Vísir - 22.12.1952, Blaðsíða 23
JÓLABLAÐ VÍSIS
23
Frh. af 18. síðu.
tilraun til að taka sig saman í
andlitinu og sagði með samúð-
arfullum rómi:
— Þér megið ekki taka þessu
þannig, góði maður. Hressið
yður nú upp — og honum varð
eitt augnablik hugsað til
koníaksins góða, sem maður-
inn var með. — Hættið að
hugsa um allt þetta. Hugsið
heldur um eitthvað fallegt.
Horfið á fjöllin. Hugsið um
fjöllin. Leitið friðar og styrk-
leika í sjálfri náttúrunni. Þá
.eignist þér aftur trúna á lífið.
Náttúruna getur enginn tekið
frá yður, töfrandi fjöllin og
mikilleika hafsins. í náttúrunni
einni getið þér leitað guðs,
huggunar og friðar á sálinni.
Maðurinn horfði eitt augna-
blik á Rósmund, þögull, og
sagði svo:
— Þakka yður fyrir mig. Eg
hefi einhvern tíma heyrt þetta
áður. Mig minnir að síra Jóa-
kim í Gufuvík hafi talað eitt-
hvað líkt þessu, um hið eina
græðandi balsam hjartans í
sorginni. Þetta allt eru óneit-
anlega falleg orð. En hvað eru
falleg orð? Þau eru bara punt
í þessum volaða heimi — blekk-
ing — dúsa, sem stungið er
upp í sorgmædda. Nei, sönn
sorg læknast ekki með kjaft-
æði frekar en með brennivíni,
minn góði mann. — Fyrirgefið,
að eg felli tár. Eg veit að það
er bara viðkvæmni — helvítis
viðkvæmni. En tár eru samt
sannleikur. Hinn eini raun-
verulegi sannleikuf í jsessu
lífi. ■ ■ 'v;5-: ■:'
— Maður verður að reyna að
herða sig upp og taka hverju
mótlæti, sem að höndum ber,
með karlmennsku. Lífið er
stundum þungbært og erfitt.
Eg skil yður mæta vel, maður
minn, sagði Rósmundur.
Maðurinn tók upp vasaklút
og snýtti sér og sagði síðan:
— Já, eg er alltaf að reyna
að herða mig upp. Eg vildi að
eg væri eins sterkur og þér.
Þér berið yður vel í sorginni.
Fyrirgefið, er það ekki rétt
ályktað hjá mér, að líkkistan
sé ætluð utan um konuna
yðar?
— Konuna mína! sagði Rós-
mundur og rak upp stór augu.
— Nei, guð sé oss næstur.
Konan mín er bráðlifandi og
við góða heilsu. Satt að segja
þekki eg ekki líkið mjög náið.
En mér hefur verið sagt, að það
hafi verið góð kona.
í einni svipan virtist maður-
inn allur ganga úr skorðum,
mildur svipur hans stirðnaði
og viprur fóru um munn hans.
Hann virtist hamslaus í einni
skyndingu. Hann steytti krepta,
titrandi hnefana framan í Rós-
mund. Augnaráð hans varð allt
í senn tryllingslegt, ásakandi,
flöktandi og þjáningarfullt.
Hann mælti áköfum, heitum,
titrandi rómi:
— Ólánsmenni eru þeir og
guði vanþóknanlegir, er gera
sér leik að því, að smána særð-
ar tilfinningar aumra og van-
sælla. Vei þeim! Þeir ala
snák illgirninnar og grimdar-
innar í hjarta sínu. Mættu þeir
aldrei frið finna og aldréi þríf-
ást um alía eilífð!
Maðurinri þréif í hattborðin
báðum höndum, ekki til að taka
hann ofan í þetta sinn heldur
til að halda honum sem fastast
á höfði sér — og var horfinn
á samri stundu.
Eftir stóð Rósmundur líkt og
í gjömingaveðri og var langan
tíma að átta sig — svo kom
honum þetta háttalag manns-
ins á óvart.
— Já, það var skrítið allt
þetta. Sumir urðu hálfvitlausir
ef kerlingamar fóru frá þeim,
en aðrir að drattast með þær
l eftirdragi alla sína hundstíð.
Já, það hafði sannarlega hver
sinn djöful að draga. — Og
það var ekki, að efa, að það
hafði slegið heldur alvarlega
út í fyrir þessum aumingja
manni og að hann átti meira
en lítið bágt. Og það var sann-
arlega leiðinlegt, að hann skyldi
hafa orðið til þess óafvitandi,
að særa hann, í stað þess að
vera honum hjálplegur eða til
einhverrar huggunar.
Hann fann meira að segja
enn bragðið af koníakinu hans
í munni sér. Það hafði verið
merkiléga gott koníak. Og í
sannleika sagt hefði hann
gjarnan kosið, að svo enda-
sleppt hefði ekki orðið um sam-
veru þeirra. En við þessu var
ekkert að gera.
Rósmundur hallaði sér aftur
fram á borðstokkinn og horfði
niður í öldurnar. Báturinn
klauf bárumar jafnt og þétt.
Hann smjattaði aftur. — Já,
þetta hafði verið helvíti gott
koníak. Það væri skömm að
láta bragðið algjörlega hverfa
með: manninum. Rósmundur
rétti úr sér og litaðist um. —
Jú, þar sté Flóki dansinn enn,
en Dalfell og kirkjumeistarinn
voru hvergi sjáanlegir. Kannske
þeir væm enn niðri, og kannske
væri þar eitthvert tár eftir.
.... Hann hafði sanriarlega
þörf fyrir einhverja hressingu.
S VÖK
við heilabrotum á bls. 19: I
1. Skeið vegur 40 grömm,
hnífur 120 gr., diskur 160 gr.
2. 14 hnífar (7 peninga), 8
höfuðskraut (8 peninga), 2
öklaskraut (5 peninga), og 1
öxi (5 peninga).
3. Stúlkan var 22 ára og 8
mánaða.
heimsfrægu
VERÐ 12,□□ KR.
ALLT A SAMA STAÐ!
H.f. Egill Vilhjálmsson
Sími 81812
i
JÖLABÆKUR LEIFTURS
Ásmundur Guðmundsson prófessnr:
Æfi Jesu
Mikið rit um mikið efni, sem snertir hvern mann.
Tuttugu litmyndir eru í bókinni.
Minningabók
Bráðskemmtileg bók, full af smellnum frásögnum og
iðandi fjöri.
ÆF. LEIFTUR
JitíH htein of ftiefin tfrá ckkur
Sækjum — Sendum
pMtatfhilA tcíiH
ÞVOTTAHIJS - EFMALALG
Borgartúni 3 - Sími 7260 - 7262
VVPUVVVIAAVVVAArtrtrtAVVftöAflAfWVVöÉWflAVVVVMVWAVVWVWVWUVVWVVft'
- S—>-»