Tíminn - 09.05.1961, Side 12
12
TÍMINN, þriðjudaginn 9. maí 1961J
Tryggvagötu 4, sími 16676
utan skrifstofutíma sími 35341.
Hlaut Grettisbeltiö
í sjöunda sinn í röð
FLUTTIR
BÍLALEIGAN FALUR H.F.
FLUTTIR
Viusamlega minuist þess að við höfum flutt skrifstofu og bílageymslu okkar í
TRYGGVAGÖTU '4, SÍMI 16676. Utan skrifstofutíma má panta bfla í síma 35341.
fleiri nýir bílar, betra húsnæ'ði, aukin þjónusta, fullkomnar tryggingar
Bílaleigan FALUR H/F
Utanbæjarmenn. Munið að pantan nýjan og öruggan bíl hjá okkur, áður en þér komið í bæinn.
Íslandsglíman, sem fram fór
á sunnudaginn, var aS þessu j
sinni ekki rismikil. Aðeins sex
keppendur af tólf skráðúm
mættu til leiks, en nokkrir
skráðir keppendur höfðu lög-,
leg forföll. Ármann J. Lárus-
son, Ungmennafél. Breiðablik,1
sigraði með miklum yfirburð-
um, lagði alla mótherja sína
án fyrirhafnar.
Björgvin Árnason skorar siðara mark Fram f leiknum gegn KR. — Ljósmynd: Timinn, G.E.
ReykjavíkurmótitS í knattspyrnu:
KR vann Fram og öll liðin í
mótinu hafa nú tapað stigi
Reykjavíkurmeistaramótið í
meistaraflokki hélt áfram á
sunnudagskvöld með leik milli
KR og Fram. Áhorfendur voru
margir á leiknum og skemmtu
sér vel, því þótt KR næði ör-
uggri forustu í leiknum, 3—0,
var hann þó skemmtilegur
fram á síðustu stund og ekki
munaði miklu, að Fram næði
jafntefli, því Fram skoraði tvö
síðustu mörkin í leiknum, og
lokatalan því 3—2 fyrir KR.
Öll félögin í mótinu hafa nú
tapað stigi og gerir það mótið
tvísýnna og skemmtilegra.
KR-ingar léku prýðilega fram-
an af og tókst fljótlega að ná
tveggja marka forustu. Fyrsta
markið slcoraði Ellert Schram á
7. mrn. og nokkru síðar Þórólfur
Beck úr vítaspyrnu, sem mörg-
um áhorfenda þótti strangur dóm
ur, en dómarinn, Baldur Þórðar-
son, var á annari skoðun. Eflir
þennan leikkafla KR var almennt
búizt við því, að KR myndi fara
með öruggau sigur af hólmi. En
það var öðru nær. Fram lét mót
ganginn ekki á sig fá og leikuriun
varð jafnari. Bæði liðin áttu sæmi
leg tækifæri fyrir hlé, en ekki
voru fleiri mörk skoruð í hálfleikn
um.
KR skorar — Fram sækir
Þrátt fyrir það, að Fram sótti
meira í byrjun síðari hálfleiks,
var það þó KR, sem fyrst jók við
markatöluna. Á 17. mín. lék Þór-
ólfur Beck í gegnum Fram-vörn-
ina og skoraði þriðja mark KR.
Staðan virtist vonlaus, en leik-
menn Fram voru á annárri skoð-
un og eftir að Baldur Scheving
skoraði fyrsta mark Fram á 25.
mín. varg sóknarþunginn mikill.
Björgvin Árnason skoraði annað
mark Fram á 37. mín. (sjá mynd)
eftir fyrirgjöf frá Dagbjarti Gríms
syni og var Björgvin merkilega
frír í vítateig KR. Fleiri urðu
mörkin ekki, og var sigur KR í
leiknum að mörgu leyti réttmæt-
ur.
Ein breyting hjá KR
KR gerði eina breytingu á liði
sínu frá leiknum við Víking. Hinn
margreyndi fyrirliði KR í mörg ár,
Gunnar Guðmannsson, lék nú aft
ur á kantinum, en Gunnar Felix-
(Framhald á 10. síðu).
Þetta er í sjöunda sinn í röð,
sem Ármann sigrar í Íslandsglím
unni og hlýtur Grettisbeltið að
launum, en alls hefur hann sigrað
níu sinnum í fslandsglímunni, eða
oftar en nokkur annar glímumað-
ur. Ármann lagði alla keppinauta
sína léttilega og hlaut því fimm
vinninga.
í öðru sæti var bróðir hans,
Kristján Heimir Lárusson, með
fjóra vinninga, féll aðeins
Ármanni. f 3.—5. sæti urðu
es Þorkelsson, UMFR, Sveinn Guð
mundsson, Á og Trausti Ólafsson,
Á, með tvo vinninga hver. Þurftu
þeir því að glíma til úrslita um
þriðja sætið og hlaut Sv>nn þá
tvo vínninga, og Trausti einn. í
sjötta sæti varð Hreinn Bjarna-
son með engan vinning.
Glímustjóri var Þorsteinn Ein-
arsson, en Benedikt Waage, for-
seti ÍSÍ, afhenti verðlaun að glím
unni lokinni.
Kristleífur G.
varð meistari
Á sunnudaginn fór fram a
Akranesi víðavangshlaup meistara
móts íslands. Þátttakendur voru
aðeins fjórir, þrír úr KR, og einn
frá Selfossi. Úrslit urðu þau, að
Kristleifur Guðbjörnsson KR,
vann mikinn yfirburðasigur, hljóp
vegalengdina, sem voru tæpir
fimm kflómetrar, á 14:56,1 mín.
ÁRMANN J. LÁRUSSON
— níu sinnum meistari.
— Ljósm.: Tíminn, GE.
Annar varð Agnar Leví, KR, á
15:43,8 mín. Þriðji Reynir Þor-
steinsson KR á 16:04,2 mín, og
fjórði Hafsteinn Sveinsson, Sei-
fossi, á 16:17,7 mín. Þetta hlaup
þótti talsverður viðburður á
Akranfesi og fylgdist þó nokkur
fjöldi áhorfenda með hlaupurun