Morgunblaðið - 24.06.1956, Blaðsíða 16
16
MOnCUNBLAÐlT)
Sunnudagur 24.Júnf 1956.
Kjósum í dag afvinnu, freisi,
Sovéfstjórnina skarfir fraust fólksins
eftir Edward Crankshaw
f|TVÖ meginatriði ber hæst í
ásökunum Krúsjeffs á
Stalín. Hið fyrra er, að í þess-
ari ógurlega löngu ræðu var
ekki minnstu gagnrýni að
finna á Sovétskipulagið, sem
var grundvöllur Stalínisnians.
Hvcrgi er á það minnzt einu
orði, að því kunni ef til vill
að vera eitthvað ábótavant.
Ræða Krúsjeffs er í raun og
sannleika vöm fyrir Sovét-
íjóðskipulagið.
í okkar augum hlýtur þetta að
vera álcaflega alvarleg staðreynd.
Það er grátbroslegt að sjá einn
»f innstu koppunum í búri Stal-
ins svívirða manninn, sem hann
þjónaði lengi og svo dyggilega.
Dg fyrir þá okkar, sem gagn-
•ýndu Stalin meðan hann var á
ífi, er þetta viðurkenning á því
tð skoðanir okkar hafa reynzt
>éttar.
LENIN OG STALIN
Stalín erfði þetta þrautskipu-
lagða harðstjórnarkerfi frá
Lenín. Eina breytingin, sem hann
kom í framkvæmd, var að draga
tll völd í sínar hendur, en áður
höíðu þau legið hjá hinu alls-
ráðandi Æðsta ráði. Þetta skipu-
lag hefir haldizt óbreytt þrátt
lyrir dauða Stalíns, og Krúsjeff
er leiðtogi þess. Xrúsjeff hrósaði
Stalín í ræðu sinni fyrir hina ár-
•ngursríku baráttu sína við
Trotskyista og aðra villutrúar-
menn, fyrir þátt sinn í iðnbylt-
ingu Sovétríkjanna, samyrkju-
búin og menningarbyltinguna í
landinu. Hann úthúðaði honum
aðallega fyrir stjórn hans á
flokknum, fyrir framferði sitt á
styrjaldarárunum og fyrir saur-
lífi sitt. Með öðrum orðum, þá
gagnrýndi Krúsjeff ekki Stalín
fyrir að hafa kúgað rússnesku
þjóðina, heldur fyrir að hafa
verið of einráður, sem foringi
kommúnistaflokksins.
ÖBLÖG TBOTSKY
Ég er ekki frá þvi, að of mikið
veður hafi verið gert út af ræðu
Krúsjefís.
Hvað varðar okkur um það,
sem kom fyrir félaga Kossior
Rudzutak, Chubar eða Pastychev?
Alir voru þeir litlir Stalínar á
sinum dögum og dyggir fylgis-
menn þess stóra, — þar til Stalín
snérist öndverður gegn þeim og
iét skjóta þá án þess að láta sér
bregða. Miklu meir skiptir okkur
örlög Ttrotskys og Búkaríns og
annarra, sem reyndu að efla and-
stöðu gegn Stalín innan f lokksins.
Og okkur skiptir miklu máli ör-
lög allra þeirra milljóna nafn-
iausra Hússa, sem á einhvern hátt
voru Stalín Þrándur í Götu og
var rutt úr vegi fyrir þá sök
eina. Og okkur varðar einnig
miklu þúsundir Tékka og Pól-
verja, sem gengu í hina ruddu
slóð Rússanna sem á undan þeim
höfðu horfið fyrir ætternisstapa.
En þá man maður eftir því, að
Krúsjeff ávarpaði í ræðu sinn
leynifund innan kommúnista-
flokksins en ekki opinbcra sam-
komu. Svo það er ekki nema
eðlilegt, að hann hafi fyrst og
fremst gert að umtalsefni glæpi
Stalíns, sem hann framdi innan
kommúnistaflokksins. Sá var höf-
uðglæpur hans að leggja flokk-
inn í rúst, en Krúsjeff er greini-
lega einnig ljóst, að rússneska
þjóðin hefir hlotið mikil skakka-
föll undir stjórn Stalins.
Hann hóf hetjudáðir þjóðar-
innar í styrjöldinni upp til skýj-
anna, hann harmaði hina skamm-
sýnu harðstjómarmeðferð Stalins
á bændunum. Hann deildi harð-
lega á Stalín fyrir að láta flytja
nauðuga heila þjóðflokka frá
Kákasus og Krímskaganum fyrir
það að hafa átt samstarf við Þjóð
verja á styrjaldarárunum — en
Krúsjeff gleymdi að minnast á að
maðurinn sem skipulagði og fram
kvæmdi þessa búferlaflutninga
var Serov, núverandi yfirmaður
rússnesku ríkislögreglunnar.
Fyrsta höfuðatriðið í ræðu
Kúsjeffs er því það, að hann gagn
rýndi ekki þjóðskipulag komm-
únismans, og annað meginatriðið
er það, að hann varði það harka-
lega á mörgum sviðum. 'Stalín
gjörði aldrei svo. Hann sá aldrei
ástæðu til þess að verja sig eða
gerðir sínar. En Krúsjeff telur
það bæði nauðsynlegt og æski-
legt. A þessu er reginmunur. Ekki
er rétt að fullyrða að grimmdar-
æði Stalinismans hafi verið óað-
skiljanlegur þáttur Leninismans
og þannig hljóti kommúnisminn
ávallt að verða. Stalín hafði sér-
stöku hlutverki að gegna í Sovét
ríkjunum. Hans hlutverk var að
framkvæma iðnvæðingu Sovét-
l\ erlendir blaðamenn og Ijós-
myndarar fylgjast mú kosn-
ingimum hér í dag
e1;
'ins og skýrt hefur verið frá í
I fréttum hafa erlendir blaða-
menn og Ijósmyndarar komið
hingað undanfai-na daga, til þess
að verða viðstaddir aiþingiskosn-
ingarnar í dag. Bjami Guðmunds
son, blaðafulltrúi, hefur veitt
fréttamönnum mikilvæga aðstoð
og sagði hann blaðinu í gær að
»ér væri kunnugt um 21 blaða-
mann og ljósmyndara. Eru þeir
þessir: Thomas Harris frá frétta-
stofu Reuters í Lundúnum, Edw-
in Newman frá NBC, Leslie
Mann frá sjónvarpi brezka út-
varpsins, Dougle? Smhk frá
„Sound Recor^er", Hardiman
Scott frá br&cka útvarpinu, Ric-
hard Weiis frá ameríska tíma-
ritinu Time, Kurt Anderson frá
sænska útvarpinu, Nils Hallerby
Expressen, sem er Stokkhólms-
blað. Feiix Belair, New York
Times, Llewellyn Chanter frá
Lundúnablaðinu Daily Tele-
graph, Thomas Reedy frá amer-
ísku fréttastofunni Associated
Press, Jörgen Schleimann, Berl-
ingske Tidende í Kaupmannah.,
George Petersen frá blaðinu
Minneapolis Star, ungfrú Dobie
frá tímaritinu Life. Patrick Catl-
ing frá blaðinu Baltimore Sun,
Wamer frá blaðinu New Herald
Tribune, Albert Meyers frá tíma
ritinu U.S. News & World Report,
Mark Forster frá brezka blaðinu
Manchester Guardian, John Pet-
ers Ijósmyndari frá NBC og ann-
ar ljósmyndari til viðbótar er frá
vikuritinu Life og heitir sá Brian
Seed, loks er svo danskur ljós-
myndari frá fréttamyndadeild
„News of the day“ Neesman að
nafni.
Þessi mynd er tekin af blaða-
mönnunum á fundi í Stjérnarráð-
inu. (Ljósm. Mbl.)
Um sorpvísnr Frnmsóknor-
monna ó
IBLAÐI Hræðslubandalagsins „Borgfirðingi" eru vísur, sem blað-
ið segir að hafi „fundist á gotunni fyrir utan kosningaskrif-
stofu stuðningsmanna Benedikts Gröndal“. Hláleg virðing finnst
okkur Akurnesingum þeim „Bandalagsmönnum" sýnd, þegar efni
blaðs þeirra er kastað fyrir dyr þeirra, eins og þegar beini er
fleygt fyrir hund, og þeir rislágir sem hirða.
Hræðslufylking hlýtur virðing míkla
fleygt er snepli í farar sund
í fullu trausti á Gröndals lund.
Og kempan unga kann að meta traustið
á fótum f jórum að leit í svaði
finnur leppinn á eigin hlaði.
Borgfirðingar bera óþrifnað á hauginn
við þekkjum mannin með tungur ívær.
Á trumbu Framsóknar kratinn slær.
ríkjanna miskunnarlaust og hvað
sem hún kostaði. Það var verk,
sem aðeins var unnt að vinna
af manni, sem hafði til að bera
einstakt miskunarleysi og hárð-
ýðgi, því slíkt þurfti til, ef vinna
átti bug á sofandahætti og am-
lóðaskap “þeim, sem ávallt hefir
einkennt rússneska alþýðu.
BETBA LÍF FBAMUNDAN?
En þessir tímar eru liðnh-. Tím
ar þrælavinnunnar eru gengnir.
Ef Sovétríkin eiga að þróast og
dafna verður stjórnin að njóta
trausts fólksins og gáfur og véla-
aflið verða að koma i staðinn
fyrir þrælsóttann og sinabera
hnúa.
Þessi þróun er vel framkvæm-
anleg í Sovétrikjunum — að
vissu marki, að minnsta kosti.
Það má vera að ástæðan til þess
að Krúsjeff ver skipulagið og
ásakar Stalín um að hafa gert
tilraun til þess að grafa undan
rótum kommúnismans sé aðeins
sú, að hann hafi orðið að hleypa
gagnrýninni í einhvern farveg og
kosið að gera Stalín að synda-
selnum.
En það má líka vera, að það
sé heilsteypt markmið Krúsjeffs
að veita Sovétþjóðunum nýtt og
farsælla líf, þótt kommúnisminn
og hann sjálfur sitji áfram að
ríkjum. Um það vitum við ekki.
Og það skiptir heldur ekki
neinu meginmáli. Höfuðatriðið
er, að margir glæpir hafa verið
játaðir og fordæmdir af Rússum
sjálfum.
Þetta er geysileg breyting til
batnaðar. Aðeins þeir, sem halda
því fram að hálfur skaði sé betri
en enginn geta á móti því mælt.
Því hvað á bak við gjörð-
ir Krúsjeffs liggur skiptir ekki
svg miklu máli, heldur gjörðirn-
ar sjálfar og framkvæmdir hans.
Eayptar kusu
forseta í gær
iNasser einn í framboði
KAIRO, 23. júní — Kosningar eru í Egyptalandi í dag í fyrsta sinn
síðan Farúk konungur hrökklaðirt ' ' - "’íum fyrir nær fjórum
árum. Um það er kosið í kosning; n, hvort Nasser höfuðs-
maður, verði fyrsti forseti Egyptalands, en hann er eini fram-
bjóðandinn.
NÝ STJÓRNABSKBÁ
Jafnframt er kosið um hvort
stjórnarskrá sú sem boðuð var
um áramótin í vetur skuli taka
gildi.
Meir en fimm milljón kjósend-
ur eru á kjörskrá, þar á meðal í
fyrsta sinn allar konur landsins
og herinn. Allir karlmenn eru
skyldir að lögum til að greiða
atkvæði
ÓLÆSIB
Þar sem þrír fjórðu hlutar íbú-
anna geta hvorki lesið eða skrifað
hefur verið komið upp sérstöku
táknmáli, sem þeir notast við við
kosningarnar. Snemma í morgun
hófu kjósendur að streyma á kjör-
staðina sumir komu ríðandi á ösn-
um, úlföldum eða gangandi. —
Nasser kaus á kjörstað í nánd við
heimili sitt.
RæSa Matfliíasar
Framh. af bls. 9
Emil Jónsson frá tómum bæjar-
kassanum og hinum landsfrægu
gulu seðlum sínum, í hálaunað
embætti og vel greidd nefndar-
störf.
Þjóðnýtingar og þrældóms-
stefna sú, sem Alþýðuflokkurinn
boðar, á ekki við skap og dugnað
íslenzku þjóðarinnar. Þess vegna
mun æska landsins hafa forystu
um það á sunnudaginn kemur að
firra þjóðína þcirri ógæfu, að
íslandi verði stjórnað af þeim
Hræðslubandalagsmönnum.
SjálfstæÖisflokkuriim boðar
íslenzku þjóðinni heilörigða
og jákvæða stefnu. Hann bend
ir á þann vaxtarbrodd, sem
fólginn er með hinni íslcnzku
þjóð og bendir cnnfremur á,
aff fái hver einstaklingur aff
njóta sin sem bezt, verður þaff
þjóðinni í hcild tii mestrar
liagsældar og blessunar.
Aukin atvinna, frelsi og
framtak er meginkjarninn í
stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Okkur Ilafnfiröingum er ekki
hvaff sízt nauðsyn á því, aff
sú stefna verffi ráðandi í ís-
íenzku þjóffUfi, til þess að
awka athafnalífiff og bæta skil
yrffi átvinnuveganna, bæjar-
búum tU hagsælðar um ókom-
in ár.
Þaff verffur ekki fram hjá
því géngiff, aff sá frambjóff-
andanna, sem bezt þekkir
hafnfirzkt atvirsnulíf, ev ein-
mitt frambjóðandi Sjáifsíæffis
flokksins, Ingólfur Flygenring.
Okkur æskurtiönnum hér í
Hafnarfirði er það Ijóst, að fyrir
málefnum okkar verður ekki
barizt af frambjóðanda kommún-
ista eða þeim manni, sem áfjáð-
astur hefir verið í samvinnu viff
þá hér i hæ, Emil Jónssyni.
Emil Jónsson var eitt sinn i
senn bæjarfulltrúi í Hafnarfirði,
bæjarráðsmaður, þingmaður kjör
dæmisins og ráðherra í ríkis-
stjórn á íslandi, og hafði þar af
leiðandi aðstöðu til þess að
vinna að málefnum hafnfirzkrar
æsku, en lét það gjörsamlega und
ir höfuð leggjast.
Emil Jónsson hefir gleymt
hafnfirzkri æsku, og hafnfirzk
æska hefir gleymt Emil Jónssyni.
Góðir áheyrendur. Á sunnudag
inn kemur göngum við að kjör-
borðinu.
f síðustu Alþingiskosningum
höfðum við æskumenn þessa bæj
ar forustu um að tryggja Ingólfi
Flygenring glæsilegan kosninga-
sigur. Við vissum að málefnum
okkar er bezt borgið í hans hönd-
um, og sú hefir raunin orðið á.
Við muaum enn á ný fylkja okk-
ur um Ingólf Flygenring á sunnu
daginn kemur, og gera sigur hans
stórglæsilegan.
Við kjósum öll atvinnu, frelsi,
framtak, við kjósum Ingólf