Tíminn - 03.06.1961, Page 12
12
TlMINN, laugardaginn 3. Jfinf 1961.
| íkróUvr rhr * 1 j(Á>fotílr
Vilhjálmur Einars-
son í góöri æfingu
— Stökk 7.20 m í langstökki. ~ Jón Ölafsson
setti unglingamet í hástökki, stökk 1.96.
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Frjálsíþróttamót KR, EÓP-
mótié, fór fram á Melavellin-
um í fyrrakvöld. Þar bar helzt
til tíðinda, að Jón Þ. Ólafsson
bætti enn unglingametið í há-
stökki, stökk 1.96 metra og
var mjög vel yfir þeirri hæð,
en hins vegar felldi hann þrí-
vegis 2.01 metra, methæð, en
Jón á áreiðanlega eftir að fara
vel yfir þá hæð síðar í sumar.
Ánægjulegast á mótinu var þó
langstökkk Vilhjálms Einarssonar
— þrátt fyrir það, að hann átti
fjórar ógildar tilraunir. f gildu
stökki stökk Vilhjálmur lengst
7.20 metra, en átti ógild stökk
um og yfir 7.30 metra (mæit frá
tá). Vilhjálmur er nú greinilega
í ágætri þjálfun. Sennilega bætir
hann langstökksmet sitt í sumar,
og það verður mikili viðburður,
þegar hann fer að keppa í þrí-
stökkinu. Ef að líkuin lætur verð
ur hann ekki lakari en í fyrra-
sumar — en þá stökk hann lengst
16.70 metra, sem er annar bezti
árangur, sem náðst hefur í þrí-
stökki.
Einar Frímannsson, KR, varð
annar í langstökkinu, stökk lengst
6.98 metra — og átti ógilt stökk
um 7.16 metra.
Að öðru leyti var fátt um fína
Skotarnir ekki eins sparir á
mörkin - nnnu Akranes 7-0
JÓN Þ. ÓLAFSSON
enn nýtt unglingamet
VILHJÁLMUR EINARSSON
— í góðri æfingu
drætti á þessu móti. Það skemmdi
líka algjörlega fyrir hinum fáu
áhorfendum, að erfitt var að fylgj
ast með því, sem skeði á mótinu.
Hátalarakerfið var ekki í góðu
lagi — eða kannski öllu heldur,
að þulur mótsins muldraði töl-
urnar í barm sér og fátt af því
náði eyrum áhorfenda.
Guðmundur Hermannsson, KR,
sigraði með yfirburðum í kúlu-
varpinu, varpaði lengst 15.74 m.,
og virðist Guðmundur nú vera
að ná sér vel á strik aftur, en
hann hætti keppni um tíma vegna
meiðsla. Valbjörn Þorláksson sigr
aði í spjótkasti, kastaði 63.18 m.
og bætir hann stöðugt árangur
sinn í þeirri grein — en spjót-
kastið hefur verið ein alslappasta
greinin hér undanfarin ár.
Hlaupin á mótinu voru harla
sviplítil. f 100 metra hlaupi sigr-
aði Grétar Þorsteinsson, Á., á 11.5
sek. (mótvindur) og vann hann
Valbjörn örugglega. Sigurður
Björnsson, KR, sigraði Svavar
Markússon í 400 m. hlaupi á 52.3
sek. Svavar hljóp á 52.5 sek., en
hann hefur I.ítið getað æft í vor.
í 1500 m. hlaupi sigraði Krist-
leifur Guðbjörnsson á 4:05.7 mín.
Annar varð Reynir Þorsteinsson,
einnig úr KR, á 4:17.4 mín. og
sigraði Agnar Leví á marklín-
unni. Tími Agnars var 4:17.5 mín.
Rannveig Laxdal, ÍR, landsliðs-
kona hjá Víkingi í handknattleik,
'sigraði með yfirburðum í 100 m-
hlaupi kvenna á 14.1 sek.
í öðrum greinum urðu sigur-|
vegarar þessir: 80 m. hlaup sveina
Uóbert Hreiðarsson, KR, 9.8 sek.
100 m. hlaup unglinga Kristján
Eyjólfsson, ÍR, 12.0 sek. 110 m.
írindahlaup Sigurður Lárusson
Á., 17.0 sek. 1000 m. boðhlaup,
’.veit Ármanns 2:02.5 í sveitinni
ilupu Hjörleifur Bergsteinsson,
>órir Þorsteinsson, Grétar Þor-
teinsson og Hörður Haraldsson,
og vakti 400 m. sprettur Harðar
einkum athygli. Sleggjukast, Þórð
. ur B. Sigurðsson, KR, 49.64 m.
Skozku leikmennirnir , frá
Sf. Mirren áttu létt með að
sigra íslandsmeistarana frá
Akranesi á Laugardafsvellin-
um í gærkvöldi. Sjö urðu
mörkin án þess íslandsmeist-
ararnir gætu nokkru sinni
svarað — en þeir fengu þó
ágæt tækifæri, sem voru mis-
notuð, meðal annars spyrnti
Þórður Jónsson himinhátt yfir
markið úr vítaspyrnu.
Mikil aðsókn að
barnanámskeið-
unum
Um síðustu helgi hófust íþrótta-
námskeið fyrir börn og unglinga
víðs vegar um bæinn og hefur að-
sókn að þeim verið mjög góð. Sér-
staklega hefur aðsókn verið góð
fyrir hádegi, og hafa börnin, sem
eru á aldrinum 5—9 ára, verið um
100 á hverju svæði og allt upp í
200.
Á svæðinu í Blesugróf var þó
aðsókn nær engin og er börnnm
þar bent á að snúa sér til Víkings-
svæðisins við Hæðargarð.
— Akurnesingar fengu vítaspyrnu, en Þórtiur
Jónsson spyrnti hátt yfir markiÓ
Leikurinn í heild var miklu
skemmtilegri og fjörugri en fyrsti
leikurinn, sem Skotarnir léku
gegn Val. Skotarnir sýndu meiri
tilþrif nú en í þeim leik — þó
án þess að leggja verulega að sér,
og nokkurt kæruleysi virtist ríkj
andi meðal leikmanna um tíma
í síðari hálýteik. En knattspyrn-
an, sem Skotarnir sýndu á milli,
var oft stórglæsileg. Þrátt fyrir
ofureflið gáfust Akurnesingar
aldrei upp og reyndu a$ sækja,
sem oftast bitnaði á því, að vörn
þeirra opnaðist um of. Og tæki-
færi fengu Akumesingar, þótt
ekki tækist þeim að skora. Það
var hins vegar djarft teflt hjá
Akurnesingum að styrkja ekki
lið sitt meira en þeir gerðu, sem
og útkoman sýnir vel.
SKEMMTILEGUR
FYRRI HÁLFLEIKUR
Fyrri hálfleikurinn var mun
skemmtilegri — og um leið jafn
ari. Akurnesingar fengu strax á
fyrstu mínútu hornspyrnu — en
síðan náðu Skotar tökum á leikn
um, og á sjöttu mínútu varð
Kristinn Gunnlaugsson að taka á
öllu sínu til að bjarga á marMínu
eftir slæmt úthlaup Helga Daní
el^onar, markvarðar.
Á 9. mín. skoruðu Skotar
fyrsta mark sitt. Þeir fengu þá
aukaspyrnu var vel gefið fyr
ir markið. Helgi hljóp úr mark
inu án markmiðs og skallaði
útherjinn að marki, en Helgi
Hannesson fékk bjargað á línu.
Knötturinn fór þó fyrir fætur
miðherjans Clunie, sem skoraði
gegnum þvöguna.
Á 15. mín. gerði Helgi sig enn
sekan um rangt úthlaup — en
hann átti ag mörgu leyti mjög
misheppnaðan leik í marki að
þessu sinni, — og aftur kostaði
það mark. Helga Hannessyni tókst
þó í fyrstu aftur að skalla frá,
en knötturinn fór til útherjans
Henderson, sem skallaði knött-
inn yfir varnarleikmennina í mark
hornið fjær. Mjög glæsilega gert.
Og eftir mínútu lá knötturinn aft
ur í marki Akurnesinga. Þeir
náðu knettinum strax og hann
var gefinn langt fram. Innherjinn
McFazedan var fljótari en vam
arleikmennirnir, komst inn fyrir
og renndi knettinum framhjá
Helga.
Og litlu munaði að enn færi
1 illa eftir úthlaup Helga mark-
i varðar, því á 17. mín. varð Helgi
! Hannesson enn að spyrna knett-
I inum frá á marklínu Akraness-
marksins.
MISNOTUB VÍTASPYRNA
En spennan hélzt í leiknum. Á
19. mín. var Helga Björgvinssyni
hrint í vitateig Skotanna, og Hann
es Sigurðsson dæmdi vítaspyrnu,
sem var fullstrangur dómur. Þórð
ur Jónsson tók spyrnuna mjög
illa, knötturinu sveif um metra
fyrir ofan markið og langt aftur
fyrir. Það vantaði ekki kraftinn,
en nákvæmnin var ekki fyrir
hendi.
(Framh. á 13. síðu).
Betra liðið tapaði í úrslita-
leik Evrópubikí"'keppninnar
Úrslitaleikurinn í Evrópu-
bikarkeppninni fór fram í
Bern á miðvikudaginn milli
spánska jiðsins Barcelona og
portúgalska liðsins Benefica
og urðu úrslit þau, að portú-
galarnir sigruðu með 3—2 í
skemmtilegum leik, þar sem
Barcelona hafði talsverða yfir-
burði. sem ekki tókst að nýta
til sigurs. Greinilegt var, að
betra liðið tapaði.
Ungverski skallasérfræðingurinn
Kocsis skoraði fyrsta markið fyrir
Barcelona eftir 20 mín. Fyrir þann
tíma hafði Barcelona haft algera
yfirburði og bjuggust hinir sviss-
nesku áhorfendur við, að gert væri
út um leikinn fyrir Spánverjana.
| En skyndilega varð breyting á.
Á 30. mín skoraði miðherji Berie-
fica, Agus, eftir mistök á spönsku
vörninni. Tveimur mín. síðar var
knettinum spyrnt í átt að marki
Barcelona og kom hann í stöng-
ina, féll niður, þar sem honum var
þegar spyrnt í burtu. En svissneski
dómarinn benti á miðjuna og
dæmdi mark.
| Síðari hálfleikur verður talinn
sá óvenjulegasti í sögu ( bikar-
keppninnar. Eftir 8 mín. stoð 3—1
fyrir Benefica og var það Coluna,
sem skoraði með góðu skoti.
En síðan tóku leikmenn Barce-
lona við og sóttu það, sem eftir
var leiksins. Kocsis skallaði knött-
inn og átti spyrnu í þverslána, og
Kubala átti skot í aðra markslána
og síðan hina, og þegar 3 min. voru
til leiksloka komst Kocsis inn fýr-
ir, en markmaðurinn varði í horn
sem urðu að þremur, og síöustu
mínúturnar fóru því nær eingör.gu
fram í vítateig Benefica. Á 27 min.
hafði Ungverjanum Czibor tckizt
að skora annað mark Barcelona,
með frábæru skoti, en fleiri vildu
mörkin ekki verða, og virtist ói: úT
leg heppni fylgja Portúgölunum.