Tíminn - 05.05.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.05.1960, Blaðsíða 6
í-6 TÍMINN, fimmtudaginn 5. maf 1960. Jón SigurSsson bðndi á Stapa, Hornafirði, varð 80 ára 14. febr. 1960. Hann var fæddur að Stapa og hefur dvalið þar æ síðan. Hann er sonur hjónanna Rannveigar Hallsdóttur og Sigurðar Jónssonar bónda á Stapa, og mun sú sasna ætt hafa búið þar frá aldamótum 1800. Jón var ungur er hann missti föður sinn 18 ára eða svo, og tók hann þá við búsforráðum með móð ur sinni og Halli bróður sínum,: sem var ári yngri f. 1881. Jón hefur j því verið heimilisfaðir að Stapaj rúm 60 ár. Búskapur þeirra foreldra Jónsj og systkina hans, var farsæll mjög. Heldur lítil efni fjárhagslega eins «g vfða var á þeim árum. En þauj voru því meir gædd andlegum verðmætum, iðjusemi, ráðdeild, og hjálpsemi við alla. Samanvalin, elskuð og virt af Öllum er tii þekktu. Við þeim arfi tók Jón og systkini hans, frá foreldrum sín- um. Á þeim arfi hafa þau byggt sína .starfsemi við Stapaheimilið og við almenning og aukið og margfaldað fram á þennan dag, með bættri aðstöðu á ailan hátt. Er Sigurður Jónsson á Stapa féil frá, voru börn þeirra hjóna 6 á lífi og öll heima: Jón fæddur 1880, Hallur 1881 og hin yngri. Steinunn, Ingibergur, Sigurlaug og Sigurbergur. Steinunn giftist Ófeigi Jónssyni, Hafnarnesi, og hafa þau hjón búið þar síðan. Ingi- bergur andaðist ungur' heima á Stapa, Sigurbergur er kvæntur Björgu Einarsdóttur frá Meðalfelli og eru þau hjón búendur á Stapa með systkinum Sigurbergs, f sam- byggðu húsi með þeim og í hinni ákjósanlegustu samvinnu úti og írni. Hin systkinin 3, Jón, Hallur og Sigurlaug, hafa búið saman á Stapa, öll ógift. Mörgum finnst / 80 ára: Jón Sigurðsson, bóndi á Stapa í Hornafirði það Ijóður á ráði þeirra systkina, að hafa ekki gifzt og á þann hátt lifað fjölskyldulífi. En gæfa þessa heimilis og þeirra systkina hefur verið isvo mikil, að fyrir þessu hef- ur verið séð á hinn fegursta og far- sælasta hátt, á þessu heimili hefur altaf verið mjög álitlegur hópur barna og ungmenna, sem hafa gef- ið heimilinu hinn fegursta fjöl- skyldusvip. Fimm eru börnin, sem þau systkini hafa alíð upp að öll-u leyti. Mörg fleiri börn hafa dvalið á heimili þeirra systkina um lengri eða skemmri tíma, þá hefur og Sigurbergur og kona hans eignazt elskulegan barnahóp, sem alizt hef- ur upp f sama húsinu, sem nú eru öll gift og Sigurður sonur þeirra nú byrjaður búskap á Stapa, kvænt ur Valgerði Gunnarsdóttur frá Vagnstöðum. Þau hjón eiga og einnig mjög yndislegan hóp barna, svo að vorkliður æskunnar hefur umvafið heimilið á Stapa og gerir enn og gefur því unað ástar og fullkomnunar. Nú er Hallur fallinn frá fyrir fá- um árum, þá um hálfáttræður. Þor- leifur Þorleifsson, fóstursonurinn, f. 1904, hefur nú um mörg ár eftir að starfsþrek bræðranna fór að minnka, verið hin styrka stoð heim ilisins. Hann hefur alizt upp við heilnæmt andrúmsloft þessa heim- ilis og tileinkað sér mæta vel áhrif þess, sem og önnur börn þau, er alizt hafa upp á þessu. ágæta heimili. Sigurlaug hefur nú verið húsfrú á heimilinu hátt á 4. ára- Björn Þorgrímsson og Jón á Stapa. tug. Hún hefur í ríkum mæli til- einkað sér kvenlegar dyggðir; hún hefur staðið við hlið bræðranna með mikilli atorku og húsmóður- legum myndugleik, úti og inni dug- mikil og ástrík. Og Jón, 80 ára af- mælisbarnið, virðist enn vera stoð og hinn sterki .stofn Stapaheimilis- ins jafnframt því að hann sýnist enn prýða topp hins greinamikla trés, og sálin virðist enn sindra af: eldmóði æskunnar. Einhvers staðar h^f ég séð mynd af Stapaheimilinu, sem einu mynd arlegasta heimili á landinu. Mér þótti vænt um að sjá þá mynd, því að svo mun líka mörgum sýnast. Byggingar, ræktun og búskapur allur með bezta móti, efnahagsaf- koma farsæl og góð og heimilis- bragur allur svo elskulegur, að al- veg er framúrskarandi. Og rneð allt það einvalalið starfs- og ráða- manna, mun enn vera leitað ráða til Jóns um allar stærri fram- kvæmdir heimilisins. Mikil gæfa hefur Jóni, systkin- unum og öðrum meðlimum heim- ilisins hlotnazt við að skapa slíkt menningarheimili, sem hér er um að ræða, og gæfa er það einnig fyrir okkur öll hin, sem höfum kynnzt fólkinu, uppbyggingu heim- ilisins og starfstilhögun allrL Við fáum mikla löngun til að reyna að líkja eftir og skapa slíkt. Jón hafði um langa tíð meðan starfsbraftar entust, unnið mikið að húsbygg- ingum og öðrum störfum með sveit ungum sínum og einnig oft utan- sveitar. Hallur sinnti hinum opinberu fé- lagsstörfum, var lengi í hrepps- nefnd, skattanefnd skólanefnd o. fl., að ógleymdri virkri ungmenna- félagsstarfsemi. Þorleifur Þorleifs- son hefur tekið við miklu af slíkri félagsstarfsemi er Hallur hvarf af því stafssviði. Jón á Stapa var einn af stofnendum Kaupfélags A.-Skaft fellinga og hefur heimilið verið þar sterkur og áhugasamur aðili alla tíð einnig hefur heimilið verið alla tíð sterkur og áhugasamur að- ili að starfsemi Framsóknarflokks- ins. Ég óska Jóni vini mínum á Stapa innilega til hamingju með 80 árin og allt það mikla starf er hann hefur innt af höndum. Ég þakka Jóni og heimili hans 60 ára elskuleg og góð kynni, kynni, sem ylja huga minn í end- urminningu um ókomin ár, eins og þau hafa oft gjört um liðin ár. Ég bið að Guð gefi Jóni á Stapa, systkinum hans og öðru venzla- fólki blíða daga og hjarta, gleði- ríka og sanna, og heimilinu áfram blæ friðar og fagurra dyggða um ókomin ár. Kristján Benediktson, Einholti. Apríl-bók AB Maí-bók AB Maria Dermout: Þorleifur Bjarnason: 7W/N Andrés Björnsson íslenzkaði Maria Dermout er hollenzk að ætt. en fædd á Jövu árið 1888 og hefuT dvalizt þar eystra lengst af ævinn- ar. Hún hóf ekki ritstörf fyrT en 63 ára, en Frúna í Litlagarði ritaði hún á 68. aldursári. Hefur sagan farið sigurför víða um heim. Frúin í Litlagarði gerist á eyju í Molucea-klasanum. Aðalpersónan Lukka er fædd þar, en tekin þaðan barn og lifir ásamt foreldrum smum hálfgerðu flökku- lífi í Evrópu í mörg ár. Eftir að maður hen-nar hefur yfirgefið hana, snýr hún aftur til eyjarinnar ásamt ungum syni. Þetta er saga hennar og þess fólks. sem hún umgengst, ekrueigenda, kennara, fiskimanna, töfra- manna, iðjuleysingja o. s. frv. — heimur fjarlægur ís- lamdi landfræðilega. en þó nálægur. ef lítið er á hugs- anir fólksins, trú þess og hjátrú Yfir sögunni hvíla dulrænir töfrar, sem gera hana spennandi og áhriíamikla. ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.