Tíminn - 09.05.1961, Blaðsíða 1
Á sunnuadglnn minntist barnaskóli Akureyrar 90 ára afmælis síns, m.a. með afar fjölmennrí skrúðgöngu um bæ-
inn. Lúðrasveit skóians gengur á undan ásamt stjórnandanum, Jakobi Tryggvasyni. í barnaskóianum voru 770
börn f vetur. Skólastjóri er Hannes J. Magnússon (Ljósm.: E.D.)
Kona stórslasast í bíla-
árekstri á Sauðárkróki
Báðir bílarnir eru því nær ónýtir
Upphlaup og rúðu-
brot í fyrrakvöld
Heimdellingar grýttu flokkshús Sósíalistaflokks
ins og brutu rúíu í rússneska sendirátSinu.
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Mjög harður árekstur varð
hér um klukkan 3 á aðfaranótt
sunnudags, er fólksbifreiðinni
K-373 var ekið af mikiili ferð
á rússneska jeppabifreið
K-408, sem var við það að
stöðvast. er áreksturinn varð,
með þeim afleiðingum, að
margir farþeganna slösuðust,
og eru bifreiðarnar taldar nær
ónýtar.
Ein kona, Rannveig Jóhannes-
dóttir, sem var í jeþpabifreiðinni,
en mikið slösuð, og liggur hún
þungt haldin í hinu nýja sjúkra-
húsi á Sauðárkróki. Hlaut hún
skurð á höfði, og er lalið að hún
hafi einnig mjaðmarbrotnað, en
meiðsli hennar voru ekki fullrann
sökuð er Tíminn hafði tal af
fréttaritara sínum í gærkveldi.
Nánari tildrög slyssins voru
þau, að er jeppaþifreiðin, K-408
var á leið noður Skagfirðingaþr., j
hjá svonefndum Páfastöðum, kom
á móti henni fólksbifreiðin K-373,
á mikilli ferð.
Bflstjóri jeppabifreiðarinnar, j
Kjartan Björnsson, dró úr ferð j
bifreiðar sinnar, og var hún næri
stöðvuð á vinstri vegarbrún, er |
fólksbifreiðin rakst á hana af:
miklu afli. Kastaðist jappabifreið j
in nokkra metra aftur á bak eftir j
veginum við höggið — og lentij
síðan hálf út af veginum.
f jeppabifreiðinnl var 9 manns
en 6 í fólksbífreiðinni. Farþeg-
ar jeppabifreiðarinnar slösuðust
allir eitthvað, en fimm þó mest.
Var það Rannveig Jóhannesdóttir
sem áður er getið. Kjartan Björns
son, sem ók; Ólafur Pétursson í
Álftagerði, ungur piltur, Hjörtur
Vilhjálmsson, maður Rannveigar
og Elsa Svavarsdóttir. Voru þau
öll flutt í sjúkrahús, þar sem gert
var að meiðslum þeirra, en Rann
veig liggur þar enn, eins og áður
segir. Farþegar fólksbifreiðarinn-
ar sluppu ómeiddir.
Dansleikur hafði verið um
kvöldfð í Melsgili hjá Reynistað,
og mun fólkið hafa verig að koma
þaðan, er áreksturinn varð. —
Jeppabifreiðin, sem er nýyfir-
byggð, árgerð 1960, stórskemmd-
ist, en fólksbifreiðin er talin ger-
ónýt. Grunur leikur á, að bifreið
arstjórinn á fólksbifreiðinni K-373
hafi verið undir áhrifum áfengis.
;Frá fréttaritara Tímans
|á Akranesi.
Klukkan um tíu í gærmorg-
un kom Akranestogarinn Vík-
ingur með fullfermi af karfa
til Akraness eftir 20 daga
veiðiferð. Þar sem löndun var
ekki lokið í gær, er ekki hægt
að segja með nákvæmni, hve
aflinn er mikill, en gizkað er
á, að hann sé um 500 lestir.
Þetta er í fyrsta sinn, sem Vík
ingur kemur með svo mikinn afla
að landi, og enginn hinna stóru
togara hefur áður komið með full
fermi, að undanskildum togaran-
um Maí frá Hafnarfirði, sem kom
Veruleg spellvirki voru unn-
in í Reykjavík á sunnudags-
kvöldið af hópi unglinga, sem
fóru um bæinn með æsingum
og grjótkasti, og var brotinn
fjöldi rúða í Tjarnargötu 20,
flokkshúsi Sósíalistaflokksins,
og ein rúða í embættisbústað
rússneska ambassadorsins.
Handtók lögreglan nokkra
menn, og verður málið rann-
sakað.
Þeir, sem spellvirkin unnu, voru
aðallega unglingar, en þeim virtist
stjómað af mönnum, sem framar-
lega standa í Heimdalli, félagi
ungra Sjálfstæðismanna.
Ekki' er ástæða til þess að ætla,
að þessar óeirðir hafi verið skipu-
lagðar af Sjálfstæðisflokknum eða
stjórn Heimdallar í heild, og verða
þessir aðilar og afstaða þeirra til
óeirðanna að dæmast eftir því,
hvort þeir fordæma þetta fram-
ferði einstaklinga úr þeirra röðum,
eða láta það ógert.
Stimpingar við Miðbæjar-
skólann
Þegar útifundur Samtaka her-
námsandstæðinga var settur við
Miðbæjarskólann, höfðu nokkrir
unglingar dregið þar saman spýtna
brak og fleira í húsasundi. Króaði
lögreglan þá af hóp unglinga, sem
sýnilega ætluðu að efna til óspekta,
og setti vörð við skranhrúguna.
Nokkrir menn úr Heimdalli, sumir
úr stjórn þess félagsskapar, hvöttu
unglingana, og urðu. talsverðar
inn með svipað magn fyrir nokkr
um dögum.
Eins o gáður segir, er megnið
af aflanum karfi, en 60—70 lest-
ir voru þorskur.
Aflinn fékk Víkingur að mcstu
Leyti á miðunum við Vestur-Græn
land, en flutti sig um tíma á Ný-
fundnalandsmiðin. Er búizt við,
að aflinn fari allur til vinnslu í
frystihúsum á Akranesi ,og verð
ur ekki skipað örar upp en frysti
hsúin geta tekið á móti, því að
karfinn skemmist fljótt ef hann
er látinn liggja í landi.
Er þess vænzt, að búið verði að
skipt upp úr togaranum eftir tvo
til þrjá daga. Eins og áður segir,
voru allar stíur troðfullar, en
einnig voru nokkrar lestir á þil-
fari.
stimpingar, og var ýmsu hent yfir
mannfjöldann — mold, spýtum,
piparbaukum, skaptpotti og kodda.
Varð lögreglan að fá liðstyrk til
þess að hemja hópinn, og tók hún
þarna nokkra menn fasta og mun ,
hafa farið með þrjá í lögreglustöð-
ina tíl yfirheyrslu.
Gr jótkast á bögglauppboS
Um þetta leyti var skemmtifund-
ur og kaffikvöld hjá starfsstúlkna-
félaginu Sókn, er fengið hafði lán-
aðan samkomusal í Tjarnargötu 20.
Stóð þar yfir bögglauppboð til
ágóða fyrir sjúkrasjóð félagsins.
Klukkan var langt gengin ellefu,
og ritari félagsins, Þórunn Guð-
mundsdóttir, var að bjóða upp
bögglana. Skall þá skyndilega
grjóthríð á húsinu, og voru allir
gluggar á austurhlið hússins brotn-
ir á svipstundu, en hnefastórum
steinum rigndi niður í samkomu-
salnum, þar sem konurnar voru. (
Höfðu nokkur hundruð unglinga,
undir forystu nokkurra fyrirliða,
(Framhald á 15. sfðu).
‘ : ' 1__________i
Mótmæli- j
afsakanir
Sendiherra Sovétríkjanna,
herra Alexander M. Alexand-
rov, gekk í dag á fund Emils
Jónssonar, ráðherra, sem gegn
ir störfum utanríkisráðherra í
fjarveru Guðmundar I. Guð-
mundssonar, og bar fram mót-
mæli vegna atburðanna við
sendiráð Sovétríkjanna að
kvöldi sunnudagsins 7. maí.
Emil Jónsson lýsti því þegar
yfir, að hann og ríkisstjórnin
öll harmaði það, sem gerzt
hafði.
Ríkisstjórnin vill cindrcgið
brýna fyrir fólki að gæta þess
að óvirða ekki fulltrúa er-
lendra ríkja hér á landi með
því að stofna til aðgerða slíkra
sem þeirra, er hér hafa átt sér
stað.
(Frá utanríkisráðun.).
Laust fyrir klukkan fimm í
gær, varð það slys um borð í
ms. Heklu, er verið var að lesta
smíðajárn, að stroffa bilaði, og
féll jámið niður í lcstina. Garð
ar Jónsson, forniaður sjómanna
félagsins, sem staddur var í lest
inni, varð fyrir járninu og slas-
aðist allmikið á höfði. Garðar
var þegar fluttur í sjúkrabíl á
slysavaiðstofuna.
Óburður undir Eyjafjöilum
Fólkinu í Stóru-Mörk brá í brún er kýr ein á búi Brynjólfs
Úlfarssonar bar nú einn daginn. Afkvæmið, sem hún ól af sér,
var hinn mesti vanskapnlngur, og voru innyflin utan á kviðnum
og lappirnar á allt öðrum stað en vera bcr á rétt sköpuðum kálfi.
Að sjálfsögðu var óburði þessum ekki lífvænt stundinni
Iengur.
Víkingur drekkhlað-
inn til Akraness