Tíminn - 02.03.1961, Page 12
!
T í MIN N, f rmintu4„í?inn 2. marz 1961.
"'i ..........yp* .....•-gy%» _—;------------------------------;~rpy
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Hrafnhildur Guðmundsdóttir setti
tvö íslandsmet á Ármannsmótinu
Sundmót Ármanns — fyrsta
sundmót ársins hér í Reykja-
vík — var mjög vel heppnað,
og geysispennandi keppni í
nokkrum greinum. Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir, ÍR, var
aðal „stjarna" kvöldsins, setti
tvö íslandsmet í bringusundi
og sigraði auk þess Ágústu
Þorsteinsdóttur í 100 m. skrið-
sundi. Þá kom Pétur Krist-
jánsson mjög á óvart með að
sigra Guðmund Gíslason í 50
m. flugsundi.
Hrafnhildur bætti met sín tals-
vert í bringusundinu, en hún setti
bæði metin í sama sundinu, 100
m bringusundi. Millitími var tek-
inn eftir 50 m. og synti Hrafnhildur
þá á 38.0 sek., en eldra met henn-
ar var 38 7 sek. í 100 m fékk hún
tímann 1:22.5 mín., en eldra met
hennar var 1:23.6 mín. Þetta er
mjög athyglisverður árangur og
Hrafnhildur sannaði það enn betur
s?ðar um kvóldið, að hún er í mik-
illi framför sem sundkona.
Einvígi hennar við Ágústu Þor-
steinsdóttur í 100 m. skriðsund
inu var aðalviðburður kvöldsins,
og mátti ekki lengi á milli sjá
hvor færi með sigur af hólmi.
Undir 'okin tókst Hrafnhildi að
tryggja sér nokkra forustu og
sigraði á 1:08.0 mín. og stórbætti
með því árangur sinn. Ágústa
syntj á 1:08.9 mín. — sem reynd-
ar er langt frá hennar bezta tíma
— en hún hefur lítið sem ekkert
æft frá < sumar. Þriðja í sundinu
varð Margrét Óskarsdóttir frá
fsafirði á 1:14.9 mín. — sem, er
mjög athyglisverður árangur hjá
14 ára stúlku.
í 200 m. bringusundinu var
hörkukeppnj eins og alltaf milli
hinna jöfnu bringusundsmanna
okkar. Sigurður Sigurðsson frá
Akranesi tók í upphafi forustuna,
og hélt henni mest_ allt sundið.
Einar Kristinsson, Á, fylgdi þó
fast eftir, ug á síðustu 25 metron-
um renndi hann sér fram úr Sig-
urði og sigraði örugglega. 1
og sigrafö Ágústu í 100 m. skriSsundi
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
— tvö ný íslandsmet.
Guðmundur Gislason virtist ekkj
í eins góðri æfingu nú og oftast
áður. Hann sigraði í 100 m. skrið-
sundinu og einni mínútu sléttri —
eða langt fr& sánum bezta árangri
— og í 50 metra flugsundinu beið
hann lægri hlut fyrir Pétri Krist-
jánssyni, sem reyndar er methafi
í þeirri grem, enJPétur hefur að
næstu lagt keppnissund niður, og
ekki æft, eins og þarf til að standa
í keppni. Timi Péturs í sundinu
var 30.7 sek. og var sigri hans fagn-
ao mjög. Guðmundur synti á 31.5
sek.
Þá fór einnig fram sýning í dýf-
irgum undir stjórn Valdimars
Ömólfssonar og tókst hún ágæt-
lega og vakti mikla athygli.
Helztu úrslit í mótinu urðu þessi:
100 m. skriðsund:
L Guðm. Gíslason, IR 60.0
2 Þorsteinn Ingólfsson, ÍR 63.3
3. Guðm. Sigurðsson, ÍBK, 64.4
4. Erling Georgsson, SH 65.7
100 m. bringusund drengja:
1. Ólafur B. Ólafsson, Á 1:21.0
2. Sig. Ingólfsson, Á 1:23.5
3. Grétar Bjarnason, SA 1:24.6
4. Benedikt Valtýsson, SA 1:27.5
SVISS
í kvöld-
Annar leikur íslenzka liSs-
ins í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik verður í kvöld
og leikur ísland þá gegn Sviss
— og veröur það sennilega úr-
slitaleikur um það hvort liðið
kemst í milliriðil í keppninni.
Leikurinn hefst kl. 6.30 eftir
íslenzkum tímaog verður í
Wiesbaden Blaðinu er ekki
kunnugt um það hvernig ís-
lenzka liðið verður skipað, en
það verður svipað og gegn
Dönum í gærkvöldi með þeim
breytingum þó, að Hjalti Ein-
arsson kemur í markið, og
Kristján Stefánsson í framlín-
una.
Sýndar voru dýfingar af háu bretti, og hér sést ein stúlkan í handstöðu
á brettinu.
100 m. brir.gusund kvenna:
1 Hrafnh. Guðmundsd. ÍR 1:22.5
2. Sigrún Sigurðard., SH 1:28.3
200 m. bringusund karla:
11. Einar Kristinsson, Á 2:46.3
2 Sig. Sigarðsson, SA 2:47.4
3 Guðm. jamúelsson, SA 2:48.9
4. Hörður Finnsson, ÍR 2:51.0
50 m. SKi-Öisund drengja:
1. Guðmundur Harðarson, Æ 30.3
2 Davíð Valgarðsson, ÍBK 30.5
S Þröstur Jónsson, Æ 31.3
4. Kári Þórðarson, Á 32.5
50 m. flugsund karla:
1. Pétur Kristjánsson, Á, 30.7
2. Guðm. Gíslason, ÍR, 31.5
3. Guðm. Sigurðsson, ÍBK, 34.0
50 m. skriðsund telpna:
1. Margrét Óskarsdóttir, ÍBÍ, 33.6
2. Inga Geirlaugsdóttir, SA, 39.5
3. Lilja Sveinsdóttir, SA, 41.5
50 m. bringusund telpna:
•
1. Sigrún Jóhannsdóttir, SA, 42.4
2. Kalbiún Guðmundsd. ÍR, 45.4
3. Ólöf Bjömsdóttir, UMFR, 56.0
4. Stefanía Guðjónsd., ÍBK, 46.5
50 m. baksund drengja:
1. Davíð Valgarðsson, ÍBK, 37.5
2. Sigurður Ingólfsson, Á, 37.7
3. Guðm. Harðarson, Æ, 39.2
4. Þröstur Jónsson, Æ, 40.2
4x50 m. bringusund karla:
2. Sveit Ármanns 2:23.3
1. Svelt ÍR 2:22.6
3. Sveit KR 2:31.0
Viöbí'agðið í 100 m. skriSsundinu. Ágústa Þorsteinsdóttir er nær myndavélinni, en Hrafnhildur Guðmundsdóttlr
fjær. Ljósmyndir Tíminn. Guðjón Einarsson.
Landskeppni
, i
I gær hófst í Moskva lands-
keppni í skautahlaupum milli
Sovétríkjanna og Noregs og
var í gær keppt í tveimur
greinum, 500 m. og 5000 m.
Eins og við var búizt hafa
Sovétríkin forustu í keppninni
eftir fyrri daginn, og var það
einkum spretthlaupið sem
gerði útsláttinn.
Heimsmethafinn Grisjin sigraði
örugglega í 500 m. hlaupinu, og
hinn eini, sem komst eitthvað ná-
lægt tíma hans var landi hans,
Oleg Sjabarov, sem hljóp í síðastaj
riðlinum. Eini Norðmaðurinn, sem|
sigraði sovézkan hlaupara í sam-
biaupi í riðli var Thorstein Seier-j
sten, sem sigraði Nikolaj Stjel-
baum.
í 500 m. hlaupinu stóðu Norð-
menn sig betur og áttu þar meðal
annars annan, þriðja og fjórða
mann. Sigurvegari var Kositsjkin á
8:14.9 mín. 2. Seiersten á 8:24.9
3 Fred A. Maier á 8:26.2 mín. 4.
Knud Johannesen á 8:29.8 mín 5.
Stjelbaum á 8:31.7 min. 6. Khabi-
bulin á 8:31.8 mín. 7. Merkulov á
8:31.9 mín. 8. Sogge, Noregi, á
8:35.0 mín. 9. Boris Stenin, Sovét,
á 8:36.0 mín. og 10. Kotov, Sovét,
á 8:36.8 min. i
Norskt há-
stökksmet
Á norska meistaramótinu í at-
rennulausum stökkum, sem háð
var í Bergen sl. sunnudag, setti
Svein Hove öHum á óvænt nýtt,
norskt met í hástöMri án atrennu,
stökk 1.74 metra, en það er bezti
árangur, sem náðst hefur í þessari
grein í heiminum. Johann Chr.
Evandt, sem átti eldra nor'ska met-
ið, varð annar, en hann sigraði í
langstökki án atrennu, stökk 3.47
metra.
Sæmdur gull
merki K.R.R.
S.l. mánudag hélt Knattspyrnu-
ráð Reykjavíkur 1400. fund sinn,
en ráðið hefur nú starfað í nærri
42 ár. Á fundinum sæmdi ráðið
Harald Gíslason gullmerki ráðsins
fyrir langt, og fórnfúst starf að
knattspyrnúmálum höfuðstaðarins.
Haraldur Gíslason hefur um
langt árabil verið einn af forystu-
mönnum K.R., var lengi formaður
knattspyrnudeildar félagsins, og
átt sæti í K.R.R. síðan 1953 og
verið eitt árformaður. Síðustu árin
hefur Haraldur átt sæti í landsliðs-
nefnd K.S.Í.
AUs hafa 11 forystumenn knat'-
spyrnumálanna verið sæmdir gull-
merki K.R.R.