Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 2

Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 2
JÓLABLAÐ VÍSIS Jólablað Vísis hefur á imdanförmim árum haft bá venju að segja frá einhverjum ísíenzkum listamanni, listferli hans og. ævi, og biría jafnframt myndir a£ listaverkum hans. Nú bregður blaðið út af béirri venju, cn biríir bess í ] stað stuíta frásögn um íslenzkan Imgvitsmaim, Magnús', Guðnason að naíni, mann úr alþýðustétt, er lítiílar mennttín- ar, hefur notið, en hefur fórnað ævi sinni á altari hugvits- ', seminnar, án þess þó að njóta skilnings eða liafa borið ] nokkuð úr býtum fyrir starf sitt. Einn af góðkunningjum Magnúsar, Pétur Sigurðsson; ' erindreki, hefur skrifað um hann nokkurar línur, en Magnús hefur sjálfur skrifað myndaskýringarnar. Örlagadísir kemba oft ærið ihandahófslega efnið í lífsvefi :manna, og örlagaþræðina ispinna þær ýmist gilda e'ða bláþræði. Allmargir menn fá :mjög ríflegan hæfileikaskammt ;á sumuni sviðum, en stundum .xaunalega rýran á öðrum svið- ‘Oim. Þessir menn eru því ýmist <einmana snillingar eða glopp- óttir snillingar, og þeim hættir :fil að verða byltingamenn, aðrir ceru óhagsýnir snillingar, auð- uugir af sumu, en fátækir af ■ öðru. Kunningi minn, Magnús 'Guðnason, sem eg kalla hlé- -dræga uppfinningamanninn, er einn þessara óhagsýnu snill- ::inga. Þær örlagadísir, er gáfu honura góða greind, gott hjarta, hóglæti og grandvarleik, einnig uppfinningagáfu, vanræktu að gefa honum að sama skapi þi'ek og þó sérstaklega þau hagsýnu hyggindi, sem bezt duga í bar- áttunni fyrir munn og maga. — Þess vegna hafa lífskjör hans orðið slæm, þótt hæfileikarnír séu ekki litlir. Þau 15—20 ár, sem eg hef þekkt hann, hefur hann alloft búið neðanjarðar, að heita má, en alltaf við fremur rýr kjör, og stundum ill. Nú er hann í óvistlegri kjallaraholu, fulla mannhæð niður í jörðu. Þar er þröngt um smíðisgripi hans og uppfinningar. Magnús Guðnason er óþægi- lega hlédrægur. Hann bannar okkur, kunningjum sínum, að skrifa um sig eða . segja frá verkum sínum, en það, bann brjótum við auðvitað. Magnus er Vestfirðingur, fæddur í Dýráfirði og' alinh þar upp til 30 ára aldurs, Þá bar örlaga- sífaúmurinn hahn til' Reykja- víkur, og hér hefur hann veriö síðan'. Hann er haldihh einni ástríðu, sem hefur ekki leitt hann braut hagsældar. En ekki er þetta ein af hinum venju- legustu ástríðum manna. Hann eltir ekki tízku, skemmtanir né nautnir, reykir ekki, drekkur ekki, og hefur ekki g'engið á fund kvenna. Engin slík með- hjálp hefur þá h’eldur orðið á vegi hans, því ver, segi eg. Ástríða Magnúsar er upp- finningahneigðin. Hann unir helzt ekki öðru, en slíkt gefur lítið í aðra hönd. Hann svelti sig í 10 ár meira og minna við að búa til nýtt hljóðfæri. í sambandi við það, og að til- hlutun einhverra fyrirmanna, veitti Alþingi honum þá 2000 krónur. Hljómplata eftir þetta hljóðfæri var eitt sinn leikin í ríkisútvarpið. Síðan ekki sög- una meir. Hljóðfærið var nokkuð umferðamikið, en Magnús hafði ekki húsrúm, reif því hljóðfærið sundur og eyðilagði það. Þar fór illa merkilegur hlutur og mikil vinna. Síðan hefur Magnús fengizt við að finna uþp qg semja ný hljóðfæri, slysavarna- tæki, fegrunartæki, veiðarfæri, ýmislegt í sambandi við land- Efri mynd til vinstri: 4ra strengja hljóðfæri, stigið. Tónninn vakinn með hægri hendi, gripið Eneð vinstri. Tónninn svipar til lágfiðlu. Efri mynd til hægri: Tveggja áttunda strokhljóð- . færi með nótnabörði, strengur fýrir hvern tón sem myndast þannig, að þegar stutt er á nót- Una færist strengurinn til og nemur við reim.Vélgengur útbúnaður framleiðir tónkvik (vibra- tion). Það verður afbrygðilegt (varierandi) að dýpt og hraða, með því að styðja á petala með fæti. Hljóðfærið gengur fyrir rafmagni eða er stigið. Ófullgert. Neðri mynd til vinstri: 4ra Strengja strokhljóðfæri. Strokútbúnaður og tónkviksstýring með petala. Með aðstoð klavía- torsins, sem er til hliðar við strengina, eftir endilöngu (sést á miðri myndinni), má nota hvora böndina, sem vill eða báðar á gripin, sem líkj ast að því leyti fiðlugripum, að tónninn hækkar, f>ví ofar sem stutt er á strengina. Fjórgrip tiltölulega auðvelt. Ófullgert. Neðri mynd til hægrí: 3 gerðir (fagteikningar) af hljóðdeyfara7 fyrir venjuleg strokfæri. búnað, samgöngur og alls kon- ar störf. Á "þessu höfðum/við sýningu í fyrra, þó aðéins fyrir boðsgesti, en sýningin var á ó’hepþilegúm tíma, sÖkuhi hus- rúmsins, Margir þekktir menn og fyr - irmenn skoðuðu sýningu þessa, og flestum, ef ekki Öllum, mun hafa þótt iðja Magnúsar all- merkileg og athyglisverð, * og ekki í'æ eg skilið annað, en að Magnús Guðnason ætti fremur skilið! einhverja viðurkenningu, sem honum mætti að gagni koma, en sumir þeirra manna, er þjóð'in verðlaunar fyrir að rubba upp einhverju mjög ó- merkilegu lesmáli. Hér er £“"10 verið að höggva nærri hinum verðugu á ritvellinum. Getum við þá ekki gert neitt fyrir þenna hlédræga uppfinn- ingamann okkar? Höfum við ekki ráð á því, hvorki ein- staklingar né þjóð? Eitt er það, sem eg óttast, að þegar enn meira þrengir að Magnúsi, og hann fær hvergi húsrúm fyrir smíðisgripi sína, og hefur heídur ekki ráð á að borga geymslu fyrir þá, að hann' geriþjeim þá'sömu'skil og fyrsía hljóðfærinu, hðggvi allt niður í eldinn, og er þá iila fari'ð. Þá tekst aldrei svo tíl með verk hans framar, að þau finnist aftur, líkt og gamalt, tý.nt bókarþlað. Þessu þyrfti að afstýra með einhverjum ráðum. En hver vill nú hafa forustuna í því, hver af þeim, sem eitthvað getur og sér, hvað bezt hentar? í Magnús bið eg afsökunar á þessu' frumhlaupi mínu, en treysti því, að einhverjir ráða- góðir menn finni hvöt hjá sér til þess, að bjarga munum hans, hvað sem honum sjálfum líður, en það skyldi aidrei geymt til morgunsins, sem hægt er að gera í dag. Esías ©Irs myssdl af aspp- ©3* á feSs. ÍI4„ Efri myndin til vinstri: Ófullgert líkan af síldveiðiútbúnaði. Beggja végna við trektar eða dæluop er komið fyrir rafmagns- útbúnáði, sem myndar rafsegulsvið fyrir framan opið, verkar það deyfandi á fiskinn, svo að hann rennur sjálfkrafa með dælustraumnum, sem liggur upp trektina og barkann. Ofan á trektinni er komið fyrir loftmótor, sem fær afl frá skipsvél- inni. Hann er til þess að koma í veg fyrir að trektin dragist aftur. Efri myndin til hægri: Olíukúla, til aðstoðar við björgun á sjó. Hylkið er fyllt með olíu. Þá er lokað fyrir göt innri botnanna með vaxi, síðan skal fylla holrúmið milli ytri og innri botnanna með karbít og lokað svo vel, að ekki losni við meðhöndlun eða geymslu. — Kúlan hugsast notuð þannig: Henni er skotið úr þar til gerðri byssu, rakettu eða kastað af hendi. Þegar hún kemur í sjóinn og vatnið umlykur karbítinn, breytist orkan í hita, sem bræðir vaxið eða sprengir hylkið svo olían rennur út. Vitanlega mætti hugsa sér fljótvirkari aðferð. Kúlunni mætti skjóta móti vindi til að dempa brim við land, þar sem pkVi yrði komist fram á bát ella, einnig á strönduðu skipi til að verjast brotsjóum á kulborða. Öruggara væri að geyma kar- bítshleðsluna sér og útbúa hana þannig, að fljótlegt væri að leggja hana í hylkið ef með þyrfti. — Myndin að neðan sýnir hraðbát, sem ætlaður er á vötn og skipaskurði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.