Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 21

Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 21
22 JÓLABLAÐ VfSIS Síðan varð lújótt. Eg var orðm ákaflega myrkfælin, þorði ekki að hreyfa legg né lið og svona lá eg lengi unz eg sofnaði á endanum. Eg sagði gömlu kon- unum; frá því sem fyrir mig hafði borið um nóttina og þær sögðu mér að þessi org og ólæti hefði verið í gamla fornfræð- ingnum, sem þarna bjó og van- ur var að fá martröð í svefni. Ekki þótti mér þetta góðar fréttir, en þó hátíð hjá öðru verra. En hitt gátu þær ekki skýrt, hvers vegna læðst var um stigann og. andvarpað pg sá eg að þeim kom illa að heyra þetta og sögðust halda að mig hefði verið að dreyma,:því eng- inn sem byggi í húsinu hefði verið á ferli en útidyrum harð- lokað á hverju kvöldi um átta leytið. Eg lét rriér lynda þessa skýringu, fór til vinnu minnar og kom ekki heim fyrr en orðið var dimmt. — Þá fengust kerti i stjökum í verzlunum til að hafa í göngum og stigum. Eg fékk mér slíkt kerti og kveikti á því niðri við útidyrnar, en á leiðinni upp slokknaði á kertinu og eg heyrði djúpt kveinandi andvarp að baki mér. — Eg kveikti á eldspýtu í dauðans ofboði og leit í kringum mig en sá engan. Eg flýtti mér upp og þegar eg var komin hálfa leið. inn ganginn slokknaði aftur á kertinu eins og blásið hefði verið á það og ískaldan gust lagði fyrir andlit mér. Aftur kveikti eg í mesta flýti og hljóp síðan eins og byssubrennd inn í herbergi mitt. Mér fannst ein- hver vera hjá mér, — standa fyrir aftan mig. Sem betur fór hafði eg herbergislykilinn til- tækan, og um leið og eg lokaði að mér var mér að verða svo illt, af hræðslu að mér lá við að reka upp hljóð. Eg hlustaði og þóttist finna á mér að þetta hið ósýnilega væri 'fyrir utan. Eg þorð varla að draga andann, og nú heyrðist aftur þetta angistarfulla andvarp, það var læðst í burtu og eg heyrði marra í stiganum, síðan þögn. Ekki hafði eg eirð í mér til að fara að. lesa. Mig. langaði helzt til að fara út og heimsækja stúlku sem eg þekkti og bj I í: grenndinni, en gat ekki kom- ið mér til að ganga þessa leið niður aftur. Eg fór að prjónn, en hætti við það, fór að hlusta á grammófónplötu og síðan að hátta. Eg lá lengi vakandi og ásak- aði mig og. fannst sem eg mundi ekki koma mér til að segja frá þessu. —Klukkan var að.verða 12 og mér tókst ekki að sofna, heldur hlustaði eg í myrkrinu. Aftur heyrði eg læðst að stofu- dyrunum mínum. Það logaði dauft á lampanum minum og eg starði á dyrnar. Þá sé eg að húnninn á hurðinni fer að hreyfast ofurhægt eins og tekið sé í hann. Mér fundust hárin rísa á höfði mér og mér lá við að reka upp óp af hræðslu, en eg vissi að dyrnar voru af- læstar og hafði eg fullvissað mig um það áður en eg fór að hátta. Eg starði eins og berg- numin á ryrnar, þaut upp úr rúminu, barði á hurðina og hrópaði: „Hver er þarna?“ — Húnninn fór þá að fara í samt lag, eg heyrði andvarpið djúpa og að laumast var niður stig- ann. Síðan þögn. En mér var orðið svo um allt þetta að engin leið var til að eg gæti söfnað. Eg lét loga á lampanum, dró borðkrýli að rúminu og las við það og skrifaði þangað til orð- ið var bjart að degi. Eg sagði konunum frá því sem fyrir mig hafði borið, og vörðust þær fyrst allra frétta, en hlutu þó að kannast við að hinir fyrri leigjendur hefði orðið fyrir hinu sama. Einum þeirra, sænskum blaðamanni, sem var við nám hérna í borg- inni, hafði haldið við vitfirr- ingu og hafði hann fullyrt að ósýnileg vera hefði gengið inn um dyrnar á herberginu sam- síða sér og elt sig á röndum um stofurnar og lagði af henni kaldan gust. Hann fleygði bók- um og bréfapressu í áttina þangað sem honum fannst hún vera, en þá heyrðist andvarpið djúpa og samstundis slokknaði á lampanum og við það varð manninum svo bylt, að hann þaut eins og óður maður út úr herberginu, skellti aftur hurð- inni og stökk niður stigann og út á götu. Um nóttina kom hann sér fyrir á hóteli og flutti burtu daginn eftir. Konurnar buðu mér nú að leigja herbergið fyrir hálfvirði og þær fullvissuðu mig um að eg mundi ekki verða vör við neitt ef eg kæmi heim áður en dimmt væri orðið. Og þegai frá leið fór eg að halda að allt þetta hefði verið ímyndun, bæði það sem kom fyrir mig og Svíann. Það leið vika svo að eg varð einskis vör, en svo íór eg aftur að finna þennan kalda gjóst, jafnvel í björtu, —- hann lagði framan í mig á leiðinni upp stigann. En þó fannst mer skömm að því að gefast upp og varla þorði eg að segja kunn- i ingjum mínum frá þessu svo að þeir héldu að eg væri ekki með öllum mjalla. En að þeirri viku liðinni rann upp hinn síðasti dagur minn í reimleikahúsinu. Klukkan átta að kvöldi kom eg heim að hús- inu, kveikti á kerti rriínu fyrir neðan stigann og lagði af stað upp. Þá tók að gusta köldu, en ekki slokknaði á kertinu. En um leið og eg rak lykilinn í skrána, þótti mér sem ísköld hönd tæki utan um hönd mína og hindraði mig í að snúa lykl- inum. Eg ætlaði að ærast, eg. vissi að einhver var fyrir aftan mig, eg heyrði greinilega and- varp. Samt tókst mér að komast inn fyrir en nú brá svo við að einnig var reimt þar. Hið ósýni- lega hafði sloppið inn fyrir dyrnar, og hvernig eg hef farið að því að kveikja á lampanum, veit eg ekki, svo skjálfhent sem eg var. Hið ósýnilega elti mig á röndum. Á meðan eg skrapp inn í svefnherbergið, kollsteyptist stóll í hinu herberginu. Eg stóð sem steini lostin, og eg heyrði lágt kjökur að baki mér, síðan þögn. Þungt angistarandvarp við eyra mér og gustur fór um stofuna, sem slökkti á lamp- anum. Nú var mér nóg boðið. Eg þusti ofan stigann og út á götu, örvita af hræðslu, náföl og trufluð á svip, og lánið vildi að eg hitti fyrir mér lögregluþjón, sem að vísi leist ekki meira en svo á þennan undarlega kven- mann, en varð engu að síður við beiðni minni um að fylgja mér og koma mér fyrir á góðu hóteli um nóttina. — Daginn eftir sótti eg föggur mínar í reimleikahúsið og eftir það sté eg ekki þangað fæti oe er baS- nú horfið minningin um þessa atburði hefur langt. operettusérfræðingur, vinnur að því að operettu-leikhús Berlín. Nýlega gekkst hann,, ásamt mörgum öðrum lista- mönnum, fyrir skemmtikvöldi og var inngangseyririnn múrsteinn. Múgur manns á skernmtun þessa og hver rnao-» ur kom með sinn múrstein. 'Ui}) ^■cunhuœinum allt, Sem íýtlir aÍ lemiihr irPAníun a [a.lnaói. VÖMDUÐFAGVIXMA Hattahreinsun F atahreinsim Illettahreinsun Litun Hattaviðgerðir Peí s v«r mIe r ei ib su ji Guiupressuu NÝJA EFi\ALtlGIi\ H.F. HÖFÐATÚN 2. - SÍMI 7264. - LAUGAVEQ 20 B. ijóklæðagerð Islands hl Skúlagötu 51,i Keykjavík. — Símar: 4085 & 2063. Framleidir neðautaldan varning: Guian oiíufatnað, einnig svartar olíukápur fyrir börn og fullorðna. Sjáklæði úr gúmmí- og plastefnum, síðstakka, kápur og fleira. Vinnuvettlinga úr sterkum loðstriga, „triplon“ vettlinga, plastborna vettlinga og tvö- falda vettlinga úr brúnum loðstriga. UHarbuxur, sjómanna („Trawlbuxur“) og ýmsan kápuvarning, fyrir konur og karla, úr UUar- Gaberdine-, PopEn- og Rayonefnum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.