Morgunblaðið - 08.09.1971, Blaðsíða 1
32 SIÖUR
201. tbl. 58. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1971
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Utanríkisráðherrafundur Norðurlanda:
ítreka stuðning við ör-
yggisráðstefnu Evrópu
Næsti fundur í Reykjavík í apríl
Kaupmannahöfn, 7. sept. NTB
FUNDI utanríkisráðherra Norð
urlanda latik í Kaupmannahöfn
í morgrun, með því að ráðherr-
arnir svörnðu spurningum
fréttamanna á fundi. Þá gáfu
þeir út sameiginlega yfirlýs-
ingu, þar sem þeir fagna m.a.
Skotinn
á flótta
UNGUR A-Þjóðverji reyndi
að flýja yfir tU V-Berlínar
yfir múrinn sl. laugardag, en
var skotinn niður af a-þýzk-
um landamæravörðum áður
en hann komst yfir. Segja
sjónarvottar að skotið hafi
verið um 20 skotum á mann-
inn og að hann hafi fengið
kúlu í fæturna. Tveir verðir
drógu síðan manninn að
varðturni en siðan var hon-
um ekið á brott.
Á myndinni sjást a-þýzkir
landamæraverðir draga hinn
særða ntann á brott.
samkomulagi fjórveldanna um
Berlín, sem þeir telja mikUvægt
skref í átt tU þess að minnka
spennuna milli austurs og vest-
urs.
Mbl. átti I gær simtal við
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra og spurði hann um helztu
mál fundarins. Sagði Einar, að
mest hefði verið rætt um sam-
eiginleg mál og afstöðu Norður-
landanna á næsta allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna. Sagði
ráðherrann að Island hefði nú
snúizt á sveif með hinum Norð-
urlöndunum um að styðja aðild
Kína að Sameinuðu þjóðunum
og að Norðurlöndin myndu beita
sér fyrir því að Kina fengi sitt
sæti hjá S. Þ. Þá var einnig
rætt um hugsanlega öryggis-
máiaráðstefnu Evrópu.
Mbl. spurði ráðherrann hvort
hann hefði komið landhelgis-
málinu að og kvaðst hann hafa
haldið stutta ræðu um það mál,
þar sem hann hefði skýrt sjón-
armið Islendinga. Einnig ræddi
ráðherrann landhelgismálið í
einkaviðræðum utan fundarins.
Aðspurður um viðbrögð hinna
ráðherranna, sagði Einar að þau
hefðu yfirleitt verið vinsamleg,
þeir hefðu lýst yfir skilningi á
sérstöðu Islands, en að öðru
Framhald á bls. 21
Hamborg:
Hundrað lifðu
af flugslysið
Jack Lynch:
„Sameining ríkjanna
eina lausnin 4
Maudling til Belfast
London, 7. sept. — AP-NTB
TVEGGJA daga viðræðu-
fundi þeirra Edwards Heaths,
forsætisráðherra Bretlands
og Jacks Lynchs, forsætisráð-
herra írlands, lauk í dag og
sagði Lynch á fundi með
fréttamönnum eftir fundinn,
að hann teldi sameiningu
írsku ríkjanna einu lausn
málsins.
Hann sagði að Hcath hefði
ekki fallizt á tillögur sínar, en
vildi ekki gera nánari grein
fyrir þeim, er fréttamenn
spurðu í hverju þær hefðu
verið fólgnar. Lynch sagði að
skipzt hefði verið á skoð-
unum á fundinum, hann
hefði verið gagnlegur og ann-
ar fundur boðaður síðar.
AP-fréttastofan segir, að
Lynch hafi skorað á Heath
að kalla til ráðstefnu full-
trúa Irlands, Bretlands, N-
í>rlands og fulltrúa kaþólska
minnihlutans í N-lrlandi, til að
reyna að semja um virkari aðild
Framhald á bls. 21
Hámborg, 7. sept. — AP
ÞAÐ virðist loks orðið ljóst,
að hundrað manns hafi kom-
izt lífs af úr flugslysinu í
Þýzkalandi í gær, og er það
þakkað snarræði og ró flug-
stjórans Rheinolds Huels, að
ekki skyldi verr fara. Hann
liggur nú á sjúkrahúsi, illa
slasaður. Ljóst er orðið, að
45 manns slösuðust í þessu
slysi af þeim, sem voru í
flugvélinni og þrír vegfar-
endur, er urðu fyrir hrotum
úr vélinni, sem flugstjórinn
nauðlenti á þjóðveginum
skammt utan við Hamhorg.
21 beið hana, þar af ein flug-
freyja.
Flugvélin, tveggja hreyfla
BAC 111 í eigu Pan International
Airlines, var á leið til Malaga á
Spáni. Farþegar voru 115 og sex
manna áhöfn. Bilun kom fram í
henni rétt eftir flugtak frá
Fuhlsbúttel-flugvelli við Ham-
borg. Tók flugstjórinn þá til
bragðs að reyna að nauðlenda
á hraðbrautinni en 1 lendingu
rakst hún á brú. Sprenging varð
í vélinni skömmu síðar en þá
Framh. á bls. 12
Hart í ári
Politiken
hjá
Fangaflóttinn í Uruguay:
Fór u um 35 metra göng
og óku burt í 3 bílum
Yfirmanni fangelsismála
vikiö úr starfi...
Kaupmannahöfn, 7. sept. NTB
BLAÐAMENN við danska dag-
blaðið Politiken mótmæltu í dag
harðlega uppsögn 15 blaðamanna
við blaðið og kröfðnst þess að
nppsagnirnar yrðu dregnar til
baka, Framkvæmdastjórn Poli-
tiken skýrði frá þessnm ráðstöf-
uniim í gær og ltvað ástæðurn-
ar efnahagslega erfiðleika. I>á
var einnig skýrt frá því að dreg
ið yrði úr öUum útgjöldum við
rekstur blaðsins.
Aðalritstjóri Politiken, Bent
Thorndal sagði, að á þessu ári
'hefðu auglýsingatekjur Politik-
en minnkað um 10%, sem sam-
svarar um 10 milljönum danskira
króna. Af blaðamönnunum 15
hafa 9 starfað við Politiken í
meira en 30 ár Oig eru þeir sett-
ir á eftirlaun flyrir tímann. Hin-
ir sex fá allir greiddan bónus,
er þeir láta af störfum. Dagblöð
í Danmörku eiga nú i miklum
fjiárhagserfiðleiikum og hefur nú
rúmlega eitt hundrað blaðamönn
um verið sagt upp á skfimraura
tíma.
Montevideo, Uruguay,
7. sept. NTB.
• YFIRMANNI fangelsis-
mála í Uruguay, Paswual
Cirilo, ol'ursta, hefur verið
vikið úr starfi vegna flótta
Tupamarosskæruliðanna í
gær. Þá hafa innanríkisráð-
herrann, Danilo Sena og
landvarnaráðherrann, Fred-
erico Carcia Capura, boðizt til
að segja af sér en ekki er
Ijóst, hvort af því verður.
Hugsanlegt er talið, að mál
þetta hafi áhrif á forseta-
kosningarnar í landinu, sem
fyrirhugað er að halda 28.
nóvember nk.
Fangarnir — 129 talsina —
flúðu um 35 m löng göng er
lágu í næsta hús við fangelsið,
Punta Carretas, en fangelsia
byggingin er hundrað ára
gömul. Maður að nafni Billy
Rial hringdi til lögreglunnar
og sagði frá því, að skæru-
liðarnir væru sloppnir en þá
trúði honum enginn. Þó at-
hugaði lögreglan málið og
hafðd samband við fangelsið
en fókk þær upplýsingar, að
þetta hljdi að vera misskiln-
ingur, því að þar væri allt með
kyrrum kjörum. Var Rial
skýrt frá þessu og tók
hann langa stund að sann-
færa lögregluna u>m, að þótt
allt væri svona rólegt í
fangelsinu vantaði þar yfir
hundrað fanga. Þeir hefðu
farið um göng, er lægju inn
í hús móður hans. Þar hefðu
þeir skipt um föt og ekið
burt í tveimur áætlunar-
vögnum og vöruflutningabíl.
Enginn fanganna hefur
fundizt, þrátt fyri,r víðtæka
leit, en stjórn landsins
hefur lýst því yfir að hún
muni beita ölium þeim ráðum,
sem lög landsins leyfa til þess
að mæta því alvarlega ástanidi
sem leitt getur af flótta skæru
liðanna.