Tíminn - 15.01.1963, Síða 3
Fengu ekki aðstoð frá
utanaðkomandi aðilum
NTB-Togo, 14. ianúar.
Byltingarnefndin í Togo lýsti
því yfir opinberlega í dag, að
hún hefði ekki verið studd af
Brukknir töfðu
Framnaid af 1. síðu.
ina við Halldórshús, er þeir komu
riður eftir, en þar höfðu þeir eins
og fyrr segir þvælzt fyrir slökkvi-
lið'ijiu.
Einn óeinkennisklæddur lög-
regluþjónn var slökkviliðinu til
aðstoðar meðan hinir voru efra og
gerði hvað hann gat til að bægja
ölæðingunum frá. Mál vegna að-
gerða þessara manna verður sent
sýslumanni til meðfeTðar. Sá sem
ók þeim mun ekki hafa neytt áfeng
is.
Vísir skýrir frá því í dag, að
brunaboðinn á Bíóhöllinni, sem
stendur vig Halldóráhús, hafi
i-eynzt óvirkur, þegar til átti að'
taka. Þetta er rétt, en hringt var
til slökkviliðsstjórans, sem setti
brunaboða í gang.
Oanga Bretar í EBE
Framhald af 1. siðu.
í sig hið evrópska bandalag.
De Gaulle sagði: Einstaka mönn
um fannst þetta e. t. v. vera rétt
stefna, en<þetta er alls ekki það',
sem Frakkar óska eftir í Evrópu.
Ef til vill munu Bretar einhvern
tíma hafa gert nægilegar breyting
ar heima fyrir, og þá munu þeil
koma að opnum dyrum, og Frakk
ar ekki gera neitt til þess að
standa í vegi fyrir inngöngu
■ 'þeirra, enda-þótt einnig þetta
ciBlMOdi bcögU eðli bandalagsins.
Vel getur verið, að Bretar hafi
ekki hug á slíkum breytingum, né
séu reiðubúnir til þess að fram-
kvæma þær nú. Ef svo er, þá er
hér ekki um neitt stórkostlegt mál
að ræða. Burtséð frá því hvað
Bretar hyggjast gera, er ekki á-
stæða til þess, að afstaða okkar
til landsins breytist. Nái viðræð-
umar í Briissel ekki tilætluðum ár
angri, þá er ekkert því til fyrir-
stöðu, að Bretum verði veitt auka
aðild að EBE.
Hin hörðu ummæli de Gaulle
hafa vakið nokkra reiði í London.
Þá hafa ummælin komið óþægi-
lega við stuðningsmenn Breta í
öðrum löndurn Vestur-Evrópu, en
bæði Ítalía og Beneluxlöndin, sér-
staklega Holland leggja mikið upp
úr því, að Bretum verði veitt að-
ild að EBE. Hefur uppástunga
de Gaulle um aukaaðild ekki vak-
ið neina sérstaka gleði.
neinum utanaðkomandi aðil-
um, og ætlun hennar væri að-
eins að fara með völd í land-
inu, þar til komið hefði ver-
ið á löglegri stjórn.
Byltingin í Togo hófst á sunnu-
dagsmorgiln, og var þá forseti
landsins Sylvanus Olympio skot-
inn til bana. Hefur þetta tiltæki
vakið mikla ókyrrð f öllum lönd-
um í vestanverðri Afríku.
Þeir, sem fyrir byltingunni
Samningaviðræðumar milli
sendinefndar Breta í Brussel og
fulltrúa EBE hófust aftur f dag,
um líkt leyti og blaðamannafund-
ur de Gaulle fór fram í París. Er
talið, að orð forsetans um aðild
Breta hafi gert viðræðurnar erfið-
ari. Lengi hefur mönnum verið
ljóst, að hann var andvígur þess-
ari aðild, en ekki hafði verið bú-
izt við, að hann tæki svo óvægi-
lega á málunum.
Þegar Heath efnahagsbandalags
ráðherra Breta kom út úr fundar-
salnum í Brussel að viðræðunum
loknum í dag, sagði hann: Ég
sagði honum í gær, að við hefðum
ekki áhuga á aukaaðild, ‘ svo að
ég skil ekki, hvers vegna hann
tekur þetta mál til umræðu f dag.
Átti hann hér við de Gaulle, en
Heath var í París fyrir skömmu,
og ræddi þar við de Gaulle og
Couve de Murville utanríkisráð-
herra.
Viðræðunum í Brussel mun ekki
hætt vegna þessara ummæla
Frakklandsforseta, en þar er nú
beðið eftir því, hver viðbrögð
hinna EBE-landanna fimm verða,
en þau eru flest fremur fylgjandi
aðild Breta.
Sfórslys
Framhald aí bls l.
vík komst í svip til meðvitundar
á leiðinni til Akraness, en féll
jafniskjótt í ómegin. Var komið
með hann á sjúkrahúsið laust fyrir
kl. 18.
Þorkell var meðvitundarlaus,
þegar spurt var um líðan hans í
gærkvöldi. Hann var höfuðkúpu-
brotinn, húðin flett af kúpunnj og
heilinn laskaður. Mjög var tví-
sýnt um líf hans.
Þorkell hafðí verið við smíðar
í Lambhaga og var á leið þangað
frá Reykjavík. Hann lagði af stað
í bíl sínum, R-13614, cnskum, 4ra
manna, um kl. 10 í morgun. Flug
hált var á vcginum undir Múla-
fjalli, þar scm bíllinn rann út af.
Hann er talLnn gjörónýtur.
standa eru þrír, tengdasonur 01-
ympios forseta, einn af fyrrver-
andi landbúnaðarráðherrum lands
ins og að lokum fyrrverandi dóms
málaráðherra þess.
Byltingarnefndin lýsti yfir neyð
arástandi í Togo í dag. Síðar um
daginn kom flugvól frá Ghana, og
flutti hún sendinefnd frá Nkrum-
ah forseta. Nkrumah lét tilkynna,
að hann styddi í einu og öllu þær
aðgerðir, sem gripið hefur verið
til í Togo, til þess að finna frið-
samlega lausn á málum landsins,
en eftir að sendinefnd hans hafði
átt viðræður við byltingarnefnd-
ina flaug hún aftur til Ghana.
Ýmsir álíta, að Nkrumah hafi
Fá peninga
frá Moskvu
Áki Jakbbsson, fyrrverandi ráð-
herra, hélt fyrirlestur á hádegis-
verðarfundi á vegum Varðbergs í
Þjóðleikhúskjallaranum á laugar-
daginn. Fjölmenni var á fundinum
og máli ræðumanns vel tekið.
Sagði Áki meðal annars, að Sós-
íalistaflokkurinn væri byggður
upp á sama hátt og kommúnista-
flokkar í austantjaldslöndunum og
hefðu forystumenn ísl. kommún-
ista náig samstarf við Kreml.
Komu margar athyglisverðar upp-
lýsing'ar fram í ræðu Áka, en að
ræðunni lokinni svaraði hann fyr-
irspurhum fundarmanna. Var hann
m.a. að þvf spurður, hvort Sósíal-
istaflokkurinn nyti fjárstuðnings
frá Moskvu og svaraði Áki því ját-
andi og taldi enga hættu á því að
Þjóðviljinn myndi hætta að koma
út vegna fjárskorts.
Eldur í sumar-
bústað
Reykjavík, 14. jan. — Kl. 2,04 í
nótt var slökviliðið kvatt að Reykj
um í Mosfellssveit, en þar hafði
kviknað í sumarbústað sem er í
smíðum. Eldurinn hfði borizt frá
Reykröri olíukyndingartækis, sem
var í gangi. Tókst fljótlega að
slokkva, en til þess varð að rífa
nokkuð af þakinu. Skemmdir eru
talsverðar. Sumarbústaðurinn er
eign Páls Magnússonar, lögfræð-
ings.
Kaldasti janúardag-
ur síðan árið 1755
NTB-London, 14. janúar.
í fyrsfa sinn í dag frá því
um jól virSist veðrið held-
ur fara hlýnandi meðfram
strönd Hollands, en annars
staðar hélt vetur konungur
áfram að herja á íbúa
Evrópulandanna. í La Re-
vine í Sviss mældist t.d. 39
stiga frost, og hefur annað
eins frost ekki komið þar í
janúar síðan árið 1755, eða
í rúmar tvær aldir.
Rekísinn við strönd Svíþjóð-
ar sleit neðansjávarsímalínu
milli Kaupmannahafnar og S.-
Svíþjóðar. í þessari línu voru
420 strengir, og hefur í henn-
ar stað verið tekin í notkun,
til bráðabirgða, önnur lína, en
í henni eru aðeins 240 strengir,
svo þetta veldur miklum óþæg-
indum í sambandi við öll sím-
töl, sem fram þurfa að fara
við meginlandið.
f Moskvu var enn 18 stiga
frost, og jafnvel í hinni sól-
ríku Kaliforníu komst hitastig-
ið niður í 0 stig, og annars stað
ara í Bandaríkjunum var ó-
venjulega kalt.
Nokkur skip á Eystrasalti
hafa lent í vandræðum vegna
skrúfuíssins þar, og varð áhöfn
eins þeirra að yfirgefa skip
sitt, þar eð það var í þann veg-
inn að sökkva. Skipið var 499
lestir að stærð.
staðið að baki byltingunni enda
þótt það hafi verið borið til baka^
en hann er sagður mjög gjarnan
vlja inniima Togo í ríki sitt. —
Togo liggur við hlið Ghana, og
hefur lítil vinátta ríkt með Nkrum
ah forseta og Olympio forseta
Togo að undanförnu.
Síldin í Meöal-
landsbugt
KB—Reykjavík, 14. jan.
Síldin veiðist nú aðallega í Með-
allandsbugt og við botn Skaftár-
djúps. Þar fengu 18 skip 15.850
tunnur síðast liðna nótt. í jökul-
djúpi veiddist hins vegar lítið,
tveir bátar fengu þar 150 tunnur.
Var enda farið að kula þar strax
í nótt, en á miðunum eystra var
veður enn ágætt.
Eftirtalin skip fengu þúsund
tunnur eða mera í nótt: Sigurður
Bjarnason 1800, Akraborg 1400,
Eldey 1400, Kópur 1300, Gullborg
1200 og Ingiber Ólafsson 1100.
Til Reykjavíkur komu ekki mörg
skip með síld í dag, enda orðin
hátt í sólarhringssigling af mið-
unum til Faxaflóahafna. Til Vest-
mannaeyja hafa nokkrír bátar kom
ið með síld, og nokkrir voru sagð-
ir á leiðinni, þegar blaðið talaði
við fréttaritara sinn var í gær-
kvöldi. Togarinn Júní hefur tek-
ið síld til útflutnings í Eyjum í
dag og cr það annar togarinn sem
tekur þar síld síðustu dagana, í
kvöld var veður tekið að spillast
á mjðunum.
Verður a9 semja
NTB-Washington, 14. jan.
Dean Rusk utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna hélt
sjónvarpsræðu [ kvöld, þar
sem hann sagði, að það
væri ekki spurningin, hvort
hægt væri að binda endi á
vígbúnaðarkapphlaupið. —
Það verður að gera það,
sagði hann.
Sagði utanríkisráðherr-
ann, að Bandaríkjamenn
væru fúsir til að leggja
vopn sín til hliðar, en skil-
málarnir yrðu að vera skýr-
ir. — Við getum ekki sam-
þykkt að eyðileggja vopn
okkar, og ekki gctum við
heldur fækkað í herliði okk
ar, , án þess að hið sama
ver^i gert hjá hinurn aðilan-
um. Þá niunum við einnig
krefjast þess, að slíkum skil-
málum verði fylgt.
Mig-2t-þðtur
NTB-Moskva, 14. jan.
Haft er eftir áreiðanleg-
um heimildum í Moskvu, að
lokið sé við að skipa út a.
m. k. fjórum flugvélum af
gerðinni MIG-21 og verða
flugvélar þessar nú sendar
til Indlands, samkvæmt
samningi, sem gerður hefur
verið milli stjórna Sovét-
, ríkjanna og Indlands. Vél-
arnar voru settar um borð
í skip í Odessa, og ættu þær
að verða komnar til Bom-
bay innan tveggja vikna. *
Adenauer samþykkir
NTB-Bonn, 14. jan.
Vestur-Þýzkaland er fúst
til samvinnu við önnur ríki
innan Atlantshafsbandalags
ins um að koma upp sam-
eiginlegum kjarnorkuher,
sagði Adenauer kanzlari í
viðræðum við George Ball
aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna í dag, sem
er í heimsókn í Bonn um
þessar mundir.
KlWt
gljáir
' - -. — „ _
O. JOHNSON & KAABER H/F, REYKJAVIK
T í M I N N, þriðjudagur 15. janúar 19G3.
3