Tíminn - 26.02.1964, Síða 6
TÓMAS KARLSSON RITAR
Gera verður róttækar ráðstaf-
anir til stuðnings landbúnaði
2. umræSa um frumvqrp
ríkisstjórnarinnar um breyt-
ingu á lögunum um Stofnlána
deild landbúnaðarins fór fram
í neðri deild í gær. Varð um-
ræðunni lokið en atkvæða-
greiSslu frestaS. LandbúnaS-
arnefnd deildarinnar hafSi
klofnaS um máliS og skilaði
minnihlutinn séráliti og ber
fram breytingatillögur viS
frumvarpiS. Meirihlutinn legg
ur til að frumvarpið verði sam
þykkt óbreytt. Talaði Jónas
Pétursson fyrir áliti meiri-
hlutarns en Ágúst Þorvalds-
son fyrir áliti minnihlutans.
Jónas Pétursson sagði, að frum
varp ríkisstjórnarinnar um breyt-
ingu á jarðræktarlögunum gengi
mun lengra samanlagt en frum-
varp það, sem Búnaðarþing hefði
samið.
Ágúst Þorvaldsson minnti á
frumvörp og tillögur þær, sem
Framsóknarflokkurinn hefur bor-
ið fram um landbúnaðarmál.
Þessi frumvörp fjalla um al-
menna vaxtalækkun, og að hætt
verði að beina hluta af sparifénu
í Seðlabankanum, en nota þess í
stað fjármagn, sem myndast og
þjóðin sparar saman til að styðja
uppbyggingu atvinnuveganna og
þá ekki sízt landbúnaðinn, svo að
eðlileg þróun geti átt sér stað í
sveitunum og fólk geti haft þar
Breytingatillögur Framsóknarmanna við frumvarp ríkisstj.
um breytingu að lögum um stofnlánadeildina.
þau lífskjör, sem boðleg eru og
sambærileg við það, sem aðrir
atvinnuvegir eru látnir veita
þeim, er við þá starfa. Þá er að
nefna hið ítarlega frumvarp um
ráðstafanir til að stuðla að jafn-
vaégi í byggð landsins til þess að
koma í veg fyrir fólksfækkun og
eyðingu byggðarlaga. Þá hafa
Framsóknarmenn lagt fram frum
varp um samvinnubúskap. Með
samvinnubúskap má efalaust létta
störf bænda og koma í veg fyrir
að jarðir og jafnvel heilar sveitir
fari í eyði. Þá hefur flokkurinn
lagt fram fjölda tillagna um hin
ýmsu vandamál bænda, svo sem
um búfjártryggingar og trygg-
ingar gegn uppskerubresti, um
aukin afurðalán og reksturslán til
bænda, um aukin ríkisframlög til
súgþurrkunar og votheysgerðar,
um nýja rafvæðingaráætlun, sem
geri ráð fyrir að öll sveitaheimili
fái rafmagn fyrir árslok 1968. Þá
eru 2 frumvörp Framsóknar-
manna um breytingar á Stofn-
lánadeildarlögunum. Annað
þeirra er um afnám launaskatts- svohljóðandi:
ins á bændur og’um eflingu veð-
deiidar Búnaðarbankans í þéim
tilgangi að auðvelda eigendaskipti
á jörðum. Hitt frumvarpið fer
mjög í sömu átt og þetta frum-
varp ríkisstjómarinnar að öðru
leyti en því, að Framsóknarmenn
vilja að framlag til túna undir 25
ha verði 65% af kostnaði í stað
50%. = Með þessum málafiutn-
ingi hefur Framsóknarflokkurinn
markað þá stefnu, er hann telur
að fara verði til þess að tryggja
framtíð bændastéttarinnar.
Þá gerði Ágúst grein fyrir
breytingartillögum minnihlutans.
Lagt er til í 1. lagi, að 2. og 3.
málsgrein 7. gr. laganna falli nið
ur. Þessi breytingartillaga er
borin fram til þess að koma í
veg fyrir, að sá, sem framkvæm-
ir framræslu missi lánsmöguleika
þó að framlagið hækki, en með
tillögum minnihlutans er gert
ráð fyrir framlagshækkun. Þá
eru tillögur um nýjan lagakafla
um bústofnslán. Þessi nýi kafli
verði um sérstök bústofnslán til
frumbýlinga og að lánað verði
einnig öðrum bændum til bú-
stofnsaukningar, svo að þeir geti
stækkað bú sín og einnig til véla
kaupa. Breytingartillögurnar eru
* í GÆR mælti PÁLL ÞORSTEINSSON fyrir frumvarpi því er
þingmenn Framsóknarflokksins í efri deiid flytja um samvinnu-
búskap og stuðning við samvinnubú- Gerði Páll grein fyrir frum-
varpinu í ýtarlegu máli og gerði grein fyrir einstökum ákvæðum
frumvarpsins. Frumvarpið allt og ýtarleg greinargerð, sem því
fylgir hefur verið birt hér í blaðinu áður.
k SIGURVIN EINARSSON mælti í gær fyrir frumvarpi því, er hann
flytur ósamt Hannibal Valdimarssyni um Vestfjarðaskip, þ. e.
sérstakt strandferðaskip fyrir Vestfirði. Frumvarpið og greinar-
gerð þess var birt hér á þingsíðunni í gær. f framsöguræðu sinni
minnti Sigurvin m. a. á, að enginn treysti sér til þess að segja að
Vestfirðingar hafi ekki brýna þörf fyrir sérstakt strandferðaskip,
en sú mótbára hefur verið höfð uppi, að ekki sé tímabært að á-
kveða smíði slíks skips fyrr en búið sé að endurskoða allt skipulag
skipaútgerðar ríkisins. Þessi mótbára ætti ekki rétt á sér og
Vestfirðingar þyrftu eflaust að bíða lengi cftir bótum á samgöngum
sínum, ef bíða ætti þeirrar endurskoðunar.
k MATTHÍAS BJARNASON kvað Vestfirðingum mjög nauðsynlegt
að fá bættar samgöngur á sjó, en taldi að taka þyrfti ákvörðun um
framtíð skipaútgerðar ríkisins jafnhliða þessu máli. Kvaðst hann
vonast eftir yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um að skipulag strand-
ferðanna yrði endurskoðað.
k SIGURVIN EINARSSON sagðist algerlega andvígur þeirri skoð-
un Matthíasar, að þetta mál verði bundið við endurskoðun á skipan
skipaútgerðarinnar, því það þýddi það sama og þetta frumvarp
fari ekki lengra og málið jafn ólcyst sem áður. Það eru mörg
ár síðan farið var að tala um breytingar á skipulagi strandferða
og að endurskoða þyrfti strandferðirnar og erlendir sérfræðingar
hafa verið fengnir hingað tvívegis til að gera tillögur. Þessi end-
urskoðun getur tekið mörg ár enn þá. Það duga engin fyrirheit
í þessu máli lengur. Ríkisstjórnin gaf fyrirheit um það á síðasta
þingi i sambandi við þetta mál, að strandferðirnar myndu endur-
skoðaðar og tillögur gerðar til úrbóta. Ekki bólar þó á neinu enn
og Vestfirðingar munu ekki sætta sig við fleiri fyrirheit. Þeir
vilja aðgerðir. Þeir vilja Vestfjarðaskip-
★ HANNIBAL VALDIMARSSON hafði í fyrradag framsögu fvrir
um, er liann hefur fengið lán
samkvæmt lögum þessum.
(28. gr.) Bústofnslán má véita
gegn eftirtöldum tryggingum:
1. gegn veði í fasteign,
2. gegn veði í vélum og verk-
færum,
3. gegn veði í tilteknum flokki
. , „ eða flokkum búfjár, þrátt fyrir
frumvarpi er hann flytur um gerð jarðgangna í gegnum Breið- ákvæði 4. gr. laga um veð, frá
dalsheiði. — Matthías Bjarnason lýsti yfir stuðningi við frum- 4. nóv. 1887,
varpið. I 4. gegn hreppsábyrgð,
(24. gr.) Stofnlárta*0i *-ty«ír
lán frumbýlinguni" o‘g''*rö“ðrum
bændum til bústofnsaukningar
og vélakaupa, cftir því sem nán-
ar segir í þessum kafla laganna.
(25. gr.) Stofnfé til bústofns-
lána er þetta:
a. 40 milljón króna óafturkræft
framlag ríkissjóðs, er greiðast
skal deildinni á næstu átta ár-
um með 5 milljón króna framlagi
á ári.
b. 60 milljón króna lán, er
stjórn deildarinnar heimilast að
taka, og ábyrgist fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs
greiðslu lánsins.
(26. gr.) Bústofnslán skulu
veitt frumbýlingum og öðrum
bændum, seni fullnægja skilyrð-
um 27. gr., til að kaupa bústofn
eða búvélar.
(27. gr.) Skilyrði fyrir bústofns
láni eru:
a. að umsækjandi reki land-
búnað sem aðalatvinnuveg,
b. að umsækjandi hafi ekki
þann bústofn, sem að áliti banka-
stjórnarinnar er nægilegur til
framfærslu fjölskyldu hans sam-
hliða öðrum tekjuvonum, eða
hafi eigi efni á að festa kaup á
nauðsynlegum búvélum,
c. að umsækjandi sé að dómi
bankastjórnarinnar vel hæfur til
að reka landbúnað, enda mæli
hreppsnefnd með lánveitingunni,
d. að umsækjandi setji þá
tryggingu fyrir láninu, er banka-
stjórnin tekur gilda,
e. að umsækjandi geti að dómi
bankastjórnarinnar staðið undir
árlegum greiðslum af lánum sín- 1 v<‘*a’ jarðtætara og annarra jarð-
yrkjuverkfæra, sem búnaðarfélög
5. gegn sjálfskuldarábyrgð
tveggja eða fleiri aðila.
Bankastjórnin metur, hverja
tryggingu skuli taka gilda.
(29. gr.) Fjárhæð láns hverju
sinni fer eftir ákvörðun banka-
stjórnar.
(30. gr.) Vextir af bústofnslán-
um mega ekki vera hærri en
5%. Lánstími fer eftir ákvörðun
bankastjórnar. Þó skal hann
aldrei vera lengri en 10 ár. Það
skal og áskilið, að ef efnahagur
lántaka breytist svo, að honum
verði auðvelt að greiða lán sitt
á skemmri tíma að dómi banka-
stjórnarinnar, geti hún gert hon-
um að greiða hærri afborganir af
láninu en annars er tilskilið. Enn
fremur sé áskilið, að ef lántaki
breyti um atvinnuveg, sé banka-
stjórninni heimilt að ákveða, að
lánið sé þegar gjaldfallið.
Heimilt er bankastjórn að
ákveða, að lán skuli vera afborg-
unarlaust fyrstu þrjú árin.
Gjalddagi lánanna skal vera 1.
nóvember ár hvert.
& (31..gr.)_ Umsóknir um lán sam
Svaéim -lögúm 'þessúni skulu sénd
»r bankastjórninni eða þeim, sem
hún vísar til. Umsóknum skulu
fylgja þau gögn, er bankastjórn-
in ákveður.
Við 6. gr. I stað „50%“ f 3.
málsgr. komi: 65%.
Við 8. gr. Greinin orðist þann-
ig:
64. gr. laganna orðist svo:
Til þeirra framkvæmda, er um
getur í 60. gr., og til fram-
kvæmda, er framlagsrétt fá sam-
kvæmt 63. gr., greiðir ríkissjóð-
ur árlega á árunum 1964—1972,
að báðum árum meðtöldum, þá
fjárhæð, er þarf til að greiða til-
skilinn hluta ríkisins samkvæmt
ákvæðum þessara laga.
Á eftir 8. gr. frv. komi ný
grein svo hljóðandi:
Þá er sérstök grein um lán til
framleiðniaukningar.
Á eftir 64. gr. laganna komi ný
grein svo hljóðandi:
Ríkissjóður greiði Stofnlána-
deild landbúnaðarins sérstakt
framlag 25 millj. kr. árlega næstu
5 árin. Fé þetta skal lánað bænd-
um og búnaðarfélögum til fram-
leiðniaukningar í landbúnaði og
skulu lánin vera til 30 ára með
2% vöxtum.
Lánin skulu veitt, að fengnum
tillögum nýbýlastjórnar, til vél-
væðingar og tæknibúnaðar á
sveitabýlum, svo sem til endur-
bóta á fóðurgeymslum og penings
húsum, súgþurrkunar, færibanda,
mjaltavéla, dráttarvéla og jeppa-
bíla. Enn fremur til steypuhræri-
kaupa.
Til þess að hefta fólksstraum-
inn úr sveitunum þarf að gera
eitthvað róttækt. Þessar tillögur
um bústofnslánin og um lánin
til framleiðniaukningar verða
vafalaust talin róttæk, ekki sízt
af þeim, sem vilja láta bændum
fækka. Framsóknarmenn vilja
hefta fólksstrauminn úr sveitun-
um og telja að bændum eigi ekki
og megi ekki fækka frekar en
orðið er.
Ef við nytjum ekki land okkar
sjálfir, þá má gera ráð fyrir að
þær þjóðir, sem búa við land-
þrengsli, vilji fá að flytja hingað
fólk, sem hjá þeim er ofaukið og
þá eigum við fslendingar ekki
lengur land okkar einir fyrir okk
ur og niðja okkar, sem ættu þó
að eiga frumburðarréttinn til
landsins.
Þá benti Ágúst á það, að í
nefndaráliti meirihlutans segði,
að frumvarpið um jarðræktarlög-
in gengi lengra en frumvarp Bún
aðarþings. Þetta er rangt á þann
hátt, að þá hefur meirihlutinn
bæði frumvörpin í huga — bæði
um Stofnlánadeildina og Jarð-
ræktarlögin. Búnaðarþing hafði
aðeins jarðræktarlögin til endur-
skoðunar.
Lúðvík Jósepsson gerði grein
fyrir breytingartillögu, er hann
flytur um að veitt verði 43 millj.
króna framlag til framleiðniaukn
ingar í landbúnaðinum. Nú væri
nýbúið að veita frystihúsumun
43 milljón króna framlag til fram
leiðniaukningar og landbúnaður-
inn ætti ekki síður rétt á slíku,
því að rétt væri að nú þyrfti að
gera róttækar ráðstafanir til
hjálpar landbúnaðinum. Sagðist
Lúðvík hafa saknað þess að land
búnaðarnefnd hefði ekki lýst af-
stöðu sinni til þessarar tillögu
og spurðist fyrir um álit nefnd-
arinnar.
Jónas Pétursson sagði, að til-
lögur stjórnarandstæðinga ein-
kenndust af því jafnan að stjóm-
arandstaðan vildi ganga lengra
en stjórnarliðið og væri það
vegna þess að stjórnarandstaðan
væri ábyrgðarlaus. Þá taldi
Jónas, að ekki hefði verið svo
mikill stórhugur í Framsóknar-
mönnum í landbúnaðarmálum,
þegar þeir voru í stjórn.
Ágúst Þorvaldsson sagði, að
tillögur Lúðvíks gengju skemmra
að sínu áliti en tillögur Fram-
sóknarmanna og myndi hann
greiða tillögu Lúðvíks atkvæði
að tillögum Framsóknarmanna
föllnum.
v/Míklatorg
Sími 2 3136
T í M I N N , miðvikudaginn 26. febrúar 1964