Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 154

Helgafell - 01.01.1943, Blaðsíða 154
140 HELGAFELL vakir fyrir honum? hver er saga skáldsins á bak við söguna? Það vœri ekki sanngjarnt, að fella þann dóm í miðjum klíðum þessa verks, að Guðmundur skrifi yfirleitt sögur sínar af því einu, að hon- um sé óvenjulega létt um það, þótt ástæða væri stundum til að hugsa eitthvað á þá leið. Ég tel að vísu kröfur, hvað þá fyrirskipanir, til rithöf- unda um ákveðinn tilgang með skáldskap þeirra óframbærilegar, fyrst og fremst af því, að trú þeirra á þann tilgang verður að koma innan að, en þó mun mála sannast, að einmitt listar sinn- ar vegna sé hverjum höfundi það nauðsynleg hvöt og styrkur að þjóna tilgangi, sem hann telur æðri listinni sjálfri, og líklega á þetta ekki sízt við um nútímahöfunda. Mér virðist, að Guð- mund skorti enn sem komið er slíkan tilgang og markmið, og dreg ég þá ályktun ekki sízt af viðhorfi hans til sögupersóna sinna. Hann er að vísu of góðlátur eða ef til vill of tómlátur til þess að beita þær ranglæti, en oft næsta skillít- ill gagnvart þeim og virðist stundum furðu ósárt um þær, eins og hann hugsaði sem svo, að nóg sé til af þessu á Hæðarenda, svona fólk geti maður alltaf búið til. Þetta er þó ekki algild regla, t. d. virðist hann sjálfur kenna ein- hverrar frændsemi við hinn unga mann Regin- vald í þessari sögu, og láta sér ekki á sama um hann standa. Því miður gætir hins sama skeytingarleysis oft og einatt í vinnubrögðum, sem ættu þó að vera orðin höfundinum sjálfráðari. Of mörg til- drög og atvik í sögunni eru með reyfarablæ, og á sama hátt veður orðaval og stíll nokkuð á súð- um. Þó sker mest í augu, hversu ósýnt eða lít- ið annt honum er um að fara hæversklega með það, sem hann hefur sótt til annarra höfunda (Hagalíns, H. K. L., Sinclair Lewis*), í stað þess að tileinka sér heilsusamleg áhrif af því tagi á persónulegan hátt, eins og hverjum höfundi má þó vera að réttmætu liði. Reyndar er sanngjarnt að taka það fram, að þessa gætir síður en svo meira í þessari sögu hans en oft áður, en það verður aðeins því óviðfelldnara sem lengra líð- ur. Þessi saga hefur það til síns ágætis fram yfir Eld, að hún gerist að mestu á Su&urlandi, og þar nær Guðmundur staðarblænum að vanda með fágætum hætti; landslag, loftslag og allur sveitarsvipur verður raunverulegra og jafnvel mennskara en einstakar sögupersónur. I þessu næma skyni á svip og jafnvel sál átthaganna, ásamt fjörlegum stíl og frásagnargleði eru skáld- kostir Guðmundar fólgnir, en sálarlíf mannfólks- ins ,,á bak við söguna“ virðist hins vegar ein- att vera án þeirrar dýptar og innri átaka, sem geri það sjálft, og sambúð þess um leið, raun- verulegt og sannfærandi. M. Á. Enn um „þjóðsögur og gervi- þjóðsögur“ í síðasta hefti Helgafells ritar dr. Simon Jóh. Ágústsson um nokkur sagnasöfn, sem nú eru aö koma út. Þykir mér þar kenna nokkurs mis- skilnings, sem lesendanna vegna er vert að henda á, og einnig nokkurrar ósanngirni í garÖ sumra safnenda, og vildi ég því biöja Helga- fell fyrir fáeinar athugasemdir. Mér er að vísu málið skylt, þar sem safn mitt Islenzkir sagna- þœttir og þjáSsögur, er gert þar aÖ umtalsefni, en ég skaj leitast viö aÖ halda mér sem mest við almenn sjónarmið. Símon miðar dóm sinn um hin nýju sagna- söfn við það fyrst og fremst, að hve miklu leyti þau hafa að geyma hreinar þjóðsögur, þ. e. sög- ur, sem myndazt hafa á vörum þjóðarinnar og mótazt í munnlegri frásögn kynslóð eftir kyn- slóð eða að minnsta kosti um alllangan aldur. Þœr eiga eingöngu að hafa þjóðsagnafræðilegt gildi, vera Iausar við allan fróðleik, helzt ó- bundnar við stað og tíma. Hér með virðist hann þó telja, að megi fljóta sagnaþættir, þ. e. frá- sagnir um einstaka menn og atburði, ef þeir hafa gengið í munnmælum nógu lengi, hafa sem minnstan fróðleik að geyma, hirða eigi um, hvað satt er eða hvað ósatt og beinast einkum að því, að efnismeðferð sé skáldleg. Flest, sem ekki heyrir til þessu öðru hvoru, virðist Símon, eftir fyrirsögn greinar hans að dæma, telja geroiþjóS- sögur, þ. e. sögur, sem gefnar séu út undir fölsku nafni, og eigi ekki heima í slíkum söfn- um. Skal ég víkja að því nafni síðar. Það er að vísu rétt, að f strangasta skijningi eru hreinar þjóðsögur fátt fram yfir það, sem nú var talið. Er þar helzt að telja ævintýri, trölla- sögur og útilegumannasögur, elztu galdrasögur og drauga- og álfasögur. En ef vér lítum á ís- lenzk þjóðsagnasöfn, allt frá Jóni Árnasyni og Magnúsi Grímssyni til vorra daga, má fljótt sannfæra sig um, að enginn safnandi bindur sig eingöngu við hreinar þjóðsögur. Að vísu ber langmest á þeim í elztu söfnunum eins og við er að búast, þar sem þá var af nógu að taka. En jafnvel í þjóðsögum Jóns Árnasonar verða hreint ekki svo fáar „gerviþjóðsögur” eft-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.