Tíminn - 02.03.1961, Síða 16
e
<(0Sffis
»1. Mat.
Fhnmhidaginn 2. marz 1961.
Blindur fær sýn
- eftir 20 ár í myrkri
Fagnaðaróp kvaS viS í dag-
stofu sjúkrahúss í Stokkhólmi.
ÞaS kom frá manni meS bindi
fyrir augum. Hann var( aS
kveikja í pípunni sinni, og i
gegnum bindiS grillti hann
IjósiS á eldspýtunni. ÞaS var
fyrsti bjarminn, sem hann sá
i tuttugu ár. í tuttugu ár hafSi
hann verið steinblindur.
Það var því ekki furða, þótf Erik
Strand ræki upp fagnaðaróp:
— Ég sé, ég sé!
— Hvað. er það, sem þú sérð?
spurði hjúkrunarkonan um leið og
hún losaði bindið gætilega frá
rugum mannsins og setti í staðinn
á hann gleraugu til hlífðar augun-
um.
— Yður, og þér eruð falleg. Ég
myndi biðja yðar samstundis, ef ég (
væri ekki sextugur og þar að auki
kvæntur.
\
Ör í auga
Erik Strand er nieifa en kvænt-
ur. Hann hefur átt þrjár konur, og
síðasta konan hans beið í gistihúsi
fregna af því, hvernig augnaupp-
skurðurinn hefði heppnazt. Hann
var átta ára drengur, þegar ör lenti
í auganu á honum og stórspillti
sjóninni. Smám saman tók sjónin
á hinu auganu einnig að daprast.
■ Það er ekki fágætt, og af þessum
sökum er skemmt auga oft tekið
úr, svo að það spilli ekki hinu.
Erik Strand átti auðuga ætt-
ingja, og litlu áður en hann missti
sjónina alveg fór hann í langt
feiðalag. Hann var búinn að ferð-
ast um tvær heimsálfur, þegar
hann varð steinblindur. Þá sneri
hann heirn til Svíþjóðar og tók að
fást við smábúskap.
Hrakfallabálkur
Eitt sinn brá hann sér til Stokk-
hólms, en þegar hann kom heim,
var býli hans brunnið til kaldra
kola. Kona hans hafði ætlað að
bjarga finnskum fóstursyni þeirra
hjóna úr eldinum, en fórst við
það.
Strand kvæntist í annað sinn og
hóf búskap á ný. En, nú tapaði
hann aleigunni, og um svipað leyti
fékk kona hans heiftúðuga liða-
gigt og dó eftir mörg erfið sjúk-
dómsár.
Og svo birti
Árið 1956 tók Slrand sér það
fyrir hendur að smíða kassa.
Hann vann við sög sína á nóttunni,
því að þá var hljótt í kringum
hann. Hann efnaðist á kassagerð-
inni, og nú kynntist hann ekkju,
sem hann kvongaðist litlu síðar.
Fyrir foitölur hennar féllst hann
á að láta skera upp augun.
Fögnuður mannsins var að sjálf-
sögðu mikill, þegar hann fékk
sjónina aftur. Hann faðmaðj konu
sína fast að sér, þegar hún kom
til hans í sjúkrahúsið.
— Þú ert fallegri en mig óraði
fyrir, sagði hann við hana.
Kampavín
Og svo kom þar, að konan fór
með hann út í borgina. Sfrand
varð undrandi — svo mjög hafði
Síokkhólmur breytzt á tuttugu
á’iim. Honum varð starsýnt á
vagnana, því að þeir voru stærri
og litskrúðugri én hann hafði
grunað. Föt stúlknanna og hár/
greiðsla — ijýju byggingarnar —
allt var þetta' sem ævintýr.
Loks fór Strand með konu sína
í veitingástofu, þar sem hann hafði
verið orðinn svo kunnugur, að
hann gat fálmað sig áfram. Nú gat
hann gengið rakleitt fil stúlkunnar,
sc-m gekk um beina. Og hann bað
um kampavín handa sér og konu
sinni.
Þýzkur SS-foringi velur stúlkur til undaneldis í kynbótastöð SS-sveitanna.
Mannakynbætur nazísta
iCvikmynd ,
um hugmyndir
Himmlers
Ein af hugmyndum SS-for-
sprakkans Heinrichs Himml-
ers á velmektardögum nazist-
anna var stofnun kynbóta-
stöðvar, þar sem klekja átti út
fólki til yfjrdrottnunar í þús-
und ára ríki nazismans —
fólki sem átti að stjórna heim-
inum, þegar Hitler hefði lagt
hann að fótum sér.
í þessum stöðvum áttu verð
launamenn úr SS-sveitunum
að geta börn við sterklegar,
ljóshærðar stúlkur með nor-
rænu svipmóti. Börnin skyldu
tekin frá mæðrunum, jafn-
óðum og þau fæddust, og alin
upp í sérstökum borgum við
harðræði og strangan aga að
hætti Spartverja. Með þess-
um hætti bjóst hann við að
fá að tuttugu árum liðnum
harðfeng, ljóshærð foringja-
efni, sem væru laus við alla
viðkvæmni, er umhyggjusemi
og ástúð fjölskyldulífsins elur
af sér, reiðubúin til þess að
stjórna heimsríkinu án misk
unnar að dæmi Hitlers og
hans sjálfs.
Nokkur efi þykir leika á því
hvort hafizt hafi verið handa
íum að stofna þessar ■ eðlunar-
| stöðvunar í Þýzkalandi. Gaml
j ir SS-menn hafa orðið til þess
að mótmæla því, að svo hafi
verið. Þetta hafi aðeins verið
ráðagerð eða áætlun, er ekki
hafi komizt lengra en á papp-
írinn.
Tilvonandi mæður forlngjaefnanna.
í ... . • ,
GeÖveikisórar um þýzkar hetjur og Ijós-
hærtiar, norrænar stúlkur. sem áttu átS ala
af sér foringjaefni í kynbótastöfrvum
-,*^waM^”^^^^rrirriilllirn-iiTTir,Ttlni Trwrrnrwi"'ii»>iiiii i’i<
En hvort sem þaö er rétt
eða ekki hefur nú verið gerð
kvikmynd af þessum óska-
draumi Himmlers og SS-for-
ingjanna og það í sjálfu V-
Þýzkalandi. Var við gerð mynd
arinnar farið eftir skjölum
frá sjálfum höfuðstöðvum
Himmlers, svo að í megindrátt
um ætti þarna að birtast nokk
uð sannsöguleg mynd af því;
hvernig nazistaforingjarnir
hugsuðu sér að koma upp
fólki, sem hæfilegt væri til
þess að stjórna heiminum.
Myndin fær samt ekki góða
dóma, því að lausatök þykja
á ýmsu í útfærslunni, líkt og
þeir, sem létu gera myndina,
hafi kveinkað sér við að sýna
villimennsku nazistanna í allri
sinni nekt. Því hefur verð svo
að orði komizt, að Himmler
muni ekki snúa sér við í gröf-
inni, þegar tekið verður aö
sýna myndina, heldur brosa
háðslega að linkunni og
væmninni.
r\ s.
^ -
Strekkingur
í dag, segir oss veðurstof-
an, á að vera sunnan- og
suðvestan kaldi eða stinn-
ingskaldi með éljagangi og
heldur kaldara en var í
gær.
Erik Strand sér konu sína í fyrsta skipti.
Ríkíð beri allan
löggæzhikostnað
Meðal ályktana, sem síðasti
fulltrúaráðsfundur Samb ís-
lenzkra syeitarfélaga sam-
þykkti er eftirfarandi:
„Fulltrúaráðsfundurinn í-
trekar fyrri ályktanir sveitar
stjórnarmanna um nauðsyn
endurskoðunar á lögum um
löggæzlumenn og lítur svo á,
að ríkissjóði beri aö greiða
allan kostnað við löggæzlu í
landinii. Þá verði og athugað
hvort f^ert sé aö sameina toll
gæzlu og almenna löggæzlu.
En meðan lögreglumálum
er skipað á þann veg, sem nú
er, beinir fundurinn þeirri
eindregnu ósk til ríkisstjórn-
arinnar, .að nú þegar verði
staðfestar þær lögreglusam-
þykktir héraðanna, sem enn
eru óstaðfestar, og grci.t
verði fyrir því, að þau sýslu-
félög, sem þess óska, igeti
fengið fullkomna lögreglu-
bíla til afnota við starf lög-
gæzlumanna.“
i