Tíminn - 02.03.1961, Side 7
Ingólfur lofar lánunum
í þessum mán. og næsta
Landbúna'ðarráðherra svarar fyrirspurnum um
lánveitingar úr ræktunarsjóði og bygghgar
sjótii sveitabæja
Landbúnaðarráðherra svar-
aði f gær fyrirspurn frá þeim
Páli Þorsteinssyni, Ágústi Þor
valdssyni og Daníel Ágústínus
syni um lánveitingar úr rækt
unársjóði og byggingarsjóði
sveitabæja. Fyrirspurnin var
svohljóðandi:
1. Verður ræktunarsjóði
og byggingarsjóði sveitabæja
útvegað nægilegt fé, til þess
að sjóðirnir geti veitt lán
samkvæmt þeim umsóknum,
sem borizt höfðu fyrir síðast
liðin áramót og enn eru ó-
afgreiddar?
2. Ef svo er, hvenær geta
þær lánveitingar hafizt?
Páll Þorsteinsson fylgdi fyr-
irspurninni úr hlaði. Sag'ö'i
hann að sú venja hefði skap-
ast um lánveitingar úr sjóðun
um, að aðalúthlutun lána
hefði farið fram í desember-
mánuði, en þær umsóknir,
sem seint á árinu hefðu bor-
izt og ekki hefði unnizt tími
til að afgreiða fyrir áramót
hefðu verið afgreiddar síð-
ara hluta vetrar í febr.—marz.
Margar umsóknir liggja nú
fyrir óafgreiddar og kvaðst
Dagskrá
Alþingis
'Páll ætla að útvega yrði sjóðn
um nokkurt fé til að unnt
væri að afgreið?, þær á næst-
unni.
Ingólfur Jónsson sagðist
hafa svarað líkri fyrirspurn í
umr. fyrir nokkrum dögum
og'kvaðst aðeins vilja endur-
taka það, sem hann hefði þá
sagt, og kvað víst að umsókn-
irnar yrðu afgreiddar í marz
eða apríl. Umsóknirnar næmu
samtals 9.1 millj. króna.
Páll Þorsteinsson sagðist
fagna því, að ráðh. lýsti yfir
að umsóknirnar myndu af-
greiddar í þessum mánuði
eða hinum næsta og kvaðst
mundu treysta því, að það
brygðist ekki.
Halldór Ásgrímsson kvaðst
aðeins vilja vekja athygli á
fyrri ummælum ráðherrans
um málið, er hann svaraði ó-
formlegri fyrirspurn við um-
ræðu í neðri deild. Þá sagði
ráðherrann, aö sjóðirnir væru
sjálfbjarga og þyrftu ekkert
nýtt fjármagn til að afgreiða
umsóknirnar. Afborganir og
vextir bærust sjóðunum á
tímabilinu jan.—marz, og það
fjármagn kvað ráðherrann
myndu nægja til afgreiðslu
þeirra umsókna er fýrir lægju
og nema um 9 millj. kr. Sagð
Utvarpsumræðan
um landhelgis-
málið er í kvöld
ist Halldór vilja efast um að
ráðherranum yrði að von
sinni hvað þetta snerti. Bænd
ur hefðu sjaldan áður haft
svo þröngan fjárhag sem nú
og því kynni ýmsum að verða
erfitt að standa í skilum.
Marz og apríll eru miklir út-
gjaldamánuðir fyrir bændur
vegna áburðar- og sáðkaupa
t.d. Halldór kvaðst hins vegar
vilja vona, að ráðh. gerði ráð-
stafanir ef nauðsynlegt reynd
ist, til að afla sjóðunum nýtt
(Framhald ó 2. síðu.)
Hermann Jónasson, Ólafur Jóhannesson og
Þórarinn Þórarinsson tala af hálfp Framsóknar-
flokksins
Svarta beltið á uppdrættinum
táknar veiðisvæði þau, sem Bret
ar eiga að fá tll afnota fyrir tog-
ara sína næstu þrjú árin. Þetta
svæði er samtals 14.487 ferkíló-
metrar. Eins og á kortinu sést
er kveðið á um það á hvaða tím-
um árs Bretar mega veiða á
hinum einstöku miðum og það
er þegar fiskigengd er mest á
hverjum stað. Togaraflotinn mun
því færa sig eftir fiskigöngum
landið um kring og væntanlega
togarar annarra þjóða einnig, því
að ríkisstjórninni mun sjálfsagt
ekki þykja sæma að verðlauna
ofbeidismennina eina.
Ákveðið var í sameinyðu
þingi í gær, hvernig ræða
skyldi þingsályktunartillögu
ríkisstjórnarinnar um samn-
inginn við Breta um landhelg
ina. Ríkisstjórnin hafði lagt
til að ein umræða yrði höfð
um tillöguna. Einar Olgeirs-
son kvaddi sér hljóðs og fór
fram á að um tillöguna yrðu
hafðar tvær umræður. Sagði
Einar að þar sem hér væri
raunverulega um milliríkja-
samning að ræða og með sam
þykkt tillögunnar yrðu lögin
um vísmdalega verndun fiski-
miða landgrunnsins gerð ó-
virk, væri málið svo mikilvægt
að tilhlíðilegt væri að hafa
um það tvær umræður.
Forseti frestaði fundi þrí-
vegis í samtals um 40 mínútur
meðan Ólafur Thors ræddi
við þá Hermann Jónasson og
Einar Olgeirsson um málið og
málið rætt á þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins. Eftir
þetta þóf féllst stjórnarliðið á
að láta tvær umræður fara
fram um málið.
Ólafur Thors forsætisráð-
herra lýsti því yfir, að hann
féllist á þá málsmeðferð skv.
umboði síns flokks — gekk
úr ræðustóli, tók sig síðan á,
hljóp í ræðustól að nýju og
bætti við — og með heimild
Alþýðuflokksins. Hló þá þing-
heimur.
Fyrri umræðan um tillög-
una verður útvarpsumræða og
fer hún fram í kvöld, en síð-
an verður tillögunni vísað til
nefndar og 2. umr. hennar
fer væntanlega fram í sam-
einuðu þingi nk. mánudag.
f umræðunum í kvöld verða
ræðumenn Framsóknarflokks
ins þeir Hermann Jónasson,
Ólafur Jóhannesson og Þór-
arinn Þórarinsson.
Dagskrá efri deildar Alþingis
fimmtudaginn ,2. marz 1961 kl. 1,30
miðdegis.
1. Kornrækt, frv. — Frh. 2. umr.
2. Listasafn íslands, frv. — 2. umr.
3. Iðnaðarmálastofnun íslands, frv.
1. umr.
Dagskrá neðri deildar Alþingis
fimmtudaglnn 2. marz 1961 kl. 1,30
miðdegis:
1. Almannatryggingar, frv. — Frh.
1. umr. (Atkvgr.)
2. Raforkulög, frv. — 1. umr.
3. Löggilding bifreiðaverkstæða,
frv. — 2. umr.
4. Stofnlánadeild sjávarútvegsins,
frv. — Frh. 2. umr.
5. Seðlabanki íslands, frv. — 3.
umræða.
6. Landsbanki íslands, frv. — 2.
umr.
7. Útvegsbanki íslands, frv. — 2.
umr.
8. Réttindi og skyldur hjóna, frv.
2. umr
9. Sala eyðijarðarinnar Þorsteins-
staða í Grýtubakkahreppi, frv.
2. umr.
10. Matreiðslumenn á skipum, frv.
2. umr.
r
11. Búnaðarháskóli, frv. — 1. umr.
12. Eyðing svartbaks, frv. — Frh.
1 umr.
I
Dagskra sameinaðs Alþingis
fimmtudaginn 2. marz 1961 kl. 8
síðdegis:
Lausn fiskveiðideilunnar við BretaJ
þáltill — Fyrri umræða (Útvarpsupv
ræóa! I
tfltifa. .
•© j-si G runnöH;:i\nftir
-----.Gr'unrinor.
■n UNOfíNfifí<ÍUSVÆ0
BRern
\
I