Vísir - 22.12.1952, Side 4

Vísir - 22.12.1952, Side 4
4 móts við rekstrarmeim ásomt nokkrum liðléttingum. Hreinhjarðirnar koma. Það var kátur hópur, sem lagði af stað norðui hæðirnar, með hundastóði og langa birki- stafi í höndum. JEkki -þurfti langt að halda — a£ hæöar- brún sáum við hjarðirnar streyma niður næstu hlíðar, hægt og bítandi, eins og skrið- j'ökulsranar sigu þær niður slakkana. Ljósgráa búkana bar við dökkgrænan narrskcgínn og litríkar bjarkirnar. Það var svo fögur og stórfengiieg sjón, að eg mun aldrei gleyn.a henni. Lapparnir hrópuðu „vaja — vája — nana, nana“ og klópp- uðu saman lófum, og hundarnir ýlfruðu og hringsnérust af ein- tómri gleði. „Prinsessan“ okkar, hún Aikia, stóð uppi á kietti skammt frá og grét af gleði. Ef til vill var pilturinn iiennar þarna með hjörðinm, só’- brenndur og stæltur scnur auðnanna. Líka bræður henn- ar tveir, sem hún unni, og Sosolo gamla sagði, að væru stoltir eins og Kurorga (tranan) og fimir og sterkir sem skógar- birnir. Brátt tóku allir á rás, á hlið •við hjarðirnar. Beggja megin skipuðu menn sér í raðir íii að flýta fyrir heimrekstrinum. Kveðjur voru mjög innilegar og ekki varð eg þess var, að mér væri heilsað sem framandi manni, enda eru Lappar manna kurteisastir og lausir við alia hnýsni. Ekki gat eg skilið hv.rnig allar þessar hjarðir kæinus'. í réttirnar, — þessi styggu dýr með hornkórónur sinar, svo frá á fæti, að hundarnir ná þeim ekki á fyrsta sprettinum. Þús- undir dýra — tugþúsundir frárra fóta skokka iéitiiega móti okkur, og þau reisa höf- uðin, er þau sjá réttirnar og tjöldin. Einstaka styggur tarf- ur reynir að smjúga gegnum mann-hringinn, en sainstundis er hundur á hælum hans og margir stafir á lofti. Eftir 2ja tíma þóf eru hinar prúðu hjarðir komnar i geröin og þeim lokað. Það var í Ijósa- -skiptum, og hinn gulrauði bjarmi — sem vafalaust á þátt í Bjarmalandsnafninu -- lýsir yfir fjöllum í norða isí’i en skógiklæddar hlíðarna r eru sem dimmblár veggur i'ak >ið gerðin. Það hafði kói.iuð rneð kvöldiun, og stóð gufu.r.ökkur upp af réttunum, dýrin virtust róleg, en mæðurnar köliuðu á kálfa sína, sem orðið 'nóföj við- skila við þær í þrönginni. Vasapelarnir «ru á lcfti. Þúsundir hinna grönnu skrokka voru nú þaina inni- bvrgðir og biðu þess að réttast næstu daga. Sum þessara dýra myndu aldrei framar rása um auðnirnar, önnur verða höfð sem „heimadýr" við vatnið að sumri, þar sem mýflugan kvaldi þau án afláts, og „bremsan“ verpti eggjum sín- um í hryggjalengju þeirra. Púpur flugnanna, sem klekjast út undir skinninu, myndu kvelja þau alla daga. Réttafólkið var nú ekki að hugsa um slíka smámuni. — Veizlan var bvrjuð, og vasa- pelar gengu mann frá rnar.ni Á. grundinni niður með læknum JÓLABLAÐ VÍSIS var starfað að slátrun nekkurra ungtarfa, og brátt sauð og majl- aði í hengipottunum í kátunum umhverfis. Stæltustu mennirnir úr byggðarlaginu höfðu verið á fjöllum með hjörðunum. Þette voru vörpulegir menn, liðlega vaxnir með skegghýjung á vör. Þótt klæðaburður þeirra hafði látið á sjá í útilegunni, og þeir væru sveittir og rykugir, voru þeir samt hetjur dagsins. — Öfundaðir af piltunum, sem gættu heimahjarðanna og stunduðu silungsveiði. Þarna var „hreinfógetinn“ kominn, feitur og páttaralegur karl, mesta ljúfmenni. Náttúr- lega þurfti hann að dreypa á mörgum brennivínspelum, en það virtist ekki hafa nein áhrif á hann, nema hvað hann varð hláturmildari. Þriggja daga réttaveizla. Aðalveizla kvöldsins var svo haldin í þingtjaldi hrein- kóngsins. í stórum pottum voru meyrar hreintungur, lifur, kjöt og mergbein. Fyrsta hrein- slátrun haustsins var hátíðleg haldin, með næstum því trúar- legri viðhöfn. Þarna sat nú fólkið kringum eldinn og neytti þessa lostætis með litlu af ósýrðu brauði, þegjandi og kjamsandi, með vasahníf sín- um og fingrum. Eg hörfði yfir hópinn og sá, að hreinsmalarnir höfðu nú skipt um föt, voru komnir í beztu koltana sína. Þeir vissu það auðsjáanlega, að það voru þeir, sem höfðu mest til matarins unnið. Hin litríku klæði fólksins, eldskinið og Ijósbrúnn dúkur tjaldsins, eirkatlarnir og kjot- hrúgurnar — allt þetta fór svo vel saman, var skemmtilegt og óþvingað. Yfir reykopi kátunn- ar hvelfdist stjörnubjartur himininn, og úti var blæjalogn. Þetta var sannarlega hátíð fólksins, og það naut hennar í barnslegri hrifningu. Aikia og Sosolo fóstra hennar réttu feita bita í allar áttir, og ekki var hundunum gleymt. Frá öðrum tjöldum barst einnig veizluglaumur, og hornakliður frá hreingerðinu. Eg varð agndofa yfir þvi, hvað etið var af hreinslátrinu, margur Lappinn var að lokum gljáandi af floti út undir eyru, og soðið, lak út um greipar þeirra, er þeir hófu nýja bita úr troginu og veltu vönguru yfir, hvað dýrin. voru holdug í ár. Húsbóndinn var þó glað- astur — ekki munaði honum um nokkur dýr! Átti hann ekki nokkur þúsund? Enginn vissi nákvæmlega hvað hver átti mörg dýr, jafnvel fóget.inn spurði ekki um slíkt, það nægði að nefna fjórða partinn! Þegar leið á kvöldið, mátti heyra að hugsað var um fleira en matinn. Bak við tjöldin og í skóginum umhverfis mátti heyra smáhlátra og pískur. - - Vitaskuld höfðu ungu menn- irnir ekki klæðst sínum beztu kuflum til að stympast við hreinana! Hreindýrin snöruð með ólarslöngu. Veðrið var svo unaðslegý. þrátt fyrir kuldann, að engan langaði til að sofa. Bjart var af tungli og norðurljósin hófu dans sinn á himinhvolfinu. — Lapparnir dreifðust um tjöldin, heimsóttu hver annan og alls- staðar var etið og drukkið, sumstaðar sungið og spilað á harmóniku. — Hvergi dansað. Að lokum tólcu hinir eldri aí skarið og sögðu að hátta skyldi, við félagar fengum „gestarúm“ í stóra tjaldinu. Það var þannig tilbúið að hreinafeldir voru hengdir umhverfis ból okkar, en við sváfum í eltiskinns- pokum, svo hlýjum og indæl- um. (Lappar nota annars aðal - lega feldi). Þegar við vöknuðum næsta dag, var starfið í gerðunum hafið. Það var unun að sjá hvernig ungu mennírnir beittu vaðnum. Snöruðu dýrin eitt eftir annað og aðskildu þau eftir mörkum. Stóru tarfarnir voru baldnir og gáfust ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Þeir prjónuðu, spyrntu í og hringsnérust, en endirinn var ávallt sá, að maðurinn meö snöruna skelti þeim, svo brut- ust um bæði maður og skepna, þannig að fætur, hendur og horn hurfu í eina bendu, þá komu strákarnir til, og svo gömlu mennirnir, þeir gripu í hornin, héldu löppum hrein- dýrsins og leiddu það að lokum burt. Gamlar hreinkýr voru bundnar, að vísu var ekki mik- ið í þeim en það var góð ný- mjólk, og vel þegin þegar há- dégisverðar var neytt við gerðið. Ekkert hlé varð á störfum í réttunum allan daginn, jafnvel stúlkurnar snöruðu stundum er þær höfðu hlé frá eldastörf- um, Fógetinn varð -brátt hás aí köllum og látum, eldrauður orðinn af staupagangi. Allt fór friðsamlega fram, nema hvað hundarnir þurftu að fá úr því skorið hver sterkastur væri, og einn hreintarfur stangaði ann- an til bana. Vöivan gengur milíi góðbuanna. Fram í rauðamyrkur var haldið áfram. Sn'örurriar hvinu í loftinu, og hreinarnir döns- uðu, en mér sýndist gerðið jafn troðfullt og um morguninn. Það er svo, að hreindýrin geta þjappað sér ótrúlega saman, og þótt réttir virðist troðfullar þá myndast ávallt pláss þegar byrjað er að snara. Glöggir hreinhirðar álitu að 7—8 þús- und dýr væru í réttum, það myndi taka 2—3 daga að rétta ef veður spiltist ekki. Völvan Labba hafði spáð góðu veðri næstu 7 daga, og það leit út fyrir að hún yrði sannspá. Hún vissi líka af því gamla konan, gekk á milli góðbúanna, þáið gjafir og spáði fyrir unga fólkið. Háa topphúfan hennar slútti yfir mikilúðlegum brún- um, en um úlfliðinn hafði hún tákn völvunnar drekahringinn, um hálsinn hnýttan grængul- an klút, en kápa hennar var svört. ©11 var hún hin virðu- legasta og gæti eg trúað að völvur okkar hafi haft viðlíka búnað fyrr á. öldum. Silfur- spennurnar á belti hennar hefðu getað verið úr forngripa- 'safninu í Reykjavík. I fjórar nætur dvöldum við í dalnum við hreingerðin, á hvérju kvöldi var veizla og skemmti eg mér betur með degi hverjum þarna, og eignaðist marga vini þótt viðræður gengju skrykkjótt. — Gamla fólkið vildi fregna eitthvað fiá íslandi, hvort eg ætti hréihá (aldrei er spurt hver marga). Þótti það furðulegt að hrein- dýr gengju vilt á íslandi, og væru stærri en skandinavisku dýrin. „Við þyrftum að kenna hreindýrum ykkar að lifa,“ sögðu ungu mennirnir. „Það væri gaman að snafa risa- hreina,“ sögðu þeir, um leið og þeir sveifluðu snörunum. Það var nokkuð satt í þessu. Við búumst til heimferðar. Þegar síðasta dýrið í gerð- inni hafði verið snarað, og dilkarnir voru yfirfullir, þá. var allt búið til heimferðar. — Þetta voru dýrlegir dagar og: eftirmiifnanlegir. I smáhópum voru hreinarnir reknir í ýmsar áttir, sumir til slátrunar, en. aðrir til heimahaga, því nú mátti búast við snjó og kuída- í nóvember er dagurinn eidii ýkja langur á þessum slóðum og erfitt að gæta hroinanna fyrir varg á fjöllum uppi. — Einnig þurfti að temja ung og sterk dýr fyrir sleða. Mest þykir varið í hvít dýr, enda eru þau sjaldgæf, og ganga þau kaupum og sölum háu verði. Bræður Aikia, Atti og Amul, gáfu henni hvítan 3ja veíra hreintarf, og lofuðu að temja hann. En sleði hérinar var hreinasta listsmíði og -ak- týgin glitsaumuð. Yngri bfóð- irinn, Atti, Var fráneygur sem ungur örn, góður veiðimaður og kvennagull. Hann misti aldrei marks með snöru sinni, og slengdi viltustu hreintörf- um áður en varði. Eldri bróð- irinn var líkup föður sínum og líklegur til að halda konungs- nafnbótinu í ættinni. Lappar eru miklir skapstili- ingarmenn, aldrei heyrði eg pa tala reiðiorð í réttunum, og engan sá eg drukkinn, nema aðkomumann einn, jainvel hundarnir forðuðust hann, svo að hann hrökklaðist á buft sama dag og hann kom. Þegar heim kom var enn slegið upp veizlu fyrir þá er ekki komust í réttirnar, og þá dansaði unga fólkið, skemmti- lega hringdansa, og kvað und- arlegar „stemmur" með. Eg kvaddi með trega land og hjóð. Ferðum mínum um Finn- mörkina var lokið að þessu sinni, gamall draumur hafði rætzt. ■— Eg hafði verið í hrein - réttum og hitt Lappa sem kunnu ýmislegt fyrir sér, eignazt góða vini, og fagra gripi smíðaða af högum höndum en fábreyttum verkfærum. Eg skildi með trega við hið gcst- risna fólk, bláu fjallavötnin og hinar fögru hreinhjarðir. Aiida og Atti fylgdu okkur á bíl- stöðina við enda vatnsins. Yið rérum þögul og harla döpur fram vatnið í grárri morgan- skímunni. Fyristi snjórinn hafði fallið um nóttina og óveöurský grjúfði yfir fjöllum í norðri. í huganum hafði eg yfir vísu er Aikia hafði kennt mér, hún minnti á „Yfir kaldan eyði- sand“, og hljóðaði þannig: „Jáá hyvásti Lapin jángát. Louhivuoret, ter-vas kannot, kampát aikki luteinensa. Jaá on meri kyminensa.“ Eða: Eg kveð ykkur mýrar Lapp- lands og kjarr. Grýtt fjöll og tjöru-skóga, hin auðu tjöld og torfþöktu hús, táhrein vötn, með kaldbláa fleti. Ferhendan er algengt Ijóð- form meðal Lappa. Eg mlnntist Framh. á bls. 31. „Hornsteinar“ reykingahjalls þessa Lappa eru Systkinin Aikia og Atti hittast, þegar hann trjóstofnar, sem höggvið hefur verið ofan af. kemur af fjalli með hreinhjörðina.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.