RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Side 48

RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Side 48
RM HANNES SIGFÚSSON andblærinn bar þær til og frá um vatnið. Hann liorfði líka á endurnar og sá þær berast fram og aftur um tjörnina. Fyrir ofan grasbrekkuna gegnt honum var vegur og um hann fór stöku sinnum gangandi maður eða blístrandi strákur með sundföt undir handleggnum. Ann- ars var allt kyrrt. Þegar hann lxafði setið þannig um stund, kom lítill drenghnokki niður að tjörninni, allt að sjö ára, og settist á stein skammt frá lion- um. Hann raulaði fyrir munni sér einhverja lagleysu, studdi hönd undir kinn og liorfði í tjörnina og á endurnar, líkt og sá er fyrir var. Hvorugur sagði neitt. . Tíminn leið. Þá sneri maðurinn sér að drengnum og kallaði yfir til hans: — Hefurðu gaman að öndum? Drengurinn virti manninn lengi fyrir sér áður en hann svaraði. Síðan sagði hann: — Já. Maðurinn sagði: — Komdu hingað og talaðu við mig. Drengurinn stóð upp, gekk fáein skref í átt til mannsins og hváði: — Hvað segirðu? — Komdu liingað og talaðu við mig, sagði maðurinn. Við skulum spjalla dálítið saman, fyrst við höfunt báðir gaman af öndum. Drengurinn settist liikandi. — Hafa endurnar verið hér lengi? sagði maðurinn. — Tvö eða fimm ár, sagði drengurinn. — Býrðu hérna skammt í burtu? — Nei, ég bý alla leið úti á tanga. — Og samt kemurðu alla leið hingað til að sjá endumar. Kem- urðu hingað oft? — Já, já. — Þykir þér svona gaman að öndunum ? — Ja-á. — Að sjá þær -synda? — Já, og éta brauðið sem mað- ur gefur þeim. Þær éta líka gras. — Verða þær mjög gamlar? -— 0, svona sextíu eða sjötíu: — Hvað ert þú gamall? -Ég er sjö. Ég vildi óska að ungarnir færu að koma. Þeir eru svo litlir. -—- Ungarnir eru eins og litlir bandhnyklar, sagði maðurinn. —' Er það ekki? — Jú. Og þeir tísta voða lágt- Þessi þarna var ungi í fyrra. — Af hverju sérðu það? Hún er alveg eins stór og hinar. —- Ég þekki liana, sagði hann- Hún heitir Nína. Henni þykja ákaflega góðir ormar. — Þekkirðu allar endurnar raeð nafni? — Já, allar. Nína, Petra, Sigga^ Hulda, Pési og Páll. — Þú kannt fyrir þér, sagði 46
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

RM: Ritlist og myndlist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: RM: Ritlist og myndlist
https://timarit.is/publication/1205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.