Tíminn - 11.01.1964, Page 16
RITSTJÓRl HALLUR SÍMONARSON
ÞORSTEINN HALLGRÍMSSON og
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON eru
iveir aSalmenn Reykiavlkurúrvaltins.
.06 METRAR FAR-
SEÐILUNN TIL TOKÍÓ
Alf-Reykjavík, 10. janúar
Jón Þ. Ólafsson, „íþrótfamaður ársins 1963" er
Reykvíkingur. Fæddur 21. júní l941, og er því 22 ára
gamall. Hæfileikar Jóns í hástökkl voru ekki uppgötv-
aðir snemma á íþróttaferli hans. Hann byrjar sem
knattspyrnumaður með Víking og lék um fimm ára
skeið með því félagi. Árið 1956 verða þáttaskil. Jón
hættir knattspyrnuiðkununum snýr sér að frjáls-
um íþróttum, eftir að hafa mæt* á frjálsíþróttanám-
skeiði, sem ÍR efndi til. Byrjunin h;á Jóni á frjálsíþrótta-
sviðinu var alls ekki góð. Á frjálsíþróttamóti á Lauga-
vatni haustið 1957 stekkur Jón t. d. aðeins 1,47 metra
í hástökki. En Jón hefur lagt ha.t að sér við æfingar
síðan og framfarirnar hafa verið stöðugar.
Jöfn stigakeppni
í körfuknattleik
Alf-Reykjavík, 10. janúar
• Samningar hafa tekizt rniCi Körfuknattleikssam-
bands íslands og varnarliðsmanna á Keflavíkurflugvelli
um keppni miili Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar.
Frá þessu hefur verið skýrt í blað'nu áður og hafa jsegar
farið fram tveir leikir milli þessara aðila og standa stig-
ín jöfn. þ. e. hvort liðið um sig nefur unnið einn leik.
í dag heldur keppnin svo áfram og fer leikurinn fram á
Keflavíkurflugvelli. Lið Reykjavíkur hefur verið ákveð-
Íð og verður það landsliðið, sem valið hefur verið til þátt-
töku í Polar Cup í marzmánuði n.k. — Liðið er þannig
skipað:
Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR
Guðmundur Þorsteinsson, ÍR
Hólmsteinn Sigurðsson, ÍR
Viðar Ólafsson, ÍR
Gunnar Gunnarsson, KR
Einar Bollason, KR
Guttormur Ólafsson, KR
Kristinn Stefánsson, KR
Ólafur Thorlacíus, KFR
Birgir Birgis. Ármanni
Davíð Helgason, Ármanni
Sigurður Ingólfsson, Ármanni.
Þú má geta þess, að forleikur að
leiknum í dag verður leikur í 3.
flokki milli hins efnilega 3. flokks
liðs ÍR og Highschool-liðs af Vell-
inum. '— Fyrri leikurinn hefst
klukkan 3,30. Ekki er unnt að
koma því við, að selja aðgang að
þessum leikjum á Keflavíkurflug-
velli.
Skipað í iands-
liðsneínd K.S.Í.
Ein umiieildasta ákvörð-
un, sem tekin var á síðasta
ársþinpi Knattspyrnusam-
bands íslands, var það að
fjölga landsliðsnefndar-
mönnum úr þremur. í
fimm. Var það ákvæði haft
með, að minnsta kosti tveir
utanbæjarmenn skyldu
eiga sæti ' nefndinni.
Nú hefur stjórn Knatt-
spyrnusambands íslands
skiDað nefndarmenn fyrir
hið nvbynaða ár og era
þeir eftir+rldir:
Sæmundur Gíslason,
Haraldur Glslason,
Helgi Evsteinsson
fallir frá Reykjavík)
Hafste'nn Guðmundsson,
Keflavík.
Magnús Kristjánsson,
Akranesi.
Golf-
æfingar
Golfmcnn eru farnir að
hugsa til hreyfings, og á
þriðjudag í næstu viku, hefj-
ast innanhússæfingar og
kennsla i íþróttasalnum i
Laugardal. Niðurröðun tíma
verður fyrst um sinn
þannig:
Þriðjudagar kl. 8.30—9/20
fyrir byrjendur (kenn-
ari Þorv. Ásgeirsson).
Þriðjudagar kl. 9.20—10.10
Samæfingar.
Föstudagar kl. 6.00—7.40.
' Samæfingar.
Þess er vænzt, að golfiðk-
endur notfæri sér tíma
þessa sem bezt og fjölmenni
þegar á fyrstu æfingu. Byrj-
endur hafi samband við
Þorvald Ásgeirsson, síma
11073.
Við spjölluðum lítilsháttar
við Jón Þ Ó sfsson, eftir að úr-
slitin í skoðanakönnuninni
höfðu verið kunngerð í gær.
— Þú ert auðvitað ánægður
með viöurkenninguna?
— Já, auðvitað er ég ánægð-
ur. Þetta ei miKill heiður, en
ég álít oð margir aðrir hefðu
frakar átt skilið að fá viður-
senninguna.
— Og nú verða Olympíuleik-
ar á árinu. Gerirðu ekki ráð
fyrir að keppa í Tokyó?
— Það veit maður ekki enn
þá Fyrst þarf maður að
stökkva 2.06 metra utanhúss.
Það er láma'*kshæðin, sem þarf
að yfirstíga Eiginlega er 2.06
íarseðillinn til Tokíó, þótt það
«é reyndar tkki víst.
— Heldurðu að 2,06 verði
mikil hindrun?
— Eg hugsa að mér takist
að komast yfir þá hæð á næsta
yi’inri. Mér fmnst ég vera betri
nú, en nokkurn tíma áður,
•afnvel pótt mér hefði ekki tek
izt að nálgast aðalmetið, innan-
hússmetið 2.11. Annars geri
c g ráð fyrir, að eitthvað fari
að ske á næstunni, kannske að
ég stökkvi hærra en 2,11 áður
en langt mn líður.
— Segðu mér nú Jón, hvern
ig stendur á því, að þú nærð
ailtaf betri árangri innanhúss?
— Hvað þetta snertír, er ég
líklega einstakt fyrirbrig® með
al hástökkvara. En skýringin
liggur fyrst og fremát í því,
flð íslenzk veðrátta méð sínum
Kenjum og iélegir vellir hamla
gegn góðum árangri utanhúsa.
Hástökkvarar erlendis, sem
stökkva 2.05 innanhúss,
'tökkva næi undantekninga-
iaust hærra vtanhúss. Svo má
kannski segia, að keppnin sé
:{ril, en fyrst og fremst kenni
ég veðráttunni og röllunum
nm þetta.
— Og þú ert bjartsýnn á
framgang íslenzkra frjála-
íþrótta?
— Já, því ekki það. MiMð af
uugu fólki hefur skotið npp
kollinum að undanförnu og
sýnt að mikið býr í því. ís-
icndingar, sem eru svo miklir
einstaklingsliyggjumenn, ættu
í rauninni að stunda frjálsar
íþróttir miklu meira. Það er
iiiiklu auðve.dara að æfa ein-
siaklingsíþróttir en flokka-
íþróttir, þar sem mikið ríður
á að hver emasti maður mæti
á æfingu til að hafa flokkinn
sem samstil'tastann, en alltaf
eru einhver brögð á að svo
verði ekki. Eg hef trú á því,
að vegur fr j; Isra íþrótta á la-
landi verði mikill næstu ár.
MYNDINA aS ofan tók Ijósmyndari Tfnvans, GoSjón Elnarsson,
helma hjá JÓNI Þ. ÓLAFSSYNI í daq. Hann vlrSlr fyrlr sér hlna
veglegu styttu, sem fþróttafréttarltarar afhenda „fþróttamannl árs-
ins". Á veggjum og borSlnu eru verSlaunagripir, sem Jón hefur
bnniS á undanförnum árum.
16
T f MIN N, laugardaginn 11. janúar 1964 —