Tíminn - 11.03.1960, Blaðsíða 2
2
T í MI N N, föstudaginn 11. marz 1960.
Nauðsyn á álmu
við Hrafnisiu
Aðalfundur Fulltrúar.áðs
Sjómannadagsins í Reykjavík
cg Hafnarfirði var haldinn í
Hrafnistu sunnudaginn 6.
marz 1960. Fundarstjóri var
Gunnar f'riðriksson og fund-
arritari Geir Ólafsson
Á fundinum fóru fram öll
venjuleg aðalfundarstörf. Reikn-
ingar Sjómannadagsins, Happ-
drættis DAS, Harfnistu og Laug-
arásbíös var útbýtt fjölrituðum
meðal fundarmanna og voru þeir
allir samþyk'ktir.
Þröng á þingi
í Hrafnistu, dvalarheimil.i aldr
aðra sjómanna eru nú 124 vist-
menn, þar af 44 í sjúkradeild. Er
þar hvert rúm skipað og hefur svo
verið um langan tíma og alltaf
eru margir á biðlista. Vegna hinn
ar miklu eftirspurnar, sem er um
dvöl á heimilinu taldi fundurinn
mjöig nauðsynlegt, að unnið verði
af fullum krafti að því, að fá fjár
festingarleyfi til að byggja nýja
álrnu við heimilið og hefja bygg-
ingu hennar strax að fengnu
leyfi. Var samþykkt áskorun til
rfkiS'Stjórnarmnar í því sambandi.
Þá samþykkti fundurinn að verja
á þessu ári 1,5 millj. kr. til þess-
ara væntanlegu framkvæmda.
Bensínstöð og bíó
Laugarásbíó, sem er að verða
fullgert, mun taka til starfa um
mánaðamótin apríl maí. Fr'am-
kvæmdastjóri þess hefur verið
ráðinn Valdimar Jónsson. Á lóð
bíósins mun verða rekis benzín-
sala og bifreiðaþjónusta og hafa
tekizt samningar við Olíufélagið
Skeljung í því sambandi.
Happasælt happdrætti
Happdrætti DAS gekk vel eins
og undanfarin ár. Eftir tillögu frá
stjórn Fulltrúaráðsins samþykkti
fundurinn að reyna að fá lögum
Happdrættis DAS breytt á þann
veg, að happdrættið fái að starfa
á breiðari grundvelli en hingað
til, með því að styr'kja byggingu
dval.arheimila út um land, sam-
kvæmt nánari reglum er settar
yrðu.
10 þús. til Rafnkelsfólks
Á fundinum var vakig máls á
því, hve treglega hefð'i gengið
fjársöfnun til aðstandenda þeirra
sem fórust með ms. Rafnkeli úr
Garði, og hvað unnt væri að gera
til að örfa söfnunina. Meðal fund
armanna söfnuðust kr. 4.600.00 —
og auk þess samþykkti fundurinn
af5 Sjómannadagurinn legði fram
kr. 10.000.00.
Frá vfgslu sundlaugarinnar f Skógum
Steinhítur
ísafirði, 9. marz.
Hér er blíðviðri og sæmilegur
afli, en mes-t er það steinbítur. f
gær fengu bátarnir 10—12 tonn.
Stutt er að sækja á miðin. Afla-
hæstu bátarnir í síðastliðnum
mánuði voru Guðbjörg með 193
lestir og Gunnhildur með 184 lest
ir. Er þá miðað við óslægðan fisk.
G.S.
Ný laug í Skógum
Síðast liðinn sunnudag fór
fram vígsla nýrrar sundlaug-
ar við Sk.ógaskóla. Laugin er
12,5 m á lengd, 6 m breið og
1—2 m djúp. Hún er yfir-
byggð, hiluð upp með olíu-
Bessi leikur
Gosa í bandi
Brúðuleikurinn Gosi frumsýndur á sunnudaginn
Á sunnudaginn verður frum
sýndur í Iðnó brúðuleikurinn
GOSI eftir Jóhannes Steins-
son. Jón E. Guðmundsson
kennari hefur búið til brúð-
urnar ásamt öllum fatnaði og
leiktjöldum. Hann er einnig
leikstjóri ásamt Jóni Sigur-
björnssyni. Sýningin fer fram
á vegum Æskulýðsráðs.
Sagan um Gosa er upphaflega
rftuð' af ítalska skáldinu Carlo
Colledi og hefur Walt Disney
stuðzt við þá sögu í mynd sinni
um Gosa. Brúðuleikrft Jóhannes-
ar á ekkert skylt við' útgáfu
Disneys.
kyndingu og að öllu hið ágæt-
asta mannvirki. Með bygg-
ingu heniiar hefur hið mynd-
arlega skólaheimili í Skógum
náð þýðiugarmiklum áfanga.
Vígsluhátíðina sóttu um 50
manns.
Athöfnin hófst með því, að nem-
endur sungu nokkur lög undir
stjórn Þórðar Tómassonar, söng-
kennara skólans. Því næst flutti
skólastjórinn, Jón R. Hjálmarsson,
ræðu, skýrði frá gangi verksins
og afhenti mannvirkið formanni
skólanefndar, Birni Fr. Björns-
syni, alþingismanni, til umsjár.
Fyrsti baðgesturinn 8 ára
Að lokinni ræðu skólastjóra
stakk sér til sunds 8 'ára gömul
stúlka, Olga Snorradóttir, og vígði
þar með laugina. Þá tók til máls
formaður skóianefndar, Björn Fr.
Björnsson, alþm., lýsti lauginni og
árnaði skólanum heilla með hana.
Loks fór fram boðsundkeppni milli
l
Þegar hér var komið sögu, var
orðið gefið frjálst. Tóku þá til
máls: Ingólfur Jónson, ráðherra,
Aðalsteinn Eiríksson, námsstjóri,
Þorsteinn Einarsson, íþróttafull-
trúi og sýslunefndarmennirnir
Páll Björgvinsson, Efra-Hvoli og
Óskar Jónsson, Vík. Að endingu
bauð skólastjóri gestum til kaffi-
drykkju.
Bauð gamla
fólkinu
Akureyrf, 2. marz.
Um síðustu helgi efndi Leikfé-
lag Akureyrar til sýningar á sjón
leiknum Ævintýri á gönguför.
Bauð' félagið á sýninguna því fólki
úr' bæ og héraffi, er náð hafði sjö-
tugs aldri og þaðan af meir. Hús-
ið var troðfullt og. skemmti hið
aldraða fólk sér ágætlega. í ieiks
lok stóð upp Þórarfnn Eldjárn
bóndi á Tjörn og flutti.Leikfélag-
inu þakkir fyrir hönd boðsgesta.
Að' sjálfsögðu gátu ekki allir,
scm boðið var, mætt á þessa sýn-
ingu, en þeir, sem heima urðu að
s'itja nú, eru velkomnir hvenær
sem þeir geta komið því við að
sjá leikinn.
Halldóra Bjarna-
Afrlðl úr brúðuleiknum Gosa
Einn lifandi
Aðeins einn lifandi maður kem
ur fram á sviðinu, er það Jón
E. Guðmundsson, sem lei'kur Gísla
og fer vel á því, þar sem báðir
eru leikbrúðusmiðir. Að öðru
leyti kemur fram mikill fjöldi af
leikbrúðum í margskonar myndr
um. Raddir þeirr'a eru fluttar á
segulbandi af góðkunnum leikur-
um og hefur Jón Sigurbjörnsson
annazt þá hlið leikstjórnarinnar.
Bessi Bjarnason leikur , Gosa,
Kristín Anna Þórarinsdóttir leik-
ur álfkonu og flugu, Jón Sigur-
björnsson leikur ref, Árni Tryggva
son leikur fisk og hrafn og loks
leikur Ásgeir Friðsteinsson Óla.
Vinsældir
Brúðuleikír Jóns E. Guðmunds-
sonar hafa hlotjfj feikilegar vin-
sældir bæði í Reykjavík og út um
land. Má nefna til dæmis að
brúðuleikrit hans „Eldfærin“ hef
ur verið sýnt samfellt í tvö ár.
Annað leikrít, sem varð afar vin-
| sælt er „Hans og Gréta“. — Á
eftir sýningunni á Gosa verður
fluttur aukaþáttur, Dans Nikkó-
línu með undirleik á píanó.
Saia aðgöngumiða hefst á laug
ardag kl. 4.
Snorri Hjartar-
son kynntur
Kynning veður haldin á verkum
Snorra Hjartarsonar laugardaginn
12. þ. m. í háííðarsal Háskólans.
Hefst kynningin kl. 5 síðd. Hann-
es Pétursson skáld flytur erindi
um Snorra og skáldskap hans. Að
því búnu fer fram upplestur úr
ljóðabókum skáldsins. Flytjendur
eru: Bryndís Pétursdóttir, leik-
kona, Baldvin Halldórsson leikari,
Brynja Benediktsdóttir, stud.
polyt. og Heimir Steinsson, stud.
mag.
Milli atriða leika þau Einar
Vigfússon og Jórunn Viðar á
celló og píanó.
Er eindregið lagt að bókmennta
unnendum aff sækja kynningu
þessa.
dóttir gefur B.í.
heimilisiðnaðar-
safn sitt
Búnaðarþing hefur afgreitt til-
boð Halldóru Bjarnadóttur um að
gera Búnaðarfélagi íslnds heim-
ilisiðnaðarsafn sitt með svohljóð-
andi ályktun:
„Búnaðarþing þakkar Halldóru
Bjarnadóttur þann hlýhug, er hún
hefur ætíð sýnt Búnaðarfélagi fs-
lands, og það sérsfaka traust, er
hún sýnir félaginu nú með því
að bjóða því heimilisiðnaðarsafn
sitt til eignar og varðveizlu eftir
sinn dag.
Felur þngið stjórn Búnaðarfél.
íslands að taka boð'i hennar og
búa safninu góðan samastað í nýja
búnaðarfélagshúsinu.“
FUNDURFRAMHERJA
Félagið Framherji heldur fund í Framsóknarhúsinu
uppi n.k. sunnudag og hefst hann kl. 2.
DAGSKRÁ:
1. Tillögur laganefndar.
2. Kosningar.
3. Ýmis mál.
Á fundinum munu mæta formaöur fuIltrúaráSsins,
Kristján Thorlacíus, og erindrekarnir Jóhannes Jör-
undsson og Þráinn Valdimarsson.