Tíminn - 07.06.1961, Page 12
12
TIMINK, v. jimi
5 ■
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Sí(Sasti leikur St. Mirren:
Val ísl. úrvalsliðs-
ins kemnr á óvart
~ Helgi Daníelsson í marki, og Helgi Jónsson,
KR, reyndur sem vinstri bakvöríur
Skozka liðið St. Mirren leik-
ur sinn síðasta leik hér í
kvöld á Laugardalsvellinum
og mætir þá úrvalsliði Suð-
vesturlands, sem landsliðs-
nefnd Knattspyrnusambands
íslands hefur valið, og má því
segja, að úrvalsliðið sé nokk-
urs konar tilraunalandslið
nefndarinnar. Leikurinn í
kvöld ætti að geta orðið
skemmtilegur, og vonandi
tekst íslenzka liðinu vel upp
gegn skozku atvinnumönnun-
um.
í landsliðsnefnd KSÍ eiga nú
sæti Sæmundur Gíslason, Fram,
formaður, Helgi Eysteinsson, Vík-
ing og Jakob Sigurðsson, Akranesi,
og fer vart á milli mála, að þeir
koma knattspyrnuáhugamönnum á
óvart með vali úrvalsliðs suðvest-
urlands. Sumir leikmenn eru verð-
launaðir fyrir frámunalélega leiki
og valdir í liðið — en aðrir, sem
staðið hafa sig með sóma, komast
þar ékki að. Én við skulum nú líía
á liðið, sem er þannig skipað talið
frá markmanni að vinstri útherja:
Helgi Daníelsson, Akranesi,
Árni Njálsson, Val, Helgi Jóns
son, KR, Garðar Árnason, KR,
Rúnar Guðmannsson, Fram,
Sveinn Teitsson, Akranesi,
Ingvar Elísson, Akranesi,
Gunnar Felixson, KR, Þórólf-
ur Beck, KR, Ellert Schram,
KR, og Þórður Jónsson, Akra-
nesi.
Þetta er úrvalsliðið
einhver að brosa!!
en var
HELGI DANÍELSSON
nú kom val hans á óvairt
Varamenn eru Heimir Guðjóns-
son, KR, Hreiðar Ársælsson, KR,
Hörður Felixson, KR, Ragnar Jó-
hannsson, Fram, Guðmundur Ósk-
arsson. Fram, og Gunnar Guð-
mannsson, KR.
Tiiraun með Helga
Jónsson
! Það, sem menn reka fyrst augun
í, er að Helgi Jónsson, KR, er val-
inn sem vinstri bakvörður, stöðu,
sem hann hefur aldrei leikið áður.
Ef til vill heppnast þessi tilraun,
en litlar líkur til þess. Helgi er
góður leikmaður, en hann átti að
vera framvörður. Bjarni Felixson
I var bezti maður varnar KR í leikn-
um gegn St. Mirren í fyrrakvöld
— að Heimir markmanni undan-
skildum, og því var honum ekki
gefið tækifærið? Eða þá, að hafa
vörnina eins og gegn írnm í fyrra
og reyndist vel. Arna og Rúnar
sem bakverði og Hörð sem mið-
vörð. Þannig er vörnin áreiðanlega
sterkust. Helgi Daníelsson átti
sennilega sinn lélegasta leik í
marki um árabil gegn St. Mirren
á föstudagskvöldið, en samt er
hann valinn í úrvalsliðið nú. Þetta
kemur á óvart — og Helgi hefði
haft gott af að' hvíla sig í þessum
leik. Ekki þar fyrir, að ég álíti
Helga ekki okkar bezta markmann,
þegar honum tekst upp, en það á
ekki að verðlauna menn, þegar-
þeir gera illa.
Það er mikið vandaverk að velja
innherja í liðið, og nefndin tók
þann kost að hafa Gunnar Felix-
son og Ellert Schram í stöðunum
— þrátt fyrir það, að þeir voru
slakastir í framlínu KR í fyrra-
kvöld, en Gunnar var þá reyndar
útherji. Um þetta val er þó lítið
að segja, og erfitt að benda á
menn, sem eru afgerandi betri í
þessum stöðum. Þórður Jónsson
meiddist í leiknum á Akranesi á
sunnudaginn, og því mjög/varhuga-
vert að láta hann Ieika erfiðan
leik svo fljótt aftur, en hins vegar
verður gaman að fylgjast með
hvernig Ingvari tekst upp á kant-
inum.
Þó val liðsins sé hér gagnrýnt
nokkuð, sem erfitt er að komast
hjá, skulum við vona, að það standi
sig með miklum ágætum í kvöld,
og að þær tilraunir, sem gerðar eru
heppnist, og þó einkum að Helgi
Dáníelsson standi sig vel í mark-
nu. Ábyrgð hans er mikil núna.
St. Mirren skipar sínu bezta liði
;am í kvöld og er það þannig:
Jimmy Brown Campell, Wilson,
Stiewart, Clunie, MeTavish, Hend-
erson, Bryceland, Kerrigan, Gemm-
Heimir Guðjónsson varði mark KR með miklum glæsibrag í leiknum í fyrrakvöld, og einkum vöktu góð grip
hans mikla athygli. Hvað eftir annað kastaði hann sér á knöttinn, greip hann og héit honum, jafnvel í föstustu
skotum. Og myndin sýnir eitt þessara atvika, og auk Heimis sjást sex aðrir KR-lngar i vítateignum. Ljósmyndir
Tíminn, G.E.
íslenzkir glímumenn verða í
Að undanförnu hefur dval-
ist hér á landi sjónvarpsmað-
ur, Svend Á. Wilquinn að
nafni, á vegum einnar kunn-
ustu fréttastofu heims, United
Press. Wilquinn hefur tekið
hér mikið af myndum fyrir
sjónvarpsstöðvar, sem munu
sýndar víða um heim.
í fyrradag náði hann í Lárus
Salómonsson, og fékk hann til að
hóa saman nokkrum glímumönn-
um, til þess að sýna íslenzka
glímu. Varð Lárus strax við þeirri
beiðni, og fékk á skömmum tíma
11 glímumenn til þess að taka að
sér hlutverkið.
Sýndu þessir gUmumenn ýms
brögð íslenzku glímunnar, æfing-
ar og fleira undir stjórn Lárusar,
en Wilquinn myndaði af miklu
kappi. Hann var mjög ánægður
með árangurinn á eftir, og veltist
um af hlátri þegar smástrákar,
sem staðið höfðu álengdar, fóru
strax að glima, að myndatöku lok-
inni.
Eins óg áður segir er Wilquinn
frá einni kunnustu fréttastofu
heims, og munu þessar sjónvarþs-
tökur hans hér því berast víða, og
verður þetta því hin bézta kynning
fyrir íslenzku glímuna. Þar munu
margir erlendir sjá hana fyrst í
sjónvarpstæki sínu.
Innanfélagsalíma
Vetrarstarfsemi glímudeildar
Ungmennafélags Reykjavíkur lauk
með innanfélagsglímu og var keppt
í mörgum aldursflokkum drengja.
Æfingar voru sóttar af miklu
kappi í vetur, og sjaldan eða aldrei
fleiri ungir drengir mætt á glímu-
æfingum.
Úrslit í emstökum flokkum urðu
þessi:
Drengir 16—19 ára:
1. Garðar Erlendsson
2. Elías Árnason
3 Þórh. Aðalsteinsson
3 v.
2 v.
1 v.
Unglingaflokkur:
1. Sigtryggur Sigurðsson 5 v.
2. Birgir Sigurjónsson 4 v.
3. Helgi Árnason 3 v.
Drengir 15 ára og yngri:
1. Tryggvi Hermannsson 3 v.
2. Helgi Ámason 1+2
3. Sturl. Stefánsson 1+1
Drengir 12 ára og yngri:
1. Guðm. Sigurðsson 4 v.
2. Halldór Kristinsson 3 v.
3. Sigmar Ólafsson 2
ell og Miller.
Dómari verður Haukur Óskars-
son, Víkingi, en línuverðir Karl
Bergmann. Fram, og Ólafur Ilann-
esson, KR. Leikurinn hefst kl. 8.30.
Knötturinn lenti einu sinni í markl í fyrrakvöld, og þá var þaö vinstri út.
herji Skotanna (nr. 11) sem sló knöttinn í markið meö hendinnl. KR ingar
mótmæltu, en dómannn benti á miðjuna, en línuvörðurinn Þorlákur Þórð-
arson, sá hverju fra^fór og dæmdi markið af.