Tíminn - 15.01.1963, Blaðsíða 5
IÞROT
SITSTJORI HAUUR SIMONARSON
MISTOK DOMARA URÐU
ÍR-INGUM DÝRKEYPT
FH vann IR í jöfnum leik á Islandsmótinu í fyrrakvöld, 33—30. Dómarinn
vísaði einum ieikmanna in
Sem betur fer er það sjald-
gæfur atburður í handknatt-
leik, að leikmanni sé vísaS af
velli fyrir brot, sem annar hef-
ur framið, en það skeði í leik
FH og ÍR í fyrrakvöld, er þess-
ir aðilar mættust í íslandsmót-
inu. Fyrir mistök dómarans
var Hermanni Samúelssyni ÍR,
vikið af velli í fimm mínútur,
eftir miðjan síðari hálfleikinn,
og hafði þessi brottvikning
hans mikil áhrif á úrslit leiks-
ins, sem hafði verið afar jafn
fram að þeim tíma, er þetta
atvik átti sér stað.
Eftir að Hermanni hafði verið
vxísað út af, léku ÍR-ingar sex og
lögðu áherzlu á að tefja leikinn,
sem þeim tókst furðu vel. Samt
sem áður náðu PH-ingar að auka
forskot sitt í 26:23 og náðu ÍR-
ingar aldrei að brúa það bil. Loka
Keppni í 2.
deild hafín
Á LAUGARDAGINN liófst keppni
í 2. deild á íslandsmótinu í hand-
knattleik. Tveir leikir fóru fram
— í þeim' fyrri mættust Valur og
Breiðablik úr Kópavogi og vann
Valur með nokkram yfirburð'um,
33:25.
f seiuni leiknum mættust ÍA og
ÍBK og vann ÍA eftir nokkuð
spennandi leik, 32:27.
af velli aö tilefnislausu
tölur urðu 33:30 FH í vil, en óefað
hefðu úrslit orðið önnur að ein-
hverju leyti, ef ÍR hefði ekki orðið
fyrir því áfalli að missa Hermann
í svo langan tíma, að tilefnislausu
og verða þessi misötk algjörlega
að skrifast á reikning dómarans,
Hannesar Þ. Sigurðssonar, sem
gekk illa að halda leiknum niðri.
Lélegar varnir beggja
liðanna
Varnir beggja lið'anna voru af-
ar lélegar allan leikinn út og um
líma í. fyrri hálfleiknum var mark
skorað upp úr hverju upphlaupi.
Gunnlaugur Hjálmarsson tók for-
ustuna_ fyrir ÍR með ágætu skoti
strax á fyrstu sekúndunum, en það
stóð ekki lengi og rétt á eftir jafn
aði Einar Sigurðsson fyrir FH með
föstu skoti af línu.
Félögin skiptust á að halda for-
ustu út fyrri hálfleikinn —- og
var markaregnið gífurlegt, — og
virtust leikmenn lítið vita hvað
varnarleikur væri. í hálfleik hafði
FH yfir 20:19.
Seinni há'lfleikur var ólíkur
þeim fyrrf að því leyti til, að
mun færri mörk voru skoruð og
menn gættu sín betur. FH hélt
yfirleitt forustu, en ÍR fylgdi fast
á eftir.
Þegar rúmar 13. mín. voru
eftir, vísaði dómarinn Her-
manni Samúelssyni af velli,
fyrir brot er meðherji hans
framdi og var Hermanni vísað
út af í fimm mínútur, þar sem
honum hafði áður verið vísað
af velli í leiknum.
Þessi alvarlega yfirsjón dómar-
ans reyndist ÍR-ingum dýrkeypt
og kostaði hún það, að liðið varð
að halda boltanum sem mest, en
sleppa öllum sóknarleik, — og
var þá í rauninni gert úti um leik
inn. FH-ingar juku forskot sitt í
þrjú mörk og náu ÍR-ingar ekki
að jafna það.
FH-liðið langt frá sínu bezta
Þrátt fyrir þennan sigur FH, er
langt síðan liðið hefur leikið jafn
illa og virðist ekki vera í æfingu.
Veikasta hlið liðsins er vörnin og
hefur hún aldrei veri eins slök og
nú — ef til vill hefur þetta komið
greinilegar fram nú, vegna slæmr
ar frammistöðu Hjalta í markinu,
sem hefur verið aðalmáttarstólpi
liðsins undanfarin ár. Það er
ljóst, að FH-liðið getur ekki til
frambúðar treyst jafnmikið á ein-
staklingsgetu leikmanna sinna,
þegar út í stærri raunir er kom-
i, enda er sameinað átak þyngra í
metunum, en einstaklingsframtak
ið, sem til beggja vona getur
brugðið. Mörk FH í leiknum skor
uðu, Ragnar og Guðlaugur 7 hvor,
Einar 5, Birgir 4, Páll og Örn 3
hvor og Kristján og Sverrir 2
hvor.
Það er alltaf sami veiki punkt-
urinn á ÍR-liðinu — vörnin — og
er furðulegt, að ekki skuli vera
hægt að laga haúa. Gunnlaugur
var beztur ÍR-inga að vanda, en
ágætan leik sýndu einnig Gunn-
ar Sigurgeirsson og Finnur í
rnarkinu. Mörk ÍR skoruðu, —
Gunnlaugur 8, Matthías og Stefán
^5 hvor, Hermann og Gunnar 4
hvor og Gylfi og Björgvin 2 hvor.
Dómari í leiknum var eins og
fyrr segir, Hannes Þ. Sigurðsson,
einn okkar reyndasti handknatt-
leiksdómari — hafði hann lítil
eða engin tök á leiknum og átti
slæman dag. — alf.
NVII0ANA SKORTI OlllAlD
GEGN ISIANDSMEISTIIRUM
Fram vann Þrótt auöveldlega með 34—19
FRAM vann stóran sigur yfir
Þrótti, er þessir aðiiar mættust i
fyrri umferö íslandsmótsins í hand
knattleik í fyrrakvöid. Alls urðu
mörk Fram 34 á móti 19 Þróttar
og hefði sigur Fram vissulega getað
orðið stærri. Þróttarliðinu skortir
tilfinnanlega úthald — og í ielkn-
um í gær, virtist liðið vera búið,
áður en fyrri hálfleik lauk.
Það býr margt gott í liði Þrótt-
ar og meðan því entist úthald.
brá fyrir góðum leikköflum og á-
gætu línuspili. Leikurinn hélzt
jafn fvrsta stundarfjórðunginn. en
eftir það var um algjöran ein-
stefnuakstur af hálfu Fram að
ræða og mörkin komu eins og á
færibandi. í hálfleik hafði Fram
yfir 16:9.
Framarar héldu áfram að auka
forskot sitt í seinni hálfleiknum
og virtust taka leikinn frekar
sem létta æfingu, en kappleik í
fslandsmóti — Ingólfur Óskars-
son var aðalskotmaður Fram og
skoraði mörg glæsileg mörk — en
annars varði Guðmundur Gústafs-
son í marki Þróttar mjög vel og
það er honum fyrst og fremst að
þakka, að ekki fór ver.
Undir lokin tóku Þróttarar smá
sprett og skoruðu þrjú síðustu
mörkin en leikurinn endaði 34:19
Ekk; telst bessi leikur Fram tii
neinna stórviðburða. enda mót
spyrnan lítil og liðsmenVi kæru-
lausari af þeim sökum. Guðjón
og Ingólfur voru beztu menn liðs-
ins, en aðrir sýndu einnig ágætan
leik, m. a. markvörðurinn, Sigur-
jón Þórarinsson, sem átti sinn
bezta leik í langan tíma. Mörk
Fram skoruðu, Ingólfur 14, GÍuð-
jón og Karl Ben. 5 hvor, Sigurð-
ur, Hilmar, Erlingur og Jón 2
hver og Tómas og Ágúst 1 hvor.
Lið Þróttar kom illa út úr þess-
um leik og er úthaldsleysið áber-
andi. Liðið getur leikið taktiskan
handknattleik og náð upp laglegu
línuspili — en það dugir skammt,
er úthald er ekki fyrir hendi. —
Mörk Þróttar í leiknum skoruðu.
Axel og Þórður 5 hvor. Haukur 3.
Páll og Hp]gi 9 hvor og Grétar og
Gunnar 1 hvor.
Dómnri í leiknum var Valur
I Benediktsson.
KEPPNI í kvennaflokkum á handknattleiksmótinu hefst í kvöld og er
þátttaka nokkuð góð í meistaraflokki, þótt ekki verði keppni í tveimur
deildum, eins og áður. Á myndinni hér að ofan, sem tekin var í fyrra,
sést Liselotte Oddsdóttir, Ármannl, skora mark gegn Víkingi.
Kvennaflokkar
keppa í
ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt-
leik heldur áfram að Hálogalandi
í kvöld og fara fram þrir leikir í
meistaraflokki kvenna, auk nokk-
urra leikia í yngri flokkunum. —
Þátttaka í kvennaflokkj cr góð og
senda flest Reykjavíkurfélaganna
Iið til keppni, en í nýafstöðnu
Reykjavíkuimóti var þátttaka
mjög dræm og sendu aðeins þrjú
félög lið til keppni.
Þessir leikir fara fram í kvöld:
í þriðja flokki b, ÍR-Ármann, dóm-
ari, Bergsteinn Pálsson; Víkingur
-Þróttur, dómari, Gestur Jónsson,
kvöld
og loks mætast í 3. flokki b, Val-
ur-Fram og þann leik dæmir
Björn Bjarnason. í meistaraflokki
kvenna mætast í fyrsta leik Valur
og Ármann, dómari Birgir Björns
son, þá leika Fram og Breiðablik,
dómari Heins Steinmann og síð-
asti leikur verður milli Víkings og
FH og hann dæmir Gunnar Jóns-
son.
Ekki er að cfa, að kvennaleikirn
ir verða allir skemmtilegir, má
t. d. búas!: við mikilli baráttu
í leik Ármanns og Vals, en þessi
lið háðu harða baráttu í nýaf-
stöðnu Reykjavíkurmóti.
CARBOR ENGINN
FLÓTTAMAÐUR!
AÞ—Reykjavjík, 14. janúar.
S.l. laugardag kom hingað til lands hinn kunni ungverski
íþróttaþjálfari, Simony Gabor, og mun ætlun hans að dvelja
hérlendis i eitt og hálft ár. í för með Gaboi- er fjölskylda hans.
Það var rangtúlkað í Morgunblaðinu að Gabor hyggðist leita
hælis liér sem pólitískur flóttamaður.
Gabor er kominn hingað á vegum IR. cn hjá því félagi hef
ur Gabor þjálfað áður, með góðuin árangri Það mun ætlunin,
að Gabor annist undirbúning og þjálfun íslenzkra frjálsiþrótta-
manna fyrir næstu Olvmpíuleika, sem haldnir vérða í Tokyo i W
nóvembermánuði 1964. n
Það er vissulega ástæða til að fagna komu Gabor hingað
til lands. enda er hann einn færasti frjálsíþróttaþjálfari sem i
vöi er á í heiminum. I
T í M I N N, þriðjudagur 15. janúar 1963.
5