Tíminn - 09.05.1961, Qupperneq 3
j^ljM&igSgy^þrigjttdaginn 9,~maí 1961.
..1 > \ ' ,
'■ /.’;•> .!!' ‘v
Fiskmóttaka haf-
in á ný í Flatey
Skáleyjum, maí.
Það þykja tíðindi hér um
BreiSafjarðareyjar, aS nú er
aftur hafin fiskmóttaka f Flat-
ey. Fyrir því standa tveir
menn úr Reykjavik, Sverrir
Finnbogason og Sveinn Sam-
úelsson, er stofnaS hafa félag
í þessu skyni, Flatey h.f.,
ásamt fleiri mönnum.
Nokkur undanfarin ár hafa bát-
ar þeir, sem róið hafa frá Flatey,
orðið að fara með fiskinn til
Stykkishólms, og hefur að sjálf-
sögðu verið að því hinn mesti bagi.'
Þiír bátar róa nú úr Flatey með
handfæri. Sökum ótíðar ,var ekki
! hægt að hef ja róðra fyrr en seinni
jhluta aprílmánaðar, en þá gerði
'stillt veður nokkra daga, og var
afli ágætur. Kom hálf fjórða lest á
land einn daginn úr tveimur bát-
um, sem á voru fimm menn. Mun
sá, sem mest dró, hafa getað lagt
inn þrettán hundruð kílógrömm af
fiski þann dag.
Gæftir hafa nú aftur versnað og
afli þar af leiðandi minnkað, enda
illt fyrir handfærabáta að halda
sig á fiski, þegar ónæði er. G.Jóh.
Telpa fyrir bíl
Laust fyrir klukkan hálfsex á
laugardaginn varð það slys á
Suðurlandsbraut, við benzínaf-
greiðslu BP, að fjögurra ára göm
ul telpa, Guðný Lúðvíksdóttir,
varg fyrir bíl og meiddist eitt-
hvað. Guðný var flutt á slysa-
varðstofuna, en meiðsli hennar
munu ekki hafa reynzt alvarlegs
eðlis.
Eggjaferð F.U.F*
á Akrafjall
Ferðaklúbbur F.U.F. í Reykjavík efnir til ferðar um næstu
helgi. Farið verður til eggjatöku í Akrafjall. Frá Reykjavík er
haft í hyggju að fara kl. 21.00—21.30 á laugardagskvöld, ganga á
Akrafjall um miðnætti og stunda eggjatökuna framundir morg-
nn. Lagt mun af stað til Reykjavíkur kl. 5—G á sunnudags-
morgun. Ekki er að efa, að margir muni hafa hug á því að taka
þátt í ferð þessari, bæði vegna þess að óvenjufagurt er að líta af
Akrafjalli með morgunsárinu og svartbaksegg eru mikill og
góður matur. Öllum er heimil þátttaka í ferð þessari en þátttöku
þarf að tilkynna í súna 15564 og 12942 í Framsóknarhúsinu kl.
5—7 e. h.
Danskir bændur
hef ja verkfall
Skortur á landbúnatSarvörum gerir begar vart
vit> sig um gervallt
Kaupmannahöfn 8/5 (NTB). —
Danskir bændur hafa byrjað verk
fall og þegar í dag var búið að
loka öllum mjólkurbúum lands-
ins vegna þess, að engin mjólk
berst til þeirra. Þetta þýðir, að
ekki verður mjólk nema á sjúkra
Dágóð síldveiði
Síldveiðibátarnir fá enn dágóð
an afla, og í gær komu Ilöfrung-
ur og Heimaskagi að landi með
sínar 800 tunnurnar hvor, og
nokkrir bátar voru ókomnir að
landi í gærdag. Haraldur liggur
inni vegna viðgerðar á asdiktækj
um. Tólf bátar róa með þorska-
net ,en a.m.k. fjórir eru hættir,
fyrir utan síldveiðibátana.
í fyrradag kom Sigurvon að
landi með þrettán og hálfa lest,
og Sæfari með 15 lestir.
Á sunnudaginn bar svo við í
Keflavík, að stórum kranabil var
stolið, þar sem hann stóg fyrir
utan húsið Norðurbrún' 4. Var
bilnum ekið eitthvað um bæinn,
en er komið var á Kirkjuveg,
námu þjófarnir staðar og forð-
uðu sér á hlaupum .Lögreglan
telur, að hér hafi um aðkomu-
menn verið að ræða.
landíð
húsum og barnaheimilum, en
reynt verður að sjá um, að þess-
ir staðir hafi nægilega mjólk. f
dag varð imjólkurlaust í Kaup-
mannahöfn og flestum borgum
Danmerkur öðrum.
Kjötskortur er einnig farinn að
gera vart við sig í Kaupmanna-
höfn, enda engar landbúnaðaraf-
urðir fluttar til borgarinnar. Hef
ur mikið verið hamstrað af land
búnaðarvörum undanfarna daga.
Búizt er við, að allur útflutning-
ur iandbúnaðarafurða stöðvist
innan tíðar.
Bændur krefjast 555 milljóna
d. kr. til stuðnings atvinnuvegi
sínum, en ríkisstjórnin hefur
boðið 300 milljónir d.kr. Þessu
hefur verið hafnað af bændum.
Segja þeir þetta ekki hugsað sem
kauphækkun, heldur sé farið fram
á nauðsynlegan styrk til uppbygg
ingar atvinnu þeirra eins og áríð
andi sé.
í einkaskeyti til Tímans frá
Kaupmannahöfn í dag, segir m.
a.; Að erfitt s éað halda uppi
flutningum á landbúnaðarvörum
jafnvel til ungbarna og sjúkra.
Kaupmannahöfn er mjólkur- og
kjötlaús og fyrirsjáanlegur skort-
ur á öðrum landbúnaðarvörum
innan skamms.
RáÖherrafundur NATO í Osló:
Nauðsyn á varðstöðu
gegn Sovétríkjunum
Oslo 8/5 (NTB).
Ráðherrafundur Atlants-
hafsbandalagsins (NATO)
hófst í Osló í dag. Byrjaði
fundurinn með almennum um-
ræðum um ástandið í heimin-
um í dag. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Dean Rusk,
var meðal fyrstu ræðumanna
og sagði hann m. a., að stefna
Sovétríkjanna væri enn að
umkringja hinn frjálsa heim
og ekki væri með öllu óhugs-
andi, að þau réðust á höfuð-
stöðvar lýðræðisþjóðanna.
Annars kom Rusk víða við í
ræðu sinni. Hann sagði, að ef
Sovétríkin gerðu sérfriðar-
samning við Austur-Þýzka-
land, myndu Bandaríkin líta
svo á, að fyrri samningar væru
allir ógildir og beita öllum
hugsanlegum ráðum tjl þess
að styrkja aðstöðu sína í
Vestur-Berlín. Ráðherrann
hvatti NATO-ríkin til þess að
efla varnir sínar, enda hefðu
nú Sovétríkin uppi ógnanir
um allan heim að heita mætti.
Sovétríkin eru mikið kjarnorku-
veldi, sagði Rusk, því getum við
ekki neitað, en Bandaríkin munu
þó standast það. Hins vegar verð-
um við og að hafa það hugfast, að
Sovétríkin eru einnig sterk hvað
tekur til venjulegra vopna, og við
verðum að reyna að mæta þeim
einnig á þessu sviði! Rusk stað-
festi, að Bandaríkin myndu reyna
að senda upp mannað geimfar um-
hverfis jörðu á þessu ári. Hann
lýsti því jafnframt yfir, að banda-
Hska geimferðaráðið hefði áætl-
anir um ferðir til tunglsins, Marz
og Venusar. Ráðherrann sagði, ;ð
niðurstöður þær, sem fengjust í
þessum ferðum, yrðu teknar í þjón-
ustu NATO.
Samstaða gegn Sovét-
ríkjunum
Ellefu ráðherrar tóku til máls á
fundinum í dag. Von Brentano,
Úr ræftum Deans Rusk og von Brentanos
utanrikisráðherra vestur-þýzku
stjórnarinnar, sagði um Berlínar-
málið, að NATO-ríkin yrðu að
standa einhuga saman gegn yfir-
gangi Sovétríkjanna. Hann sagði,
að þegar menn berðust fyrir til-
veru sinni, yrðu menn að vera við
því búnir að fórna ýmsum venjum
og kenningum. Þá sagði von Brent-
ano, að það væri misskilriingur
hjá Sovétstjórninni, ef hún héldi,
að vestur-þýzkir jafnaðarmenn
íværu tilleiðanlegir til eftirgjafar í
| Berlínarmálinu.
| Utanríkisráðherra Portúgals
ræddi almennt um málefni Afriku
og baráttu nýlendnanna þar fyrir
sjálfstæði. Ráðherrann fjallaði
ekki um neitt land eða nýlendu
sérstaklega og ekki heldur Angóla.
Home, utanríkisráðherra Breta,
sagði, að vestrænar þjóðir hefðu
nú góð spil á hendi og þau skyldu
vel notuð þegar í stað. Hann lagði
áherzlu á það, að staða Sovétrikj-
anna væri hvergi nærri eins sterk
og msnn kynnu að ætla. Home
ræddi um málefni Afríku og sagði,
að hin nýju ríki þar mættu öll
þakka vestrænum ríkjum sjálf-
stæði sitt. Hann sagði, að efna-
hagsaðstoð vestrænna þjóða til
vanþróaðra ríkja væri tuttugu sinn-
um meiri en aðstoð Sovétríkjanna.
Hinni almennu umræðu um al-
þjóðaviðhorfið lýkur á morgun.
Við upphaf fundarins í morgun
flutti hinn nýi framkvæmdastjóri
NATO, dr. Stikker, ávarp. Sagði
hann, að á þessari ráðstefnu yrði
fjallað um alþjóðaviðhorfin í dag,
gerðar áætlanir til langs tíma fyrir
bandalagið og fjallað um efnahags-
aðstoð til þeirra ríkja, sem skammt
eru á veg komin innan bandalags-
ins.
Af hálfu íslands sitja þennan
fund auk utanríkisráðheiTa, Agn-
ar Kl. Jónsson, ráðuneytisstjófi,
Hans G. Andersen, fastafulltrúi
hjá NATO, og Haraldur Guðmunds-
son, ambossador í Osló.
Morðbréfamálið var dómtekið í gær
- ákærði kom of seint til að tala
Morðbréfamálið kom enn fyrir
hæstarétt í gærdag. Fór málflutn
ingur fram, oig var málið dóm-
tekið í gær.
Ragnar Ólafsson, skipaður verj
andi Magnúsar Guðmundssonar.
eftir að hæstiréttur leysti Guðlaug
Einarsson frá þeim starfa, krafð-
izt þess, að Magnús yrði syknað-
ur, og til vara, að refsing yrði
eins væg og lög frekast leyfðu,
og dómur skilorðsbundinn.
Sækjandinn, Páll S. Pálsson,
krafðizt þess, að Magnús yrði
dæmdur sekur um ö(l þau brot,
er ákæruskjalið tilgreinir.
Málið var síðan tekið til dóms,
og er dómur væntanlegur í lok
vikunnar. ,
Skömmu eftir að sækjandi í
morðbréfamálinu svonefnda
hafði ávarpað liæstarétt eftir
setningu í gærmorgun (kl. 10)
og ætlaði að hefja ræðu sína,
tilkynnti forseti að rétturinn
hefði að gefnu tilefni ákvcðið,
að þegar sækjandi og verjandi
hefðu lokið máli sínu, skyldi á-
kærða gefast kostur á að taka
til máls í réttinum. Ákærði og
Guðlaugur Einarsson, áður verj
andi hans, voru mættir í réttin-
inum oig heyrðu þessa tilkynn-
ingu. Sækjandi lauk máli sínu
kl. 3 um daginn og tók þá til
máls verjandinn, Ragnar Ólafs-
son. Hann talaði til klukkan að
ganga fimm og var málið þá lagt
í dóm, þar eð ákærði uar ekki
mættur og ekki heldur Guðlaug
ur Einarsson. Þegar réttarsalur
inn hafði tæmzt komu þeir á-
kærði og Guðlaugur og snéru sér
þá til dómara, en var tilkynnt,
að málið væri þegar dómtekið
og þar við sæti.
Þeir ákærði og Gu'ðlaugur
munu fyrir skömmu hafa ritað
bréf til birtingar í dagblöðum,
þar sem þess er krafizt ,að allur
hæstirétíur víki sæti í málinu.