Morgunblaðið - 02.12.1953, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. des. 1953
í dag er 336. dagur ársins.
Árdegisílæði kl. 2,15,
Síðdegisflæði kl. 14,40.
Næiurlæknir er í Læknavarð-
slofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Réykjavíkur-
Aþóteki, símí 1760.
Ljósaslofa Hvítabandsins er að
Þorfinnsgötu 16, opin daglega frá
M. 1,30—-5 e. h.
Dagbók
I.O.O.F. 7 = 135122814
2. 9 0.III.
E.T.
Brúðkaup
S. 1. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Birni Jóns-
-syni, sóknarpresti í Keflavík, ung-
-frú Þórhalla Gunnlaugsdóttir,
Hringbraut 90, Rvik og Guð-
TOundur Elíasson frá Akranesi.
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Emelía Jóna Jónsdóttir,
Þvervegi 38, Reykjavík og Ragnar
Jóhannesson, Hraunstíg 1, Hafn-
arfirði.
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Rósa Þorláks-
Jóttir, símastúlka á Selfossi og
Þorsteinn Kolbeins, starfsmaður
íijá Silla og Valda, Reykjavík.
Ennfremur opinberuðu trúlofun
.sína ungfrú Inga Eiríksdóttir,
starfstúlka hjá Kaupfélagi Árnes-
inga, Selfossi og Hilmar Sigurðs-
.son, starfsmaður hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna.
• Afmæli •
65 ára er í dag Þórunn Þor-
steinsdóttir, Hæðargerði 8.
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi að
Vatnsleysu í Biskupstungum, for
maður Búnaðarfélags fslands, á
sextugsafmæli í dag. Þorsteinn
er vinsæll maður meðal sveit-
unga sinna, er lengi hafa notið
forsjár hans í mörgum málefn-
um héraðsins. Hann er glaðvær
maður og bjartsýnn, er hefur hug
á að láta hugsjónir sínar rætast.
Margir samverkamenn hans í
bændastétt munu í dag senda
honum hlýjar kveðjur og þakk-
læti fyrir velvild hans og góðhug.
• Alþmgi •
Dagskrá sameinaðs Alþingis í
dag: 1. Fyrirspurn: Bifreiða-
kostnaður ríkisins og opinberra
stofnana. Ein umr. 2. Uppsögn
varnarsamnings. Frh. einnar umr.
3. Bátagjaldeyrir. Frh. einnar
umr. 4. Endurskoðun varnarsamn-
ings. Frh. einnar umr. 5. Strand-
ferðir og flóabátar. Frh. fyrri
umr. 8. Vegarstæði milli Siglu-
fjarðar og Skagaf jarðar. Fyrri
umr.
• Skipafréttir •
SEimskipafélag úlands h.f.:
Brúarfoss kom til Reykjavíkur
29. f. ml frá Antwerpen. Dettifoss
fór frá Kotka 28. til Reykjavíkur.
Goðafoss fór frá Hamborg í fyrra-,
dag til Rotterdam, Antwerpen og1
JHull. Gullfoss kom til Kaupmanna j
hafnar 29. frá Leith. Lagarfoss
kom til New York 28. frá Kefla-'
vík. Reykjafoss fór frá Seyðisfirði
29. til Hamborgar. Selfoss fór frá
Oslo í fyrradag til Gautaborgar.!
Tröllafoss fór frá Reykjavík 20; ^
vaentanlegur til New York í dag.
Tungufoss kom til Siglufjarðar
28. frá Kristiansand. Vatnajökuli ■
kom til Reykjavíkur 29. frá Ant-
•werpen.
6>kipaútgerð riki->ins:
Hekla fer frá Reykjavík um há-
degi í dag austur um land í hring-
f«rð. Esja er á leið frá Austfjörð-
um til Reykjavíkur. Herðubreið
er væntanleg til Reykjavíkur í dag
frá Austfjörðum. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík í dag vestur um
land til Akureyrar. Þyrill er á
Vestfjörðum á norðurleið. Skaft-
-fellingur 1 er frá Reykjavík í dag
til Vestn annaeyja.
#1 1. Jökiar:
Vatnajökull er í Reykjavík.
jJrangajökull er í Reykjavík.
Krabbameinsfélag Reykja- |
víkur.
Áheit frá H. Ó. kr. 100. Gjöf frá
N. N. ki. 1000.
Minningargjöf til Kálfa-
tjarnarkirkju.
1 síðastliðnum ágústmánuði gaf
ekkjan Elín Þorláksdóttir frá
1 Bræðraparti í Vogum Kálfatjarn-
arkirkju kr. 1000,00, —- eitt þús-
und krónur — til minningar um
mann smn, Guðmund Bjarnason
og son þeirra, Bjarna Guðmunds-
I son. Fyrir þessa höfðinglegu gjöf
| færum við fyrir hönd kirkju og
l safnaðar okkar innilegasta þakk-
læti og beztu, árnaðaróskir.
.SVili'nurnefnd Kálfatjarnarsóknar.
Kna,ttspyrn,umenn KR
P Kaffisamsæti fyrir kappliðs-
' menn í meistara-, I. og II. flokki
, síðastiiðjð. su,mar verður haidið í
félagsheimilinu kl. 20,30 í kvöld.
Félag austfirzkra kvenna
heldur bazar í Goodtemplara-
húsinu í dag kl. 2.
Leiðrétting.
1 grein, sem birtist hér í blaðinu
fyrir skömmu um Félag aust-
Yirzkra kvenna, misritaðist nafn
formannsins. Átti það að vera frú
Guðný Viihjálmsdóttir.
Skóiaskýrsla Verzlunar-
skólans 1952—53
Blaðinu hefur borizt skýrsla
Verzlunarskóla íslands um starf-
semi hans á skólaárinu 1952—53.
Hefst hún á stuttri grein um hinn
fráfarandi skólastjóra skólans,
Vilhjálm Þ. Gíslason og starf hans
við skólann frá því er hann tók
við stjórn hans árið 1931. Þá er
rakin stuttlega ævi- og starfsferill
hins nýja skólastjóra, dr. Jóns
Gísiasonar. Fylgja myndir af báð-
um skólastjórunum. Síðan er rak-
in starfsemi skólans á árinu, en
þetta var hið 48, starfsár hans.
Tala nemenda í upphafi skólaárs-
ins var samtals 345. Starfað var
í 12 bekkjardeildum. í verzlunar-
deild voru 308 nemendur, en 37 í
lærdómsdeild. Kennarar við skól-
ann voru samtals 24. Þá er birt
skýrsla yfir námsefni og kennslu
og verkefni við verzlunar- og
stúdentspróf. Að lokum er grein-
argerð um félagslíf innan skólans
og frásögn af skólauppsögn í lær-
dómsdeild.
Húsmæðrafél. Reykjavíkur
minnir félagskonur á bazarinn,
sem veiður sunnudaginn 6. þ. m.
lagi Reykjavíkur, sími 1915; Tó-
baksbúðinni Boston, Laugavegi,
sími 3383; Bókaverzlun. Fróða,
Leifsgötu 4, sími 2037; Verzl.
Laugateig, Laugateig 24, sími
81666; Ólafi Jóhannssyni, Soga-
bletti 15, sími 3090 og Nesbúðinni,
Nesvegi 39. 1 Hafnarfirði í Bóka-
búð V. Long, sími 9288.
Sjálfstæðisfélögin
í Hafnarfirði
halda sameiginlegt spilakvöld í
kvöld (miðvikudagj kl. 20,30 í
Sjálfstæðishúsinu. — Spiluð verð-
ur félagsvist. — Verðlaun veitt.
Vinningar í getraununum:
, 1. vinningur 1126 kr. fyrir 11
„Harvey“, hinn vinsæli gaman- rátta (1) 2 vinningur 160 kr.
Ieikur, eftir Mary Chase, verður fyr5r 10 rétta (7) 3 vinningur 28
sýr.dur í Þjóðleikhústnu í 3. sinn
í kvöld. Hér hefur leikritið hlotið
hinar beztu viðtökur, ekki síður
en annars staðar, þar sem hann
hefur verið sýndur. Á myndinni
sjást Lárus Pálsson, sem fer með
aðalhlutyerkið, og Guðbjörg jjgiSD1 'V.U',8
Þorbjarnardóttir. ’ ’
Félagskonur, verið samtaka um
að ná settu marki! Komið mun-
unum til frú Ingu Andreasen,
Þórsgötu 21, frú Jónínu Guð-
mundsdóttur, Barónstíg 80 og í
kr. fyrir 9 rétta (36). -— 1. vinn-
ipgur: 760 (1/11, 1/10, 2/9) —
2. vinningur: 759 (2/10, 1/9),
2876, 4187 (1/10, 6/9), 4459 (1/10,
6/9), 12612 (1/10, 4/9). — 3. vinn-
ingur: 504, 693, 832, 3192, 3200,
5003, 5155, 5469 (2/9),
5898, 10964, 11010, 11357, (2/9),
11381, 12061, 12130, 13097.
Eddu-söfnunin:
Á vegum söfnunarnefndarinnar,
í Reykjavík: Svava og Hulda Ing-
varsdætur kr. 1000. N.N. (bréf
Borgartún 7, þar sem verður opið s®nf) 100. N.N. (bréf sent) 120.
frá kl. 2—7 næstkomandi föstu- Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan
dag og laugardag.
h.f. 10 000. Verzl. Herjólfur 1000.
Jakobína 100. Þóra Óskarsdóttir
i ,... , 1000. Ragnar Sigurðss. 50. Starfs-
Atthagafelag Strandamanna fólk oiíuverzlunar íslands h.f.
heldur skemmtifund í Tjarnar-, 4992. Verzlun O. Ellingsen 1000.
kaffi kl. 8,30 næstkomandi fimmtu
dagskvöld (annað kvöld).
Minningarspjöld Kvenfélags
Neskirkju
fást á eftirtöldum stöðum: Búð-
inni minni, Víðimel 35, Hirti Niel-
sen h.f., Templarasundi 3, Mýrar-
húsaskóla, verzl. Stefáns Árna-
sonar, Grímsstaðaholti, og Reyni-
völlum í Skerjafirði.
Þjóðhátíðardagur Finna
er 6. desember.
1 tilefni af því, að 36 ár eru
Skipshöfnin á Esju 1425. Starfs-
fólk Herbertsprents 780. Starfs-
menn hjá Hamiltonfélaginu, Kefia
víkurflugvelli, 12 910,40. Kvenna-
deildin „Sjöstjarnan“, Kópavogi,
900. Geirmundur h.f., Garði, 2000.
Sjómannskona, Akureyri, 500.
Margrét Ingvarsdóttir, Loðmund-
arfirði, 200.
Út varp
8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veður-
fregnir. 12,10—13,15 Hádegisút-
varp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30
Veðurfregnir. 18,00 Islenzku-
síðan Finnland hlaut stjálfstæði, kennsla; I. fl. 18,25 Veðurfregnir.
heldur Finnlandsvinafélagið Suomi 18,30 Þýzkukennsla; II. fl. 18,55
kvöldfagnað í Tjarnarcafé 6. des. Tómstundaþáttur barna og ung-
n. k. og bíður þangað öllum Finn- önga (Jón Pálsson). 19,15 Þing-
•um, sem búsettir eru hér í bænum.' fréttir. 19,30 Óperulög (plötur).
19,40 Auglýsingar. 20,00 Fréttir.
Minningarspjöld Dvalar-
heimilis
aldraðra sjómanna fást á þess-
um stöðum: Veiðarfæraverzl.
Verðandi, sími 3786; Sjómannafé-
Auglýsencður!
Þær auglýsingar, sem birtast eiga I
sunnudagsblaðinu, þurfa að hafa bor-
ist auglýsingaskrifstofunni fyrir kl.
6 á föstudag.
JptorgtttddalHÍ)
20,20 Erindi: Geðvernd á vinnu-
stöðum (Helgi Tómasson læknir).
20;45 Tónleikar: Kvartett í E-dúr
op. 125 nr. 2 eftir Schubert (Björn
Ólafsson, Josef Felzmann, Jón
Sen og Einar Vigfússon leika).
21,10 Islenzkt mál (Bjarni ViN
hjálmsson capd. mag.). 21,25 Ein-<
söngur: Conchi'ta Súpervia syngut
(plötur). 21,45 Búnaðarþáttur S
Um bændafarir (Þorsteinn Sig-<
urðsson, formaður búnaðarfélags
.Islands). 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,10 Útvarpssagan í
„Halla“ eftir Jón Trausta; IX
(Helgi Hjörvar). 22,35 Dans- og
dægurlög: Woody Herman og
hljómsveit hans leika (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
Erlendar stcðvar:
i
Darunörk: Stuttbylgjuútvarpið
er á 49,50 metrum á tímanum
17,40—21,15. — Fastir liðir: 17,45
Fréttir; 18,00 Akuelt kvarter;
21,00 Fréttir. Á sunnudögum kl.
17,45 fylg.ja íþróttafréttir á eftix*
almennum fréttum.
Noregur: Stuttbylgjuútvarp ei*
á 19 — 25 — 31 — og 48 m.
Dagskrá á virkum dögum að mestn
óslitið frá 5,45 til 22,00. Stillið að
morgni á 19 og 25 metra, um mið.f
an dag á 25 og 31 metra og á 41
og 48 m, þegar kemur fram á
kvöld. — Fastir liðir: 11,00 Frétt-
ir m.eð fiskfréttum. 17,05 Fréttir
með fréttaaukum. 21,10 Erl. út-
varpið.
Svíþjóð: Útvarpar á helztu stutt
bylgjúböndunum. Stillið t. d. á 25
m fyrri hluta dags, en á 49 m að
kvöldi. —- Fastir liðir: Kl. 11,00.
klukknahringing í ráðhústurni og
kvæði dagsins, síðan koma sænskir
söngkraftar fram með létt lög;
11,30 fréttir; 16,10 barna og ung-
lingatími; 17,00 Fréttir 0g frétta-
auki; 20,15 Fréttir.
England: General verseas Ser-
vice útvarpar á öllum helztu stutt-
bylg.iuböndum. Heyrast útsending-
ar með mismunandi styrkleika héi*
á landi, alit eftir því hvert útvarps
stöðin „beinir“ sendingum sínum.
Að jafnaði mun bezt að hlusta á
25 og 31 m bylgjulengd. — Fyrrx
hluta dags eru 19 m góðir, en þeg-
ar fer að kvölda er ágætt að
skipta yfir á 41 eða 49 m. Fastii*
liðir: 9,30 úr forsíðugreinum blað-
anna; 11,00 fréttir og fréttaum-
sagnir; 11,15 íþróttaþáttur; 13,00
fréttir; 14,00 klukknahringing Big
Ben og fréttaaukar; 16,00 fréttir
og fi-éttaumsagnir; 17,15 frétta-
aukar; 18.00 fréttir; 18,15 íþrótta-
fréttir; 20,00 fréttir; .23,00 fréttir.
Verkfall
OSLÓ — Ekkert samkomulag hef
ur náðst í farmannadeilunni í
Noregi. — Er búizt við, að verk-
fall hefjist á norska kaupskipa-
flotanum á fimmtudag.
Félag aus'tfirzkra kvenna
heldur BAZAR
í G. T. húsinu miðvikudaginn 2. desember kl. 2 e. h.
Þar verður margt góðra muna.
Komið og gerið góð kaup!
Bazarnefndin.
Sagt um Itonur:
I .... hún fer ekki í útreiðar-
túi', þótt hún fari í reiðföt ....
hún fer ekki að synda, þótt hún
fari í sundföt .... hún gerir ekkl
húsverkin, þótt hún set.ji á sig
svuntu....... en ef hún fer í
brúðarkjól, — þá ætlar hún að
láta til skarar skríða og giftir sig!
| ★
I — 'Heyrðu, elskan, sagði móðir-
in við dóttur sína, — þér finnst
ég e. t. v. vera, dálítið gamaldags,
en mér fannst þú koma voðalega
seint heim í gærkvöldi og mig
langar til þes að fá að vita hvar
þú varst.
— Auðvitað, mamma mín! Ég
borðaði kvöldverð með . .. ., ja, þú
þekkir hann ekki, — á eftir fórum
við á milli nokkurra skemmtistaða,
sem ég geri ekki ráð fyrir að þú
þekkir, og svo enduðum við á
skrí.tnum, litlum næturklúbb, sem
|ég hef gleymt hvað heitir, en hann
ier í kjallara, einhvers staðar inni
jí borginni. Er þetta þá ekki í lagi,
mamma?
í — Jú, jú, elskan! Mig langaði
aðeins til þess að vita, hvai' þú
hefðir verið.
★
Piparsveinar vita meira um
kvenfólk heldur en giftir menn.
Þess vegna eru þeir piparsveinar!
★
Maður nokkur í Bandarík.junum
stefndi konu sinni fyrir þá sök, að
hún hafði skotið þrem skotum með
skammbyssu í koddann hans. Korx
an sagðist krefjast þess af eigin-
manni sínum, að hann hlustaði á
það, sem hún hefði til þess að
segja honum, en hann hefði farið
að sofa á meðan hún var enn að
tala.....
★
Pétur. — Konan mín hefur sagt,
að hún ætli að skilja við mig, ef
ég hætti ekki að vera úti á hverju
kvöldi.
Páll. — Það var leitt að heyra.
Pétui'. — Já, ég hugsa, að ég
muni sakna hennar........
★
Einhver gamans°mur px'entari
hefur samið eftirfarandi:
Stúlkur, sem borða mikið af
gukótum og spínati, hafa svona
fætur ! !
Stúlkur, sem eru mikið á hest-
baki, hafa svona fætur ( )
Stúlkur, sem drekka sig fullar,
hafa svona fætur ) (
En stúlkur, sem hafa góða dóm-
greind, hafa svona fætur X