Tíminn - 02.03.1961, Side 3
I TBíf'M IN N, fimmtudagiim 2. marz 1961.
Móbútóhermerm ganga
Lúmúmbasinnum á hönd
Belgar þverskallast vitS afi fara frá Kongó
án skilyrða
Leopoldville 1.3. (NTB)
Það var tilkynnt í Leopold
ville í dag, að kongóskar her-
svejtir, sem voru í Miðbaugs-
fylkinu í Kongó albúnar til
þess að ráðast gegn Lúmúmba
sinnum í Oríentalfyikl, hafi
gengið Lúmúmbasinnum á
hönd. Einn af talsmönnum'
SÞ í Leopoldville skýrði svo
frá í dag, að kongóskir her-
menn undir stjórn Mobútú í
Cocaitville í Miðbaugsfylkinu
hafi fylkt liði burt frá borg-
inni og hrópað slagorð Lúm-
úmbasinna. Er hér bæði um
að ræða lögrcglu- og herlið.
Móbútú ofursti hefur undan
farnar vikur dregið .saman
mikið lið í Miðbaugsfylkinu
til þess að hefja þaðan árásir
á Lúmúmbasinna. Hersveitir
Lúmúmbasinna í Stanleyville
eru nú hins vegar komnar inn
í Miðbaugsfylkið og þrálátur
orðrómur hefur verið uppi um
það að Móbútú gengi illa að
hafa hemil á mönnum sínum.
Lúmúmbahermenn, sem
tóku Lúlúaborg I Kasai á dög
unum ,eru nú famir frá borg
inni og er hún nú í höndum
hersveita SÞ.
Mótj kommúnzstum og SÞ.
Jósef íleó, forsætisráðherra
Leopoldvillestjórnar sagði frá
því í dag, að hann vonaðist
til, að Antoine Gízenga, for-
ingi Lúmúmbasinna, kæmi til
ráðstefnu leiðtoga í Kongó,
sem halda skal á Madagaskar
innan skamms.
Talsmaður stjórnarinnar í
Katanga sagði, að herbanda-
lag það, sem nú hefði verið
myndað milli Tshombe, Kal-
onji og íleó, væri ekki stefnt
gegn Gísenga, heldur komm-
únistahættunni og SÞ.
Mikil mótmælaganga var
farin í Lúlúaborg í Kasai í
dag. Segir talsmaður SÞ, að
fólkið hafi krafizt þess, að
einn af liðsforingjum Lúm-
ú'mbasinna, sem fangelsaður
hafðj verið, yrði látinn laus.
Hins vegar segir íleó í Leo-
poldville, að ganga þessi hafi
verið sér til dyrðar. íleó tók
undir orð Tshombe um her-
bandalág þeirra. Það er gegn
kommúnistum, við erum 200%
á móti þeim. Við munum leysa
málefni Kongó án íhlutunar
erlendis frá.
Talsmaður SÞ í Leopold-
ville skýrði frá því, að enn
væru unnin ódæðisvérk af
kongóskum hermönnum gegn
starfsmönnum SÞ í landinu.
Tshombe verndari Belga.
Eyskens, forsætisráðherra
Belgíu, og Wigny, utanríkisráð
herra, hafa sett fram sjón-
armið sín varðandi þá ákvörð
un Öryggisráðsins, að allir
j Belgar verði tafarlaust á brott
| frá Kongó. Hammarskjöld
hefur snúið sér til belgísku
stjórnarinnar með þessar
kröfur í nafni SÞ.
Svar belgísku stjórnarinnar
er í þremur liöum:
1) Heitið er að kalla þegar
heim einstaka hernaðarráðu-
nauta, sem kunna að vera í
Kongó.
2) Belgíska stjórnin mun
semja við Tshombe um að
hann verndi eignir belgískra
borgara í Katanga, eftir að
belgískir hremenn, sem nú
eru í Katanga, verða á brott.
3) Belgíustjórn er reiðubúin
að ræða við Hammarskjöld
um hugsanlega heimköllun
belgískra ráðgjafa og tækni-
fræðinga, sem eru i Kangó á
vegum stjórnarinnar í Leo-
poldville. Hins vegar er það
skoðun belgísku stjórnarinn-
ar, að stjórnin í Leopoldville
eigi að ákveða þetta atriði
ein.
Danir sigruðu íslend-
inga-11 marka munur
Fjórða heimsmeistarakeppn-
inin í handknattleik hófsi í
Vestur-Þy7kalandi í gær-
kvöldi. Setning keppninnar
fór fram í Vestur Berlín og
var mjög hátíðleg. Síðan hófst
leikur Þjóðverja og Hollend-
inga og sigruðu Þjóðverjar
með 33 mörkum gegn sjö.
Þrír aðrir leikir voru háðir í
gærkveldi í keppninni. í Karlsruhe
léku fslendingar við Dani og fóru
leikar svo, að Danir sigruðu með
24 mörkum gegn 13. í hálf-leik
stóð 9—6 íyrir Dani, og þeir juku
jafnt og þétt markatöluna. Um tíma
Árás á stúlku
á Nesveginum
Árásarmaðurinn forðað! sér á hlaupum, er
leigubíl bar að !
Um sexleytið á þriðjudags-1 Leigubíl bar að
morguninn var ráðizt á norskaj Stúlkan reynúi að þiópa á hjálp
stúlku á Nesvegi, þar sem hún
í síðari hálfleik stóð 20—10 fyrir
Dani. Einn danski leikmaðurinn
skoraði fjögur mörk, en þrír skor-
uðu þrjú mörk hver. Danska út-
varpið gat ekki um það í gærkveldi
hverjir skoruðu fyrir ísland.
Á undan leik íslands og Dan-
merkur fór fram leikur milli Tékka
og Japana í sömu borg. Tékkar
unnu mikinn yfirburðasi-gur, skor
uðu 38 mörk gegn 10.
Stuttgart 1. 3. NTB. — Norð-
menn töpuðu fyrir sænsku heims-
meisturunum með 15 mörkum gegn
11 í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik, sem hófst í Vestur-
Þýzkalandi í gærkveldi. í hálfleik
höfðu Svíar skorað 11 mörk gegn
5. Svíar sýndu miklu betri leik all-
an tímann, jafnt hvað tækni sem
hraða snerti. Sig-urinn var verð-
skuldaður, en minni en búizt var
við m-est vegna þess, að leiðtogi
sænska liðsins lét nokkra af beztu
(Framhald á 2. síðu.)
Kennedy stofnar
friðardeild
Vænti góírar sambúftar vií Sovétríkin og
batnandi hags heima fyrir
Washington 1.3. (NTB)
Kennedy, Bandaríkjaforseti
hélt fund með blaðamönnum
í dag. í upphafi skýrði for-
setinn frá því, að hann hefðj
ákveðið að stofna eins konar
friðarherdeiid ungra manna
og kvenna í Bandaríkjunum,
sem kaupiaust skyldi vinna
í þágu vanþróaðra landa. Eg
vona, sagði forsetinn, að a.m.
k. fjmm hundruð manns verði
í þessari herdeild áður en
þetta ár er á enda.
Forsetinn skýrði frá heim-
sókn Adenauers, kanzlara V-
Þýzkalands, vestur um haf
12. apríl nk. og kvaðst fagna
komu hans og að fá tækifæri
til þess að ræða við hann. Gat
forsetinn þess, að hann myndi
nýbúinn að eiga viðræður við
MacMillan forsætisráðherra
Breta, er Adenauer kæmi
vestur.
Vill stuðla að betri sambúð.
Kennedy ræddi um ástand-
ið í landvarnarmálum og
sagði m.a., að landvarnar-
ráðuneytið hefði farið þess á
leit við sig, að hann styrkti
þær herdeildir, sem búnar
ei-u eldri gerðum af vopnum.
Forsetinn sagðist hins vegar
vilj'a leggj a áherzlu á það, að
þetta breytti í engu afstöðu
Bandaríkjastjórnar til þeirra.
Þetta breytir í engu stefnu
Bandaríkjarina í landvarnar-
málum, sagði forsetinn. Þetta
miðar aðeins að því að styrkja
aðstöðu okkar.
Forsetinn var að því spurð
ur, hvort hann héldi, að á-
greiningur Sovétrikjanna og
Kína gæti orðið til þess að
bæta sambúð Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna. Forsetinn
vildi ekki svara þessu beint,
en sagði, að hann vonaði að
svo góð sambúð ríkti með
Bandaríkjunum og Sovétríkj-
unum að þjóðir heims gætu
lifað í 'friði og öryggi. Sagði
Kennedy að hann athugaði
nú leiðir til þess að bæta sam
búð ríkjanna til þess aö draga
úr spennu í alþjóðamálum.
Forsetinn sagði og, að stjórn
sín undirbyggi nú nýjar til-
lögur um afvopnun og hann
kvaðst vona að áfram yrði
lagt bann við notkun kjarn-
orkuvopna.
Horfir til hins betra
heima fyrir.
Kennedy sagðist vona, að
allar meðlimaþjóðir Atlants-
hafsbandalagsins legðu sitt
fram til þess að standa undir
kostnaði við hinar sameigin-
legu varnir og hjálp til van-
þróaör^ ríkja. Kennedy sagði,
að þegar hefði verið samið um
aðstoð Vestur-Þýzkalands við
vanþróuð lönd og gilti sá
samningur 1 eitt ár. Forsetinn
var að því spurður, hvort
þessi aðstoð væri þá alveg úr
sögunnj og svaraði hann því
til, að ekkert frekara væri á-
kveðið.
Forsetinn sagði, að efna-
hagskerfi Bandaríkjanna
hefði verið illa komið, en hánn
vonaðist til að betri dagar
væru framundan. Sagði hann
að í þessum mánuði hefði
hætt gullflóttinn frá Banda-
ríkjunum og væri þess að
vænta, að vegur dollarans
færi nú vaxandi að nýju.
Forsetinn vék að ástandinu
í Kongó og kvað það uggvæn
legt. Hann sagði, að Banda-
ríkin myndu h’alda fast við
framkvæmdir Öryggisráðsins
í Kongó. Um Alsírmálið sagði
forsetinn, að hann vonaðist
til, að viðræður þeirra de
Gaulle, Frakklandsforseta, og
Bourgiba, Túnisforseta, bæru
árangur.
Mélmæla svikum
Fundur í stúdcntafélaginu hald-
ir.n í gærkvöldi, mótmælir ákveðið
svikum ríkinstjórnarinnar í land-
Iielgismálínu.
var á leið til vinnu á Seltjarn-
arnesi. Svo vel vildi til, að
leigubíl bar að í þeim svifum,
er árásarmaðurinn veittíst að
stúlkunni, og stökkti honum á
flótta.
Svo sem fyr'r segir var stúlkan
á leið til vinnu. Einhvers staðar
á Nesveginum v-eitti hún því eftir-
tekt, að maSur hélt í humáttina á
eftir henni. Greikkaði maðurinn
brátt sporið, náði stúlkunni og
þreif til -hennar. Stúlkan sa-gði hon
um að hafa sig á brott, en maður-
inn svaraði einhverju tuldri, sem
hún ekki skildi, hárreytti hana ogj
greip fyrir kverkar henni.
en kom ekki upp hljóði vegna
kverkataksins. í þessum svifum
bar að leigubíl, og er árásarmaður-
inn varð bílsins var, forðaði hann
sér hlaupum og hvarf sýnu-m.
Bílstjórinn bauð , stúlkunni að
aka h-enni heim, hvao hún þáði með
þökkum. Óku þau síðan um ná-
grennið, en ekki sást tangur né tet-
ur af árásarmanninum.
Stúlkan lýsir manni þessum
svo, að hann hafi verið ungur,
klæddur ljósum regnfrakka, og
einn fingur annarrar h.andar var
reifaður. Þeir, sem upplýsingar
gæhr gefið varðandi málið, eru
vinsamlega beðnir að snúa sér til
lögreglunnar.
Róðrar hafnir í
Vestmannaeyium
\
Verkfalli-nu aflýst í gær, eftir aí samkomulag
hafíi náfist vií verkamannafélagiíi Snót
Frá fréttaritara TÍMANS
í Vestmannaeyjum.
Verkfallinu í Vestmanna-
eyjum hefur nú verið aflýsf og
fóru margir báfar á sjó í gær,
þrátt fyrir heldur slæmt veð-
ur. Klukkan fjögur í fyrrinótt
lauk samningafundi, sem Torfi
Hjartarson, sáttasemjari ríkis-
ins hélt með deiluaðilum og
náðist þar samkomúlag milli
verkakvennafélagsins Snótar
og atvinnurekenda. Þetta sam-
komulag var svo borið undir
fundi vsrkalýðsfélaganna í
gærdag, og var þar fallizt á
samkomul&g Snótar og at-
vinnurekenda og verkfallinu
þar með aflýst.
Samkomula-gið var á þá leið, að
verk-akonur fá 19% hæk-kun, miðað
við dagvinnu, og þær, sem vinna
við fiskpökkun og í þurrkhúsvinnu
fá 32% hækkun miðað við dag-
kaup. Aðalbr'eytingin er sú, að
verkakonur fá greiddan matartíma,
og verður dagkaup- við fiskvinnu
því nú 157,54 í stað 129,12 áður,
þótt tímakaupið teljist aðeins
hæk-ka úr 16,14 í 17,06.
Þetta samkomulag var samþykkt
á Snótarfundi í gær, og á fundum
verkamanna-félagsin-s og sjómanna
félagsins var’ samþykkt að aflétta
samúðarverkföllum og^hefja vinnu
á sjó og landi.
Hv-erfur nú sem óðast hinn mikli
drungi, sem hvílt hefur á öllu at-
(Framhald á 2. síðu.)
/