Tíminn - 26.02.1964, Page 15
IþrótflF
kvæmdastjóri Ferðafélags íslands,
Kristján Ó. Skagfjörð, formaður
og er það til 1947, en frá þeim
tíma hefur Stefán G. Björnsson,
framkvæmdastjóri verið formað-
ur félagsins.
Flestir munu meðlimir hafa ver
ið árið 1943 og 1944, nær 800, þar
af um 100 ævifélagar, en hefur
síðan fækkað í 300—400, enda við
horfin ólík, þar sem flest íþrótta-
félögin hafa nú sjálfstæðar skíða-
deildir og sína eigin skiðaskála.
Þeir L. H. Muller og Kristján Ó.
Skagfjörð létust með stuttu milli-
bili, Kristján Skagfjörð 26. sept.
1951 og L. H. Muller 27. apríl
1952.
Til heiðurs þessum skíðafröm-
uðum lét félagið reisa þeim veg-
lega minnisvarða árið 1953. Standa
þeir á klettanefi skáhallt fyrir
austan og ofan skálann, þar sem
þeir blasa vel við vegfarendum.
Á þessa stuðlabergsdranga eru
greypt nöfn þeirra, og S.R. 1952.
Nokkru áður hafði stjórnin sett
upp steyptan eirskjöld í Skíðaskál-
anum með svonefndri áletrun:
Árið 1935 — í stjómartíð L. H.
Muller — fyrsta formanns félags-
ins, frá 26. febr. 1914 til 27. okt.
1939, var Skíðaskálinn reistur
vígður 14. sept. 1939.
Eins og áður er sagt, var L.H.
Muller formaður félagsins til að-
alfundar 1939, en á þeim fundi
var hann kjörinn fyrsti heiðurs-
félagi Skíðafélagsins. Kristján Ó.
Skagfjörð var kjörinn heiðursfé-
lagi á 35 ára afmælisdegi félags-
ins 1949, en þeir Steindór Björns-
son, Herluf Clausen og Pétur H.
Magnússon voru kjömir heiðurs-
félagar á 45 ára afmælinu.
Af fyrstu stjómendum era nú á
lífi þeir Herluf Clausen og Stein-
dór Bjömsson. Margir af með-
stjómendum nefndra þriggja for-
manna hafa verið í stjóm milli
10 og 20 ár. Hefur stjórnin löng-
um verið skipuð þekktum áhuga-
rnönnum um skíða- og jöklaferð-
ir. Má þar m. a. nefna Tryggva
heitinn Magnússon, Jón Eyþórs-
son o. fl. Á tímabili voru t. d. 4
af 5 stjórnendum úr hinu þá
þekkta Litla Skíðafélag, og er nú-
verandi formaður einn þeirra, en
hinir voru Einar G. Guðmunds-
son, Kjartan Hjaltested og Magnús
Andrésson.
f núverandi stjórn eru auk for-
manns, Lárus G. Jónsson, Leifur
Muller, Jóhannes Kolbeinsson,
Sveinn Ólafsson, Brynjólfur Hall-
grímsson og Ragnar Þorsteinsson.
Margir erlendir skíðakennarar
dvöldust hér fyrr og kenndu á
vegum félagsins, á meðan fátt var
íslenzkra skíðakennara. Á þeim ár
um stóð félagið fyrir hverju stór-
mótinu af öðru, svo sem fyrsta
Landsmóti skíðamanna 1937,
„Thule“-mótunum 1938, 1939 og
1940 og Landsmótinu 1943. Á
„Thule“-mótinu 1939, sem jafn-
framt var afmælismót félagsins,
var hinn þekkti skíðakappi Birgir
Rund gestur félagsins. Á 45 ára
afmæli félagsins gáfu þau Marie,
ekkja L. H. Mullers og Leifur
sonur þeirra, vandaðan silfurbikar
til að keppa Um í svigi, farand-
bikar. Er mót þetta kallað Mull-
ersmót og sér Skíðafélagið um það
í samráði við Skíðaráðið. í vet-
ur er mót þetta ákveðið laugar-
daginn 21. marz
Veitingamenn í Skíðaskálanum
hafa síðustu árin verið hjónin Óli
J. Ólason og Steinunnn Þorsteins-
dóttir. Veitingareksturinn hefur
verið þeim erfiður vegna óhag-
stæðrar veðráttu vetur eftir vet-
ur. Skíðaskálinn er nú yfir 28
ára gamall, og þótt vandaður væri
í fyrstu krefst hann nú stöðugt
meira og meira til viðhalds sem
erfitt er að standa undir fyrir fé-
lagið. Er því minna að gjört til
lagfæringar en æskilegt væri,
hvað sem síðar verður.
Aðalfundur Skíðafélagsins verð
ur haldinn í Skíðaskálanum að
kvöldi afmælisdagsins, en á föstu
dagskvöld verður afmælishóf í
Leikhúskjallaranum fyrir meðlimi
félagsins og velunnara.
í ÞÓRSMÖRK
Framhald af 16. slðu.
Veðráttan hefur verið óvenju
góð það sem af er þessu ári.
Janúarmánuður með því heit-
asta, sem hér gerist. í Reykja-
vík var meðalhitinn hvorki
meira né minna en 3,6 stig,
og má búast við að febrúar
verði varla kaldari, svo gott
hefur veðrið verið til þessa.
FUNDUR ÞJÓÐRÆKNISF.
Framhald af 16. siðu.
Bessason, varaforseti; Grettir Leó
Jóhannsson, gjaldkeri; frú H. F,
Danielson, ritari; Gudmann Levy,
fjármálaritari; Jakob Kristjáns-
son, skjalavörður, Walter Lindal,
vararitari; Jóhann Beck, varagjald
keri og Ólafur Hallsson, varafjár-
málaritari.
í viðtali við fréttaritara blaðs-
ins létu aðalræðumenn þingsins,
þeir Einar B. Guðmundsson og
Valdimar Björnsson, fjármálaráð-
herra í Minnesotariki, mjög vel yf-
ir þinginu og þeim glæsilegu mót-
tökum, sem þeir fengu hér. Einar
B. Guðmundsson flutti erindi um
siglingar-sögu islenzku þjóðarinn-
ar og um fimmtíu ára afmæli Eim
skipafélags íslands og framiag
Vestur-fslendinga til félagsins
bæði fyrr og seinna. Einari og
konu hans var boðið hingað í til-
efni af afmæli E.Í., enda ríkir hér
mjög mikill áhugi á því félagi.
Mikill fjöldi manns hlustaði á er-
indi Einars og var hrifning mikil.
MÆLA MEÐ
Framhaid af 16. síðu.
litlu haldi. Sveinn Einarsson, veiði
stjóri, talaði um lögin um út-
rýmingu svartbaks, og taldi þau
löngu úrelt. Erindi um rafmagns-
mál var einnig til fyrri umræðu.
HÆTTA AÐ REYKJA
Framhaid af 1 síðu.
eftir að breytast. Allmarglr hafa
þó alveg haldið þetta út og aðr-
ir minnkað reykingaraar mik-
ið. Og þó að æskiíegast hefði
verið, að við hefðum allir hald-
ið þetta út, þá hefur þó árangur
inn orðið bara góður. Það væri
líka gaman, ef þetta gæti orðið
öðram til eftirbreytni.
Það kom í Ijós, að Stefán hafði
sjálfur reykt mikið og er nú
einn af þeim viljasterku, sem
ekki lætur bindindið á sig fá.
— Þetta er engin raun, sagði
hann, aðeins viljaatriði.
HJÁLPAÐ MEÐ
Framhald af 16. síðu.
ingnum, þar til komið var til
Reykjavíkur í morgun, en þá
þótti þeim félögum ráðlegast
að leita aðstoðar lögreglunnar
við að koma bátnum í gegnum
bæinn. Umferðarlögregluþjónn
inn, Magnús Einarsson, er hér
á myndinni að vísa þeim
færustu' leið um bæinn á korti,'
sem er fyrir framan þá. Sigurð
ur sagðist ætla að gera bát-
inn út frá Höfnum, en þangað
var ferðinni með hann heitið
FA 6%
Framhalcf af 16. siðu.
Greiðslur til útvegsmanna munu
fara fram mánaðarlega fyrir milli-
göngu fiskkaupenda þ. e. vinnslu
stöðva. Ber fiskkaupendum að láta
Fiskifélaginu í té, um leið og af-
hending hinna almennu afla- og
vigtarskýrsla fer fram, afrit af
vigtamótum fyrir hvert fiskiskip
ásamt vottorði Ferskfiskeftirlits
um gæða- og stærðarflokkun fisks
ins. Vigtarnótur skulu vera stað-
festar af löggiltum vigtarmönnum.
Fiskifélagið getur, með sam-
þykki ráðuneytisins, sett nánari
reglur um framkvæmd á greiðsl-
um þessum.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið 25.
febrúar 1964. Emil Jónsson, Gunn-
laugur E. Breim“.
ATVINNULEYSIÐ
Framhald af 16. srðu.
smiðju en auðvitað skorti fé til
allra framkvæmda. Rætt hefur ver
ið við þingmenn héraðsins um
þetta mál, en Ijóst er, að eitthvað
verður að taka til bragðs.
Dauft er yfir Skagstrendingum
og félögin þar óstarfhæf fyrir
fólksfæð. Nokkrir Skagstrending-
ar hafa flutt þaðan á síðustu mán-
uðum, t. d. flutti allmargt til
Reykjavíkur með Húna II, þegar
útgerð hans flutti þangað.
Sigurjón Sæmundsson, bæjar-
stjóri á Siglufirði, sagði, að aih-
leysið í vetur tæri verst með Sigl
firðinga, því að á vetrarveiðinni
átti allt að byggjast. Vegna síldar-
leysisins í sumar var lítil atvinna
við hana fram á veturinn, eins
og alltaf hefur verið, og bruni
tunnuverksmiðjunnar var mikið á-
fall, svipti fjölda manns atvinnu
sinni. Nær 40 þeirra fengu atvinnu
i tu®uverHsmiðjunni á Akureyri,
reiðir Siglufjárðarkauþstáður
ALLGÓÐUR
L0ÐNUAFLI
KJ-Reykjavík, 25. febr.
Engin síldveiði var í nótt, en
aftur á móti fengu nokkrir bátar
allgóðan loðnuafla við Reykjanes.
Vitað var um afla þessara báta:
Sigurpáll 1800, Árni Magnússon
2000, Hamravík 1200, Vonin 1200,
Víðir II. 800. Allt era þetta bát
ar sem stundað hafa síldveiðam-
ar fyrir sunnan land að undan-
fömu, en þeir hafa nú skipt um
nót, og eru með hana smáriðnari
núna. Loðnuna fá bátarnir við
Reykjanes, nánar tiltekið út af
Stafnnesi. Lítill hluti loðnunn-
ar fer til beitu en hitt í bræðslu.
:r‘25'"KÍ."á' ðág méð hverjúim manni
Þrír stórir bátar róa frá Siglu
firði og eitthvað af trillum, og
hefur aflinn verið ákaflega tregur.
Togarinn Hafliði hefur aflað frem
ur illa, auk þess sem hann selur
TUNGUHAFT
Framhald at 1. síðu.
takafélög á Keflavíkurflugvelli, en
þau, sem Jósafat Arngrímsson hef
ur haft stjórn á. Ef dagblöð hefðu
ekki haldið uppi upplýsingastarf-
semi um þetta mál, myndi rann-
sóknardómarinn setja öll verk-
takafélögin og ótal saklausa menn
undir grun, þar sem hann hvorki
nefnir nafn verktakaféiagsins né
nöfn þeirra einstaklinga, sem eru
sannanlega við málið riðnir. —
Myndu margir starfsmenn á Kefla
víkurflugvelli, sem saklauslr eru,
gjarna vilja fé mannorð sitt fríað
við bletti af þessu máli — einkum
eftir að \lþýðublaðið, málgagn
utanríkisráðherrans. æðsta yfir-
manns tslenzkra stjórnvalda á
Keflavíkurvelli, hefur lýst því yf-
ir, að það sé vart finnanlegur heið
arlegur fslenzkur starfsmaður á
vellinum.
afla sinn erlendis. Frystihúsin fá
því lítið til sín, og hefur annað
at tveimur, ísafold, neyðzt til að
loka. Þar störfuðu um 30 mann>.
Nýlega fóru nær 20 Siglfirðingar,
starfandi hjá SR, til starfa hjá SR
á Austfjörðum, en Sigurjón sagði,
að SR sendi oft menn sína þann-
ig á milli staða. En karlmönnum
hefur óneitanlega fækkað mjög á
Siglufirði.
Sigurjón kvaðst þó vilja taka
fram, að hann teldi ekki ástæðu
til mikillar svartsýni, þó að á-
standið væri ekki sem beza í bili,
og bæjarstjórn væri með atvinnu-
plön á prjónunum, sem of snemmt
væri þó að skýra frá. Hins vegar
væri hann ekki ánægður með,
hve fólkið sækti í burtu frá Siglu-
firði. Á síðastliðnu ári fluttu um
50 manns frá Siglufirði. — Við
þyrftum að fá svona 2 þúsund í
staðinn, sagði Sigurjón.
HIMNASTIGINN
Framhald af 1. s(8u.
an á elnnl nóttu, Ernst Bruun
Olsen, sem áSur var leikarl ag
hafði samið nokkur útvarpslelk-
rit. Höfundurinn leyfði ekki, að
verklð yrði flutt erlendls fyrr en
að árl liðnu, þótt panatnir
streymdu inn þegar eftir frum-
sýningu, sem varð forsíðufrétt
blaðanna. En f haust hófust sýn-
ingar erlendis, f Noregi, Finn-
landi og Sviþjóð, og alls staðar
vekur verklð geysihrifningu. —
Hér verður það frumsýnt um
miðjan marz, í þýðingu Jónasar
skjalavarðar Kristjánssonar og
undir leikstjórn Benedikts Árna
sonar. Hljómsveltarstjóri verður
Jón bassaleikari on tónskáld Sig-
urðsson (sem samdi og stjórnaði
músikinni í „79 af stöðlnni").
Aðalpersónan í leiknum er
dægurlagasöngvarinn Bllly Jack
og Maggi kona hans, og verð3
þau leikln af Rúrlk Haraldssyni
og Herdisi Þorvaldsdóttur. Hln
eru Vinurinn (Benedikt Árna-
son) Vivi (Bryndís Schram) og
Plastíkkóngurlnn (Róbert Arn-
finnsson). Auk þess koma fram
fjórar skvísur í leiknum, sem
er ádeila á líf og kynóra dægur-
lagafólks og skrumið um það
fyrirbærl.
Leiksviðsútbúnaðurinn or áð-
urnefndur stigi, stór egglaga
sóffi og geysisfór hljómsveitar-
paliur, sem stendur á stórrl súlu
á sviðinu. Lelkurinn krefst
feikna mikiila æflnga, t, d. er
ekki sagt orð f elnu atriðinu,
sem stendur yfir í stundarfjórð-
ung og ekkl sagt orð, aðeins lát-
bragðsleikur og slagsmál. Talið
er, að léikurinn þurfi þriggja
mánaða æfingatfma.
Höfum
kaupendur að
3ja 4ra og 5
íbúðum
herb
TRYGOINGÍr
FíSTEIGNIRí
Austurstræti 10, 5. hæð.
Sfmar 24850 og 13428.
Féll af reiðhjóli
KJ-Reykjavík, 25. febrúar
Um hálf tvö í dag féll ellefu
ára drengur, Vilhjálmur Fenger
af reiðhjóli á homi Hofsvallagötu
og Ásvaliagötu. Meiddist drengur
inn eitthvað við fallið og var flutt
ur á Slysavarðstofuna tii athugun-
ar.
Á VÍÐAVANGI
reiðir sleggju sína hátt og títt
til höggs og ber henni af afli
— í steininn. En það er ekkert
á milli, svo að höggin meiddu
engan þó að hátt glymdi —
nema þann, sem hélt um
sleggjuskaftið. Ritstjórinn seg-
ir, að það sé málsháttur að
“veira milli steins og sleggju.”
Það hefur hingað tfl verið kali-
aður talsháttur í íslenzku máli.
Héma eru nokkur sýnishom af
sleggjuhöggunum á beran
steininn:
“Framsókn er hins vegar hið
steinrunna nátttröll í íslenzk-
um stjóirnmálum. Hver minn-
ist eins einasta atiriðis úr
stefnuskrá Framsóknar? Jú,
aðeins þess að völdin séu sæt-
ari en nokkur annar hlutur á
jörðu hér.”
... Norður á Akureyri eru
flokksmennirnir íhaldssamiir
hentistefnumenn. Hér í höfuð-
borginni em þeir kommúnistar
í illa gerðu dulargervi. Flokk-
urinn er þannig eitt allshérjar
tætingslið.” Svona lemur Vísir
steininn allan leiðarann á
enda.Skyldi ritstjórinn ekki
hafa orðið sár í lófanum? Eina
bótin ef til vill að hann er
vanur að munda sleggjuna í
skrifum sínum. En öll þessi
barsmíð er svo óhöndugleg, að
hann getur ekki einu sinni
fengið steinhöggvaraorðu fyrir
hana hjá okkur — verður að
láta sér nægja sleggjudóma-
orðuna í dag eins og stundum
áður.
GAMMOSÍUBUXUR
kr. 25,—
Miklatorgi
Þökkum ínnilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför bróður
okkar,
Kolbeins Skúlasonar
sfómanns, Holtsgötu 22, Reykjavík.
Sérstakar þakklr færum vlð sklpsfélögum hans á Þyrll.
GuSný Skúladóttir,
Guðni Skúlason, Hreggviður Skúlason,
Haraldur Skúlason, ísleifur Skúlason,
Ingólfur Skúlason, Héöinn Skúlason.
Minningarathöfn um manninn mlnn og föður okkar,
Árna K. Jónssonar
HeiðargerSi 9,
fer fram frá Fossvogsklrkju föstudaginn 28. febrúar kl. 1,30 8. h.
Jarðsett verður að Skarðl I Landsvelt iaugardaglnn 29. fehr. kl. 1.
Bílferð verður frá B.S.f. kl. 10 f. h.
—_ Jóhanna Kjartansdóftlr
og börn.
Alúðar þakkir vil ég færa öllum þelm er auðsýndu mér samúð
vegna fráfalls konu mlnnar,
Guðrúnar Einarsdóttur
er lézt 9. febrúar s. I. — Innilega þakka ég elnnlg öllum þelm,
sem velttu mér aðsfoð og sýndu mér hluttekningu vlð útför hennar.
Ólafur Jónsson,
Staðarbrekku, Húsavfk.
T-í M I N N, miðvikudaginn 26. febrúar 1964 —
15