Tíminn - 15.01.1963, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 15. janúar 1963
11. tbl. 47. árg.
KLAKASTÍFLAN VAR SPRENGD UPP
BÆRINN VAR UM-
FLOTINN VATNI
Nefndarmenn í skálanum.
(Ljósm.: TIMINN-GE).
ÞJ-Hósavík, 14. janúar.
í FYRRADAG stíflaSlst Laxá í
Aðaldal um 15 km. frá Húsavík. —
Flæddi áin yfir þjóðveglnn á kafla,
svo að hann var ófær í fyrradag og
gær, uni klakastíflan var sprengd
þá um kvöldið af vegavinnumönn-
Klakastíflan kom í ána í svo-
nefndu Grundarhorni, sem lax-
veiðimenn þekkja vel. Mikill hluti
árinnar flæddi út í hraunið. Bær-
inn Knútsstaðir, sem stendur
þarna í hrauninu, var alveg um-
flotinn vatni þennan tíma, svoekki
var hægt að komast til né frá bæn-
Rætist úr
skorti á
vinnuafli
■ SK—Vestmannaeyjum 14.
jan. — Að undanförnu hef-
ur verið talsverður hörgull
á fólki til vinnu í Vestmanna
eyjum og hefur það valdið
bæði frysti'húsum og bátum
allmiklu óhagræði. Nú er
faríð að rætast úr þessu.
Hekla kom hingað fyrir helg
ina með fólk austan af landi
og frá Reykjavík hefur tals
vert af fólki komið síðustu
dagana, bæði flugleiðis og
sjóveg. Má segja, að mann-
eklan sé nú nokkurn vegin
úr sögunni.
um. Hlaða^frá bænum var neðar
í túninu, og var á annað fet af
vatni í henni.
Það er ekki óalgengt, að Laxá
stíflist i þessum olnboga, en sjald-
gæft er, að Stíflan verði á aðra
mannhæð, eins og var í þetta sinn.
Þegar vegavinnumenn höfðu
sprengt klakann, rann áin aftur
i eðlilegan farveg, og hefur verið
fært síðan. Meðan ófært var, fóru
menn Reykjahverfisleið til Húsa-
víkur.
Nefndarstörf í kulda og trekk
BÓ-Reykjavík, 14. jan.
SÝNINGARNEFND Félags fs-
lenzkra myndlistarmanna hefur nú
valið þau verk, sem félagið séndir
á Norrænu listsýninguna f Helsing-
fors.
Sýningin verður opnuð 8. marz
n. k. og stendur yfir þann mánuð.
íslenzka deildin verður svo, ásamt
þeirri finnsku, flutt til Ábo til
sýningar, sem stendur til apríl-
loka. Síðasta Norræna lisitsýningin
var haldin hér í Reykjavík fyrir
tveimur árum.
Sýningarnefndin hefur unnið
að vali sínu í Listamannaskálan-
um undanfarna daga, í lítt bæri-
legum kulda, sögðu nefndarmenn
fréttamönnum, sem litu þar i.nn
í dag. Hitastigið inni í skálanum
fer sem kunnugt er mjög eftir
hitastiginu utan hans, enda sögðu
nefndarmenn, að þeim hefg; liðið
bölvanlega í fótunum í frostinu
fyrir helgina.
Til sýningar hafa verig valin
60 verk eftirtalinna höfunda: Mál
verk: Benedikt Gunnarsson, Guð-
munda Andrésdóttir, Hafsteinn
Austmann, Hörður Ágústsson, Jó-
hann Briem, Kristján Davíðsson,
Sigurður Sigurðsson, Steinþór Sig
urðsson, Valtýr Pétursson.
Grafík: Bragi Ásgeirsson.
Teppi: Vigdís Kristjánsdóttir.
Höggmyndir: Sigurjón Ólafsson,
Jón Benediktsson, Guðmundur
Benediktsson. — Myndirnar verða
rramhald á 15. siðu.
Héraðsvötn flæddu yfir Norðurlandsveg á 7-800 m. löngum kafla
Flæða nu í fyrsta sinn
yflr Blönduhlíðarveqinn
Héraðsvdtn í Skaga-
firði hafa bólgnað upp af
krapa og flæða nú yfir
bakka sína. Er þjóðvegur-
inn að ausianverðu undir
vatni á löngum kafla af
þessum sökum.
í gærmorgun kom krapastífla
í Héraðsvötnin og tóku þau þá að
flæða yfir bakkana austur á bóg-
inn hjá Akratorfu. Jókst flóðið
allan sunnudaginn og fram undir
morgun í dag. Þjóðvegurinn til
Akureyrar, sem þarna liggur um,
er nú undir vatni á 7—800 metra
löngum kafla, og er hann með öllu
ófær til umferðar. Bílar hafa þó
komizt leiðar sinnar með því að
fara yfir tún Höskuldsstaða og
Miðhúsa fram hjá vatnselgnum,
en sú leið myndi ekki verða fær
mikið lengur, ef frost héldi áfram.
En til þess eru ekki miklar líkur;
í dag var komin frostleysa í Skaga
firði, og er allt útlit fyrir að þíð-
an haldist, svo að vonir standa til,
að úr flóðinu dragi.
Héraðsvötn hafa oft áður flætt
yfir bakka sína á þessum slóð-
um, en aldrei áður að austan-
verðu, svo að vegurinn færi undir
vatn. Öll fyrri flóð hafa,orðið yfir
vesturbakkann, og hafa þau þar
af leiðandi ekki valdið sömu um-
ferðartruflun og flóðið i gær.
Hádegisklúbbur
Hádegisklúbburinn kem-
ur' saman á morgun,
miðvikudag, á sama stað
og tíma.
EUurínn kom upp við stigu
BÓ-Reykjavík, 14. jan. að við hróp Bryndísar, sem lá
. lemstruð á götunni fyrir utan.
Yfirheyrslum varðandi brun- Menn þessir voru bágir j herbergl
ann á Akranesi er að mestu
lokið. Þau Bryndís Helgadótt-
ir og Gunnar Guðnason hafa
þó ekki veri* -‘irheyrð, en
bæði liggjs 1 - húsinu.
Blaðið talaði við Harald Jónas-
son, fulltrúa bæjarfógetans á
Akranesi f dag, en hann hefur
haft rannsóknina með höndum.
Haraldur sagði, að þeir, sem niðri
sváfu í húsinu, munj hafa vakn-
í norðvesturhorninu, en framan
við herbergisdyrnar, í norðaustur-
horninu, var stigi upp i risið.
Mikill eldur var í stiganum, er
þeir þustu fram og sneru því við
og brutust út um glugga og tókst
að bjarga einhverjum pjönkum
Rafstraumur var á húsinu, inn-
takið á ytri vegg við stigann. Eft-
irlitsmaður raflagna á staðnum
kannar brunarústirnar, en skýrsla
frá honum er ókomin.
Olíukyntur miðstöðvarketill var
í kjallara undir húsinu, en um
eldsupptök þar er ekki að ræða,
sagði fulltrúinn. Eldurinn virðist
hafa komið upp í norðausturhorn
inu, við stigann, en ekki í _neinu
herbergjanna. Húsið mún hafa
staðið ólæst, en engar spurnir eru
um ferðir óviðkomandi manna í
eða við húsið skömmu áður en
eldsins varð vart.
Kristján Valdimarsson virðist
hafa dáið í svefni og ekki hreyft
sig úr rúminu. Hann kom ekki
fram að glugganum, eins og rang
hermt var í einu dagblaðanna á
sunnudaginn.
RÚMLEGA SEX KÍLÓGRAMMA STEINN ÚR ÞORSKMAGA
UM DAGINN kom óvenjulega fyrirferSarmiklll þorskur til frystihússins i Bolungavík. og þegar hann
var slægður, kom í Ijós, að 6,2 kg. steinn vall úr maga hans. Þorskurinn sjálfur var 135 cm. á lengd
og 18,5 kg. að þyngd. Á myndinnl sést slægjarinn, Vagn Hrólfsson með steininn í hendinni.
(Ljósm.: TÍMINN-krjúl).