröft og sprengt efni undan stórum
og smáum byggingum ásamt bílahúsum og
há hýsum og allt að 3ja hæða niðurgröfnum
kjöllurum .
Ekki má gleyma því að flugbrautir Reykja-
víkurflugvallar á Lönguskerjum og Hólm um
yrðu glæsilegur varaflugvöllur fyrir Kefla-
víkurflugvöll sem lenda mætti á á þrjá vegu
yfir sjó með stefnuvita frá Jörundar boða og
Kerlingarskeri vegna blind flugs lend inga .
Á þessum skerjum auk Lambastaða skers
mætti gera öldubrjóta vegna vestan áttar og
sjáv ar gangs . Fyllingarefni utan þess sem er
gefins er tiltækt af botni, sem er merkt ur
„sand og malargryfja“ í Faxaflóa og Hval-
firði og er ódýrt fyllingarefni .
Varðandi þessar miklu uppfyllingar og
stór grýtissjávarvörn er þess að geta að mikil
kunnátta til slíkra verka er til í landinu .
Benda má á Sundahöfn, Keflavíkurhöfn
og Þorláks höfn . Hafnarstjórn Reykjavíkur
ræður yfir góðum tækjum til slíkra fram-
kvæmda . Geta má afreka okkar manna
vegna hafnar framkvæmda í Ísrael og Noregi .
Landið út yfir Hólma og Löngusker, sem
ég bendi hér á að verja fyrir úthafsöldunni,
er miklu stærra en flugvöllurinn þarfnast .
Til skjóls á flugvellinum þyrfti að byggja
vöruskemmur, verkstæði, bílastæði, bíla-
geymslur og ýmsar byggingar varðandi
rekst ur inn . Ekki má gleyma flugskýlum .