Tíminn - 24.12.1946, Qupperneq 1
ghprirB cm
M Kom þú, meistari kœrleikans, konungur minn, '
y til að kveikja hér Ijós þín í nótt,
Q því að blóðugan sviða í brjósti ég finn
Q meðan byltir sér friðvana drótt.
ö Gef mér hamingju lífsins, þitt logandi blys,
Q til að lýsa og ylgeislum slá,
Q • þar sem friðvana sál eltir fánýti og glys
f| og freistuð af lœkkandi þrá.
o Gef mér kærleikans þrá, til að gera því gagn,
Q sem er glapið og afvega kvelst.
H Lát mitt brennandi skap kveikja miskunnar magn,
M þar, sem myrkrið og spillingin hélzt.
q Gef mér kœrleikans þor til að þreyta mitt stríð,
Q: svo að þokað sé óheillum fjœr,
M það má kosta mig andstreymi, ofsóknir, níð,
H bara ef eitthvað til blessunar grœr.
H , Gef mér vizku og náð til að leggja því lið,
M sem er lágfleygt og stefnulaust vefst.
O Gef mér djörfung og þrek til að finna þinn frið,
O sem í fórnum og þjónustu gefst.
HALLDÓR KRISTJÁNSSON