Tíminn - 05.05.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 05.05.1960, Blaðsíða 9
T í MIN N, {immtudagmn 5. mai 1960. 9 Samvinnuskólanum að Bif- röst var slitiS hinn 1. maí síSast liSinn. Fór athöfnin fram í hátiSasal skólans. Hófst hún meS því, aS séra Sveinn Víkingur, settur skólastjóri, flutti skýrslu um starfsemi skólans á liSnum vetri. KvaS hann nemendur hafa veriS 76 aS tölu, og aldrei fleiri. Séð yfir sal viö skóiaslit. Ræddi hann síðan um manna skipti sem orðið höfðu á síð- astliðnu hausti. Prú Beryl Kolheinsson, sem gegnt hafði störfum sendikennara undan fama vetur, hvarf af landi brott, en við tók Judith Poot, áströlsk að ætt. Þá urðu einn ig húsmæðraskipti; gegndi frú Sigurlaug Helgadóttir því starfi nú í stað frú Guð- laugar Einarsdóttur, sem dvelst erlendis. Matráðskona frá því í fyrra hætti einnig störfum, og harmaði séra Sveinn mjög missi þessa á- gæta kvenkosts. Kvað hann þó huggun harmi gegn, að í stað hennar hafði skólanum auðnast að klófesta bryta einn föngulegan .og vel í skinn kominn. Þá hefur húsvörður verið ráðinn að skólanum. Gegnir þeirri stöðu Hróbjart ur Jónasson. Síðast en ékkl sízt hafa orðið skólastjóra- skipti á Bifröst, þar eð séra Guðmundur Sveinsson dvelst í leyfi erlendis um þessar mundir, en séra Sveinn Vík- ingur hefur komið í hans stað. Pélagslíf hefur staðið með blóma í skólanum í vetur. Málfundaféiag hefur starfað Frá farandi formaSur skóiaféiagsins, Jón IHugason, kveður fyrlr hönd annars bekkinga. Samvínnuskólanum slitið i fertugasta og annað sinn Séra Sveinn Víkingur, sem gegndi skólast|órastörfum í vetur. sem undanfama vetur, tvö, eða jafnvel þrjú blöð hafa verið gefin út. Hljómsveit hef ur einnig starfað við góðan orðstír. íþróttafélag hefur og starfað undir umsjón og leið sögn Hróars kennara Björns sonar. Iðkaði það knatt- spyrnu af miklu kappi og raunar fleiri íþróttir, sendi m. a. keppendur til víðavangs hlaups Í.R. og vann þá bikar í sveitakeppni. Fullveldisfagnaður var að vanda haldinn fyrsta desemb er, og annað hóf hinn fyrsta febrúar, en skólameyjar af Varmalandi sóttu Bifröst heim, til mikillar gleði fyrir rúman helming nemenda. Þá var að vanda efnt til listkynn ingar í skólanum, að þessu sinni til heiðurs nóbelsverð- launaskáldinu Salvatore Quas imodo. Flutti Thor Vilhjálms son rithöfundur erindi um skáldið og ítalska. ljóðlist, og auk þess skemmtu Þuríður Pálsdóttir og Kristinn Halls 'son með söng. Auk þess heim sóttu skólann þeir Erlendur Einarsson forstjóri SÍS og Eysteinn Jónsson fyrrv. ráð- herra skólann um veturinn og fluttu erindi. Því næst af- henti skólastjóri nemendum einkunnabækur. í fyrsta bekk hlaut hæstu einkunn Gunnar J. Magnússon, 9.01, en í öðr- um bekk Geir Geirsson frá Reykjavík, einnig 9.01. Ann- ar í röðinni varð Arngrímur Arngrímsson frá ísafirði. með 9.00, og þriðji Jón Illugason úr Mývatnssveit með 8.75. Þá afhenti skólastjóri verð- laun fyrir unnin námsafrek. bikar þann, sem veittur er árlega fyrir beztan árangur í bókfærslu. Pékk hann eink unnina 9.7 Geir Geirsson fékk verðlaun fyrir beztan náms- árangur í öðrum bekk. Þá hlutu verðlaun fyrir umsjón arstörf þau Helgi Ingi Sigurðs son og Védís Elsa Kristjáns- dóttir. Því næst söng bland- aður skólakór undir stjórn iHalldórs Sigurðssonar í Borg j arnesi. Því næst flutti Baldur ! Óskarsson, frá Vík í Mýrdal íkveðjuræðu fyrir hönd fyrstu ! bekkinga, og Jón Illugason \ fyrir hönd annarsbekkinga. Þá talaði Gunnar Grímsson kennari, og kvaddi nemendur af hálfu kennara. Að því ;loknu afhenti Þorsteinn Jóns son hljómplötur með verkum Beethovens, og var það gjöf ! 25 ára nemenda til skólans. ; Þá tók til máls Gunnar | Steindórsson, forstöðumaður i fræðsludeildar SÍS og brýndi útskrifaða nemendur til skel eggra baráttustarfa j þágu samvinnuhreyfingarinnar. Að lokum sleit séra Sveinn Víkingur, skólastjóri, skólan um með ræðu. Meðal annars minntist hann Jónasar Jón- Hinn nýkjörni formaður skólafélags- ins, Baldur Óskarsson, lcveður af hálfu fyrsta bekkinga. assonar frá Hriflu, sem lengst af var skólastjóri Samvinnu skólans, en hann átti einmitt 75 ára afmæli þennan dag. Lýsti hann því yfir, að sér hefði verið það óblandin á- nægja, að fá þannig á efri árum tækifæri til þess að kynnast æskunni í dag og við horfum hennar, og kvaðst ekki geta tekið undir með þeim mönnum sem for- dæmdu nútíma æsku. Hann kvað viðhorfin að visu mjög breytt, og mætti ef til vill sitt- hvað að fínna, en kostirnir væru þó yfirgnæfandi. Því næst lýsti hann 42. starfsári Samvinnuskólans lokið. Stóðu menn þá upp og sungu ísland ögrum skorið. Að loknum skólaslitum var sameiginleg kaffidrykkja, áð ur en nemendur og gestir óku úr hlaði. Hinir nýútskrifuðu nem- endur munu nú fara í stutta skemmtiferð innanlands, en að henni lokinni munu flest ir hverfa til starfa í þágu samvinnuhreyfingarinnar. -ds- Hafnarbönn á báða bóga NTB—NEW YORK, 3. maí. — Um tíu amerískum flutninga skipum, sem landa áttu farmi sínum í arabiskum höfn um hefur verið snúið til ann arra hafna, vegna hafnar- banns Araba á öllum amerisk um skipum, upplýsti talsmað ur bandaríska utanríkisráðu neytisins í dag. — Neita hafn arverkamenn þar, að sklpa upp úr amerískum skipum, svo og er þeim neitað um við gerðir og nauðsynlegar vist- ir. Er þetta mótráðstöfun af hálfu Araba, vegna verkfalis bandarískra hafnarverka- manna við vinnu í arabi^k- um skipum, en sú ráðstöfun var aftur mótmæli vegna banns arabiska Sambands- lýðveldisins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.