Félagsbréf - 01.08.1961, Síða 38
36
FÉLAGSBRÉF
Þeir hafa drukkið nokkuð fast, þjónninn þó öllu meira. Samtalið hefur
verið slitrótt, þjónninn svarar alltaf játandi. Hann er óvanur rökræðum,
og gesturinn ólíkur þeim mönnum, sem hann daglega talar við.
Gesturinn, sem hefur ákveðinn tilgang í huga, gerist nú órólegur. Hann
gleðst þó yfir örlæti þjónsins við drykkjuna. Honum finnst það styrkja
fyrirætlan sína.
Gesturinn hugsar: Þessi þjónsálka er þverhaus. Það fæst ekkert gagn-
legt upp úr honum. Hann er annaðhvort heimskur eða slunginn, nema hvort-
tveggja sé. Það er ógerningur að halda uppi skynsamlegum samræðum
við hann, og rétt vel fullur ætlar hann ekki að verða.
En upphátt segir liann:
— Er þessi atvinna yðar skemmtileg? Og er hún lífvænleg? Geðjast yð-
ur að henni? Ætlið þér að gera þetta starf að ævistarfi yðar? Mér hefur
skilizt, að þér séuð ekki ánægður?
— Ég er brjóstveikur, og skipti um atvinnu við fyrstu hentugleika,
svarar þjónninn.
— Einmitt, já — jæja, eigum við að fá okkur einn gráan til?
— Já — látum hann koma, þeir horfast eldsnöggt í augu.
I augum gestsins má lesa eitthvað á þessa leið: Auðvirðilega þjónsálka,
einfeldingsgreyið. Það sem þú átt handan í stofunni, var of gott fyrir þig-
Þú munt vissulega ásaka mig. En til þess hef ég boðið þér hingað í kvöld,
að ég ætla mér að leika á þig.
En í augum þjónsins má lesa eitthvað á þessa leið:
— Þú voldugi borgari, þú sem ert menntaður, ríkur og mikilsmetinn. Ef
þú vissir að eirin tvöhundraðasti hluti auðæfa þinna mundi nægja til þess
að gera mig ríkan og hamingjusaman — mundir þú þá fúslega láta þau
af hendi?
Upphátt segir gesturinn:
•— Þjónar í veitingahúsum eru undirmálsmenn og drykkjupeningarnir
eru ölmusur. — Ég get ekki skilið að heiðarlegir og heilbrigðir karlmenn
leggi sig niður við slíka atvinnu.
Við þessi orð gestsins tekur þjónninn viðbragð á stólnum, augu þeirra
mætast eldsnöggt, og þjónninn sér djöfullegan glampa í augum gestsins-
Gesturinn stendur snöggt upp, drekkur út úr glasinu.
Gesturinn segir: — Þetta er mín skoðun, en þér hafið sjálfsagt aðra
skoðun á þessu máli?