Tíminn - 02.03.1961, Side 1
Áskriffarsíminn er
1-23-23
51. tbL — 45. árgangur.
LandbúnaSarmál
— bis. 4.
Finuntudagur 2. marz 1961.
Framsóknarflokkurinn mun bera fram tillögu um að fram fari
um samnmga
Kjarval var á ferð í bænum meS tvo til reiðar í gær, sendi-
ferSabíl, fullan af málverkum og leigubil frá BSR. Staðnæmzt
var við íþróttahús Jóns Þorsteinssonar og eitt málverk skilið
eftir þar. Síðan hélt meistarinn með fríðu föruneyti heim tii
Hafliða Helgasonar, Hverfisgötu 39 og skildl þar eftir annað
málverk, og loks hélt hersingin að vinnustofu meistarans
Túnunum, og þar var stærri myndin tekin.. Hin er tekin við
íþróttahús Jóns Þorsteinssonar. (Ljósm.: TÍMtNN, GE.).
Eysteinn Jónsson segir um landhelgismálið:
Uppgjafarsamningurinn verri
en nokkurn hafði órað fyrir
- þá er ríkisstjórnin hyggst gera við
Breta um landhelgismálið
Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur ákveðið að bera
fram tillögu um, að fram verði látin fara þjóðaratkvæða-
greiðsla um samninga þá, sem ríkisstiórn íslands hyggst gera
við Breta um landhelgismálið, í svo miklu hagsmuna máli og
afdrifaríku er tvímælalaust rétt og skylt, að þjóðin fái að
kveða upp sinn dóm og afl atkvæða kósningabærra manna
ráði úrslitum þess.
Ætla má, að þjóðarviljinn fari ekki saman við vilja núver-
andi ríkisstjórnar í þessu máli, ef marka má þjóðarviljann af
hinum f jölmörgu fundarsamþykktum, undirskriftum og áskor-
unum, sem borizt hafa um málið. Réttur þjóðarinnar til að
kveða upp dóm sinn í þessu máli, hlýtur þó fyrst og fremst
að grundvallast á því, að þeir flokkar, sem nú fara með völd
í landinu, lýstu því yfir fyrir síðustu kosningar, að slíkir
samningar sem nú standa fyrir dyrum, myndu aldrei gerðir,
og áform þeirra í málinu væru þveröfug við það, sem nú á
að gera. Ætla má og, að þjóðin hefði ekki veitt þessum flokk-
(Framhald á 2. síðu.)
Brugg og brennivín
tekið í Borgarnesi
Lögreglaa gerÖi húsrannsókn hjá tveimur mönnum
og fanntöluvert magn í fórum ^eirra
Blaðamaður frá Tímanuml
heimsótti Eystein Jónsson al-
þingismann í sjúkrahúsið í
gær, og barst þá talið eðlilega j
að seinustu stórviðbur'ðunum
í landhelgismálinu. Pór þlaða
maðurinn fram á, að Eysteinn
segði álit sitt á málinu og
fórust honum orð á þessa leið:
— Þessi uppgjafasamningur
er jafnvel ennþá verri en við,
sem verst trdystum ríkisstjórn
inni, höfðum óttazt.
Hér er gert tvennt í senn:
Bretum hleypt inn í landhelg-
ina að nýju og hendur þjóðar
innar bundnar í landhelgis-
málinu framvegis. Engum hef
ur dottið í hug, aö annað eins
kæmi til mála.
Á móti kemur ekkert, því
að óhugsandi var, að Bretar
hefðu getað fiskað í land-
helginni áfram við herskipa-
vernd, og grunnlínuraa'r gát-
um við rétt sjálfir.
Örðugt er að sjá, hvað rek-
ið getur íslenzka menn til að
gera svona samninga.
Eg læt í ljós það traust á
þjóðinni, að hún bregðist við
nú þegar og reisi slíka öldu
gegn málinu, að ekki verði tal
ið fært að halda því til streitu.
Þetta er hægt, ef menn liggja
ekki á liði sínu en láta í þess
stað skoðanir sínar óhikað í
ljós.
Fyrir komandi kynslóðir í
landinu veltur meira á því en
nokkru öðru, hvernig ræðst
um fiskveiðilandhelgina.
Það er mögulfegt að bjarga
frá því stórkogtlega áfalli,
sem landhelgissamningurinn
við Breta hlyti að verða, en
það er aðeins með því móti að
almenningur um land allt
rói gegn málinu nú þegar svo
kröftuglega að málið verði
lagt til hliðar.
En menn verða að bregðast
skjótt og skörulega við með
fundahöldum og ýmsu öðru
móti, því að tíminn er naum-
ur — en sigurinn líka vís, ef
allir fara af stað, sem sam-
stöðu eiga gegn þessum samn
ingi.
Á sunnudag var gerð hús-
rannsókn hjá tveimur mönn-
um í Borgarnesi, sem grunaðir
voru um bruggun áfengis og
sölu brennivíns. Við leitina
i fannst töluvert magn af öli,
! sem enn var í gerjun og sömu-
Jleiðis eitthvað af brennivíni.
Var allt gert upptækt, og er
j málið í rannsókn. ’
i
Nánari tildrög urðu þau, að
á laugardagskvöldið voru róst
ur meö drukknum mönnum í
bænum, og var lögreglan köll
uð á vettvang. Deiluefni mann
anna var brennivínsflaska,
sem haldið var fram, að keypt
hefði verið eftir ólöglegum
leiðum.
Af þessu hjali mannanna
fékk lögreglan pata af því,
að ekki væri allt með felldu
og grunaði, að óleyfileg sala
hefði farið fram á bruggi og
brennivíni. Gerði lögreglan
(Framhald á 2. srtSu.l
Skógarþröstur
á hestbaki
í gærdag sá Krlstján Magnús-
son á Ferjubakka í BorgarfirSi
óvanalega sjón. Var það skógar-
þröstur, sem gerSi sér það aS
leik að flögra milli hesta, sem
voru á beit, og setjast á bakið
á þeim til skiptis. Var þrösturinn
á vappi þarna í Haganum, en er
honum fannst búpeningur gerast
helzt til nærgöngull við sig, brá
hann á leik og settist á bakið á
skepnunum og sat þar sem fast
ast, þótt þær hlypu um og hristu
sig. Hafði Kristján góða skemmt-
un af og taldi þetta ánægjulegan
vorboða. Líklega er hér þó frek
ar um að ræða eftirlegukind, sem
ekki hefur fyigt félögum sínum
til hinna heitari landa, er syrla
tók í álinn hér á okkar kalda
Fróni. Mun það oftar hafa komið
fyrir, að skógarþrestir hafa sézt
á þessum tíma árs uppi í Borgar-
firði.