Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 17

Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 17
Sálfræðistöðin í Reykjavík heldur námskeið fyrir togarasjómenn og eiginkonur þeirra: „Líf sjómannafjölskyldna á sér enga hliðstæðu í þjóðfélaginu” sálfræðingur Guðfinna Eydal, sálfræðingur, telur að gera þurfi rannsókn á lífi og aðstœðum fjöl- skyldna togarasjómatma þannig að betri upplýsingar fáist um áhrif mikilla fjarvera heimilifóðurins frá fjölskyldunni segir Guðfinna Eydal Líf sjómanna vikum saman fjarri fjöl- skyldum sínum er nokkuð sem reynir mikið á þá sjálfa og einnig þá sem í landi eru, eiginkonurnar og börnin. Fjölskyldusamböndin geta veriö und- ir miklu álagi og þaö getur reynt mik- ið á hjónabönd viö þessar aðstæður. Mikil fjarvera frá heimilinu er ekki abeins sú staba sem gerir sjómanns- starfið frábrugbið öbrum heldur einnig ab sjómannsfjölskyldur búa vib gjörólíkan raunveruleika þegar sjómaðurinn og sjómannskonan eru aðskilin og hafa Iítil tök á að deila daglegu lífi, ánægju, glebi og sorg saman.. Loks eru svo þær aðstæður sem geta skapast á skipunum sjálfum í samskiptum manna, dagleg sam- skipti í þessu litla og lokaða karla- samfélagi sem áhafnir skipanna oft- ast eru Sálfræðingamir Guðfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir hjá Sálfræði- stöbinni í Reykjavík hafa verið meb áhafnir skipa á námskeiðum í vinnusál- fræði og samskiptum. Þar er því ekki aðeins tekið á málum sem snúa að áhöfnunum sjálfum heldur er hluti námskeiðsins einnig fyrir sjómanns- konurnar sem oft vilja gleymast í um- ræðunni um sjómannsstarfið. Guðfinna segir áhuga sjómannanna á námskeið- unum mikinn og hún er ekki í vafa um að gott væri að ítarleg úttekt yrði gerð á aðstæðum og lífi sjómanna og sjó- mannafjölskyldna til að draga fram í dagsljósið aðstæður þessa fólks og stað- reyndir um þær goðsagnir sem oft heyr- ast um störf sjómanna. Upphaflega byrjuðu námskeið Sál- fræðistöðvarinnar fyrir áhafnir á frysti- togurum Granda hf. en síðan hafa nám- skeib verið haldin víðar um landið. „Sjómenn og fjölskyldur þeirra eru sérstæður hópur í þjóðfélaginu. Þetta fólk er aö takast á við líf sem er mjög frábrugðið hefðbundnu fjölskyldulífi fólks sem starfar í landi. Það reynir miklu meira á marga hluti þegar fólk er aðskilið tímunum saman og eiginkonan þarf að vera verkstjóri og framkvæmda- stjóri í landi á meban sjómaburinn er úti á sjó á einhæfum vinnustaö, gjarn- an undir miklu álagi. Svona aðstæbur reyna öðruvísi á fólk og grundvallar- munurinn á sjómannafjölskyldum og öðrum er að í raun er fjölskyldulífið tvöfalt, þ.e. fjölskyldulífið með sjó- ÆGIR 1 7

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.