Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1994, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
Fréttir
Guðjón A. Kristjánsson, varaþingmaður og formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins:
Eins og sjávarútvegsráð-
herra sé í mömmuleik
- hefur ítrekað neitað að ræða sjávarútvegsmál á þingflokksfundi, segir Sturla Böðvarsson alþingismaður
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur brugðist ókvæða við
frumvarpi 16 þingmanna, þar af 12
stjómarþingmanna, um að heimilað
verði að þorskur, grálúða eða karfi
séu allt að 15 prósent af afla skipa
við botnfiskveiðar á öðmm fiskteg-
undum. Þetta þýðir að skip, sem eru
búin með þorskkvóta sinn en em á
kola-, steinbíts-, ýsu- eða ufsaveiðum,
megi hirða þann þorsk sem slæðist
með. Nú er talað um að gífurlegu
magni af þorski sé hent í sjóinn hjá
þeim bátum sem em búnir með
þorskkvótann.
Þorsteinn Pálsson hefur kallað
frumvarpið hringavitleysu og
ábyrgðarleysi. Jafnframt því sem
hann segir það árás á ríkisstjórnina
og stefnu hennar í sjávarútvegsmál-
um.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins og varaþingmaður Sjáifstæðis-
flokksins, er fyrsti flutningsmaður
framvarpsins. Sturla Böðvarsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi, er annar flutningsmað-
ur. Þeir voru inntir álits á viðbrögð-
um sjávarútvegsráðherra.
„Ég hef ekki litið á þetta frumvarp
okkar 16-menninganna sem ein-
hveija uppreisn gegn ríkisstjórninni,
hvað þá ábyrgöarleysi. Af minni
hálfu er það hugsað til að taka á því
vandamáh sem fram undan er í fisk-
veiðunum og að reyna að fá eitthvað
vit í þau mál það sem eftir er fisk-
veiðiársins. Þorsteinn Pálsson setur
þetta þannig upp að frumvarpið sé
svo arfavitlaust að hann þurfi ekkert
að ræða viö menn enda sé allt í
himnastandi. Það hggur við að þetta
sé eins og krakki í mömmuleik,“
sagði Guðjón.
„Ég vísa því heim th föðurhúsanna
þegar sjávarútvegsráðherra kahar
frumvarp okkar ábyrgðarleysi og
árás á stefnu ríkisstjómarinnar í
sjávarútvegsmálum. Eina ábyrgðar-
leysið í þessu máh er ef ekki verður
gerð breyting á stjóm fiskveiða fyrir
þinglok," sagði Sturla Böðvarsson.
Hann sagðist hafa óskað eftir því
að sjávarútvegsmálin yrðu rædd á
þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks-
ins. Þorsteinn Pálsson hefði ítrekað-
aö vikið sér undan því. Þegar það lá
fyrir varð það niðurstaðan að flytja
þetta fmmvarp.
„Það kom fram á fundi efnahags-
og viðskiptanefndar, sem ég sat á
ísafirði siðasthðinn fimmtudag, hjá
fuhtrúa Alþýðusambands Vestfjarða
sem sat þann fund, að hvem dag
kæmu upphringingar frá sjómönn-
um úti á hafi sem kveinkuðu sér
undan því að þurfa að kasta þorski
í sjóinn og hve miklu væri hent. Þeg-
ar maður fær slíkar upplýsingar,
sem ég hef raunar fengið síðustu vik-
ur, að þorski sé hent í stórum sth,
þá er ekki annað hægt en að bregð-
ast við því. Ég vísa því þess vegna
algerlega á bug að þetta frumvarp sé
hringavitleysa og ábyrgðarleysi,"
sagði Sturla Böðvarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi og
annar flutningsmaður frumvarps-
ins. -S.dór
Kræklingsmið í Hvalfirði:
Hyggjast
veiða krækl-
inginn á gáma
Kristján Davíðsson málari og Ari
Guðmundsson fiskverkandi hafa
veriö aö gera thraunavinnslu á
krækhngi sem þeir hafa plægt upp á
hinum auðugu kræklingsmiðum í
Hvalfirði. Þeir hafa unnið skelina á
Akranesi og selt á innanlcmdsmark-
aði og ekki annað eftirspum.
„Við teljum það árangursríkara og
betri veiðiaðferð að veiða krækling-
inn í ghdrur, ef við getum kahað það
svo. Síðan er það draumurinn að
stækka vinnslustöðina á Akranesi
og skapa þar sjálfum sér og einhveij-
um hópi fólks atvinnu," sagði Krist-
ján í samtah við DV í gær.
Þaö er þekkt aðferð við að safna
krækhngi að leggja keðjur á hafs-
botninn. Skelin festir sig við keðjuna
sem síðan er hífð upp og skehn tekin
af. Þeir félagar sögðu að það mætti
hugsa sér þessa aðferð eða sökkva
gámum eða tönkum og láta krækl-
inginn setjast þar á. Síðan em þeir
hífðir upp eftir ákveðinn tíma og
skehn tekin af.
Þeir hafa leitað th atvinnumála-
nefndar Akraness vegna þessa og
fengið þar mjög jákvæðar undirtekt-
ir.
„Eina vandamálið í þessu er aö
verð fyrir krækhng erlendis er ekki
hátt. Það ætti þó að standa undir
kostnaði að selja hann út. Aðalatriðið
er að skapa sjálfum sér og öðmm
atvinnu með þessu," sagði Kristján.
-S.dór
ísafiörður:
Neyðarástand
Pétur Pétuissan, DV, ísafirði;
Á fjórða tug íbúa á ísafirði og í
Hnífsdal þurfti að yfirgefa heimili sín
í gærdag vegna snjóflóöahættu. Um
var að ræða 14 hús við 3 götur í
Hnífsdal og bæinn Seljaland, innst
við Skutulsfjörð. Starfsemi féll niöur
hjá 2 fyrirtækjum sem standa við
Skutulsfj arðarbraut og skólum var
lokað í Hnifsdal. Þá vom vegfarend-
ur beðnir um aö gæta að sér ættu
þeir leið um Skutulsfjarðarbraut og
Eyrarhlíð.
íbúum sem þurftu að flytja úr hús-
um sínum vegna flóðahættu var boð-
ið upp á húsaskjól í Framhaldsskóla
Vestfjarða á ísafirði. Nokkrir þágu
boðið og var Rauði krossinn fenginn
th aö taka á móti fólkinu. Flugsam-
göngur við ísafjörð lágu niðri í gær
og bíður fjölda farþega flugs.
jff
Guðný ÍS kom til hafnar i Bolungarvík síðdegis í gær, eftir að hafa oröið fyrir vélarbilun. Flosi ÍS tók Guðnýju í tog
og var sólarhring á leiðinni til iands, enda leiðinlegt sjóveður úti fyrir Vestfjörðum. Myndin er tekin þegar skipin
komu til hafnar i gær. DV-mynd GVA
Titringur innan Framsóknarflokksins 1 Kópavogi:
Ráku húsvörð fyrir
að umgangast krata
- og skiptu um skrár í félagsheimilinu svo hann kæmist ekki inn
Óánægja er innan Framsóknar-
flokksins í Kópavogi og meðal hlut-
hafa í Framnesi hf., sem á félags-
heimhi Framsóknarflokksins við
Digranesveg, eftir að meirihluti
stjórnar Framness yfirtók félags-
heimilið á stjómarfundi á laugar-
daginn og rak framkvæmdastjóra
þess, Svein Gamalíelsson, vegna
gagnrýni hans á Sigurð Geirdal
bæjarstjóra og kunningsskapar við
Kristján Guðmundsson, fyrrver-
andi bæjarstjóra og annan mann á
hsta Alþýðuflokksins í Kópavogi.
Skipt hefur verið um ahar skrár í
félagsheimihnu og Sveini tilkynnt
að hann geti tekið við fram-
kvæmdastjórastarfinu aftur eftir
kosningar.
Haldinn var stjórnarfundur í
hlutafélaginu Framnesi á laugar-
daginn að ósk meirihluta stjómar-
innar þar sem fuhtrúar Framsókn-
arflokksins lögðu fram tihögu um
að flokkurinn yfirtæki húsnæðið
og rekstur þess þann tíma sem eft-
ir er fram að kosningum en Sveinn
Gamalíelsson er einn af stærstu
hluthöfum í Framnesi hf. og hefur
hann séð um rekstur hússins kaup-
laust í rúm þrjú ár.
„Það er rétt sem þú segir að
meirihluti stjórnarinnar beitti
vafasömum vinnubrögóum og yf-
irtók rekstur hússins á stjómar-
fundinum á laugardag. Ég held að
ég geti ekki notað mhdara orðalag
yfir það. Framsóknarflokkurinn
hefur ahtaf haft afnot af þessu hús-
næði fyrir kosningar og ekki stóð
annað th núna. Eg er ekkert reiður
yfir að ganga út úr húsinu í tvo
mánuði en félögum mínum og hlut-
höfum ýmsum hefur gramist að ég
skuh ekki fá að vera inni í húsinu.
Ég er fæddur framsóknarmaður og
fer ekki dult með það,“ segir Sveinn
Gamahelsson.
„Ég var ekki í bænum um pásk-
ana og hef því ekki hugmynd um
hvað hefur gerst þá. Þaö eina sem
ég vissi um þetta mál var aö við
áttum að fá þetta húsnæöi í notkun
fyrir kosningar og ýmsar tilfæring-
ar kringum það. Ég styð ahar lög-
mætar aðgerðir stjórnarinnar en
ég hef engin yfirráð yfir stjórninni
og ég veit ekki hvað stjómarmönn-
um hefur farið á mhh,“ segir Sig-
urðurGeirdalbæjarstjóri. -GHS
Örn og Öriygur f
greiðslustöðvun
Bókaútgáfan Öm og Örlygur hefur
farið fram á greiðslustöðvim og öll-
um starfsmönnnum fyrirtækisins, 12
að tölu, hefur verið sagt upp störfum.
Beiðni um greiðslustöðvun var lögð
fyrir dómara í vikubyrjun en búist
er við úrskurði hans í næstu viku.
Útgáfan hefur átt í nhklum
greiðsluérfiðleikum. Öm og Örlygur
hafa haft með höndum „metnaðar-
mikla og þunga“ útgáfu og en eftir
því sem DV kemst næst hefur útgáfa
Alfræðiorðabókarinnar verið fyrir-
tækinu afar þung í skauti.
Samkvæmt heimhdum DV er þol-
inmæði kröfuhafa nú á þrotum. Ekki
hggur fyrir hverjar heildarskuldir
útgáfunnar eru en Örlygur Hálfdán-
arson, eigandi útgáfunnar, vhdi ekki
tjá sig mikið um máhð að svo stöddu
né lögmaður sá sem hafa mun thsjón
með fyrirtækinu.
Væntanlegur greiðslustöðvunar-
tími verður notaður th að skoða
rekstur útgáfunnar og rekstrar-
grundvöh og mögulegar leiðir th end-
urskipulagningar. -hlh
Stuttar fréttir
Lækkunín skílaði sér
Lækkun virðisaukaskatts á
matvæli hefur skhaö sér th neyt-
enda. Þetta er niöurstaða ASÍ.
íbúdafjöldi í Reykjavik
Alls vom 39.870 íbúðir í Reykja-
vík í lok síðasta árs, þar af 31.855
í fjölbýh og 8.015 í sérbýli.
Minniaflahlutdeild
Aflahlutdehd 23 skipa á Norð-
urlandi hefur minnkað um rúra-
lega þrjú þúsund tonn vegna
veiða smábáta. Bylgjan skýrði frá
þessu.
FullgQding heimiluð
Alþingi hefur heimhað ríkis-
stjóminni að fuhgUda fríverslun-
arsamninga EFTA-ríkjanna við
Búlgaríu, Rúmeníu og Ungverja-
land. RÚV greindi frá þessu.
Fleiri hjartaaðgefðir
Til stendur að fjölga þjartaað-
gerðum á Landspítalanum.
Könnun sýnir að vanhöan hjarta-
sjúklinga, sem bíða eftir aðgerð,
getur aukið kostnaðinn við þær.
Bylsan skýrði ffá þessu.
Rektorendurkjörinn
Sveinbjöm Bjömsson var end-
urkjörinn háskólarektor th
tveggjaáraígær. -kaa
\