Tíminn - 09.05.1961, Blaðsíða 16
mwas.
ÞriSjudagínn 9. niaí 1961.
Fjölmenn Keflavíkur-
ganga í góðu veðri
Það er miit og gott veður,
léttskýjað, ofurlítið kul. Innan
við hliðið að Keflavíkurflug-
velli hefur safnazt mannf jöldi,
sem stendur í þéttum hóp í
grasi gróinni brekku undir
gríðarstóru skilti, þar sem seg-
ir á tveimur tungum að Kefla-
víkurflugvöllur sé bækistöð
varnarherja NATO. Lausleg
talning leiðir í Ijós, að hér
muni um 400 manns saman
komin í brekkunni.
Páll Bergþórsson veðurfræöinigur á-
varpar mannfjöldann, röddin kafnar
í flugvélargný. Bandarísk þyrla
sveimar í hringjuim yfir mannskapn-
um, lækkar flugiö, stanzar í loftinu
yfir fundarmönnum, það eru mynda
vélar á lofti um borð.
Fjögurra laufa smári
Ein göngukonan, sem stendur og
hiýðir á tal ræðtimanns við undir-
spil þyrlunnar þennan milda vor-
morgun, Jýtur niður til að binda skó-
þveng sinn. Hún réttir sig upp með,
eitöivað í hendinni, snýr sér í liring
og eýnir félögum sinum: „Sjáiði
bara, hvað ég fann! Fjögurra laufa,
emára!"
Dáh'tai hópur af flugvallarstarfs-
mönnum stendur meðfram veginum
og horfir á fóHrið Ieggja af stað.
Fréttaritari Morgunblaðsins í Kefla-
vik, Helgi S. Jónsson, stendur gal-
vastour með myndavél að vopni,
hann beygir sig niður í vegarskurð-
inn og týndr hermannahúfu upp úr
svaðinu, fleygir henni til fundar-
manna og kallar: „Látið þið hana
á ræðumanninn!"
Eftir ávarpið býst fólk til brott-
íerðar, 50 Jdlómetra gangan tifc,
Reykjavíkur er hafin.
Sumir göngumanna eru búnir senij
á lcvöldgöngu í miðbænum, á blank-i
skóm með hálsbindi, en aðrir eruj
vel f jaBgöngufærir. Margir eru held-;
ur illa skóaðir, en ungskáld eitt hef-!
ur varaskó í snæri um hálsinn, Flest
er þetta ungt fólk, en innan um
menn á góðum aldri og aldrað fólk á j,
stangli. Sjötugur vistmaður af,
Reykjalundi gengur eitilharður við
staurfót og göngustaf.
Hitnar í skóm göngumanna !
Yfir Stapann eru menn léttir á
fæti, cnda kul og sólin bak skýja,
Áð er stutta stund austan Stapa, áð-,
ur en þrammað er austur hraunin.
Brátt teygist úr fyikingunni, sumir
þurfa að spjaJla við náungann og
dragast aítur úr, aðrir hafa fengið
nagla í skó. Sólin irennir sér nú fram
úr skýjum og brát tekur að hitna
í lofti. Það er heitt í skóm sumra.
Um tvöleytið taka menn að
greikka sporið, er þeir eygja Kúa-
gerði, hvar gert skal þriggja kortéra
hlé, meðan menn snæða. Sumir 1
hlakka þó mest til fótabaðsins í fjör-
unni, en aðra langar til að bregða |
sér út í hraunið í næði. Ung stúlka !
minnist rauðkálsins, sem nú er rjúk-!
andi á borðum foreldranna í Reykja
vík, og það kennir saknaðar í rödd-
inni.
Viðbúnaöur í Kúagerði
í Kúagerði er viðbúnaður mikill
Þangað er von á göngunni kl. þriú.1
og er ætlunin að hressa göngumóða
á súpu. Það er ekki út i bláinn að
Kúagerði hefur verið valinn sem að-
aláningarstaður göngufólksins. Stað-
urinn hefur frá fornu fari verið án-
ingarstaður, sá eini á langri leið, í
þann tíð er menn ferðuðust á hest-
um og gangandi. Þar er vatn og
gras.
Göngumenn hafa reist sér tjald,
og innan úr tjaldínu herst potta-
glamur og kvennaskvaldur. Úti fyr-
ir tjaJddyrum flatmaga hofmeistar-
arnir og Iláta sólina baka sig. í
fyrra urðu þeir tveir að sjá um
matseldina með eigin höndum. Nú
hafa þeir fjöimennt þjónustulið á
snærum sínum.
Innan skamms ber íslenzka fán-
ann yfir hraunkambinn í vestri og
fylkingarbrjóstið birtist á veginum
áður en varir, Kvenfóllkið þyrpist
úti til að sjá, og það er almenn hrifn
ing er lestin þokast út af veginum
og stefnir að tjaldinu. Sýnilega hafa
margir bætzt við frá því lagt var af
stað.
Það er ærið sundurleitur hópur,
sem dreifir sér um móana og teygir
úr sér. Það er rótað í nestisskrinum
og rjúkandi súpan borin að þurrum
munni. Ndkkrir hlaupa niður ífjöru,
drífa sig úr sökkum og skóm og fá
sér fótabað í sjónum. Vegurinn or
harður undir fót. Lisfcmálari lemur
með hraunmola á nagla, sem kom
upp úr skósólanum. • Bandarískur
stúdent, sem er með í ferðinni, tek-
ur í nefið.
Ekki eru affir búnir að láta líða
úr fótum sér, er áköfustu göngu-
mennimir taka að eggja til brott-
(Framhald á 2. síðu).
ú
Þýzkt skólaskip væntanlegt
17. maí kl. 9 fyrir hádegi kemur þýzka segl-skólaskipið „GORCH
FOCK' til Reykjavíkur. ÞaS mun liggja við norðausturhafnargarS-
inn um hvítasunnuna, ef veður leyfir.
Þetta er í annað skipti, sem skólaskip frá þýzka Sambandslýð-
veldinu heimsækir Reykjavík. í fyrra sumar var skólaskipið „HIPP-
ER" hér.
Sólarsynir
selja net
Útflutningsframkvæmdastjóri
netaverksmiðjanna Miye Seimo
í Japan, T. Yamada, var hér á
ferð fyrir skömmu. Fréttamað-
ur hitti hann í skrifstofu Bárð-
ar Guðmundssonar, sem hefur
einkaumboð fyrir verksmiðj-
urnar hér, á föstudaginn í síð-
ustu viku, en Yamada var þá á
förum vestur um haf eftir tíu j
daga viðdvöl á íslandi.
Yamada kvaðst hafa verið mán-!
uð á ferðalagi, fór fyrst til Afríku,
og þaðan til Norðurlandanna. Héð- j
an kvaðst hann fara til New York
og síðan Kanada, þá aftur til j
Bandaríkjanna og heim. Hann hef-
ur ekki áður komið til íslands, en
fslendingar era einir beztu við-
skiptavinir verksmiðjanna að
hans sögn.
Viðskiptin við ísland hófust
fyrir sex árum, og voru þá seld
hingað fimsntm nælonnet. Nú nem
ur salan árlega fleiri þúsund net
um.
Yamada kvaðst gjarnan vilja
T. YAMADA
dveljast hér lengur, en annir
leyfðu það ekki að þessu sinni.
Hann fór með Bárði Guðmunds-
(Framhald á 2. síðu).
Frá Kefla-
víkurgöngu
cfst til vinstri siast gongurrtenn-
irnir i Keflavikurgöngunni vera
að koma úr Kúagerði, nýbúnir að
hressasig á súpu og mjólkursýru.
Hér að ofan sjást menn í áning-
nrstað í Engidal. Tll hliðar sést
svo, þegar fylkingin er komin á
Lækjargötuna og útifundurinn er
að hefjast, en mikill mannfjöldi,
meðhaldsmenn og andstæðingar,
hafa tekið sér stöðu báðum meg-
n götunnar.