Tíminn - 24.01.1964, Síða 2
. immtudagur, 23. janúar.
NTB-Leopoildville. — Þrír
’caþðiskir iprestar frá Belgíu,
’ afa verið drepnir í Kwilu-
Iraðinu í Vestur-Kongó. Her-
' g gilda nú í héraðinu.
NTB-Dar-Es-Salaam. — Ny-
e, forseti Tanganyika, sagði í
ig, að ekkert samband væri á
! illi uppreisnarinnar í Tanga-
nvika og byltingarinnar á Zanzi
: ar.
NTB-Genf. — Fulltrúar
ammúnistalandanna á afvopn.
narráðstefnunni í Genf, réð-
’ ,t harkalega á tillögu Banda-
kjanna um kjarnorkuflota fyr-
NATO.
NTB-Brussel. — Utanríkis-
refnd belgíska þjóðþingsins
amþykkti í dag að viðurkenna
: iínverska Alþýðulýðveldið.
Ekki var ákveðið, hvenær það
nyndi gert.
NTB-Washington. Bandaríkja-
íenn sprengdu í dag kjarn-
irkusprengju neðanjarðar í
fevada-eyðimörkinni. Er það
<innur sprengjutilraunin á þessu
ílri.
NTB-Washington. — Banda-
.’íkjamenn hafa ákveðið að
skjóta út í geiminn nýjum gervi
hnetti, Saturn I, og verður
hann stærsti gervihnötturinn,
sem hingað til hefur verið skot-
;ð út í geiminn. Honum verður
skotið frá Kennedyhöfða 27.
janúar.
NTB-London. — Ráðherra-
nefnd Evrópusambandsins
(WEU) hóf fundi sína í London
í dag, og mun ræða ýmis al-
þjóðamál.
NTB-Moskva. — Iðnaðarfram
leiðsla Sovétríkjanna jókst um
m% árið 1963, og er það langt-
um meiri aukning, en gert var
NTB-Brussel. — Eurospace
hóf í dag ráðstefnu um smíði
geimskipa. Um 300 sérfræðing-
ar taka þátt í ráðstefnunni.
NTB-Zanzibar. — Sendifull-
trúi Kfnverska Alþýðulýðveld
isins, Liu Kan, kom í dag til
hins nýstofnaða sendiráðs
Rauða-Kína í Zanzibar.
NTB-Nicosía. — Vart var við
þrjár kröftugar sprengingar i
Nikósíu í dag, og sköðuðust
nokkrir hættulega.
NTB-París — Jean Bichon,
sem ákærður var fyrir samsæri
um að myrða de Gaulle for-
seta, var í dag dæmdur í 20
ára fangclsi.
ráð fyrir í síðustu sjö ára áætl-
uninni.
NTB-Bonn. — Sovétríkin
óska ekki eftir að endurnýja
verzlunarsamning sinn við V-
Þýzkaland, sem gekk úr gildi
síðustu áramót.
NTB-Moskva. — Valery Gisc-
ard Destaing, fjármálaráðherra
Frakklands, kom í dag til
Moskva, og mun hann ætla að
fcemja um aukinn útflutning
Frakka til Sovétríkjanna.
För Robert Kennedys til SuSaustur-Ásíu hefur borið árangur:
Vopnahlé á N-Borneó
NTB-Bangkok, 23. janúar
Róbert Kennedy, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, lýsti
því yfir á blaðamannafundi í Bangkong í dag, að Thailand
hefði verið beðið um að hafa eftirlit með vopnahléinu á
Borneó, sem Malaysía og Indónesía hafa samið um. Talið er,
að vopnahléð hef jist í lok janúarmánaðar.
Kennedy kom til Bangkok frá
Djakarta, þar sem hann ræddi við
Sukarno Indóníuforseta. Náðist
þar samkomulag um að vopnahlé
skyldi gert á Norður-Borneó, þar
sem órekstrar á milli indónesískra
hermanna og hermanna Bretlands
og Malaysju hafa skapað mikla
hættu. Vopnahlé þetta opnar leið
ina til viðræðna á milli deiluaðil-
anna, og gæti leitt til friðsamlegr-
ar lausnar á deilunni, sem hófst
þegar Malaysíusambandið var
stofnað í haust sem leið.
Robert Kennedy, sem er sérleg-
ur sendimaður Johnsons, forseta
Bandaríkjanna, hefur um skeið átt
viðræður við Macapagal, forseta
Filippseyja og Abdul Rahman,
forsætisráðherra Malaysíu.
Sukarnó upplýsti í dag, að deilu
aðilarnir myndu bráðlega koma
saman til viðræðna í Bangkok. —
Engin skilyrði fylgja þessum við-
ræðum — sagði hann. — Hvorki
Indónesía né Filippseyjar hafa við
urkennt Malaysíusambandið. Tals
maður brezka utanríkisráðuneyt-
isins sagði í dag, að þeir vildu
ekkert um vopnahléssáttmálann
segja, fyrr en Robert Kennedy
kemur til London á morgun til við-
ræðna við Richard. Butler, utan-
ríkisráðherra, og Duncan Sandys,
samveldismálaráðherra. f Washing
ton eru menn mjög ánægðir með
þann árangur, sem Kennedy hefur
náð.
HERMANNAUPPRHSNIUGANDA
BREZKIR HERMENN FLUTTIR FRÁ KENYA TIL UGANDA AÐ ÓSK STJÓRNARINNAR
NTB-Kampala, 23. janúar
Hermenn í bænum Jinja í Uganda gerðu í dag uppreisn
gegn brezkum liðsforingjum sínum og hertóku Felix Onama,
innanríkisráðherra Uganda, þegar hann kom til þess að ræða
kröfur hermannannna um hærri laun. Milton Obote, forsæt-
isráðherra landsins, bað þegar í stað Breta um að senda her-
lið til landsins, og kom það þangað seint í kvöld frá Kenya.
Hermennirnir, sem uppreisnina
gerðu, munu vera um 150—250 að
tölu. Uppreisnin hófst sneir.tna í
morgun (Uganda-tími). Fyrsta til
kynningin um hana kom frá brezk
um herforingja, sem hringdi frá
herstöðinni í Jinja til vinar síns
í Kampala. Sagði hann að her-
mennirnir hefðu gert uppreisn og
að brezku liðsforingjarnir væru
fangar þeirra. Hann sagði enn
fremur, að allt væri rólegt í her-
búðunum og að ekki hefði komið
til neinna bardaga.
Fjölskyldur brezku liðsforingj-
anna búa sig undir að yfirgefa
Jinja, sem er iðnaðarbær um 30
kílómetra frá Kampala. Verðir eru
á ýmsum stöðum í bænum.
f tilkynningu frá Onama, innan-
ríkisráðherra Uganda, sem hann
sendi út í gærkvöld, var sagt, að
rfkisstjórnin í Uganda hefði gert
sérstakar öryggisráðstafanir eftir
uppreisnina í Tanganyika. Lagði
hann áherzlu á, að stjórnin bæri
fullt traust til brezku liðsforingj
anng og að ríkisstjórnin ræddi nú
kröfur hermannanna um hærri
laun og betri aðstæður í herbúðun-
um.
Þetta er þriðja uppreisnin, sem
gerð er í Austur-Afríku s.l. tvær
vikur.
i
FRÉTTIR AF LANDSBYGGÐINNI
SK-Vestmannaeyjum, 23. jan.
í fyrrinótt þegar Hafrún IS
400 var að leggjast hér að
bryggju, gerðist það, að skipið
fór allt í einu að bakka og lenti
á 4 bátum, sem allir skemmd-
ust nokkuð.
Skipstjórinn hafði verið við
stýrið, og ætlaði hann að taka
aftur á bak, sem hann og gerði,
en sló síðan ekki af aftur, og
hélt báturinn áfram að bakka
þar til hann lenti á bátunum.
í ljós kom, að liðið hafði yfir
skipstjórann í brúnni, og töldu
læknar það hafa verið af of-
þreytu.
Einn af bátunum mun verða
I nokkra daga í slipp sökum
þessa slyss.
IK-Siglufirði, 23. jan.
Það er ósköp dauft hérna á
Siglufirði núna, bæði í atvinnu-
lífi og skemtanalífi. Eins og
kunnugt er af fréttum, eru 36
Sigl'firðingar nýfarnir tii Akur-
eyrar til starfa í tunnuverk-
smiðjunni þar, en hinir, sem
atvinnulausir urðu við brunann
mikla um daginn, hafa ekki
aðra vinnu en bátana, og veiði
hefur verið sáralítil. Það eru
helzt börnin, sem ekki láta at-
vinnuleysið á sig fá, og
skemmta sér við félagslífið í
skólunum.
MS-Reyðarfirði, 23. jan.
Veður hefur verið með ein-
dæmum gott hér að undan-
förnu þar til á miðnætti síðast
liðnu. Þá skall á ofsarok á norð-
austan og stóð það í 2—3
klukkustundir. Fauk járn af
nokkrum þökum hér í þorpinu,
aðallega af tveimur íbúðarhús-
um og nokkrum skúrþökum.
Enginn var á ferli þegar þetta
vildi til, svo ekkert tjón varð
á mönnum. Úrkoma fylgdi ekki
þessu mikla roki, aðeins fáein
snjókorn, en annars er allt autt
hér í kring.
MG-Frostastöðum, 23. jan.
f fyrradag var mjög fjölsótt-
ur bændafundur á Hólum. Þar
var mættur Gunnar Guðbjarts-
son, formaður Stéttarsambands
bænda, og talaði hann um verð-
lagsmálin og verðlagsgrund-
völlinn. Talsverðar umræður
urðu á eftir, og kom fram mikil
óánægja bænda með verðlags-
málin. Fundinn sóttu á að gizka
120 manns.
GJ-Vatnsdal, 23. jan.
Á fundi Veiðifélags Vatns-
dalsár, sem haldinn var á
sunnudaginn, voru samþykktar
breytingar við samþykktir fé-
lagsins. Aðalbreytingin er í því
fólgin, að nú verður alki neta-
veiði hætt í Vatnsdalsá.#'á sam-
þykti fundurinn einnig að láta
meta ána til arðs að nýju.
Veiðifélagið hefur fengið
leyfi fyrir sjö stöngum í Vatns-
dalsá í sumar, ef net verða
ekki lögð. Ekki er enn búið að
ganga frá leigusamningum fyrir
sumarið, en það verður vænt-
anlega gert, áður en langt um
líður.
KS-Eskifirði, 23. jan.
Hingað hafa komið tveir bát-
ar með síld síðustu dagana, og
hefur hún öll farið í bræðslu.
Helgi Fl'óvents kom með 900
tunnur í gær, en áður hafði Sól-
rún komið með 800—900 tunn-
ur.
Gæftir hafa verið stirðar hjá
bátunum hér, sem allir eru á
útilegu.
Fyrir nokkru fór mb. Jón
Kjartansson til Færeyja til þess
að sækja þangað verkafólk til
starfa á vetrarvertíð, og er
hann nú kominn aftur með 10—
12 manns.
ÞS-Djúpavogi, 23. jan.
Um miðjan dag í gær kom
Mánatindur hingað með síld,
sem hann hafði fengið í Með-
allandsbugt. Fóru 150 tunnur í
frystingu en skipið fór síðan
með afganginn, sem voru um
850 tunnur í bræðslu á Fá-
skrúðsfirði. Þykir mönnum gott
að fá síldina til frystingar, til
þess að auka atvinnu hér á
staðnum.
GÓ-Bíldudal, 23. jan.
Tíð hefur verið fremur risj-
ótt frá því á nýári, og síðustu
dagar hafa verið mjög umhleyp
ingasamir. Bátarnir hafa róið,
en afli þeirra verið lélegur,
enda veðurfarið ekki þannig,
að þeir hafi getað lagað sig tii
við veiðarnar.
Tveir bátar verða gerðir hér
út á vetrarvertíð. Annar þeirra,
Andri, er byrjaður veiðar, en
hefur aflað illa, en hinn, Pétur
Thorsteinsson er í vélarhreins-
un í Reykjavík, og er hann
væntanlegur um helgina.
Fimm rækjubátar eru gerðir
út héðan. Aflinn hefur verið
heldur lélegur eftir áramótin,
og rækjan bæði smá og léleg,
hins.vegar gekk veiðin mun bet-
ur fyrir áramótin.
Jörð er alauð og greiðfært
til Patreksfjarðar, og þykir það
tíðindum sæta á þessum tíma
árs. Á næstu helgi verðúr hald-
ið hér þorrabl'ót með pomp og
prakt, eins og venja er til.
BS-Ólafsfirði, 23. jan.
Fiskurinn, sem veiddist i
gær, var með vænsta móti, og
eru menn tiltölulega bjartsýnir
á að fiskveiðarnar fari nú að
glæðast, ef gæftir verða. En
hér hefur að undanförnu verið
stöðug vestanátt, sem er mjög
óhagstæð til sjósóknar. Bátarn-
Iir gátu ekki róið í dag vegna
veður.
MG-Frostastöðum, 23. jan.
Sönglíf er með miklum blóma
hér í Skagafirði í vetur, hvorki
meira né minna en þrír karla-
kórar starfandi af fullum krafti.
í karlakórnum Heimi, sem
starfað hefur á fjórða áratug
samfleytt, eru menn vestan
Héraðsvatna. Jón Björnsson á
Hafsteinsstöðum, hefur stjórn-
,að kórnum frá upphafi, og
auk hans eru nokkrir, sem hafa
sungið með frá stofnun kórsins.
Ingibjörg Steingrímsdóttir frá
Akureyri, hefur starfað með
kórnum í vetur og leiðbeint
söngmönnum. Nú ætlar hún að
fara að leiðbeina körlum aust-
an Héraðsvatna, en kórinn þar
heitir Feykir og er u.þ.b.
þriggja ára. Honum stjórnar
Árni Jónsson á Víðimel. Loks
er svo karlakór á Sauðárkróki,
sem var víst ekki formlega
stofnaður fyrr en í haust. Ög-
mundur Svavarsson stjórnar
honum, og í vetur hefur kórinn
notið tilsagnar Snæbjargar Snæ
bjarnardóttur.
SV-Akranesi, 23. jan.
Bátar héðan fóru á sjó í gær,
en þeir hafa legið inni í heila
viku. Höfrungur II kom í dag
af síldveiðunum fyrir sunnan,
með 3—400 tunnur, og er Har-
aldur væntanlegur þaðan á
næstunni.
NH-Hofsósi, 23. jan.
Hér hefur verið vita dauður
sjór að undanförnu, og eru
bátar hér að hugsa um að hætta
róðrum, en fara að reyna við
smásíld hér inni á firðinum
Smásíld hefur ekki verið veidd
hér áður, öðru vísi en dregið
fyrir hana upp við sand í beitu
En eitthvað verður til bragðs
að taka í þessu gæfta- og afia
Framhald á 15. síðu.
2
TÍMINN, föstudaelnn 24. lan&ar ?Qf~i