Morgunblaðið - 15.12.1929, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
Skoðið í gluggana
í dag!
Silfurplettvörur:
(afar ódýrar jólagjafir)
svo sem:
Kaffistell,
Ávaxtaskálar,
Rjómaskálar?
Konfektskálar,
Blómsturvasa.
Toiletsett,
Rafmagnslampa,
Teskeiðakörfur,
Skrautskríni,
Kryddílát,
Kökuspaðar,
Blekbyttur.
Borðbánaður,
n
SERSIUHII OORRFOSS
Laugaveg 5
Sími 436.
Túlipublóm selur Lilja Petersen,
Suðurgötu 31. Sími 1860.
Tækifærisgjöfin seta alla gleður
er verulega fallegur konfektkassi
xneð úrvalskonfekti úr Tóbakshús-
inu, Austurstræti 17. — Nýjar
byrgðir nýkomnar.
Jólablómin! — Tulipanar,
Alpafjólur, Ericur'. Einnig
mikið úrval af blaíplöntum
tílbúnum blómum, krönsum
og kransaefnum, nýkomið.
Amtmannsstíg 5.
Jólaborðrenningar, servi-
ettur, crépepappír í rúllum,
jólakertastjakar, eðalgreni
og fleira skraut á jólaborðið
— fæst á Amtmannsstíg 5.
Englahár og snjór ódýrast
á Amtmannsstíg 5.
Blómlaukaskálar — mikið
úrval á Amtmannsstíg 5.
Nýkomið, krystalskálar, vasar,
diskar, toilet-sett, matarsett, kaffi-
stell og bollapör. Laufásvegi 44. —
Hjálmar Guðmundsson.
Dragið ekki lengur að fá yður
jólaklippinguna í rakarastofunni
í Eimskipafjelagshúsinu, því þá
losnið þjer við erfiðleikana af ös-
inni síðustu dagana fyrir jólin.
Börn og unglingar efettu að koma
strax. Reynið hin óvenju góðu hár-
vötn og Eau de Cologne frá 4711,
er kosta frá kr. 1,25, sem altaf
erú til í miklu úrvali. Sími 625.
Reynið viðskiftin.
<
Vínna.
Vjelstjóra með próf vantar. —
Talið við Sigurð Mikelsen, Hlíðar-
enda við Laugarás. Til viðtals
eftir kl. 6.
Rit Jónasar Hallgrímssonar fást
bjá bóksölum.
Herbergi
með húsgögnum óskast um
tveggja mánaða tíma frá 18.
þessa mánaðar.
Upplýsingar í síma 1390.
Haukadalsskólinn. Þar eru 25
nemendur í vetur og íþróttalíf
mikið í skólanum.
Biskupstungnahreppur hefir á-
kveðið að kaupa dráttarvjel.
Vatnafjelag Rangæinga hjelt
nýlega aðalfund austur í Fljóts-
hlíð.Var mikill áhugi meðal manna
um framkvæmdir í vatnamálunum.
í sumar var mælt landið alla leið
ofan úr gljúfri og fram í sjó.
Raflýsing sveitabæja. Guðmund-
ur Einarsson í Vík hefir nýlega
reist raforkustöð að Fossi í Mýrdal
og eru tveir bæir um stöðina.
Lungnaveiki í sauðfje hefir nú
enn gert vart við sig á ýmsum
bæjum í Borgarfirði. Hafa nokkr-
ai kindur drepist úr veikinni. —
Óttast bændur, að pe'st þessi muni
gera mikinn usla ef hún fær mikla
íitbreiðslu.
Btærsta blaðið. í dag er Morg-
unblaðið 28 síður, stærsta blað,
sem út hefir verið gefið á íslandi.
Um 20 manns hafa unnið í alla
nótt að útgáfu blaðsins, og má
þó búast við, að það komist ekki
til kaupenda hjer í bænum fyrri
en í seinna lagi. í dag. Engin Les-
bók gat fylgt blaðinu að þessu
sinni. Til þess að spara kaupend-
um ómak við að spyrja um hina
vinsælu Leábók í dag, var það
prentað á áberandi stað á 1. síðu
blaðsms, að hún væri ekki gefin
út að þessn sinni. Nagsta Lesbók,
Jóla-Lesbókin, kemur’ út á að-
fangadag.
Ásnmndur Sveinsson myndhöggv
ari sýnir í dag nokkrar afsteypur
af smærri verkum sínum í glugga
skrautgripáversl. Árna B. Björns-
sonar. Munu myndimar verða þar
til sölu nú í vikunni.
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
Hjúskapur. f gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni nngfrú Svava Magnús-
dóttir og Óskar Kristjánsson. —
Heimili brúðh.fpnanua e'r á Hverf-
isgötu 58 a.
Sj ómannastofan. Guðsþj ónust a í
Varðarhúsinu í dag kl. 6 e. m.
Jóhs. Sigurðsson talar."— — Allir
velkomnir.
Stórt jólatrje hefir verið reist
á liorninu á Lækjargötu og Banka-
■stræti, og verður þar safnað fje
handa Sjómannastofimni. (Sbr.
grein S. Á. Gíslasonar í bl. í dag).
Málverkasýning Ólafs Túbals
verður opin í dag og á morgun,
en ekki lengur. Aðsókn þefir verið
mikil að sýningunni og hafa selst
þar 17 myndir.
Alþingishátíðin. Danska blaðið
Politiken birti fyrir nokkru grein
um þær þrjár hátíðir, sem haldnar
verða að sumri á Norðurlöndum,
Alþingishátíðina, Ólafshátíðina í
Niðarósi og sýninguna í Stoklc-
hólmi. Blaðinu verður tíðræddast
um Alþingishátíðina. Segir það frá
ýmsu, er gert skuli að vori, minn-
ist á sögulegu sýninguna, þing-
fundinn og glímusýningarnar. —
Einnig telur það upp hvaða lönd
muni senda fulltrúa og getur um
*
gjöf Bandaríkjanna í tilefni af há-
tíðinni.
Kvöldskemtun verður haldin kl.
5 í kvöld í íþróttahúsi K. R,, til
ágóða fyrir fátæku stúlkuna, sem
Morgunblaðið hefir verið að safna
samskotum fyrir. Verður það á-
gæt ske’mtun. Hljóðfæraflokkur
Beimburgs leikur, sunginn ein-
söngur, Friðfinnur Gujónsson les
upp eitthvað óvenjulegaskemtilegt,
Reinli. Richter syngur hlæulega
gamansöngva og Felix Guðmunds-
son liefir sjálfvalið efni, — Alt,
se'm inn kemur á þessari skemtun,
rennur til stúlkunnar, því að K.
R. ljer húsið ókeypis, allir, sem
skemta gera það ókeypis, blöðin
gefa auglýsíngar, Prentsmiðja
Ágústs Signrðssonar hefir gefið
aðgöngumiða, og skemtunarskatt-
ur verður enginn tekinn. Þið, sem
viljið hjálpa bágstöddum, en kyn-
okið ykkur við að ge'fa lítið, komið
í kvöld í iþróttahús K. R. og
slcemtið ykkur þar fyrir lítið fje,
sem alt rennur óskift til þess að
bæta kjör þess, sem á verulega
bágt.
Til fátæku stúlkuimar frá H. 5
kr. S. Á. 4 kr. Dúa 5 kr. Ónefndum
5 kr. Stellu 5 kr. N. N. 5 kr. S.
S. 10 kr. F. Á. 2 kr. H. J. H.
10 kr. Ebbu 10 kr. Atla 5 kr.
Jonna 10 kr. Nokkrum símastúlk-
um 34 kr. N. N. 10 kr.
Jón Sveinsson fyrv. kaupm. bið-
ur þess getið að sölubúðin á Vest-
urgötu 17, bomi sjer ekkert við
nje þafi komið frá í fyrra, að hann
fór þaðan.
Skrifstofa Stjörnuútgáfufjelags-
ins, Ingólfsstræti 6 uppi, opin á
morgun frá kl. 2—4.
Þimgmálafund hjelt Haraldur
"Guðmundsson á ísafirði á fimtn-
dagskvöld. Var fundurinn daufnr.
Samþyktar voru margar tillögur
og flestar nokknð rauðlitaðar. Þó
var þarna samþ. tillaga, er vítti
stjórn Síldareinkasölunnar fyrir
ráðsmensku helinar í sumar. Var
broddum sósíalista illa við þessa
tillögu, en gátu ekki stöðvað hana,
því sjómenn vildu fá tillöguna
fram. Vantrauststillaga á stjórm
ina kom þama fram, en broddar
sósíalista þorðu ekki að setja hana
undir atkvæði, heldur vísuðu frá
með dagskrá, -,,í því trausti að
þingmenn sósíalista hafi vakandi
augu á stjórninni; tekur fundur-
inn fyrir næsta mál á dagskrá o.
s.frv.“ Har. sagði á fundinum.
að hann hefði eitt stjórnarbein
milli „framlappanna“, en ekki
hefði hann náð nema 1400 kr. af
því ennþá.
Ljenharður fógeti verður sýnd-
ur í kvöld í síðasta sinn.
Álafossverksmiðjan hefir sýn-
ingu á afurðum sínum í glugga
afgreiðslunnar á Laugavegi kl.
4—7 og 8—10 í dag.
Frá höfninni. Tveir þýskir tog-
arar komn, annar í gær, en hinn
í fyrrinótt, til að leita sjer að-
gerða og vista. — Magnhild, fisk-
tökuskipið fór í nótt áleiðis til
Spánar.
Togararnir. Af ísfiskveiðum komu
í gær Tryggvi gamli, með 750
kassa, Apríl með 1000 kassa og
Egill Skallagrímsson me’ð 850
kassa. Þórólfur kom af saltfisk-
veiðum með 70 tunnur lifrar og
Gulltoppur með 76 tunnur.
Dronning Alexandrine kemur í
kvöld seint að norðan.
Aftonbladet sænska birtir nýléga
samtai við listmálarann ungfrú
Erdmann, sem dvaldi hjer á Is-
landi í sumar og hafði málverka-
sýningu í Reykjavílc áður en hún
fór heimleíðis til Svíþjóðar. Hún
ber íslandi og íslendingum ágæt-
lega söguna. Af fegurð landsins
er hún stórhrifin. — Menn, sem
ekki hafa komið til íslands, geta
ekki gert sjer ne'ina hugmynd um
hina stórfeldu náttúrufegnrð þess,
segír hún. Það er gerólíkt því,
sem við eigum að venjast. — Jeg
ferðaðist víða í sumar og á hverj-
um stað birtist mjer ný og ný
fegurð. — Hún segir að Islending-
ar hafi mikinn áhuga fyrir íþrótt-
um, söng og hljóðfærasl., og þykir
það merkilegt, að það eru ekki
aðeins efnaðir borgarar, sem sækja
söngskemtanir og hljómle'ika, held
ur öll alþýða. — Ungfrú Erd-
mann hafði sýningu í Stokkhólmi
'""flim myndum frá íslandi, sem
hún hafði málað í sumar.
Hjeraðsþing Ungmennasambands
Kjalarnessþings verður hje'r í dag
og hefst kl. 10 árd. í Kaupþings-
salnum. Allir ungmennafjelagar
hafa aðgang að þinginu. ■
Páll J. Torfason fjármálamaður
htfir legið rúmfastur undanfarnar
vikur og hafa fjármálafyrirlestr-
ar hans því fallið niður um skeið.
Hann er nú kominn á fætur e*n
roun ekki hefja fyrirlestra aftur
fyr en í byrjun janúar.
Eggert Stefánsson syngur í Gl.
Bíó í dag í síðasta sinn. Yerða að-
göngumiðar seldir á skemtistað
frá kl. 1. — Brjóstmynd Eggerts,
eftir Ásm. Sveinsson myndhöggv-
ara, sem getið hefir verið um hjer
í blaðinu áður, verður til sýnis í
glugga bólcav. Sigf. Eymundssonar
í dag.
Stefnir heitir fjelag, sem ungir
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hafa
nýlega stofnað. Stjórn fjelagsins
skipa Gunnar Sigurjónsson, versl-
imarmaður, form., Adólf Björns-
son kaupmaður og Valgeir Guð-
laugsson, prentnemi.
Skoðið f gluggana
í dag!
Leðurvðrur: “
(Hentugar Jólagjafir) :
Dömuveski,
Dömutöskur,
Peningabuddur,
Seðlaveski,
Skjalamöppur,
Samkvæmistöskur.
Naglaáhöld,
Hálsfestar,
Eyrnalokkar,
Armbönd,
Ilmsprautur
Ilmvötn,
Púður og Crem.
Pð
Olais Tabais
er opin daglega frá
kl. 10—9.
Til jó’anna:
Pappírsdreglar og
mnnndnkar
fjölbreytt úrval.
Ritfaiuadeild V. B. N.
Hakkað kjðt,
Kjðtfars.
KLEIN.
Baldnrsgötn 14. Sími 73.
Skemtisamkoma
verður haldin í samkomuhúsinu í
Garðinum í kvöld (sunnudag) kL
8. Bílar fara suður eftdr frá
Krístinn og Gunnari.
Símar 847 og 1214.
Kex og kðkiir
margar tegundir.
Best kaup!
Sími 40.