Morgunblaðið - 21.11.1956, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.11.1956, Qupperneq 1
20 síður Púðurtunnan — Súez-skurðurinn Ras *'e/Ech-V% fort' FtTineh TiNFhf Faramafi j KAFIE * JfftUSALZll LE CAP íœhtKra TanisSan Ballah-S- Sa/ihiefi EiFerdane ^F/G/sr ISMAtUASá Tifnsah-S- Tassun Serapeum Bitíer-S. Geneffeh Arsinoe \/*(Ruin) KALOW FfAýeruf !A£>AM Íbrahim HÉR birtist skýr uppdráttur af hinu mikla þrætuepli, Súez- skurðinum, sem samtímis er líflína Breta og bluti af Egypta- landi. Skurðurinn er um 160 km langur, grafinn á seinnihluta 19. aldar gegnum Sinai-eyðimörkina. Síðan hefur nokkur byggð risið umhverfis skurðinn, einkum þó hafnarborgirnar Port Said við norðurenda hans og Súez við suðurendann. I ágústmánuði s.l. tók Nasser einræðisherra Egyptalands skyndi- lega þá ákvörðun að þjóðnýta Súez-skurðinn. Líkaði vestræn- um þjóðuin þær aðgerðir mjög miður og þar kom að lokum eftir mikið þref á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, að tsraelsmenn hófu sókn yfir Sinai-eyðimörkina, Bretar notuðu þá tækifærið og skipuðu liði á land við Port Said. Ekki náðu þeir þó öllum skurð- inum á sitt vald, heldur aðeins á svæðinu frá Port Said og suður fyrir Kantara. Nú hefur vopnahlé verið samið og löggæzluliði á vegum Sam- einuðu þjóðanna er fiogið til fiugvallarins við Ismailia við miðj- an skurðinn. Eitt stærsta verkefnið, sem liggur fyrir er að hreinsa úr skurðinum um 30 skip, sem Egyptar hafa sökkt í honum á víð og dreif. S. Þ. ræSa naiiSmigarflutninga Rássa frá Ungverjalandi NEW YORK, 20. nóv.: — f dag hófust umræöur á Allsherjar- þinginu um tvær ályktunartii- lögur sem fyrir þinginu liggia, Er önnur á þá leið að Rússar hætti nauðungarflutningum frá Ungverjalandi, en í hinni er þess kraflzt að rannsóknar- nefnd frá SÞ. fái að fara til Ungverjalands í því skyni að athuga ástandið í landinu og fylgjast með því, hvort Rússar balda áfram að flytja fólk nauðugt á brott úr landinu. Ungverskir verkamenn eru enn í verkfalli Gerhardscn svartsýnn ÓSLÓ, 20. nóv. —Gerhard- sen, forsætisráðherra Norð- manna, skýrði frá því í dag að Norðmenn hefðu gert ráðstafanir til þess að flytja ríkisstjórn Norðmanna og herstjórn frá Ósló, ef til heimstyrjaldar dragi og ráð- izt yrði inn í Noreg. Ráðherrann skýrði einnig frá því að norska stjórnin hafi hætt við að skera niður fjár- framlög til hervarna. Sagði hann að ekki kæmi til mála að veikja varnir Noregs á meðan slík hætta væri á styrjöld sem nú er. Táto segir Staiinist- anna ráða LONDON, 16. nóv. — Búdapest- útvarpið birti í dag ræðu, sem Tito mun hafa flutt fyrir nokkr- um dögum. Kveður Tito vald- hafana í Kreml vera seka um harmleikinn í Ungverjalandi. Þar hafi Stalinistar ver'ið að verki, menn, sem ætluðu að þröngva stjórnarstefnu sinni upp á aðrar þjóðir. Ungverska þjóðin hafi risið sem einn gegn rússneska hernum og rússneskum yfirráð- um. Þar hafi ekki verið um að ræða neina gagnbyltingarsinna. Það hafi verið réttlætanleg uppreisn. Tito kvað það axar- skapt að blanda rússneska hern- um inn í Ungverjalandsmálin, því að árangurinn hefði orðið —■ ekki einungis uppreisn gegn Rússum — lieldur og gegn sósíal- ismanum. Ný stjórn BSRB í GÆRKVÖLDI fór fram stjóm- arkjör á þingi BSRB. Ólafur Bjömsson, sem verið hefir for- maður bandalagsins um langt skeið, baðst eindregið undan endurkosningu. Ólafi voru sér- staklega þökkuð störf hans í þágu samtakanna, bæði af sam- starfsmönnum hans í stjórn og þingfulltrúunum. Arngrímur Kristjánsson varaformaður baðst einnig undan endurkosningu. Formaður var kjörinn Sigurður Ingimundarson kenn- ari, varaformaður Baldur Möll- er lögfr. Aðrir í stjóm voru kjörnir: Júlíus Bjömsson um- sjónarmaður, Andrés Þormar að- algjaldkeri, Magnús Eggertsson varðstjóri, Kristján Gunnarsson yfirkeimari, Eyjólfur Jónsson lögfr., Guðjón Gunnarsson bæj- argjaldkeri og Aðalsteinn. Hall- dórsson tollvörður. Yfir 50 þíiSc Ungverjar hafa flúið land VÍNARBORG, 20. nóv. í LITIÐ er að um 50 þúsund ílóttamenn hafi nú flúið frá Ungverjalandi, flestir til Austurríkis. Þá berast fregnir frá Ungverjalandi um að allur iðnaður landsins að heitið geti sé enn lamaður vegna v^rkfalla. Hafa verkamenn ekki enn viljað snúa til vinnu sinnar — og þeir sem komið hafa á vinnustað hafa vart unnið handtak þrátt fyrir það að rússneskir hermenn standa yfir þeim með alvæpni. Eden rúmfastur LUNDÚNUM, 20. nóv.: — Butler var í forsæti á ráðuneytisfundi brezku stjórnarinnar í dag. Ástæð an er sú að Eden er lagstur í rúmið vegna ofþreytu. Réðu læknar forsætisráðherrans hon- um að taka sér hvíld frá störfum vegna þess að hann mun hafa of- reynt sig með mikilli viimu og sí- felldum vökum á meðan stóð á hernaðaraðgerðum Breta gegn Egyptum — Óvíst er ennþá, hve lengi Eden verður frá vinnu, en næstu daga mun hann ekki ann- ast aðrar embættisgerðir en þær að skrifa undir mikilvæg skjöl. KOMST HANN UNDAN? Frétzt hefir að Lazsle Toth fyrrum yfirmaður ungverska hersins og landvarnaráðherra i síðustu stjórn Nagy hafi sézt meðal flóttamanna sem leitaS hafa hæiis í Austurríki. Sagt er að Vetur konungur sé að ganga í garð í Ungverjalandi, og geta menn ímyndað sér, hve illa fólk þar austur frá er undir hann búið. U TÍL VINNU í BÚDAPEST Kommúnistablaðið í Búdapest, Sabad Nép, seg- ir í dag að ungverska rík- ið verði gjaldþrota, ef verkföllum vea-ði ekki hætt nú þegar. í fréttum frá Vínarborg í kvöld segir að aðeins % hluti verka- manna í Búdapest hafi haldið til vinnu sinnar í morgun. Nasser vill hvorki herlið frá Kanada né Nýja Sjálandi För norska berliðsins inn í Porl Saíd frestað NEW YORK, 20. nóv.: DANDARÍSKA stórblaðið New York Times segist hafa " það eftir Hammarskjöld aðalritara Samcinuðu þjóð- anna, að Nasser neiti herliði frá Nýja Sjálandi og Kanada um dvalarleyfi í Egyptalandi. Eins og kunnugt er, buðust stjómir þessara tveggja landa til að senda gæzlulið á vegum S.Þ. til Egyptalands. Gert er ráð fyrir að þangað verði sendir 6000 hermenn og er nú samkvæmt upplýs- ingum bandaríska blaðsins verið að athuga möguleika á að fá herlið sem hlaupið geti í skarðið fyrir Kanadamennina og Ný- Sjálendingana. Þá segir New York Times enn- fremur að gert sé ráð fyrir því LUNDÚNUM, 20. nóv.: — Ut- anríkisráðherra Bretlands, Seiwyn Lloyd, hefir tilkynnt, að brezkar og franskar her- sveitir verði kallaðar heim frá Egyptalandi um leið og gæzlu lið Sameinuðu þjóðanna er reiðubúið að taka að sér gæzlu störf við Súezskurðinn og á landamærum ísraels og Egyptalands. að Egyptar sjái um að hreinsa Súezskurð að % hlutum, en Bret- ar að % hluta. Verður starf þetta unnið í samráði við gæzlulið S.Þ. FÖR FRESTAÐ Á morgun átti norska her- liðið sem komið er til Egypta- lands, að fara inn í Port Said, en för þess er frestað. — Lið þetta, sem m. a. er vopnað handvélbyssum, á að leysa úr öllum deilumálum milli Breta og Egypta í borginnL Engin olía um Sýrland nema... LUNDÚNUM,* 20. nóv. — Sýrlenzka stjórnin lýsti því yfir í dag að hún mundi ekki Ieyfa að olíu yrði dælt um leiðslurnar til Líbanonstrand- ar fyrr en Bretar og Frakkar hafa farið með her sinn á brott úr Egyptalandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.