Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Side 67
HORÐUR KRISTINSSON:
ÍSLENZKAR ENGJASKÓFIR
Engjaskófaættinni (Peltigeraceae) tillieyra hér á landi 3 ættkvíslir
af fléttnm: Peltigera, sem eru hinar eiginlegu engjaskófir, Nephroma
og Solorina (sekkjaskófir). Af þessum ættkvíslum til samans finnast hér
á landi 21 tegund, og heyra þar af 12 undir Peltigera, 5 tilheyra Neph-
roma og 4 eru af So/orma-ættkvíslinni. Önnur náskyld ætt, Stictaceae
er einnig tekin hér með, sem aðeins hefur eina íslenzka tegund. Allar
þessar skófir eru ntyndaðar við sambýli asksvepps við keðjulaga blá-
græna þiirunga (Nostoc) eða við kúlulaga grænþörunga.
Ættkvíslin Peltigera er algengust þessara skófa. Það eru oftast stór-
ar skófir, geta orðið yfir 10 cnr að stærð, grænar, gráar eða brúnar, stund-
um með svörtum dröfnum. Oft er eins og dökkt æðanet kvíslist um
neðra borð þeirra, og sker það sig mjög úr hvítum giunni á sumum
tegundum; á öðrum eru æðarnar ógleggri og breiðari og renna stund-
um alveg saman í eitt. Þetta einkenni er oft notað til að greina á milli
tegunda. A sumum skófum koma separ (isidia) út úr efra borði og geta
ýmist verið aflangir eða hnöttóttir. Á öðrum koma fyrir duftkennd út-
brot (soredia). Þessi útbrot eru auðþekkt frá sepunum á því, að ef kom-
ið er við þau með fingri, loðir við hann ljósleitt duft. Þetta duft eru
örsmáar kúlur, sem innilialda bæði sveppþræði og þörunga, og geta
þær vaxið upp og orðið að nýjum einstaklingum. Æxlun á þennan hátt
liefur þann kost, að bæði sveppurinn og þörungurinn, sem mynda
fléttuna, berast samtímis á nýja vaxtarstaðinn. Disklaga askhirzlur
(apothecia) eru á engjaskófunum út við jaðarinn á efra borði, en þær
vantar oft á sumum tegundum. Ef þversnið af askhirzlu er skoðað í
smásjá má sjá, að þær innihalda fjöldann allan af litlum gróhirzlum,
sem nefnast askar (asci), og hver þeirra inniheldur 8 gró. Æxlun með
askgróum hefur þann ókost, að aðeins sveppurinn berst á þann hátt á
nýjan vaxtarstað, og getur því ekki ný flétta orðið til, nema tilsvarandi
þörungur berist líka þangað á einhvern hátt, eða sé af tilviljun þar
fyrir.
5 TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆBI - Flóra 65