Morgunblaðið - 15.12.1929, Qupperneq 27
Góöar
jólagjafir
Silkiskermar. Alabastskálar.
Ljósakrónur. Glerskálar.
Ilmvatnslampar — margar tegundir.
Borð-
Yegg-
1 lampar.
Straujárn 4. teg. allar viðurkendar fyrir gæði,
þriggja ára ábyrgð.
Vasaljós margar tegundir. Sjúkrapúðar.
Hárþurkur. Bylgjujárn. Skaftpottar.
„Nilfisku-ryksugurnar heimsfrægu
og margt fleira.
í miklu og fallegu úrvali-
ATHUGIÐ VÖRUSÝNINGUNA HJÁ OKKUR
í D A G !
Raftækjaversl u n i n
Jón Sigurðsson.
Austurstræti 7.
frlBflðar símfregnir.
Útvarpsfrjettir
Kolaiðnaður Breta.
FB, 14. des.
Frá London er símað: Þingið
ræðir nú frumvarp stjórnarinn-
ar um kolaiðnaðinn. Frumvarp-
ið inniheldur ákvæði viðvíkj-
andi kolaframleiðslu og kola-
sölu og ennfremur ákvæði um,
að vinnutími í kolanámunum
verði styttur niður í sjö og hálfa
klukkustund daglega. íhalds-
menn eru andvígir frumvarpinu.
Frjálslyndi flokkurinn styður
tillöguna um stytting vinnutím-
ans, en er hinsvegar andvígur
ýmsum atriðum frumvarpsins,
einkanlega viðvíkjandi ákvæð-
um, sem leiða af sjer hækkandi
verð á kolum, sem notuð eru
innanlands. Margir eru þeirrar
skoðunar, að talsverðar líkur
sjeu fyrir því að stjórnin falli,
nema hún breyti frumvarpinu.
Ástandið í Kína.
Frá Nanking er símað: Til-
kynt hefir verið opinberlega, að
herlið þjóðernissinnastjórnarinn
ar í Nanking hafi handtekið og
afvopnað sjö þúsund hermenn
úr liði uppreisnarmanna, eftir
sólarhrings bardaga nálægt
Canton.
Fólksfjöldi í Frakklandi.
Frá Rómaborg er símað: Sam
kvæmt nýútgefnum skýrslum
alþjóða landbúnaðarstofunnar
hjer, var íbúatala Frakklands
árið 1921 alls 39,2 milj. en í
árslok 1928 41 milj.
Frakkland hafði 1921 350
þús. fleiri íbúa en Ítalía, en
Frakkland hefir nú 150 þús.
færri íbúa en Italía.
London, föstudag.
Hæli fyrir gigtsjúk<a.
Rauði krossinn hefir ákveðið
að setja á stofn heljarmikið
heilsuhæli í London fyrir gigt-
sjúkt fólk. Á hælið að geta tek-
ið 1200 sjúklinga á ári. Er það
áform Rauða krossins að reisa
slík hæli í öllum helstu iðnaðar-
borgum Englands, svo verka-
menn, er ekki geta komist á
baðstaði, fái þar læknishjálp.
Sjötti hluti af frátöfum iðnaðar
fólks vegna veikinda í Englandi,
stafar af gigtsjúkdómum.
London, föstudag.
Togara vantar enn.
Einn af þeim tólf ensku tog-
urum, er menn voru hræddir
um að kynnu að hafa farist í
ofviðrinu á dögunum, kom til
Grimsby í dag. — Grimsby-tog-
ari einn fann hann í hafi, segla
lausan og allslausan á reki. Her
skip leita að togurum þeim sem
eigi eru komnir fram.
I
Vatnsflóðin
í Englandi eru enn mikil þó þau
sjeu nú í nokkurri rjenun.
Nokkrir þjóðvegir sem venju-
lega er mikil umferð um eru
enn í kafi.
.,Ekeby“ brenmnr.
Stokkhólmi. föstudag.
Herragarður sá í Vermlandi í
Svíþjóð, sem kunnur er úr sögu
Selmu Lagerlöf undir nafninu
,;Ekeby“, brann að mestu í
morgun. „Kavallér-flöjen“ að-
eins uppistandandi.
MORGUNBLAÐIÐ
Skemtileot liós.
Hert n eru fallegasta jðlatriesskraut ð.
Iðkfrieskeðiur - engln brunahætia.
Dagbúk.
□ Edda 592912177—1. Fyrirl.
#
Atkvgr.
I.O- O. F. 3= 11112168 E K.
Auglýsingar kvikmyndahúsanna
eru á,25. síðu.
Læknitæki. Athygli skal vakin
á. auglýsingu Jóns Pálssonar fyrv.
fjehirðis um lækningatæki.
Bæjarstjórnarkosning í Hafnar-
firði fer fram 18. jan. n.k.
Slys. Á fimtudaginn vildi það
slys til inn hjá Sjónarhól í Soga-
mýri að drengur á 11. ári varð
undir hestvagni og me'iddist all-
mikið. yildi það þannig til að
hann hljóp upp á vagnkjállta lijá
ökumanni, sem var að aka grjóti,
en við það fældist hesjmrinn, dreng
urinn datt af vagnkjálkanum og
varð undir öðru hjólinu.
Vextir lækka. Landsbanltinn til-
kynnir í blaðinu í dag að allir
vextir lækki um Vi% frá deginum
á morgun, bæði innlánsvextir og
útlánsvextir.
fsfisksalan. Valpole seldi í gær,
150 kit fyrir 657 stp.
Góða svellið á Tjörninni lielst
ennþá. Nú er um að gera að nota
það vel í dag. Nú eiga allir frí og
menn verða áreiðanlega betur
undir það búnir að gegna jóla-
önnunum í þessari viku, ef þeir
fá sjer hollan skautasprett í dag
í góða loftinu og á góða svellinu.
Myndasýning Snorra Arinbjarn-
ar í K. F. U. M. er opin í síðasta
sinni í dag.
Foreldrafundur verður lialdinn í
dag í Nýja Bíó kl. 2 e. h. Þar
verður rætt um útiveru barna
fram eftir nóttu. Mun öllum Ijóst
hvílíikur háski stafar að því, að
böríi sje eftirlitslaus í skúmaskot-
um og dimmum úthverfum fram
eftir nóttu, eins og nú tíðkast. Er
það jafnskaðlegt fyrir he'ilsu
þeirra og siðferði. Nú vill svo vel
til að lögregluþjónum verður
f'jölgað, svo að unt verður að
framkvæma ráðstafanir gegn úti-
veru barna á nóttum. Næst verður
rætt um stofnun dagheimilis á
næsta vori. Hefir nú fjelaginu
vaxið svo fiskur um hrvgg, að
því mun kleift að koma sjer upp
byggingu í þeim tilgarigi. — Þriðja
málið verður me'ðferð vandræða-
barna í bænum. Munu flestir sam-
mála um, að þar beri borgin þunga
ábyrgð og, eru þar góð ráð dýr,
ef vel á að fara. Ýinsir mætir
menn og konur ræða þessi nauð-
synjamál. Er almenningi boðin
þátttaka í fundinum ólteypis í
besta fundarsal bæjarins og verð-
ur hann að sjálfsögðu fyltur.
Hærkomnasta lólagjðfin
fyrir sjómenu verðnr seslskipa*„moðel(< frá
„Columlmsar“- og „Hansa(‘-tímunnm
fást hjá
A. Einarsson & Funk,
Fyrir jól
Karlmannaföt
blá og mislit í stóru úrvali.
Yetrarfrakkar, nýjustu gerðir Sokkar, Man-
chettskyrtur, Axlabönd, Bindi, Náttföt, Nær-
föt, skinn- og tauhanskar, Flibbar Vasaklútar.
Stafir.
Brauns-Verslun.
Alt, sem heitir
OQ
er í mestu úrvail fijá oss.
Jólagjaflr frá okknr era
flestnm kærkomnar.
Lítia í gluggan í dag.