Tíminn - 07.06.1961, Blaðsíða 1
Furöulegar og ástæðulausar hdtanir
stjórnarblaðanna um gengislækkun
Einn rússnesku gullpeninganna. Þessi er á stærð við fimmeyring, en er samt um 500 króna virði. (Ljósm.: GE).
Tugþúsunda virði af
gullrúblum í boði
Fúrtséva
komin
í gær kom til íslands í opinbera
heimsókn frú Ekaterina Fuitséva,
menntamálaráðherra Sovétríkj-
anna og meðlimur æðsta ráðsins.
Hún kom með rússneskri einka-
flugvél, sem lenti á Keflavíkur-
flugvelli um hálf sjö leytið í gær-
kveldi. í fylgd með Furtsévu er
formaður Norðurlandadeildar
íússneska utanríkisráðuneytisins,
Nikolai Lunkov, dóttir hennar,
Svetlana, og einkaritari frú Furt-
sévu. Frúin mun dvelja hér í eina
viku, en liéðan fer hún til London.
Dularfullt flóð rússneskra gull-
peninga frá aldamótum
Gullsmiðir og skartgripa-
verzlanir bæjarins fengu í
fyrradag ákaflega undarlegar
heimsóknir, er þeim voru
boðnir til sölu gullpeningar
rússneskir frá því um aldamót.
Fólkið, sem bauð peninga þessa
til sölu, virtist hafa yfir miklum
birgðum þessara penihga að ráða,
því að hjá einum gullsmiðnum
voru boðnir 150 slíkir og hjá öðr-
um 200.
Þessir peningar vega 8 grömm
og eru 22 karöt, en í hreinu gulli
eru 24 karöt. Er því hver peningur
yfir 500 króna virði. Ef um 200
peninga slíka er að ræða, er þetta
allt saman um 100 þúsund króna
virði.
Stjórninni er skylt að hafa kosn-
ingar, áður en hún grípar til slíks
glæfrabragSs
Sjaldan hafa sézt furðulegri æsingaskrif á prenti en þau,
sem stjórnarblöðin birtu í gær í tilefni af því, að samkomu-
lag hafði náðst milli samvinnufélaganna og verkalýðsfélag-
anna á Akureyri um lausn kjaradeilunnar þar.
Blaðamaður Tímans komst yfir
einn af þessum peningum, og er
með frétt þessari birt mynd af pen-
ingnum, sem er frá árinu 1904 og
ber mynd Nikulásar II, síðasta
Rússakeisarans. Verðgildið er
fjórar rúblur. Hinir peningarnir
munu vera eins, en sumir þeirra
frá árinu 1903, aðrir fr'á 1904.
I eina verzlunina kom ölvaður
fullorðinn maður með vasana fulla
af peningum þessum og sagðist
hafa fundið þá í skolpleiðslu í
skipi. f annan stað kom stelpa með j
nokkra peninga, sem hún sagðistj
hafa fundið í matarleifum á ösku- ■
haugunum, sem þó hafa ekki verið
notaðir síðastliðin tvö ár. Ungur1
maður um tvítugt og sömuleiðis1
(Framhald á 2. síðu)
Bæði Morgunblaðið og Al-
þýðublaðið halda því fram,
að með þessu samkomulagi
sé stefnt að nýrri gengislækk
un og verðbólgu, og verða
ekki skrif þeirra skilin á að'ra
leið en þá, að ríkisstjórnin
áetli að skella á nýrri gengis-
lækkun, ef kaup verkamanna
og láglaunafólks hækkar um
rúm 10%, eins og orðið hefur
á Akureyri.
Þessi blöð héidu því fram
fyrir fáum dögum síðan, að
óhætt væri að samþykkja til-
lögu sáttasemjara um 6%
kauphækkun. Sá munur, sem
er á 6% og 10% kauphækkun,
ræður vitanlega engum úr-
slitum um þetta.
Sannleikurinn er líka sá,
að atvinuvegirnir eiga yfir-
leitt að geta vel risið undir
þessari kauphækkun, ef rétt
er stjórnað. Vaxtahækkunin
ein, sem var ákveðin í fyrra,
svaraði til 12—15% kaup-
hækkunar hjá þeim atvinnu-
fyrirtækjum, sem einna höll
ustum fæti standa, frystihús-
unum. Það eitt að færa vext-
ina í sama horf og þeir voru
i fyrir „viðreisnina", ætti að
geta bætt frystihúsunum
þessa kauphækkun. Rýmkun
lánsfjárhafta og aðrar hlið-
stæðar ráðstafanir myndu
styrkja aðstöðu atvinnufyrir-
tækjanna enn frekar.
Það er því ekki minnsta
þörf gengislœkkunar, þótt
samið verði almennt um hlið
stœöa kœuphœkkun og þá,
sem hefur orðið á Akureyri.
Slik kauphœkkun þœrf
hvorki að valda verðbólgu
né gengislækkun, ef rétt
er stjórnað. I
Skraf stjórnarblaðanna um
gengislækkun í tilefni af
slíkri kauphækkun, verður
ekki skilin öðru vísi en að
forsprakkar stjórnarflokk-
anna séu að leita eftir tilefni
til að réttlæta með nýja geng
islækkun, enda myndu marg-
ir áhrifamenn í báðum stjórn
arflokkunum telja sér hag að
henni, og þarf ekki að rifja
það upp hér, hverjir það eru.
Þaö væru hins vegar hrein
ir glæfrar að lækka gengið á
nýjan leik aö jafn- ástæðu-
lausu og hér er talað um. Það
væri andstætt allri skynseml
og því gætu ekki valdið nema
hin annarlegustu sjónarmið,
sem ættu skylt við allt annað
fremur en þjóðarhagsmuni.
Áður en stjórnarflokkarnir
grípa til slíks glæfraráSs, ber
þeim vissulega fyllsta skylda
til aS leita álits þjóðarinnar og
láta hana leggja á það dóm
sinn í þingkosningum, hvort
hún vill veita umboð til því-
líks óhappaverknaðar.
SKULDIR
Málgagn þeirra Kveld-
úlfs, Sigurðar Ágústssonar,
Jóns Árnasonar o. fl. slíkra,
Mbl., var í gær að tala um
skuldir SÍS. Það var svo að
heyra sem blaðið teldi sig
eitthvað vita um skuldir í
bönkunum.
Vill ekki Mbl. beita sér
fyrir því að gefa almenn-
ingi skýrslu um skuldir SÍS
annars vegar og skjólstæð-
inga blaðsins hins vegar.
Það gæti orðið fróðlegt og
góður vitnisburður um heil-
indi blaðsins og sanngirni í
garð samtaka almennings,
samvinnufélaganna.