Tíminn - 09.05.1961, Page 2
jJmmM, Þriðjudagiim,.9.maí*196
Frá unglingastarfi templara á Jaðri.
Unglingareglan á ís-
landi 75 ára í dag
í dag eru liðin 75 ár síðan
unglingareglan hóf starf sitt á
íslandi. Unglingareglan er
grein af stofni Góðtemplara-
reglunnar, sem stofnuð var í
Bandaríkjum N.-Ameríku árið
1851. Barnadeildirnar mynda
félagsheild, sem nefnd er
Unglingaregla. Yfirmaður
þeirra deilda í hverju landi er
nefndur stórgæzlumaður ung-
lingastarfs og á sæti í fram-
kvæmdanefnd stórstúku hvers
lands, en yfirmaður allra
deildanna er nefndur hágæzlu-
maður og á sæti í fram-
kvæmdanefnd hástúkunnar-,
sem hefur á hendi yfirstjórn
Góðtemplarareglunnar í.öllum
álfum heims.
i
Markmið XJnglingareglunnar er!
að kynna börnunum hugsjónir
Góðtemplarareglunnar, sem eru
fyrst og fremst bræðralag allra
manna, algert bindindi á áfenga
drykki, útrýmimg áfengisnautnar
og þrotlaust starf að því marki,
að andi réttlætis og bræðralag's
nái að gegnsýra allt þjóðlífið.
Shepare fær
heiðursmerki
Washington 8/5 (NTB).
í dag lenti þyrla á grasflöt-
inni framan vi?K Hvíta húsið,
bústað Bandaríkjaforseta í
Washington. Út úr þyrlunni
steig fyrsti bandaríski geim-
farinn, Alan Shepard, sjóliðs-
foringi, og var fagnað þarna íj
hlaðvarpanum af Kennedy
forseta og frú hans. Kennedy;
sæmdi geimfarann æðsta
heiðursmerki bandaríska geim
vísindaráðsins, en gleymdi
hins vegar að festa það í barm
Shepards, en forsetafrúin
minnti mann sinn á þetta og
bjargaði málinu við.
Starf UngliTigareglunnar hefst
með stofnun barnast. Æskan nr. 1
í Reykjavík. Stofnandi var Björn
Piálsson, Ijósmyndari. Stofnfélag
ar voru 30. Fyrsti æðsti templar
stúkunnar var séra Friðrik heit-
inn Hallgrímsson, þá 13 ára gam
all. Æskan er fyrsta barnafélag,
sem stofnað var hér á landi. Hún
hefur jafnan verið í fremstu röð
barnastúkna hér á landi og er
svo enn. Hún telur nú á þriðja
hundrað félaga.
Unglingareglan hefur jafnan
haft margbreytta starfsemi ár
hvert, bæði vetur og sumar. Fund
irnir setja aðalsvipinn á vetrar-
starfið, ferðalög og 'námskeið á
sumarstarfið. Bömin sjálf eru
látin starfa sem mest. Öll störfin
miða að auknum þroska þeirra,
andlegum og likamlegum. Leið-
Keflavíkurgangan
(Framhald at 16 sf8u)
ferðar. Nú er klukkan byrjuð á
fjórða tímanum, og enn er nær hálf
leið ófarin. Taka menn nú að tínast
upp á þjóðveginn, og okki liður á
löngu, unz • fylkingin sígur af stað.
Nú eru menn sýnu hressari en fyrir
hálfri annarri stundu, og færri
renna löngunaraugum eftir bíl Tíma
manna, sem rennir sér fram úr.
Göngumenn eru orðnir rúmlega 450.
Brátt tekur að drifa að langar
lestir bila úr Reykjavlk. Eftir að
hafa melt góðan sunnudagshádegis-
verð, hefur margan bo>rgarann fýst
þess að skreppa suður með sjó að
skoða lýðinn. Rykskýin leggur upp
af veginum, en hægt austankulið
víkur þeim af veginum. Lögregl-
urnar þeysa gandreið á mótorhjóium
sínum og reyna að greiða úr um-
ferðahnútunum.
Sögur fara af fyrirsát, sem bíði
göngumanna í Hafnarfirði, en ekki
verður af neinum árekstrum, þegar
gengið er gegnum bæinn nema af
bílaþvögunni, sem ágerist í sífellu.
Nota ýmsir göngumenn tækifærið,
er á malbikið kemur, að slcola rykið
úr munni og augum. Skáldið er
komið á varaskóna.
Enn sigur gangan af stað úr Engi-
dal, eftir stutta dvöl, og er hún nú
sýnu gildari en á$Sur. Ekki gerist
neitt sögulegt, fyrr en komið er
sunnan meginn í Öskjuhlíðina. Telur
hópurinn nú um 900 manns, en nú
ber meira á frakkaklæddu fólki á
blankskóm. Einhverjir unglingar
hafa kveikt í sinu austan vegar og
togar barnanna r— gæzlumennirn
ir — fórna miklum tíma og kröft
um vegna þcss starfs, sumir ára-
tugum saman. Margir viðurkenna
að verðleikum starf barnastúkn-
anna og láta börn sín starfa í
þeim, enda eru þær hinn bezti
skóli á margan hátt.
Bryndísarminning ,
Svo heitir eini styrktarsjóður-
inn, sem Unglingareglan á. Þau
hjónin Gissur Pálsson, rafvirkja-
meistari, fyrrv. stórgæzlum., >
frú Sigþrúður Pétursd. stofnuðu
hann til minningar um Bryndísi
dóttur sína 1949. Sjóðnum er ætl
að að styrkja tónlistarstarfsemi
félaga í barnastúkum Reykjavík-
ur. Sjóðnum er aflað tekna með
mmningagjöfuim, barnaskemmt-
unum o.fl. Nokkur styrkur hefur
þegar verið veittur úr sjóðnum.
Barnablaðið Æskan er nátengd
Unglingareglunni, þar sem Stór-
stúka íslands stofnaði blaðið 1898
og hefur géfið það út síðan. Nú
flytur Æskan íeglulega fréttir og
frásagnir af starfi barnastúkn-
| anna, en hún hefur alltaf verið
i ötull málsvari bindindismálsins
í og flutt skemmtilegt og fræðandi
j lesefni við barna hæfi. Bókaút-
! gáfa á vegum Æskunnar hófst
11930 og hefur aukizt jafnt og þétt
j síðan. Hefur hún gefið út fjölda
• góðra barna -og unglingabóka.
Tshombe
ákærður
Leopoldville 8/5. — Bomboko,
utanrikisráðherra stjórnarinnar í
Leopoldville, hefur tilkynnt, að
Nælonnet
(Framhald ai 16. síðu)
syni til Vestmannaeyja, Akraness
og Keflavíkur, pg kvaðst ætla til
Norðurlands, þegar hann kæmi
hér næst. Hann sagði netasölu
mikla í ár og kvaðst þurfa að fylgj
ast með, hvernig þau reyndust.
Aðspurður um nýjungar í neta-
gerð sagði hann, að ný efni væru
sífellt að koma fram — og hverfa,
reynslan ein skæri úr, hvað væri
nothæft.
Miye Seimo-verksmiðjurnar voru
stofnsettar um aldamótin síðustu
og )tær voru fyrstar til þess að
flytja út net frá Japan og með,
þeim fyrstu sem seldu japönsk
nælonnet til íslands. Hnýtivélar
verksmiðjanna eru nú notaðar í
verksmiðjum í Evrópu og vestan
hafs, með þeirra leyfi.
Ófærð
Allir vegir í Eyjafirði eru nú
ófærir eða hálfófærir og hefur
annað eins ástand í vegamálum
ekki skapast þar síðastliðin 15 ár.
Meira að segja á götunum á Ak-
ureyri er viða ófært og bílar fest
ast. Frá Silfrastöðum til Akureyr
ar er aðeins jeppum leyfður akst
ur. Vaðlaheiði er opin, en vegur-
inn fyrir Dalsmynni er lokaður
öðrum bílum en jeppum. Vegirn
ir til Dalvíkur og á Svalbarðs-
strönd eru ófærir og sömuleiðis
Laugalandsvegur.
Tshombe, sjáLfskipaður forseti í
Katangahéraði í Kongó, verði
leiddur fyrir rétt í Leopoldville
innan skamms. Tshombe hefur
verið fangi um nokkurt skeið, en
hann var tekinn höndum af her-
mönnum stjómarinnar í Leoppld
ville, er hann hugðist fara af ráð
stefnu Kongóleiðtoga í Coquilhat
ville í Miðbaugshéraði í Kongó.
Bomboko sagði, að þungar á-
kærur yrðu bomar á Tshombe.
Honum yrði gefið það að sök,
að hafa myrt fjölda Balúba-
manna og sömuleiðis það, að hafa
tekið Lúmúmba, forsætisráðherra
af lífi, án > dóms og laga. Bom-
boko sagði, að stjórnin í Leopold
ville myndi brjóta alla mótstöðu
Katangahéraðs á bak aftur.
Sumarbústað-
ir skemmdir
Að undanförnu hafa rannsókn-
arlögreglunni borizt allmargar
kærur vegna spellvirkja, sem unn
in hafa perið á sumarbústöðum í
grennd við Rauðavatn.
Svo sem kunnugt er, eru marg
ir sumarbústaðir í hnapp þarna
við vatnið, ög hafa spellvirkjarnir
gengið á röðina, brotið rúður og
hurðir og stolið verðmætum á
nokkrum stöðum. Sums staðar
nemur tjónið þúsundm króna. Eru
það eindregin tilmæli, að þeir,
sem kynnu að hafa orðið varir
við mannaferðir við Rauðavatn
að undanfömu, geri rannsóknar-
lögreglunni þegar viðvart.
Sigurður Jónsson
sýnir í Mokka
Sigurður Jónsson Loftferðaeftirlitsmaður, handhafi flugmannaskírtein-
is númer 1, hefur síðastliðin 32 ár verið þekktur flugmaður og flug-
áhugamaður. Sigurður hefur þó margt fleira í pokahorninu en flugið,
j hann teiknar í frístundum. Sigurður er lítt skólagenginn í málara-
listinni, var eitt ár á teikniskóla Marteins og Björns Björnssona. Það
var 1935. Sigurður byrjaði samt ekki að teikna af alvöru fyrr en 1940.
Hann hefur aðeins einu sinni áður sýnt teikningar sínar opinberLega.
Teikningarnar, sem Sigurður sýnir nú í Mokkakaffi, eru allt tússteikn-
ingar, og eru þær velflestar' nýlega gerðar. Myndirnar verða til sýnis
og sölu í Mokkakaffi á næstunni.
reykinn leggur yfir göngumenn.
Taka menn nú að greikka sporið og
margir nýir lauma sér í raðirnar.
Með öllum götum standa forvitnir
bæjarbúar í þéttum hópum. Nokkrir
gera hróp að göngumönnum, aðrir
kinka örvandi koll'i til kunningja,
sem þeir koma auga á. Enn lauma
menn sér í hópinn. Á Laugaveginum
taka nokkur börn að veifa spjöldum
og gera spott að vegmóðum.
Um níuleytið rennur fylkingin
suður Lækjargötuna, og útifundur
er hafinn. Ragnar Arnalds setur
fund í snarheitum. Fyrstur talar
Bergur Sigurbjörnsson, þá Halldór á
Kirkjubóli, næst Stefán prentari
Ögmundsson, sfðan Örlygur Hálfdán
arson og loks Eina.r Bragi rithöf-
undur.
Yfir eina unga stúlku leið, þegar
í Lækjargötuna kom, en annars eru
okkur ekki kunn nein slys á göng-
unni. Margir hafa sjólfsagt sofið
fast og vel um nóttina, eftir erfiðan
dag, og sjálfsagt hafa einhverjir,
vaknað með strengjum i gærmorgun.1
Sigurður Jónsson við eina teikningu sína, sem er af tröllunum f Trölla-
fjalli í Glerárdal.
I