Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 31
JOLAKLAÐ VÍSIS
32
Búðgæti til júlaima
Kökur til jólanna.
Fín möndluterta.
250 gr. möndlur,
250 gr. sykur,
7 gr. salt,
50 gr. kartöílumjöl,
6 egg.
Gult hýði af 1 sítrónu.
í glerung: 200 gr. florsykur
og 2—3 matskeiðar af sítrónu-
safa.
Til skreytingar: Sykur kúlur,
sykraðir ávextir og rósarblöð
(sykruð).
Eggjarauðurnar eru hrærðar
með sykri þar til þær eru hvít-
leitar, þá ér salt ögnin látin í,
sítrónuhýðið (rifið), kartöflu-
mjölið og möndlurnar (helzt
rifnar í möndlukvörn þó að
nota megi kjötkvörnina).
Hvíturnar stífþeyttar eru settar
í síðast. Deginu er helt í kring-
lótt mót og á það að vera smurt
með smjöri. Bakist við jafnan
hita 40—50 mínútur.
Flórsykur er hrærður út
með sítrónusafanum í ■ þykkan
glerung og er honum smurt á
þegar kakan er farin að kólna.
■— Þegar glerungurinn er orð-
inn þurr er dálítið af ávaxtalit
látið í afganginn og honum
sprautað á til skreytingar.
Sykurkúlum stráð á og helst
sykruðu góðgæti, sem áður er
nefnt.
Þessi kaka er fyrirtaks á-
bætisréttur.
* *
Hreinréttír —
. „Botnirm upp.“
Kaka með soðnum ávöxtum.
2y2 bolli hveiti,
3 tesk. lyftiduft. (teskeið á
að taka 5 gr.)
y2 tesk. salt.
iy2 bolli melis.
8 matsk. smjör, (sem er
hrært mjúkt).
2 þeytt egg.
1 bolli mjólk.
1 tesk. vanilludropar.
8 matsk. smjör.
1 bolli brúnn sykur.
200 gr. soðnar aprikósur. 200
gr. sveskjur hlutaðar í sundur
í tvennt.
Lyftiduftið er hrært í hveitið
og er það síðan síað í hvetisíu.
Salt og melis bætt í. Hrærða
smjörið (8 matsk.) hrært í.
Mjólk, eggin og vanillu er
blandað saman og er síðan sett
út í hveitið og hrært í þangað
til hveitið allt er deigt. Þá er
deigið þeytt duglega 2 mínútur.
Seinni smjörskammturinn er
bræddur í tveimur grunnum
mótum (og má nota lok af
kökukössum sé þessi mót ekki
til). Brúna sykrinum er skipt
í tvennt og er hann látinn í
mótin og verður að hræra í
þangað til hann er bráðnaður.
Ekki má hann brenna við. Út
í þetta eru svo ávextirnir
látnir og snúi sárið upp. A að
raða þeim svo, að gult og brúnt
komi sitt á hvað eins og tíglar
á skákborði.
Deiginu er þá hellt yfir og
eru kökurnar bakaðar héruiii
bil 50 mínútur og hitin hafðu’-
jafn. Þær eru losaðar á hlið-
unum með spáða og er hvolft
á knipplingadúk úr pappír.
Eru þá ávextirnir efst. Kring-
um kökuna , með röndinni, má
sprauta rjómafrpðu-rósum,
þegar neytt er.
★ ★
'Negri í hvítri skyrtu.
125 gr. smjör.
125 gr. sykur
125 gr. súkkulaði (hálfur
pakki suðusúkkulaði).
5 egg.
125 gr. möndlur.
Möndlurnar afhýddar og
saxaðar. Súkkulaðið rifið. —
Sykur og smjör er hrært
saman — súkkulaðið,'rifið, látið
í. Síðan er degið hrært yfir
hita þar til súkkulaðið er bráð-
ið — þó ekki of lengi. Möndl-
urnar látnar í. Síðan rauðurn-
ar ein og ein og hrært vel. Þá
þykknar deigið. Síðan eru
hvíturnar stífþeyttar látnar í.
Mótið er smurt vel og hveiti
sáldrað í það. Sett í kaldan
ofn og bakað 1 klst. Tekið úr
mótinu meðan kakan er vclg.
— Þeyttur rjómi borin með.
★ ★
Eplasnittur.
x/4 kg. hveiti.
Vé kg. soðnar og malað kart-
öflur.
% kg. smjörlíki.
1 matsk. melis. Sítrónusafi.
Hakkaðar möndlur. Epli. Sykur
á eplin. Egg.
Smjörlíki og sykur hrært vel
þangað til það er alveg hvítt.
Síðan er hveiti og kartöflu-
stöppunni blandað í. Deiginu
skipt í tvennt. Flatt út mjög
þunnt. Annar helmingurinn er
lagður varlega á bökunarplöt-
una og er þakinn með epla-
sneiðum. Yfir þær er sáldrað
melis og sítrónusafa. — Ekki
er ráðlegt að spara eplin, því
að þau rýrna um leið og kakan
bakast. — Hinn helmingurinn
af deiginu er lagður ofan á epi-
in, penslaður með eggi, stráður
sykri og fínt hökkuðum möndl-
um. Kakan er bökuð hérumbil
20 mín. Skorin í smásnittur. Er
bezt nýbökuð.
★ ★
Sandhnetur. (Smákökur).
Vi kg. smjörl.
Vi kg. sykur.
1 egg.
y2, kg. kartöflumjöl.
125 gr. hveiti.
5 tesk. vanillusykur.
Sykur og smjörlíki er hrært
þar til er það er hvitt. Síðan er
eggið látið í. Vanillusykurinn
er látinn út í hveitið og hveiti
og kartöflumjölið blandað í
smjörið. Hrært vel. Smákúlur
eru lagðar milli lófanna og
látnar á kökuplötuna.
★ ★
ANNAÐ GÓÐGÆTI.
Súkkulaðibrjóstsykur.
1 bolli mjólk.
3 bollar sykur.
1 matsk. srnjör.
iy2 matsk. súkkulaði.
25 gr. möndlur afhýddar og
sundurskornar.
Sjóðið mjólkina með sykrin-
um og súkkulaðinu þar til það
fer að þykkna. Þá er bætt í
möndlunum, sundurskornum.,
Nú reynir maður blönduna og-;
lætur svolítið á undirskál, tiL
þess að sjá hvort hún storknar
án þess að renna út. Er síðan
rennt á fat, sem hefur verið;
smurt áður. (Fatið þarf helst
að vera vel flatt í botninn.)
Súkkulaðið er skorið í stykki
eða tígla þegar það er orðið
kalt.
★ ★
Tyrkneskt sælgæti.
35. gr. matarlím.
V2 kg. sykur.
Vz bolli sjóðandi vatn.
Rifin skrælingur af einni
appelsínu og safinn úr henni.
Safi úr einni sítrónu.
1 matsk. romm.
Rauður ávaxtalitur.
Vz bolli hakkaðar hnetur eða
möndlur.
Matarlím er bleytt út. Sykur
og vatn er sett á eldinn og er
látið hitna alveg að suðu. Þá
er matarlímið látið í, einnig
ávaxtasafinn og er þetta látið
krauma 20 mínútur. Þá er lit-
ur látinn í og lögurinn síaður.
Hneturnar látnar í síðan er
þessu helt á blikkplötu með-
rönd (einnig má nota köku-
kassalok úr blikki) og þarf að
væta blikkplötuna áður en
leginum er hellt á. Svo er
platan sett á kaldan stað og
geymd nætur langt. Er þá
hlaupið skorið í tígla og þeim
velt upp úr melis.
★ ★
Dálítil aukageta með osti.
Oststengur.
125 gr. smjör eða smjörlíki.
Framh. á næstu síðu.
Framh. af bls. 4.
þess að oft var mér sem eg
heyrði óma fortíðar okkar i
eyrum mér í návist Lappanna.
T.d. er eg eitt sinn fór yfir á
eina og spurði hvað hún héti.
„Njalláivi," sagði fylgdarmað-
urinn, — Njálsá myndum við
segja. Eg spurði hvort Njáll
væri mannsnafn. ,,Já, náttúru-
lega,“ var svarið.
__ ___ __
í litla þorpinu við endá
vatnsins var eyðilegt um að lít-
ast, nokkurir skógarhöggsmenn
og fátæklingar hýmdu í sk]óli
við búðarholuna. Sumt petta
fólk var í togleðursstígvélum
og með ensk pottlok á höfði, en
Lappakuflinn sýndi ætt þess og
uppruna. Þetta voru uppflosn-
aðir bændur af hreinaslóðum,
sem gáfust upp í baráttunni við
auðnirnar, eða ætluðu að græða
peninga í skógarhöggsvinnu.
Við kvöddum systkinin er
bíllinn renndi í hlaðið, lögðum
hægri hönd að hjartastað hvers
annars og sögðum ,,Dúben“. —
Þau veifuðu okkur þangað úl
bíllinn fór í hvarf. Við átturn
eftir að aka yfir 500 km. um
hlykkótta vegi til höfuðborgar-
innar Rovaniemi, en þar beið
okkur flugvélin, sem myndi
flytja okkur til Helsinki
næsta dag. Eg minntist orða
Thuris hreinkonungs er hann
kvaddi okkur. „Þegar þiö kom-
ið aftur þá er mitt hús ykkar
hús, börn mín munu taka á
móti ykkur ef eg verð farinn
til feðranna.“ Mér fannst eg
hafa skilið eftir hluta af mér
hjá hinu hreinlynda fólki og
, fjöllunum heilögu.
Mtl
Vér kjéíupi
ijiuf
TIMBUR
Glugga
Innihurðir, sléttar
Innihurðir m. spjaldi
Furu-útihurðir
Teak-útihurðir
Lista allskonar
Krosswið, birki, fura
Þilplötur, harðar, mjúkar
Þilplötur, lakkeraðar,
ýmsir litir
Asbestplötur
Þakpappa
Saum, allar stærðir.
VGNDUÐ VARA — ODÝR VARA.
o
#
e
©
o
o
•
©
o
o
©
©
©
©
©
o
©
Ö
©
©
©
©
*
©
©
Klapparstíg 1. — Reykjavík. — Sí?ni 81430.
undimar
PRENTAST
BEZT
4
mijndcun ótin
en i j-i'á
PRENTMYNDIR Hi.
Ja ucjayeai í — ddtmi 4003