Tíminn - 26.02.1964, Blaðsíða 3
í SPEGLITÍMANS
SIKILEYJARBÚI ætlaði að
smygla sér inn í Bandaríkin,
en var tekinn fastur og yfir-
heyrður af innflutningseftirlit-
inu. Þú hefur ekki neina pen-
inga, sögðu yfirvöldin. Nei,
svaraði hann. Og lieldur engan
passa? Nei. Þú ert eklci einu
sinni í skyrtu. Við þetta leit
Sikileyjarbúinn ergilegur á em
bættismanninn og svaraði: Ef
ég hefði átt skyrtu, haldið þér
þá, að ég hefði komið til Banda
ríkjanna?
MONTGOMERY, lávarður,
hefur nú kvatt sér hljóðs í
efri deild brezka þingsins, og
í þetta skipti til að gagnrýna
úreltar siðvenjur og spillingu
innan hersins. Hann sagði, að
þegar maður hefði verið í hern
um í .21 ár, þá hefði hann eytt
tveimur árum í að bursta skóna
sína, tveimur árum í ýmis
málaferli, tveimur árum í
hreingerningu á herbúðunum
og tveimur í frí og hin tíu
hefði hann sofið.
FORSÆTISRÁÐHERRA Dan
merkur, Jens-Otto Kragh, er
nú ásamt konu sinni, Helle
Virkner Kragh, í opinberri
heimsókn í Moskvu. Fyrir ut-
an það að vera forsætisráð-
herrafrú er Helle mjög vin-
sæl leikkona í Danmörku, —
bæði í kvikmyndum og á leik-
sviði, og hún má sig því hvergi
ÞAÐ má margt gott segja
um ríkisstjórn de GauIIes, þó
að hún sé af mörgum gagn-
rýnd. Landbúnaðarráðlierrann,
sem heitir Edgar Pisani sagði
m. a. í ræðu, sem hann hélt
fyrir bændur landsins, að það
væri svo mikið talað um vís-
indalegar aðferðir til að auka
nytina úr kúnum, en hann
sagðist vilja trúa hlustendum
sínum fyrir því, að hægt væri
að fara aðrar leiðir. Það væri
t. d. sannað, að þær kýr, scm
eigendurnir meðhöndla með
blíðu og ústúð mjólka 20%
meira, en þær kýr, sem öllum
stendur á sama um.
★
ÞAÐ er ekki nema febrúar
ennþá, en samt er þegar byrj-
að að undirbúa hátíðahöld-
in hinn 14. iúlí á Korsiku. Þá
minnast Frakkar júlíbyltingar-
innar, og Korsikubúar, sem
taldir eru latastir allra Frakka
gæta þess vandlega #að halda
orðróminum uppi um leti sína,
svona álíka og Skotarnir gæta
þess að vera nógu sparsamir.
Eitt helzta Lkemmtiatriðið hjá
þeim 14. júlí verður keppni um
það, hver íbúanna geti sofið
lengst eftir hádegisverðinn-
FRANSKI rithöfundurinn
Georges Simenon er mjög stolt
ur af þeim vinsældum, sem
Maigret, leynilögreglumaður,
nýtur í brezka sjónvarpinu, en
hann varð enn stoltari, þegar
hann heyrði um þau áhrif, sem
sjónvatpssendingarnar hafa
haft á meðlimi neðri deildar
brezka þingsins. Undirmenn
Maigret kalla hann alltaf Pat-
ron en í neðri deildinni hafa
þingmennirnir venjulega kall
að þingforsetann ,,Chief“, en
nú hafa þeir smitast af Maigrei
og kalla hann aldrei annað er>
,Patron“.
hræra án þess að verða Ijós-
mynduð í bak og fyrir. Ljós-
myndararnir í Rússlandi eru
engin undantekning frá þessati
reglu og er þessi mynd tekin
af frúnni, þegar hún heimsæk-
ir Bolshoj-ballettinn í Moskvu.
Við hlið hennar eru ballett-
kennari og framkvæmdastjóri
Bolsho j -leikhússins.
ÞAÐ er ekki til sá hlutur,
sem 13. brezki hertoginn af
Bedford mundi ekki gera til að
bjarga heimili sínu, Wobum
Abbey, frá hinum fégráðugu
. skattheimtumönnum. Hann hef
ur þegar opnað heimilið fyrir
forvitnum ferðamönnum, en
það hefur greinilega ekki
hrokkið til, því að hann er nú
farinn að starfa við auglýsing-
ar í brezka verzlunarsjónvarp-
inu. Hann sést oft og iðulega
í sjónvarpinu á kvöldin, þar
sem hann þvær skyrtur sínar
úr einhverju undraþvottaefni,
á meðan dulúðugt bros leikur
um háæruverðugar varir hans.
TVEIR góðir vinir voru að
ræða um hættuna, sem stafaði
af sígarettureyldngum. — Já,
sagði annar þeirra, það er
hræðilegt þetta, sem ég hef
lesið um hættuna af sígarettu-
reykingum. Ertu þá hættur að
reykja? spyr hinn. — Nei, en
ég hætti að lesa.
☆
I
ÞAÐ er ekki alltaf að dóm-
ari í hnefaleik verður að
láta í minni pokann. Nýlega
komu atvinnuboxarar saman í
Buenos Aires og í einni lot-
unni aðvaraði dómarinn ann-
an keppandann þrisvar sinnum ^
um að slá ekki of fast. Þegar
keppandinn lét ekki segjast,
tók dómarinn sig til og sló
umræddan keppanda niður
með einu höggi.
BRIGITTE BARDOT eyðir
nú vetrinum í villu sinni >
Montfort l’Amaury og er nú-
verandi ástvinur hennar Bob
Zaguri oftast í fylgd með
henni. Sambandinu við Sami
Frey er nú slitið í bili og þó
að Bob Zari, sem er frægur
ástralskur ,,playboy“, hverfi af
sjónarsviðinu þá er Brigittc
ekki einmana. Hún hefur ný-
iega fengið sér 60 dúfur, IP
ketti, 20 cndur, ? kanínur.
Shetlandsfola og stóran reið-
hest svo að það ætti ekki a'ð
væsa um hana. MYNDIN er
tekin af Brigitte á blaðamanna
fundi, sem bún og Bob héldir
þegar þau skruppu nýlega ti*
Brazilíu-
ÞAÐ var tnikið um dýrðir í
bænum Basel í Sviss, þegar da
Gaulle kom þrammandi eftir
götunum klæddur í einkennis-
búning frá tímum Napoleons.
Þetta var samt ekki de Gaulle
í eigin perscnu, heldur ein af
þeim brúðum, sem skemmtu
fólki í Basel á kjötkveðjuhátíð
inni. Kjötkveðjuhátíðin stend-
ur nú sem hæst í ýmsum lönd-
utn heims og er það mikill
fagnaður sem fylgir henni qg
má segja, eð hver einasti íbúi
í viðkomandi löndum sleppi
fram af sér beizlinu og hugsi
eingöngu um það, að skeipmta
sér í nokkra daga.
☆
31 árs gamall maður ráfaði
nýlega inn á lögreglustöðina í
Almhult í Svíþjóð, það er þorp
í suðurhluta landsins, og sagð-
ist þurfa að játa eitt og annað.
Hann sagðist vera um það bil
að gifta sig og hefði lofað kær-
ustunni sinni, að byrja nýtt ]if.
Þess vegna ætlaði hann að játa
öll þau afbrot, sem hann hefði
á samvizkunni. Dvölin á lög-
reglustöðinni varð nokkrir dag-
ar, því að þarna var um að
ræða rúmlega 50 svindlmál og
innbrot.
☆
Á 60 ÁRA afmælisdegi sín-
um fékk kvikmyndaleikarinn
Gary Grant sendan spurningar-
lista frá bandarískri rannsókn-
arstofnun. Vísindamennirnir
vildu fá að vita, hvernig hann
færi að því að halda hinu ung-
gæðislega útliti sínu og
góðri líkamlegri heilsu. Graut
svaraði spurningunum sam-
vizkusamléga og sagðist satt
að segja ekki nota neina sér-
staka aðferð til að halda lík-
amlegri hreysti, en aftur á
móti héldi hann huganum ung
um með því að brjóta sífellt
heilann um nýjar hugmyndir.
J
Brutu glerhús sttt
Auðséð er á Mbl. í gær, «8
nokkurt fjaðrafok hefur orðið
á fhaldsheimilinu, þegar ljóst
varð, að piltar þar höfðu brot-
ið sitt eigið glerhús með
steini, sem þeir ætluðu að
kasta að ungum Framsóknar-
mönnum. Mbl. var með há-
vært fleipur um það i dögun-
um, að ungir Framsóknar-
menn leituðu eftir unglingum
innan 16 ára i félagssamtök
sín, en í sama blaði sagði fram-
kvæmdastjóri Heimdalla r frá
því, að hann hefði gengið í
Heimdall 13 eða 14 ára. Nú
reynir Mbi. að lfma saman
glerbrot sín með því að gefa
í skyn, að þegar yngri ungl-
ingar en 16 ára sæki um upp-
töku í Heimdail, þá séu þær
“RÆDDAR SÉRSTAKLEGA
Á STJÓRNARFUNDUM, OG
EF ÁSTÆÐA ÞYKIR TIL,
ERU EINSTAKA UNDAN-
TEKNINGAR VEJTTAR,” eins
og Mbi. segir í gær. Þetta má
nú kalla óburðuga viðgerð á
glerhúsinu.
Boðiö í unglingaklúbb
FUF
Ungir Framsóknarmenn hafa
svarað firrum ihaldsblaðanna
og Þjóðviljans um “barnaveið-
ar Framsóknar” á myndar-
legan hátt á síðu sinni “Vett-
vangi æskunnair” hér I blaðinu
í gær. Segir þar m. a. svo um
unglingaklúbb FUF, sem er
a'lgerlega fyrir utan stjórnmála
starfið, á þessa leið:
“Alir, sem hafa sótt sam-
komur klúbbsins, geta borið
vitni um það, að pólitík er ekki
orðuð á þessum samkomum,
og hefur aldrei verið ætlazt tjl
af neinum, að svo væri ge>rt.
Forráðamönnum FUF þefur
verið ljóst, eins og fjölmörg-
um öðrum, að aðstaða ungl-
inga til heilbrigðs tómstunda-
starfs og góðrar skemmtana,
hefur svo sannarlega ekki ver-
ið of góð, þó að starfscmi
Æskúlýðsráðs hafi oirkað nokk
uð í rétt átt. Foreldrar þeirra
unglinga, sem sótt hafa ungl-
ingaklúbb FUF hafa aðra skoð
un á þessari starfsemi en rit-
stjórar íhaldsblaðanna. Margir
foreldirar hafa þakkað stjórn
FUF þetta frajntak. En þetta
skilja þeir ekki, sem nú skrifa
leiðara Mbl. og Vísis, og það
er heldur ekki von að svo sé,
Báðir þessir menn eru enn
meðlimir Heimdailar o;
þekkja því ve>l vinnubrögðin
því heimUi. Én nú er það svo,
að það hefur verið og er margt
býsna ólíkt með FUF og Heim-
dalli og vonandi verður það
svo áfram. Þess vegna væri nú
rétt fyrir þessa vígreifu rit-
stjóra íhaldsins að láta nú sjá
sig á næstu samkomum ungl-
ingaklúbbs FUF. Þeir eru báð-
ir velkomnir í sbrifstofu FUF
í Tjarnargötu 26. Þar geta
þetr meira að segja fengið að-
göngumiða, sem veitir þeim
rétt til að vera fastagestir
klúbbsins, með því gætu þeir
sjálfir kynnzt þessari “óhugn-
anlegu starfsemi,” sem þeir
nefna svo.”
Vonandi þiggja ritstjórarnir
boð FUF — og ritstjóri Þióð-
viljans mætti vafalaust koma
iíka.
Steinninn og sleggjan
Vísisritstjóranum þefur ver-
(ð eitthvað óhægt í gær og
Framhald á 15. stðu.
TÍMINN, miðvlkudaginn 26. febrúar 1964
3