Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.09.1980, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1980 10 BLðM VIKUNNAR UMSJÓN: ÁB. ® MEIRA UM EPLATRÉ Fyrir nokkrum vikum birtist í þættinum frásögn eftir Halldóru Bjarnadóttur um eplatré sem staðið hafði í miklum blóma á Akureyri á fyrsta áratug þessarar aldar og voru þá lesendur þáttarins beðnir um upplýsingar sem þeir kynnu að lúra á um ræktun aldintrjáa hér á landi. Ekki varð nú árangurinn af þessari málaleitan mikill en þó fékk ég spurnir af því að Jónas heit. Þór verksmiðjustjóri á Akureyri hefði um skeiö fengist við ræktun slikra trjáa og hjá börnum hans fékk ég staðfestingu á þessu og ennfremur að eitthvað myndi hafa verið skrifað um þessa ræktun föður þeirra í Garðyrkjuritið á sínum tíma. Og mikið rétt! í Garðyrkjuritinu frá 1947 fann ég greinarkorn sem Jónas Þór hafði sjálfur skrifað (1944) um ræktun sína og nefnir: r Islenzk epli (svar við bréfi) og er á þessa leið: „Ég á tvö eplatré í garði minum í Brekkugötu 34 á Akureyri. Trén fékk ég sem smáplöntur, ágræddar, frá Danmörku laust eftir 1930. Þau eru því nú ca. 14 ára gömul síðan þau komu til landsins. Þau hafa vaxið mjög vel og mundu hafa blómgazt mikið fyrr ef þau hefðu ekki orðið fyrir misfellum hvað eftir annað. Tvívegis hef ég orðið að taka þau upp og flytja þau til vegna þess að ég átti sjálfur enga lóð til að setja þau í þegar þau komu. Fyrir tveim árum flutti ég þau svo heim að nýbyggðu húsi mínu, þar sem þau fá nú að standa í friði með umhirðu sem þau þarfnast. Þau eru nú rúmir 2 m á hæð, en of krónumikil til þess að þau geti borið ávexti eðlilega, en hugmyndin er að klippa þau eftir þörfum þegar á líður veturinn. Tré þessi eru sitt af hvorri tegund. Ég veit því miður ekki hvaða tegund þroskameira tréð er, en hitt er Skovfoged og það var það sem bar ávöxt í sumar, 11 epli talsins. Hitt tréð virðist hafa mjög mikla frjóvgunarörðugleika, því það blómgaðist mjög vel sl. sumar, en ekki eitt einasta blóm frjóvgaðist. Stóðu trén með fullum blóma 23. júní. Eplatré í garði Jónasar Þór á Akureyri. (Myndin er tekin fyrir 1950). Ég hafði áður, 1926, fengið eina eplatréplöntu sem fæddi einu sinni 3 epli. Það tré var afar viðkvæmt og sálaðist 2 árum eftir að ég flutti úr því húsi sem það tilheyrði. Því miður var flestum eplunum stolið af trénu frá mér í haust, áður en ég gæti viktað þau og mælt eins og ég ætlaði þó að gjöra, en veðráttan var svo mild og hlý um það leyti að ég ætlaði að lofa eplunum að þroskast eins lengi og veðráttan leyfði.“ J.Þ. Neðanmáls bætir þáverandi ritstjóri Garðyrkjuritsins, Ingólfur Davíðsson, við: „I Reykjavík þroskuöust epli hjá Jóni Arnfinnssyni garðyrkjumanni og víðar í sumar sem leið. Var tíðarfar óvenju hagstætt um allt land.“ Um „Reykjavíkur-eplin" er mér alveg ókunnugt en ef einhverjir eru sem á því kunna skil og vilja leggja orð í belg mun „Blóm vikunnar" taka því þakksamlega. En svo að lokum verði örlítið vikið aftur að ræktun Jónasar Þór má geta þess að í dagbók hans frá árinu 1950 segir: 28. júlí. Sex epli tekin, áður sjö, það stærsta 180 gr. 18. okt. Tekin 11 epli. Þetta sama sumar voru og teknar þroskaðar ferskjur af tré í gróðurhúsi svo og 4 kg. af vínberjum og má af þessu marka að þarna hefur um talsverða aldinrækt verið að ræða hér á okkar nnrðlæcra landi. Ums. Ýmiss konar hugsunar- og athugunarleysi má oft sjá í höfuðborgarumferðinni. Menn leggja bílum á gangstéttir og trufla stórlega umferð gangandi, hrekja þá út á akbrautir og tefja um leið bílaumferð. Strætisvagninn er á biðstöð, en Cortinan kemst ekki framhjá honum þar sem bíll fyrir framan hana hefur staðnæmst og hirðir ekki um þann sem fyrir aftan er. Ljósm. Kristján. Verðlækkun hjá British Leyland UM þessar mundir taka að streyma á markað nýju árgerð- irnar og i sambandi við það er viða til umræðu verðlagning og söluáætlanir. British Leyland hefur ákveðið að lækka nokkuð verð á bílum sinum, m.a. Austin Mini og Allegro. BL mun lækka verð flestra tegunda sem verksmiðjan fram- leiðir um 100 til 500 pund. Mini og Allegro munu lækka um ailt að 300 pund og Rover 2300 og 2600 um 300 pund. Með þessu hyggjast verksmiðjurnar ná betri sölu heima fyrir, en þær hafa átt í vaxandi samkeppni við erlenda bíla, ekki síst japanska. Þá greinir í fréttum frá Nor- egi að sívaxandi sala japanskra bíla þar í landi hafi í för með sér að innflytjendur annarra bíla muni reyna að selja nýju árgerð- irnar á svipuðu verði. 1980 ár- gerðin af Volvo 340 seríunni hefur verið lækkuð í Noregi um 5000 n.kr. og þegar nýja árgerðin kemur mun hún verða um 4% dýrari. 1981 árgerðin af 240 gerðum Volvo mun í Noregi hækka um 4,8%, en af 244 og 245 GL gerðimar munu lækka í verði um 4,6% í Noregi. Kostar þá árgerð 1981 af Volvo 244 GL 102.000 n.kr. en 1980 árgerðin kostar þar nú um 106.800 n.kr. Bílgreinasambandið: Skoðunin færist inn á bílaverkstæðin Bílgreinasam bandið hélt fyrir hafi frá árinu 1975 til 1978 farið smá sýnishorn af töflum úr nokkru aðalfund sinn að Laug- úr 7,6% í 12,3% og má sjá hér heftinu. arvatni og um leið voru haldnir sérgreinafundir bilainnflytj- enda, bílasala. bílamálara, bíla- smiða, almennra verkstæða og h jól barðaver kstæða. í ályktunum aðalfundar Bíl- greinasambandsins segir m.a. að bíll sé ómissandi, þýðingarmikið atvinnutæki, sem veiti tíunda hverjum Islendingi atvinnu SIGHVATUR BLÖNDAHL beint og óbeint, bíllinn hafi skapað búsetumöguleika sem ella væru ekki nýttir í dag og bíllinn væri nauðsynlegur skatt- stofn fyrir ríkissjóð þar sem tekjur af bílum og umferð færu sívaxandi meðan æ minna hlut- fall þeirra rynni til vega og umferðar. Þá er ítrekuð fyrri ályktun um að bifreiðaskoðun verði færð inn á almenn verk- stæði, þ.e. þau sem þess óska og hafa tilskilinn búnað. A aðalfundinum var lagt fram töfluhefti með töluiegum upplýs- ingum um þróun bílgreinarinnar árin 1970 til 1979. Þar kemur m.a. fram að hlutur tekna af bílum í heildartekjum ríkisins Bílar Innflutnlngur bila og varahluta Arlequr bilalnnflutnlnqur, fjQldi Ar 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1^79 1900 Alllr bilar 7608 6971 7880 10418 3352 4310 7558 8550 7955 5672 4 Fólksbilar 6927 6370 7224 9533 3048 3955 7000 7875 7262 5155 4 Aldursdreifing akráóra bila 1. janúar, 1980 Argerð 1926-61 62 63 64 65 íí 67 68 69 70 71 72 73 74 75 76 77 76 79 80 Hlutfall 4.9 L3 1,9 L6 2,3 4,^ 3.» 10 1,7 4Jí 7,9 76 7.2 13,3 15 4,2 7,7 1Q5 7,4 0,0 15.0V - Skráðjr bilar uni sióurtu árarót vcr- 90015 og ar hér sýnt : .utfall hvarrar árgerðar sca. próscrt af Jcir. fjclda. Htiriíldir:. hi f reióaakýrsia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.