Tíminn - 26.02.1964, Side 2
LUNDÚNARÁÐSTEFNAN GAGNSLAUS?
ÞRIÐJUDAGUR, 25. febr.
NTB-New Orleans. — 53
manns missfcu lífið í flugslysi
í dag, þegar farþegaþota af
gerðinni DC-8 hrapaði niður í
vatn rétt eftir flugtak á flug-
vellinum í New Orleans.
NTB-Geneve- — Richard
Butler, utanríkisráðherra
Breta, lagði í morgun fram á-
ætlun í 9 liðum uim afvopnun.
Vesturveldin tóku vel í tillög-
urnar, og Sovétríkin munu at-
huga þær gaumgæfilega.
NTB-París. — De Gaulle hef
tir svarað nýársboðskap Krúst-
joffs, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, og segir, að reglan
um friðsamlega lausn allra
deilna miili landa, sé grund-
völlur stefnu sinnar í alþjóða-
mðlum-
NTB-Stokkhólmi. — Torsten
Nilsson, utanríkisráðherra Sví-
i þjóðar, fer í opinbera heim-
sókn til Póllands í aprílmán-
uði.
NTB-Dallas. — 5 hafa verið
valdir í kviðdóminn, sem dæma
skal Jack Ruby, drápsmann
I Lee Oswalds. 12 eiga að sitja
| f kviðdóminum.
1 NTB- New York. — Herbert
■Hoover, fyrrum forseti Banda-
j ríkjanna, er alyarlega .veikUf
i Hann er 89 ára gamall-
i ,
NTB- Moskvu. — Sovétríkin
j kröfðust þess í dag, að Banda-
i ríkin kalli heim allt herlið sitt
I í Suður-Vietnam.
i
NTB-Washington. — Nýtt
j bandarískt meðal gegn tauga-
vérkjum — Traylcypromine —
| hefur vérið bannað, þar sem
j 15 sjúklingar hafa dáið af
hjartaslagi eftir að þeir hafa
; tekið meðalið.
NTB-Washington. — Vestur
þýzki hershöfðinginn Adolf
Heusinger dregur sig til baka
sem formaður í hernaðarnefnd
NATOs. C. P. de Cumont frá
Belgíu tekur við formannsstarf
imi.
NTB-Aþenu. — Bæði Páli
konungi og Frederiku drottn-
ingu Grikklands líður betur t
dag.
NTB-Nýjii Delhi. — 19 ind-
verskir hermenn létu lífið og
fjoidi annarra særðust, við
sprengingu i norðaustur hluta
Indlands í dag.
NTB-Lagos. — Nígería hefur
nú 55.053.821 íbúa samkvæmt
talningu sem gerð var í nóvem-
ber s. 1.
NTB-Oporto. — DómsstóII i
Oporto í Portúgal dæmdi í dag
fjóra menn í sex mánaða til
2ja ára fangelsi fyrir „niður-
rlfsstarfsemi". — Fjórir aðrir
voru sýknaðir.
NTB-Ankara. — Mesut Suna
var í gær opinberlega ákærð-
ur fyrir tilraun til að myrða
Ismet Inönu, forsætisráðherra
Tyrklands.
NTB—London, 25. febrúar.
Einungis hinir mestu bjart-
sýnismenn Iáta séir konia til hug-
ar, að samkomulag náist á fiski-
mállaráðstefnu Vestur-Evrópu-
ríkjanna, sem hefst í London á
morgun, sem Noregur muni sam.
þykbja. Norðmenn munu aldrei
samþykkja tillögu þá, sem EBE-
löndin og Bretland lögðu fram á
INNBROT
KJ-Reykjavík, 25. febr.
í gærkvöldi eða nótt var fram-
ið innbrot í málmsteypuverkstæði
sem er á Gelgjutanga við Elliða-
árvog. Var stolið þarna símatæki
og er það fjórða tækið sem stolið
er þarna. Grunur leikur á að í
öll skiptin hafi börn verið að
verki, og eru foreldrar beðnir að
gefa því gætur, hvort börn þeirra
séu með símatæki undir höndum,
og gera rannsóknarlögreglunni
viðvart ef svo er.
stofna samtök
NÝLEGA var stofnað í Reykja-
vík, Stéttarfélag íslenzkra félags-
ráðgjafa.
Aðalmarkmið félagsins er að
efla starfsemi félagsráðgjafa hér
á landi, einkum með því að stuðla
að aukinni hagnýtingu þjóðfélags
legrar þekkingar og bættri að-
stöðu til rannsókna í þágu vel-
ferðarmála þjóðfélagsins.
Stjórn Stéttarfélags íslenzkra
félagsráðgjafa er þannig skipuð:
Margrét Margeirsdóttir, form. —
Meððfcjórnendurc Guðrún Jónsdótt
ir, Kristín Gústavsdóttir, Margrét
Steingrímsdóttir.
London dömu-
doild stækkar
TK-Reykjavík, 22. febr.
í dag opnaði London-dömudeild
í Austurstræti nýja deild í nýj-
um húsakynnum. Hefur verzlun-
in nú lagt undir sig helminginn af
húsnæði því, sem raftækjaverzl-
unin Hekla hafði áður. London-
dömudeild hefur starfað í þrjú
ár, byrjaði smátt en hefur smám
saman aukið starfsemi sína, og
nú er þetta orðin hin fullkomn-
asta kvenfataverzjun og hefur um
130 ferm. gólfrými. í London verð
ur á boðstólum allur tilbúinn fatn
aður á kvenfólk, innst sem yzt,
en London flytur inn mest af vör-
um sínum sjálf. Eigandi verzl-
unarinnar er Ketill Axelsson, en
verzlunarstjóri i dömudeildinni
verður Fanney Helgadóttir.
síðustu ráðstefnunni í byrjun jan-
úar s.l., að minnsta kosti ekki,
nema þeir fái sams konar undan-
þágu fyirir norðurströnd Noregs,
og Danir fá við Færeyjar og Græn
land. En ekkert bendir heldur
til þess, að stórveldin hafi í huga
að gefa Norðmönnum slíka undan
þágu.
Árangur fiskimálaráðstefnunn-
ar nú verður því líklega, að inn-
færð verður tvenns konar fisk-
veiði lögsaga: sex plús sex-kerfið
fyrir löndin við Norðursjó sunnan
verðan, og þá grundvallað á sam-
komulaginu, sem náðist milli
EBE-Iandanna og Bretlands, og
12-mílna kerfið, sem gildi fyrir
ísland, Noreg og fleiri lönd.
Mjög líklegt er talið, að verzl-
unarmálin muni verða aðalmálið á
dagskrá ráðstefnunnar, sem hefst
á morgun. Bæði Bretar og Þjóð-
verjar álíta, að fiskveiðilögsagan
og verzlunarmálin séu tvær hliðar
á sama máli, en m.a. Norðmenn
hafa krafizt þess, að þessi mál
verði rædd á ráðstefnunni,þá er
ekki talið líklegt, að um nokkurn
raunverulegan árangur verði að
ræða. EBE-löndin virðast. ekki
vilja binda sig, og í samkomulag-
inu, serii þau gérðú við Breta, seg-
ir, að samningurinn skuli ekki
hindra að EBE-löndin geti sett
sérstakar reglur sín á milli. Því
er talið mjög ólíklegt, að Lundún-
arráðstefnan muni skýra stefnu
EBE í fiskimálUm.
SILDARSKYRSLA
Síldveiði var góð vikuna sem
leið, enda voru gæftir ágætar. Síld
in veiddist nokkru vestar en áð-
ur eða í Meðallandsbugt og Skaft-
árósi.
Vikuaflinn nam 128,309 uppm.
tn. og er þá heildarafli á land
kominn frá vertíðarbyrjun 11. okt.
s.l. til laugardagsins 22. febr. orð-
inn 955.056 uppm. tn. en var um
svipað levti í fyrra 1,269,943 uppm
tn. en þá hófst vertíðin ekki fyrr
en um 20. nóv.
Hæstu löndunarstöðvar eru
þessar:
Uppm. tn.
Eskifjörður 28,691
Fáskrúðsfjörður 22,052
BL0MIN I ANNI
Mál og menning hefur gefið
út Blómin í ánni, sögu frá Híró-
símu, eftir skáldkonuna Editu
Morris.
Edita Morris er sænsk að upp
runa, en gift bandarískum rit-
höfundi og ritar bækur sínar á
ensku. Þórarinn Guðnason íslenzk
a.5i; þessa bó^. jem hpfundur til-
emkar' yinum''síriúm í Hirösímu
og einnig hinum, sem eru horfn-
ir þaðan. Edita Morris hefur dval
izt langdvölum í Japan og segir,
að kynni sín af þeirri þjóð og í-
búum Hírósímu sérstaklega hafi
mótað skáldskap sinn öðru frem-
ur. Blómin í ánni kom út 1959,
og hefur nú verið gefin út á 23
málum. Halldór Laxness ritar
formála að bókinni og segir þar
frá kynnum sínum við Morris-
hjónin, sem heimsóttu hann að
Gljúfrasteini fyrir nokkrum ár-
um.
Blómin í ánni er 171 blaðsíða
að stærð, prentuð í Hólum h.f.
Vestmannaeyjar 278,013
Grindavík 57,373
Sandgerði 68,534
Keflavik 121.860
Hafnarfjörður 44,542
Reykjavík 224,279
Akranes 56,202
Kosið hjá múrnum
Allsherjaratkvæðagreiðsla um
kosningu stjórnar og annarra
trúnaðarmanna Múrarafélags
Reykjavíkur, fór fram 15. og 16.
þ. m. Úrslit atkvæðagreiðslunnar
urðu þau, að B-listi, borinn fram
af Svavari Benediktssyni o. f 1.,
hlaut 63 atkvæði og engan mann
kjörinn. A-listi, borinn fram af
stjórn og trúnaðarmannaráði fé-
lagsins hlaut 128 atkvæði og alla
menn kjörna.
Mikil loðna er nú gengin á
miðin og hafa af þeim sökum
flest skipin hætt síldveiðum. Frá
upphafi vertíðar hafa 141 skip til-
kynnt um afla. 63 þeirra hafa afl
að 5000 uppm. tn. eða meira og
fylgir hér með skrá um þau skip.
Akraborg Akureyri 10.654
Amfirðingur Reykjavík 21,643
Árni Geir Keflavík 8,981
Árni Magnússon Sandgerði 17,807
Ársæll Sigurðss. II Hafnarf. 7,741
Ásbjörn Reykjavík 20,557
Auðun Hafnarfirði 8,828
Bára Keflavík 12,334
Bergur Vestmannaeyjum 14,585
Eldey Keflavík 7,535
Elliði Sandgerði 13,602
Engey Reykjavík 26,055
Faxi Hafnarfirði 25.743
Grótta Reykjavík 17,019
Guðbjörg Vestm.eyjum 9,416
Guðm. Péturss Bolungarvík 9,211
Guðm. Þórðarson Reykjav. 12,499
Gullborg Vestm.eyjum 7,179
Gulltoppur Vestm.eyjum 8,523
Hafrún Bolungarvík 20,680
Hafþór Reykjavík 7,606
Halkion Vestm.eyjum 13,181
Halldór Jónsson Ólafsvík 13,251
Hamravík Keflavík 20,801
Hannes Hafstein Dalvík 14,857
Haraldur Akranesi 14.241
Helga Reykjavík 13.035
Helgi Flóventsson Húsavík 14.749
Hilmir II. Keflavík 7,108
Hrafn Sveinbjarnars. III. 35.231
Huginn Vestm.eyjum 5.239
Húni II Höfðakaupstað 12.090
Höfrungur II. Akranesi 14.233
Jón á Stapa, Ólafsvík 7382
ífópur, Keflavík 15.599
Kristbjörg Vestm. 12.919
Kristján Valgeir Sandg. 6.309
Lómur, Keflavík 22.785
Mánatindur, Djúpavogi 6.822
Margrét, Siglufirði 15.360
Marz, Vestm. 10.353
Meta, Vestm. 6.089
Oddgeir, Grenivík 8.941
Ófeigur II., Vestm. 9-257
Ólafur Magnú*on, Ak.eyri 15.677
Ljósmyndasamkeppni AB
Hf’, Keykjavík, 25. febrúar.
Á síðasta ári efndi Almenna
bókafélagið til verðlaunasam-
keppni um beztu Ijósmyndir frá
Reykjavík, og var Ijósmyndunum
skipt í tvo flokka, litmyndir og
svart-hvítar. Fyrstu verðlaun í
litmyndaflokknum, 10.000 krón-
ur, hlaut Rafn Hafnfjörð, og er
það loftmynd, þar sem sér yfir
hitaveitugeymana á Öskjuhlíð í
hin nýrri hverfi borgarinnar. Önn
ur verðlaun, 5000 krónur, hlaut
Stefán Nikulásson, og var það
mynd frá höfninni. Gunnar Ilann
esson, hlaut tvenn aukaverðiaun
og Rafn Hafnfjörð ein.
Fyrstu verðlaun fyrir svart-
hvíta mynd voru 7000 krónur, og
hlaut þau enginn. Önnur verð-
laun, 3000 krónur, hlaut Kristján
Magnússon, og var það mynd frá
Sinfóníutónleikum. Stefán Niku-
lásson hlaut tvenn aukaverðlaun
og Haukur Kristófersson ein. Var
þessi keppni haldin til undirbún-
ings nýrri myndabók um Reykja- i
vík, sem vonazt er til að komi út j
hið bráðasta.
Alls tóku þátt í keppninni 32
einstaklingar, bæði atvinnuljós-
myndarar og áhugamenn, og bár-
ust frá þeim 158 Ijósmyndir,
margar athyglisverðar og vel
teknar, en vonbrigðum olli þó,
hve takmarkaðar svart-hvítu
myndirnar voru. Var það ástæð-
an fyrir því, að engin fyrstu
verðlaun voru veitt í þeim flokki
í dómnefnd áttu sæti þeir Guð-
mundur W. Vilhjálmsson lög-
fræðingur og Sigurður Magnús-
son, blaðaflulltrúi, auk fulltrúa
frá Almenna bókafélaginu.
Pétur Sigurðss. Rvík 12.704
Reynir, Vestm. 11.448
Rifsnes, Reykjavík 13.428
Sigfús Bergmann, Grvík 7-417
Sig. Bjarnason, Akureyri 18-222
Sigurpáll, Garði 33.528
Sigurkarfi, Njarðvlk 7.955
Skarðsvík, Rifi 5.799
Snæfell, Akureyri 13.850
Sólfari, Akranesi 8.457
Sólrún Bolungarvík 17,801
Stapafell, Ólafsvik 5.358
Vigri, Hafnarf. 12.465
Víðir, Eskifirði 10.933
Víðir II. Garði 13.225
Von, Keflavík 13.656
Þorgeir, Sandgerði 9.264
Ögri, Hafnarf. 10.513
TROROLF SMITH
Thorolf Smith
skrifar bók um
John F. Kennedy
Á þessu ári mun Setberg gefa
út cnyndarlega ævisögu John F.
Kennedys Bandaríkjaforseta,
sem samin er af íslendingi fyrir
íslenzka lesendur. Hefur forlag-
ið ráðið Thorolf Smith til þess
að rita ævisöguna, en hann er
lesendum að góðu kunnur af
bók sinni um Abraham Lincoln,
sem kom út árið 1959.
Thorolf Smith hefur ýtarlega
kynnt sér ævi og störf John F.
Kennedys og er að öðru leyti
vel heima í sögu Bandaríkjanna-
Forstöðumaður upplýsinga-
þjónustu Bandaríkjanna hér á
landi, Raymond J. Stover, hefur
reynzt mjög hjálplegur við út-
vegun heimildarrita og hefur
góðfúslega lofað frekari aðstoð
við öflun gagna og ljósmynda
úr lífi forsetans.
í fjölmörgum löndum munu á
þessu ári koma út bækur um
John F. Kennedy, en fyrir
nokkru hóf Thorolf Smith að
rita ævisögu hins ástsæla for-
seta og er ætlunin, að bókin
komi út í októbermánuði 1964.
Verður þetta allstór bók, á
fjórða hundrað blaðsíður, en að
auki prýdd 80 myndum.
2
TÍMINN, miðvlkudaglnn 26. febrúar 1964 —