Tíminn - 19.07.1962, Page 9
■BgaawanflMMF “itgEwieaMWMBB
■BSfflSlö
RÍSID UPP,
BREZKU KONUR,
OG MÓTMÆLIÐ
ADILD AÐ EBE
eftir Lord Montgomery marskálk
★
Grein sú, er hér fer á
eftir birtist í brezka blað-
inu „Sunday Express" 1.
júlí sl. Höfundur hennar er
hinn frægi og nafntogaði
herstjórnarmaður Mont-
gomery lávarður. — Óþarfi
er að kynna hann íslenzk-
um blaðalesendum. Mont-
gomery gat sér orð sem her-
foringi fyrir stjórnsemi,
þrautseigju og kænsku.
Hann þykir maður bersög-
ull og hvassyrtur, ef því
er að skipta og fer sírtar
eigin leiðir. Montgomery
hefur t. d. greint mikið á
við ráðandi menn á Vestur-
löndum um afstöðuna til
valdhafanna í Moskvu og
Peking. Montgomery er
með öllu andvígur fullri
aðild Breta að Efnahags-
bandalagi Evrópu. Hann
hefur undanfarjð birt svo
til annan hvern dag, heil-
síðugreinar (í ramma með
mynd) f brezkum stórblöð-
um og mælir eindregið
gegn aðild Breta að EBE.
Montgomery er í slagtogi
með Beaverbrooke lávarði,
blaðaútgefandanum mikla,
sem einnig er í harðri and-
stöðu við aðild Bre'Vi að
EBE. Er sagt, að Beaver-
brooke standi straum af
kostnaðinum af þessari her-
ferð Montgomerys — eða
Montys eins og brezkur al-
menningur kallar hann — í
brezkum blöðum. Þessa
grein, sem hér birtist í ís-
lenzkri þýðingu nefnir
Montgomery lávarðar: „My
plea to the women of
Britain". Ávarpar hann
þar brezkar konur og höfð-
ar ekki síður til tilfinninga
en skynsemi. Meðfylgjandi
★
mynd birtist með greininni
í „Sundaý Express" og svo
gefum við Field Marshat
Lord Montgomery orðið-
„í þetta sinn vil ég beina
máli mínu til ykkar mæðra og
allra kvenna í Bretlandi. Ég
vil biðja ykkur fyrst.um að líta
til baka til ársins 1940, þegar
þjóð okkar var í miklum háska
stödd. Þið senduð þá eiginmenn
ykkar, unnusta, syni og bræð
ur til þess að berjast gegn óvin
um okkar, svo þjóð okkar mætti
áfram vera til, þróast og dafna
Þessir menn voru mínir félas
ar. Þeir komu sumir hverjir
aldrei til baka. Það voru lagðar
þungar byrðar á herðar ykkar
kvennanna, sorgir og erfileik-
ar.
En nú spyr ég: Hverjir voru
það sem samstundis komu okk
ur til hjálpar til þess að bera
sigurorð af Hitler og djöfulleg-
um markmiðum hans? Hverjir
brugðust fljótast við 1940, þeg-
ar glötunin blasti við okkur?
Það voru ekki Þjóðverjar eða
ítalir. Þeir voru einmitt and-
stæðingar okkar. Það voru ekki
heldur Bandaríkjamenn: Þeir
tóku engan þátt í frelsisbarátt-
unni, fyrr en bein árás var
gerð á þá sjálfa, er Japanir
réðust á Pearl Harbour 7. des
ernber 1941. í tvö ár létu Banda
ríkjamenn okkur það einum
eftir að berjast við sameinaða
heri Öxulveldanna.
Nei, það voru Kanadamenn,
Ástralíumenn ng Ný-Sjálending
ar, sem réttu okkur hjálpar-
hönd á örlagastund.
Og nú hvetja Bandaríkin okk
ur til þess að gerast aðilar að
Efnahagsbandalagi Evrópu
fEBE). Þetta myndi þýða, að
við myndum sbtna úr tengslum
við vini okkar í Kanada. Ástra-
líu og Nýja-Sjálandi, svipta þá
mörkuðum og verða sjálfir af
hagstæðum viðskiptum við þess
ar þjóðir Þess í stað myndum
'dð opna markaði okkar fyrir
hinum gömlu fjandmönntim
''kkar. Þjóðverjum og Ttölum
Styrkjum samveldið
En hvers vegna eru Banda-
ríkin svo áfjáð í. að við ger-
umst aðilar að EBE? Er það
vegna þess, að þau vona, að að-
ild okkar einangri okkur og þá
um leið veiki Kanada, svo að
Bandaríkin eigi hægara með að
ná stjórnmála- og efnahagslegu
taki þar f landi, er um síðir
myndi leiða til þess, að Kanada
sæi sjg tilneytt að ganga úr
brezka samveldinu? Er þetta
ástæðan? Sé svo, ber okkur
skylda til að koma í veg fyrir,
að slíkt geti gerzt — með öll-
um hugsanlegum ráðum.
Mér finnst við krafin of mik-
ils, ef við eigum að fóma hags-
munum vina okkar í samveld-
inu til þess eins að þóknast
gömlum fjandmönnum og
Bandaríkjunum.
Við getum engrar virðingar
vænzt frá samveldislöndunum
vegna þátttöku í EBE. Það reyn
ir á okkur nú sem fyrr að
standa saman, vekja hvert ann
að, berjast og krefjast þess, að
samveldið verði styrkt og hag-
ur þess settur ofar ámóta banda
lögum og EBE.
Þetta getum við ekki leyft
Hvað er okkur ætlað að kjósa?
Tú. við skulum takk fyrir ífasta
frá okkur ást og virðingu þjóða
samveldisins. Minnizt þess. kon
ur góðar, að menn ykkar. er
féllu fyrir föðurlandið, myndu
berjast ótrauðir gegn svo lúa
legu og ódrengilegu bragði
Þeir hefðu aldrei leyft. að
bannig yrði að farið. Þeir fórn
uðu lífi sínu fyrir England og
því segi ég við vkkur: við get-
iim ekki heldur leyft þetta.
Á því er enginn efi. að for
=eti Bandaríkjar.na þrýstir fact
á stjórn okkar og hvetur hana
til þess, að láta okkur gerast
aðila að EBE.
Ég spyr: Á forseti Bandaríkj-
anna að ákveða örlög þjóðar
okkar? Ég svara: Nei. Aldrei.
En ég spyr um fleira: Hvern
ig stendur á þvi, að stjórnmála
leiðtogar okkar sýna enga fram
för í því efni að leysa ágrein-
ing austurs og vesturs? Og ég
svara og segi, að það er vegna
þess, að í Vestur-Evrópu er eng
in eining og enginn leiðtogi.
Þjóðir Vestur-Evrópu hafa sam
einingartal á vörum en enga
sannfæringu í hjarta. Þvert á
móti vantreysta þær hver ann-
'arri. Grundvöllur fyrir raun-
verulega sameiningu er ekki
fyrir hendi.
í Vestur-Evrópu er enginn
leiðtogi, einfaldlega vegna þess.
að enginn sá maður er til er
gæti veitt hinum mörgu þjóð-
um viturlega leiðsö.gn né held-
ur áunnið traust allra þjóð-
anna.
Eigum við nú að ganga í
bandalag við þessar þjóðir? At
hugum það ögn nánar:
Ef við undirritum Rómar-
samninginn tökum við á okk-
ur margar óþægilegar skuld-
bindingar Ráð EBE hefur vald
til þess að setja lög og reglur.
=em skulu vera bindandi í ðllu
tilliti fvrir hvert einstakt ríki
Ef við göngumst inn á þetta
gefum við upp á bátinn það
stjórnmálalega sjálfstæði, sem
við höfum barizt fyrir og varið
öld fram af öld.
Við myndum sömuleiðis fá
útlendingum í hendur stjórn
:r”mr>ríVismáIefna okkar og
gefa þeim vald til þess ag setja
okkur lög, sem væru bindandi,
enda þótt þau kynnu að brjóta
í bága við lög frá okkar eigin
þingi.
Við myndum örugglega eyði-
Ieggja brezka samveldið, en
hvað yrði um okkur sjálf?
Verðum að hafa frjálsar
hendur
Við myndum finna okkur í
Evrópuveldi, ekki sterka nema
í orði, því hvorki væri þar að
finna sanna einingu né leið-
toga, er allir bæru fullt traust
til. Þessu veldi yrði hugsanlega
stjórnað af þeirri þjóð, er við
höfum barizt við og lagt að velli
í tveimur heimsstyrjöldum. —
Guð sé oss næstur! Eru leið-
togar okkar gengnir af göflun-
um?! Ef svo er, ættum við að
gefa þeim frí hið allra bráð-
asta.
Til þess liggja sögulegar stað
reyndir, að við megum ekki
binda land okkar Evrópu svo
nánum böndum, að þau verði
aðeins rofin með uppreisn og
riftun skuldbindinga Rómar-
samningsins.
Og við getum gert okkur það
Ijóst strax, að hversu traust-
lega sem reynt verður að knýta
okkur meginlandi Evrópu, þá
yrðu slíkir fjötrar slitnir fyrr
eða síðar, og hvar stæðum við
þá?
Það skal tekið fram, að ef til
ófriðar kæmi milli austurs og
vesturs, myndum við auðvitað
samstundis berjast við hlið
bandamanna okkar í NATO og
verja frelsi og rétt þjóðanna.
En við verðum að hafa frjáls-
ar hendur og láta ekki binda
okkur um of. Sagan frá 1914
og 1939 má ekki endurtaka sig,
er við gerðumst aðilar að eins
konar Evrópubandalagi. Það
kostaði að óþörfu líf margra
sona okkar. Við megum ekki
heldur láta Bandaríkin þröngva
okkur til eins eða neins. Við
þurfum ekki að láta aðrar þjóð
ir segja okkur, hvað okkur sé
fyrir beztu. Það vitum við bezt
sjálfir.
Og með tilliti til þessa alls
segi ég við ykur, brezkar kon-
ur: Leyfið ekki að land okkar
verði bundið meginlandi Ev-
rópu með undirskrift Rómar-
samningsins og aðild að EBE.
Krefjumst þjóðaratkvæSis
En hvernig á að koma í veg
fyrir, að til þessa komi? Þið get
ið komið í veg fyrir það. Þið
veljið stjórnina. Þið getið líka
fellt hana. Gerið henni það
ljóst, að þið munið ekki leyfa,
að þetta mál verði afgreitt með
handauppréttingu í þinginu.
' Hér er örlagaríkt máT á ferð.
Framtíð brezku þjóðarinnar og
velferð afkomenda okkar er
undir því komin, hvaða ákvarð
anir um það verða teknar.
Rísið upp, konur, allar sem
ein, og krefjizt þess að fá að
segja ykkar álit, áður en leið-
togar okkar falla í þá gryfju
að fleygja samveldislöndunum
fyrir borð.
Krefjizt þjóðaratkvæðis, áð-
ur en endanlegar ákvarðanir
verða teknar í málinu, og minn
izt þess, að greiða engum þeim
frambjóðanda atkvæði, sem
styður inngöngu Bretlands í
EBE.
Með þessum hætti munuð
þið geta komið í veg fyrir, að
samveldið verði lagt í rústir, en
í tilveru þess finnur hinn
frjálsi heimur sína traustusfu
franitíðarvon.
:/
J
T í M I N N, fimmtudagurinn 19. júlí 1962.
9