Morgunblaðið - 04.09.1953, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.09.1953, Qupperneq 10
i m 10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 4. sept. 1953 3ja—4ra herbergja í vantar mig nú þegar eða 1. október. KRISTINN BJÖRNSSON, læknir, Sími 4971 eða 2525 (milli kl. 4 og 5) ■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■ Óska eftir 2ja—4ra herbergja íbúð gegn góðri greiðslu, frá 1. okt. til 1. maí. Uppl. í síma 7942 frá kl. 9—6. Guðni Jónsson. ii ■ ■■? ■4 Lokab í dag vegna skemmtiferðar starfsfólksins. Kristján G. Gíslason & Co. h.f. i.H. ■ ■ » ■ ■ £■ Bónduíft í kíló dósum Einkaumboð: Þórður H. Teitsson Grettisgötu 3 — Sími 80360 ijv Margarethe og Thorval Bif reiðaeíg end ur sem eiga von á vörubílum ættu að tryggja sér góðar vélsturtur. — St. Paul vélsturtur eru viðurkenndar að gæðum. — Leitið upplýsinga. KRISTINN GUÐNASON Klapparstíg 27 — Sími 2314 FYRIR fáum dögum barst okkur sú fregri frá Kaupmannahöfn að frú Margarethe Krabbe hefði andast þar þann 14. þ. m. á 83. aldursári, þremur mánuðum síð- ar en maður hennar, Thorvald Krabbe fyrrum vitamálastjóri, er lézt þar 16. maí, eftir langa vanheilsu. Mætti því heita að þau hjónin yrðu samferða burtu úr þessum sýnilega heimi. — Þau Krabbeshjónin áttu marga vini hér á íslandi og þar sem ég er einn úr þeim hópi tel ég mér bæði skylt og ljúft að minnast þeirra, enda þótt það verði ekki eins rækilega gert og þau áttu skilið. Thorvald Haraldsson Krabbe var fæddur í Danmörku 21. júní 1876 og var því nær 77 ára er hann lézt. Faðir hans var Harald Krabbe prófessor við landbúnað- arháskólann í Kaupmannahöfn, kunnur vísindamaður. Kemur hann við okkar Sögu á þann hátt að honum var á unga aldri falið að rannsaka útbreiðslu og orsak- ir sullaveikinnar, sem var þá hin mesta landplága. Harald Krabbe sýndi fram á hvern þátt hundarnir óg sóðaskapurinn áttu í útbreiðslu veikinnar. Gerði hann grein fyrir þroskaferli inn- ýflaormsins er orsakaði sjúkdóm- inn í ritgerð sem var 13 blað- síður — og hefur höfundurinn auðsjáanlega ekki verið gefinn fyrir óþarfa málalengingar. Fyr- ir ritgerðina hlaut hann doktor- titil Hafnarháskóla, og hefur mér verið sagt að hún sé hin styðsta doktorsritgerð er þar hafi verið tekin gild. En prófessornum hefur gefist tími til að kynna sér fleira á íslandi en sullavéikina því að í Reykjavík hitti hann Kristínu dóttur Jóns Guðmundssonar rit- stjóra Þjóðólfs og gekk síðar að eiga hana. Lifðu þau lengi í far- sælu hjónabandi og eignuðust fjóra syni sem allir urðu mikils- metnir menn. Svo mikill íslend- ingur var frú Kristín Krabbe að hún kenndi sonum sínum að skilja íslenzku að verulegu leyti þarna í höfuðborg Danmerkur og mun það hafa verið ósk hennar r.ð þeir slitu ekki tengslin við ísland. Enda hafa tveir synir þeirra hjóna unnið harla þýð- ingarmikil störf í þágu íslenzku þjóðarinnar, þeir Thorvald Krabbe, sem var fyrst landsverk- fræðingur hér og síðar vitamála- stjóri og Jón Krabbe er verið hefur trúnaðarmaður íslenzku ríkisstjórnarinnar í utanrikis- málum um hálfrar aldar skeið. Thorvald Krabbe nam verk- Margarethe fræði við Hafnarháskóla. Að námi loknu kvæntist hann Sig- ríði Þorvaldsdóttur Jónssonar héraðslæknis á ísafirði. Frú Sig- ríður andaðist eftir fárra ára sam- búð, en dóttir þeirra, f. 1904, er frú Helga, gift danska málfræð- ingnum Ole Vidding, er undan- farið hefur verið sendikennari við háskólann hér. Seinni kona Th. Krabbe var frændkona hans, Margrethe Krabbe, af sænskri grein Krabbe- ættarinnar, voru þau bræðrabörn. Var hjónaband þeirra langt og farsælt en þeim varð ekki barna auðið. Skömmu eftir aldamótin reisti Th. Krabbe íbúðarhús sitt við Tjarnargötu og þar stóð heimili þeirra hjóna alla tið þar til þau fluttu búferlum til Dan- merkur, er hann hafði látið af embætti hér. Einkum eftir að Th. Krabbe varð vitamálastjóri gerðist hann víðförull hér á landi og hafði náin kynni af landi og þjóð. Hann var strangur og samviskusamur embættismaður sem krafðist skyldurækni af undirmönnum sín um við hið þýðingarmikla starf þeirra, gæzlu vitanna, er aldrei má skeika eða bregðast, og vita- kerfi landsins ðx hröðum fetum undir handleiðslu hans. Marga góða vini eignuðust þau hjón víða um land í þessum eftirlits og embættisferðum vitamálastjórans og vænt þótti þeim til hinstu stundar um margar og góðar minningar síðan, um dvöl á af- skekktum fögrum stöðum hjá frumstæðu góðu fólki. Thorvald Krabbe sagði mér einu sinni frá eftirfarandi atriði, sem átti sér stað þegar hann var í síðustu eftirlitsferðinni til gamals vitavarðar, er hann var að láta af vitamálastjóraembætt- Húsmæður ! Hafið þér reynt CROMIT og SILVIT nýju undraefnin, sem fægja og húða? CitOHÍET k.rónthúðair SIL V 8 T silfurlnúðar w, 7L V' Bíðjið um Cromit og Siflvit, þar senra þér verzfiið. Thorvald. inu. Þeir höfðu starfað saman á þriðja tug ára, sem yfirmaður og undirgefinn. Þeir höfðu víst ástæðu til að þakka fyrir gott samstarf, báðir tveir. Og er þeir voru að kveðjast, sagði vitavörð- urinn: „Þegar við sjáumst næst þá eruð þér ekki lengur yfirmað- ur minn, og þá ætla ég að þúa yður“. Ég held að Krabbe vita- málastjóra hafi um fátt þótt vænna en þetta, því hann fann hver heiðursviðurkenning þetta var af hálfu vitavarðarins, sem hafði sýnt embættismanninum fullkomna háttvísi í áratugi með- an hann var undirgefinn, en hér eftir voru þeir jafningjar, enda aðalsmenn báðir tveir. Heimili Jpeirra hjónanna var með myndar og menningarsvip, og stóð á gömlum merg. Þótti þeim jafnan yndi að gestum í sinum húsakynnum og þeir undu sér þar vel. Rausn og gestrisni áttu þar heima. Krabbe var frændmargur hér á íslandi. Amma hans, Hólmfríður, kona Jóns Guðmundssonar ritstjóra var dóttir séra Þorvaldar Böðvars sonar í Holti undir Eyjafjöllum. Eru aíkomendur séra Þorvaldar geysimargir og hitti því Krabbe frændur fyrir víða á ferðalög- um sínum. Hann var ættrækinn og vildi gjarnan vita deili á hin- um íslenzku ættingjum sínum, ekki síður en þeim dönsku. Varð þetta til þess að hann fór að telja saman afkomendur séra Þorvaldar og gaf út „Niðjatal“ hans. Þötti sumum galli á bók- inni að ekki var þar getið óskil- getinna barna og töldu það stafa af að höfundinum hefði þótt minna til þeirra koma. En svo var engan veginn, „heldur var þar alveg óvinnandi verk að elt- ast við“, sagði Krabbe eitt sinn við mig er við ræddum um þetta atriði. Thorvald Krabbe hafði yndi af öllu sem fagurt var og vandlega gert. Hann var m. a. formaður Listvinafélagsins í Reykjavík — sem nú er undir lok liðið. Enda þótt hann væri íhaldssamur, í góðri merkingu þess orðs, var hann glöggskyggn á margt af því nýja sem átti í vök að verjast og fús á að rétta því hjálpar- hönd. T. d. keypti hann myndir eftir Jóhannes Kjarval fyrir meir en aldarfjórðungi og hengdi á vegg í stofu sinni — en slíkt var nær óhugsandi um „betri“ borg- ara hins íslenzka höfuðstaðar þá. Ótrúlegt en satt. Ég þurfti einu sinni að selja tvö málverk fyrir ungan málara sem var lítt þekkt- ur þá. Ég hafði gengið með þau fyrir dyr allmargra manna og boðið þau samstaðar fyrir hálft verð, en allstaðar fengið afsvar. Þrjú hundruð krónur fyrir báðar myndirnar var töluvert fé fyrir tuttugu árum, því þá voru færri peningar á milli manna en nú og krónan hærri. Ég fór síðast til Krabbe, sem var -af ýmsum tal- inn heldur fastur á- fé og ekki fyrir að eyða í neinn „óþarfa". Iíann leit á málverkin, og ég sagði eins og var að málarinn Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.