Tíminn - 12.07.1960, Síða 12
12
TÍMINN, þriðjudagmn 12. júK 1960.
T
”"">Tv P
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
ÞatS munaði ekki miklu, og bakvörSur Akurnesinga bjargaSi, þegar Guðjón Jónsson skoraði annað mark
Fram í leiknum. KriöH-urinn rétt slapp þó framhjá honum og í mark, eins og myndin sýnir. Helgi markvörður
Daníelsson getur engum vörnum við komið. Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson.
Ingvar Elíasson skoraöi 3 mörk
fyrir Akranes, en Fram jafnaði
Fram—Akranes jafntefli 3—3
Á sunnudagskvöldið hélt íslandsmótið í 1. deild áfram,
með leik milli Fram—Akranes. Auglýstur leikur milli KR
og íþróttabandalags Akureyrar á sunnudag féll niður sökum
þess að flugveður var ekki, en leikurinn átti að fara fram
á Akureyri.
•staðsettur, Ingvar nær að
spyma á mark, en Geir hljóp
aðeins til hliðar og knött-
urinn fer í mark. Mark þetta
er óhætt að skrifa á þá Hinrik
bakvörð og Geir markmann,
sem auðveldlega hefði átt að
verja. Fram á mun meira 1
þessum hálfleik, þó þeim tæk
ist ekki að jafna.
Fram vann hlutkestið og
valdi að leika undan smá
golu, en skömmu síðar lygndi
en hvessti í síðari hálfleik,
og höfðu Akumesingar gott
leiði, enda áttu þeir meira í
þeim hluta leiksins. Strax á
annarri mínútu fær Akranes
hornspyrnu, Geir nær að slá
knöttinn, en svo óheppilega
vildi til fyrir Fram, að knött-
urinn hrekkur fyrir fætur
Ingvars, sem skoraði strax. —
Skömmu síðar er Björgvin,
Fram, kominn inn fyrir, og
fær þá knöttinn, en sendi
hann í fang Helga markvarð
ar. Vafalítið er að Björgvin
var þarna rangstæður.
Á 8. mín. á Fram gott upp
hlaup, var fallega spilað Grét
ar, Fram, á heiðurinn af spili
og marki, hann ætlar auð-
sjáanlega að gefa Björgvin
knöttinn, en hann stóð óvald
aður ca. 5 m. frá marki. Helgi
Síðari hálfleikur.
Akranes byrjar með sókn,
sem endar með góðu skoti frá
Helga Björgvinssyni en Geir
ver fallega. Á 10. mín nær
Fram góðri sókn og skapast
þá mikil spenna, 3 eða 4 leik
menn Fram misnota þá jafn
mörg tækifæri, en hættan er
mikil fyrir framan mark
Skagamanna, og úr þvögu
nær Guðjón að skora, 2—2. —
Leikurinn er nú jafnari og
smá saman ná Akurnesingar
tökum á leiknum, á 25. mín
nær Ingvar að skora sitt 3ja
komst í milli og náði að slájmark í leiknum, (hat-trick)
knöttinn, en Grétar er vel i af stuttu færi með góðu skoti
vakandi og nær aftur í knött j 3—2.
inn og sendir í mark, 1—1. j Þegar um 12 mín. er eftir
Fram ræður nú öllu á vell! af leik nær Fram að jafna.
inum næstu 25 mín., en þegar Björgvin nær að skjóta af
kemur að vítateig, linast þeir j stuttu færi, en Helgi ver,
eða skjóta af of löngu færi.! knötturinn hrekkur til Björg
Þessi hluti leiksins hefði átt vins aftur, sem skorar auðveld
að gefa Fram forustuna íj lega. Rétt á eftir á Fram opið
mörkum, því þeir áttu mörg! markfæri, en það nýttist illa.
tækifæri, en svo var ekki. — Akranes gerir nú harða hríð
Akranes tekur forustuna, að marki Fram Skúli Hákon
vörn Fram fer úr skorðum og arson á góðan skalla á Fram-
hægri bakvörður Fram er illa i markið, en Geir ver naum-
lega. Rúnar á sinn bezta leik
kafla og var sem klettur í
vörninni. Þegar 4 mín. eru
eftir af leik á Guðm. Óskars
gott skot, en knötturinn fer
í stöng. Guðmundur Óskars-
son meiddist um miðjan síð-
ari hálfleik, og var óvirkur
eftir það, og kom það varnar
mönnum Akraness á óvart er
hann allt í einu kom brun-
andi, en þvj miður fyrir Fram
— knötturinn fór í stöng. Eft-
ir atvikum má segja að jafn-
tefli hafi verið sanngjarnt,
þó að Fram hafi átt meira
í spilinu.
Liðin.
í liði Akraness átti Helgi
góðan leik í markinu, hann
verður vart sakaður um mörk
in. Ingvar miðherji átti nú
prýðilegan leik, skipti vel útá
kantana og gerði öll mörkin
þrjú. Jóhannes hægri útherji
átti og góðan leik, gaf oft
prýðilega fyrir markið og var
vel með Jón Leósson á varla
heima í innherjastöðu. —
Sveinn Teitsson er alltaf
drjúgur leikmaður, sem bygg
ir vel upp, en sækir um of
fram, sérstaklega þegar mót-
herjinn notar þá leikaðferð
sem Fram notaði nú, með
tvo miðherja, enda átti Krist
inn oft í erfiðleikum vegna
þess, sérstaklega framan af
leiknum.
í liöi Fram var Geir í mark
inu frekar slappur framan af,
en sótti sig er á leikinn leið.
Rúnar var góður, langbeztur
af vamarleikmönnum Fram.
Hinrik var mjög dettinn og
skapaði það marga hættu. —
Guðjón og Guðm. Óskarsson
gera margt laglega, en halda
knettinum allt of lengi, draga
Heimsmet í tugþraut
Um helgina náði Banda-
ríkjamaðurinn Rafer John-
son, fyrrum heimsmethafi í
tugþraut, mjög góðum ár-
angri í tugþrautarkeppni í
Bandaríkjunum, og bætti nú-
verandi met Rússans Vassili
Skákmótið í
Buenos Aires
Úrslit eru nú kunn úr bið-
skákum úr níundu og tíundu
umferð á skákmótinu í Buen
os Aires. í níundu umferð
gerðu þeir Taimanov og Fisc-
her jafntefli, og einnig Foguel
mann og Unzicker. í tíundu
umferð tapaði Friðrik Ólafs
son fyrir Foguelmann, en þess
má geta, að á skákmótinu í
Mar del Plata, sem háð var
rétt á undan þessu móti, vann
Friðrik þennan Argentinu-
mann auðveldlega, svo hér er
greinilega um slys að ræða
eins og oft vill verða, þegar
menn tefla upp á fyrstu sæt-
in.
Eftir tíundu umferð var
Reshevsky einn efstur með 7
vinninga. Unzicker og Evans
voru í 2.—3. sæti með 6 y2
vinning, en 4.-7. sæti voru
Szabo, Uhlman, Friðrik og
Kortsnoj með 6 vinninga
hver.
Af 11. umferð hafa borizt
þær fréttir, að Friðrik eigi
biðskák við Szabo. Reshevsky
og Ivkov geröu jafntefli í
þeirri umferð, Evans vann
Foguelmann og Unzicker
vann Fischer. Reshevsky, Unz
icker og Evans eru því efstir
og jafnir eftir 11 umferðir
með 7% vinning hver.
Kusnetsov um 326 stig —
og var þegar búinn að bæta
metið eftir níu greinar, en í
tíundu greininni, 1500 metra
hlaupi, náði Rater aðeins
5:05,0 mín., enda er það
hans langlakasta grein.
Hið nýja met Rafer John-
son er 8683 stig — eð.a sem
því nemur að hann hafi hlot-
ið um 870 stig í hverri grein.
Johnson byrjaði mjög vel í
tveimur fyrstu greinum, þeg-
ar hann setti metið. Hann
hljóp 100 m á 10,6 sek. og
stökk yfir sjö og hálfan m
í langstökki. Hann náði mjög
góðum árangri í öðrumgrein-
um nema 1500 m hlaupinu,
sem áður er minnzt á, og í
hástökki, en þar stökk hann
1,70 metra, sem er miklu
lægra en hann er vanur að
stökkva. Nánar verður sagt
frá einstökum árangri John-
son síðar hér á síðunni.
úr hraða upphlaupanna og
missir liðið oft af marktæki-
færum þess vegna. Baldur á
að gefa knöttinn strax fyrir
markið þegar hann hefur
aðstöðu til, þá gæti hann orð
ið drjúgur fyrir liðið, en ekki
að vera að reyna að plata p’ns
og hann gerði í þessum leik.
Grétar var lang beztur af
framherjum Fram í leiknum,
skapaði marga hættu með
flýti sínum, hann og Björgvin
j reyna líka alltaf að halda
I uppi nokkuð hröðu spili og
sækja af krafti inn í vítateig
in. Björgvin var og nokkuð
góður, en virkar of hræddur.
Ingvi Eyvinds dæmdi leik-
inn laklega. Þegar leikur
hófst vanbaði hornflöggin, og
tók dómarinn ekki eftir því
fyrr en fyrsta hornið kom, er
um tvær mínútur voru af
leik, gerði hann þá að sjálf-
sögðu hlé á leiknum. meðan
verið var að ná í flöggin,
svona smá atvik geta haft
áhrif á leikinn, og ætti vallar
stjóri ekki að lá.ta það koma
fyrir aftur.
Ó.K.
Staðan í
1. deild
Staðan í íslandsmótinu í 1. dcild
er nú þannig:
L U J
1. Fraon 4
2. Afcranes 4
3 K.R. 3
4. Valur 5
5. f.B.A. 3
6. f.B.K.
V Mörk St.
0 10—6 7
0 11—6 6
1 13—3 4
2 8—14 4
2 6—7 2
5 0 1 4 3—15 1
Valgarður varð
þriöji í Höfn
Á frjálsiþróttamóti, sem
fram fór í Kaupmannahöfn
s. 1. fimmtudag, keppti Val-
garður Sigurðsson frá Akur-
eyri í stangarstökki. Hann
varð þriðji í greininni, stökk
3,90 metra, sem er bezti ár-
angur hans hingað til. Sigur
vegari í stangarstökkinu varð
Björn Andersen, sem nýkom-
inn er heim frá námsdvöl
í Bandaríkjunum. Þar hafði
hann stokkið yfir 4.40 m. og
áhorfendur á mótinu urðu
því fyrir vonbrigðum, þegar
hann stökk aðeins 4.25 m.,
sem er fimm cm. lakara en
danska metið Annar í grein
inni varð methafinn Richard
Larsen, sem stökk sömu hæð
og Andersen, en átti fleiri
tilraunir.-Til þess að komast
í Ólympíulið Dana verður að
stökkva 4.40 m. í stangar-
stökki. Keppt var í mörgum
greinum á mótinu, en mesta
athygli vakti sigur Freddy
Jensen í 100 m. hlaupi (10,8
sek.) en hann vann sænsku
hlauparana Malmroos og
Nordbeck með yfirburðum.