Tíminn - 07.06.1961, Side 6
TÍMÍNN,
,lna 7. Júnf'T96®
Metframleiðsla hjá
áburðarverksmiðjunni
Aðalfundur Áburðarverk-
smiðjunnar var haldinn í Gufu
nesi á þriðjudaginn. Fundinn
sátu hluthafar eða umboðs-
menn hluthafa fyrir 97%
hlutafjárins. Stjórnarformað-
ur, Vilhjálmur Þór, flutti ýt-
arlega skýrslu fyrir hönd
stjórnarinnar um rekstur og
afkomu fyrirtækisins árið
1960.
Framleiddar voru á árinu 22.-
601 smálestir aS kjarnaáburði.
Frá upphafi reksturs verksmiðj-
unnar til ársloka 1960 hefur hún
| framleitt alls um 130.000 smálest j
ir áburðar, að söluverðmæti 234’
í milljónir króna.
Framleiðslan 1960 varð 4284
smálestum meiri en 1959. Meðal-
; framleiðsla á mánuði 1960 var|
1883 smálestir, og er það mesta
ársframleiðsla sem fengizt hefur.
Mestu afköst, sem náðzt hafa í;
verksmiðjunni á einum mánuði;
voru í maí 1960, en þann mánuð
voru framleiddar 2255 smálestirJ
i Höfðu þessi auknu afköst að sjálf
j sögðu hagstæð áhrif á reksturs-
afkomu fyrirtækisins.
Árið 1960 var kjarnaáburður
seldur á 2.500 krónur smálestin,
70 ára:
Björgvin Einarsson
Ég ætlaði að segja fáein orð
á sjötugasta afmælisdaginn þinn,
en það fórst fyrir. Sá dagur 17.
maí, hefur verið mörgum, og er
stór og góður dagur. Hann er
stærsti dagur heillar þjóðar,
hennar þjóðhátíðar- og frelsisdag-
ur. Þess má einnig geta að eitt
ljóðrænasta skáldið okkar orti
eitt sítt fegursta kvæði sinnar teg
undar, sem heitir „17. maí“.
Manstu, Björgvin, þegar við vor
iun gestkomandi báðir, fram á
Einarsstöðum. Það er langt síð-
an. Þá var vorið fyrir nokkru
gengið í garð með góðviðrum og
gróðri. Veðrið var svo gott að
við gátum ekki setið lengi inni,
en gengum út á hlað, og þegar
við sáum sólrákirnar í Bustarfjall
inu andspænis, og heyrðum klið
sunnangolunnar blandast niði
lækjanna í Einarsstaðafjallinu,
urðum við svo hrifnir af dýrð
dagsins og dásemdum. Við fórum
að tala um trúmál, þú sagðir að
það væri þér fögnuður að megaj
á hverju vori heilsa því öllu aft-j
ur á ný endurbornu, til nýs lífs, j
öllu því, sem hafði dáið síðast-
liðið haust, bæði lömbunum, blóm j
unum og mörgu fleiru sem féll
þá til foldar og dauðinn innsigl-j
aði í bráð, að enduðu fyrra sumri.
Þetta allt sagðir þú, bentir á ann-
að líf, mpnnirnir, dýrin, jurtirnar;
þetta stutta jarðlíf hvers einstakl-
ings er aðeins áfangí, aðeins lítið
brot af þróuninni. Við finnum svo
þetta allt, lifandi hinum megin,
og mér kom í hug er þú hafðir
talað, það sem skáldið kvað:
Týsfjóla krjúp þú með krónuna
fríða,
og kysstu þá mold, sem þú
blómgast á,
þó heimti hún blöðin þín himinblá
úr hisminu aftur skal rísa þinn
kraftur.
Þarna kynntist ég þinni lífs-
skoðun og trú, sem féllu báðar i
sama farveg. Þetta sagðirðu 17.
maí 1944, og það sama segir þú
sjötugur vorið 1961.
í skjólríkum hvammi í miðjum:
Hofsárdalnum austan megin Hofs
ár, stendur bærinn Þorbrandsstað;
ur, varla steinsnar frá ánni. Bær-
inn er kringdur all bröttum mel-
hjöllum sem mynda skeifulaga
umgjörð, er liggur sólarsinnis frá
norðaustri til suðvesturs. Þessir
melhjallar hlífa bænum og tún-
inu fyrir næðinni hafátt og einn-
ig fyrir suðaustlægum veðrum,
sem verða ærið hvöss á flestumj
öðrum býlum austan Hofsár. —
Skeifan er opin móti vestri. Þarj
rís Bustarfjallig yfir dalinn norð
an ár, gegnt Þorbrandsstöðum. j
Segja má að fjallið dragi úr i
stærstu áhlaupum þegar norðvest
an veðrin fara hamförum norðan
frá heimkynnum Hungs og Dimma
fjallgarðs. í þessari vin á bakkan
um við Hofsá er Björgvin borinn
og barnfæddur og hefur átt þar
heima lengst ævi, að fráteknum
nokkrum árum, sem hann dvaldi
í vistum í Vopnafjarðarsveit. —
Hann hefur aldrei dvalizt dag-
langt utan síns heimahéraðs. —
Björgvin hefur aldrei konu bund
izt, en traustum böndum hefur
hann bundizt heimabyggð sinni,
ættfólki sínu og ekki minnst
kirkju og kristindómi. Þessar
fornu dyggðir hafa átt traust og
friðað vé í viðhorfum Björgvins,
bæði í örðum og athöfnum.
Mörgum systrabörnum sínum
veitti hann fóstur um árabil í
uppvexti þeirra og ól þannig upp
kynslóð, þótt engin ætti hann
börnin sjálfur. Þá hefur hann og
lagt drjúgar fjárhæðir til Hofs-
kirkju, auk þess sem hann hefur
starfað fyrir kirkjuna á ýmsa
lund án endurgjalds.
Björgvin er kominn af greind
um og gegnum presta og bænda-
ættum austanlands. Hann er
hávaðalaus og hljóðlátur maður,
sem aldrei hefur eða mun skipta
um s.koðun frá vöggu til grafar.
Björgvin er sannur og lifandi
dýravinur og á bezt fóðrað og fall
egast sauðfé hér um slóðir. Það
er gott að vera sauðkind hjá hon-
um. Á haustin, þegar safnið úr
fyrstu göngu Tunguheiðar og
Hraunfellsparts sigur áfram út
Þorbrandsstaðaeyrar áleiðis til
réttar, bíður Björgvin þar eftir
því, rjóður í vöngum af réttar-
gleði; heils hugar heimtir hann
þá fallegu kindurnar sínar af
fjalli. Þær hlakka víst ekki minna
til að sjá hann.
Ég óska Björgvin þess til
handa þegar hann nú hefur fyllt
sjöunda áratuginn, að hann megi
mörg ókomin ár lifa heill og
hraustur og gleðjast við sína
sauðkindafegurð. Þess má geta,
að fyrir skemmstu sá ég hann j
hlaupa upp snarbrattan melhjall-1
an ofan við Þorbrandsstaðatúnið:
að sækja fé sitt, til hýsingar, enda;
er Björgvin teinréttur og létturj
í spori, eins og hann væri enn i
ungur maður
Við heimsóttum Björgvin nokkr
ir kunningjar hans 17. maí. Veð
ur var hið fegursta. Loft og jörð
ilmaði af nýgræðingi. Mildur vest
anblærinn mætti okkur þegar við
héldum inn í Hofsárdalinn. Það
var eins og vorþyturinn í tónum
og lögum Griegs og Sindings
flytti kveðjur með vorblænum
v.^tan frá Noregsströndum. Þeg-
ar við héldum í hlað á Þorbrands
en af þessu verði voru 100 krón-
ur notaðar til niðurgreiðslu á er-
lendum innfluttum áburði. í sam-
anburði við verð á innfluttum
köfnunarefnisáburði 1960, hefur
verksmiðjan með tilveru sinni
sparað íslenzkum bændum á ann-
an milljónatug króna 1960.
f ár hefur verið ákveðið sama
áburðarverð og í fyrra, enda þótt
erlendar vörur, sem verksmiðju-
reksturinn þarfnast, hafi hækkað
vegna gengisbreytingarinnar á síð
astliðnu ári. Þá skýrði formaður
frá því að mikið undirbúnings-
starf hefði verið unnið til korna-
stækkunar á kjarna. Væri þess
vænzt, að innan mjög skamms
tíma yrði unnt að ganga frá vali
og gera samninga um kaup á
tækjum í þessum tilgangi.
Fyrningifsjóður fyrirtækisins
nemur nú orðið 65 milljónum kr.
og varasjóður 7 milljónum króna.
Þessir sjóðir hafa orðið til þó
áburðurinn hafi aldrei verið seld
ur hærra verði en innfluttur á-
burður hefði kostað. Þessir sjóð-
ir eru nauðsynlegir til uppbygg
ingar fyrirtækisins og stækkunar
þess
Þá lagði framkvæmdastjórinn, í
Hjálmar Finnsson, fram ársreikn1
inga félagsins fyrir árið 1960 og
gerði grein fyrir niðurstöðum
þeirra.
Hagnaðurinn árið 1960 nam
2.299.709 krónum — en af þeirri
upphæð var lagt í varasjóð sam-
kvæmt lagaákvæðum 1.520.000
krónur.
Reikningar verksmiffijunnar
voru samþykktir samhljóða og
var ákveðið að úthluta arði 4%,
svo sem gert hafði verig árið þar
á undan.
Við stjórnarkjör voru endur- J
kjörnir aðalmenn í stjórn þeiri
Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráð-1
herra, og Jón Ingvarsson, forstjóri, i
og varamenn einnig endurkjörnir
þeir Halldór H. Jónsson, arkitekt,
og Hjörtur Hjartar, forstjóri.
Fyrir voru í stjórninni Vil-
hjálmur Þór, Kjartan Ólafsson og
Pétur Gunnarsson.
stöðum stóð Björgvin fyrir dyr-
um úti brosandi og beinn í baki,
og bauð okkur velkomin að ganga;
í bæinn. Þar sátuim við svo í i
veizlu, í söng og gleði fram yfirj
miðnætti. Hofsáin, þessi aldna
ódæða, skaðvaldur túnsins á Þor-j
brandsstöðum, var í essinu sínu
þennan dag. Hún er síung á hverju
vori og söng nú engan harma- j
söng, þar sem hún féll með ofur-
þunga að túnbakkanum ölvuð af
vorleysingu og urði túnið með
hverju æðaslagi sínu — Klukk-
an sló tólf. Milt vorhúmu seitl-;
aði inn um opna gluggana inn íj
stofurnar á Þorbrandsstöðum og-|
minntist á leiðinni vi.ð tónana fráj
slaghörpunni sem liðu út í vor-
nóttina. Þá bað Björgvin okkur
hæversklega að spila og syngja
lagið „Vopnafjörður“. Það var
hans lag í lokin á þessum degi.
Þar birtist átthagaástin úr kvæð-
inu „Ekkjan við ána“, ásamt inn
særri lotningu þegar „sál vor í
lágnættis logni lyftir sér hæst,
þá kemst og hugur vor himnun-
um næst“. Þeir sem eiga endur-
fæðingarkraftinn í sjálfum sér á-
samt þeirri iifandi trú að vera í
allan veturinn að hlakka til að
finna vini sína aftur með vorinu
þurfa engrar elli að kvíða, því
þeim sem elska allan heiminn,
finnst enginn dauði vera til.
Sigurjón á Rútsstöðum er sjö-
tíu ára í dag, eða svo köllum við
Svínhreppingar hann og vitum vel
við hvern er átt.
Ungur að árum fluttist Sigurjón
hingað í sveitina að Grund í Svína-
dal og ólst þar að einhverju
leyti upp, en fæddur er hann í
Reykjavík, albróðir Guðmundar
Oddssonar forstjóra Alþýðubrauð-
gerðarinnar, og þeirra mætu systk
ina;
Árið 1917 byrjar svo Sigurjón
búskap á Rútsstöðum, og kvæntist
heimasætunni þar Guðrúnu Jó-
hannsdóttur, Þorsteinssonar bónda |
á Rútsstöðum og konu hans Sigur-
bjargar Ólafsdóttur frá Guðrúnar-
stöðum í Vatnsdal, alsystur Guðm.
Ólafssonar alþm. í Ási.
Bærinn á Rútsstöðum var gam-
all og hrörlegur, túnið lítið og Hjónin á Rútcstööum, Sigu-jón Odds
engjaheyskapur mjög rýr, en son og Guðrún Jóhannsdóttir
70 ára:
Sigurjón Oddsson
Rútsstöðum í Svínadal
beitarsæld og landgott.
Ungu hjónin höfðu því nóg að
starfa, því meðal annars hlóðst á
þau ómegðin. Alls urðu börnin 13,
þar af 12 enn á lífi, en eitt dó
ungt. Auk þess átti Sigurjón 4
börn áður en hann kvæntist. Þá
var öldin önnur en nú er, engin
þægindi á heimilunum og enginn
barnalífeyrir, foreldrarnir urðu að
sjá fyrir börnunum sínum sjálf.
Það gerðu þau líka Rútsstaða-
hjón. Þau komu algerlega hjálpar-
laust upp hópnum sínum, að öðru
leyti en því, sem þau nutu hjálpar
Sigurbjargar móður Guðrúnar, á
meðan henni entust ícraftar og
heilsa.
Fljótlega byggði Sigurjón upp,
bæ sinn, að þeirra tíma hætti úr
torfi og timbri og leggur i hannj
miðstöð, með þeim fyrstu, sem'
komu hér í sveit. Var bærinn allur J
stór og reisulegur.
Nú fyrir nokkrum árum hefur!
hann enn endurbyggt. Þá byggir
hann stórt og vandað íbúðarhús
úr steinsteypu, eitt hið stærsta
hér um slóðír, raflýsir það og býrj
að nútíma hætti. Túnið, sem áðurj
var lítið og rýrt, hefur verið1
stækkað og breiðir nú ræktarlegt
faðminn á móti manni þegar mað-
ur fer eftir dalnum. Engjahey-
skapnum er hætt. Alls fóðurs er
aflað á ræktuðu landi. Fjárhúsin
gömlu eru horfin en i þeirra stað
komin steypt hús yfir allan fénað, |
ásamt heyhlöðum yfir allan hey-j
feng.
Rútsstaðir er nú fremsti bær í:
byggð í Svínadal, þar hefur land-J
auðnin orðið að nema staðar, fyrir
sístarfandi hönd bóndans, sem nú
notar efri árin til þess að bæta
jörð sína, áður en hann skilar
henni til næstu kynslóðar.
Nú búa á Rútsstöðum auk Sigur-
jóns, tveir synir hans Guðmuridur
og Sigvaldi, og þar er rekið eitt
af stærstu fjárbúum héraðsins.
Ég hef þekkt Sigurjón á Rúts-
stöðum lengi, kannske aldrei nán-
ar en þegar börnin voru _í ómegð
og erfiðleikarnir mestir. Ég dáðist
oft að kjarkinum, áræðinu og
þrekinu, enda hefur hann þegar
unnið stærra dagsverk en allur
fjöldinn.
Sigurjón fékk í vöggugjöf létta
lund. Hann hefur verið og er enn
hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann er og því eftirsóttur félagi.
Nú þegar hann stendur á sjötugu,
eru hárin að vísu farin að grána,
en léttlyndið, áræðið og karl-
mennskan, setja þó enn á hann
mesta svipinn.
Heimili Rútsstaðahjónanna hef
ur ætíð staðið opið hverjum gesti
sem að garði ber. Þar hefur oft
verið margt um manninn og glatt
á hjalla. Ég er þess því fullviss,
að í dag berast margar hlýjar
kveðjur heim að Rútsstöðum, því
margs er að minnast þegar rifjuð
er upp löng kynning.
Starf Rútsstaðahjónanna er mik-
ið og merkt. Hver sem sér Rúts-
staðasystkinin og -kynnist þeim, og
hver sem kemur að Rútsstöðum
og sér allar þær framkvæmdir,
sem þar hafa verið gerðar, fyllist
undrun og aðdáun yfir því hve
mikið starf getur legið eftir eina
fjölskyldu á tiltölulega skömmum
tíma og er það þó ekki allt séð
þarna.
Ég vil á þessum merku tíma-
mótum í ævi Sigurjóns á Rútsstöð-
um votta honum þakklæti mitt
fyrir öll okkar kynni. Ég vona að
við eigum oft eftir að hittast og
gleðjast, og ég óska þess að lífs-
gleðin, áræðið og karlmennskan
megi vera aðalsmerki hans til
hinztu stundar.
Lárus Sigurðsson.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir sendi ég ykkur öllum, sem sýnd-
uð mér vináttu á 75 ára afmæli mínu, 30. maí.
Jón Ormsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu og veitta að-
stoð við andlát og-Tarðarför
Valdimars Ólafssonar
frá Leysingjastöðum.
Þurfður Einarsdóttlr
\ og börn.